Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÝSKA hljómsveitin Kraftwerk er
fræg fyrir sína tæknidýrkun og marg-
ir hafa túlkað tónlist hljómsveitarinn-
ar sem rómantískan átrúnað á
framþróun vísindanna, tækninnar,
sem enda muni með því að maður og
vél renni saman. Að mínu viti er þetta
þó röng túlkun, tónlist og textar
Kraftwerk er fyrst og fremst hylling
mannsins, hylling hins mannlega og
þess sem af mannlegu atgervi hefur
sprottið. Það er frekar að þeir Kraft-
werk-liðar séu að vara við of mikilli
bjartsýni, og mikilli trú á að tækni-
framfarir einar eigi eftir að færa
mönnum betra líf eða hvernig á ann-
ars að skilja lög eins og Sellafield 2
eða Autobahn?
Kraftwerk-liðar voru í fararbroddi
á sínum tíma í að virkja tæknina, af
þýskri nákvæmni og þýsku hyggjuviti
– vélvæðing spilamennsku gefur
hugsuninni frjálsan tauminn, ef ekki
þarf að eyða allri orku í að spila hratt
og nákvæmt er meira aflögu til að
skapa. Þannig treysta þeir á manns-
höndina, hendur spila á tónleikum
Kraftwerk, það er ekki verið að spila
af bandi. Í Kaplakrikanum fór heldur
ekki á milli mála að þeir félagar voru
að spila tónlist, ekki bara að leika af
bandi, því víða mátti heyra tilbrigði og
tilraunir í lögunum. Sumstaðar urðu
millikaflar full-langir og full-furðuleg-
ir en í öðrum lögum hefðu þeir mátt
vera lengri.
Hljómur í öllum lögunum var fram-
úrskarandi, tær og góður, og greini-
legt að þeir félagar hafa lagt nótt við
dag í Kling Klang við að endurgera
hljóðin.
Sviðsumbúnaður var einkar
smekklegur, einfaldur og markviss,
eiginlega ekkert nema ljós og eitt
myndtjald, en þetta var ekkert venju-
legt myndtjald því grafíkin og mynd-
skreytingarnar sem fylgdu hverju
lagi var ævintýraleg í meira lagi.
Dæmi um það var hinn ljúfsári tregi
sem fylgdi laginu Das Modell, þar
sem svart-hvít myndskeið af fegurð-
ardísum fyrri tíma undirstrikuðu
hverfulleika fegurðarinnar. Í Radio-
aktiv undirstrikaði mjög einföld graf-
ík og sterkir litir óhugnaðinn sem bjó
í textanum. Autobahn var vel mynd-
skreytt með gömlum auglýsinga-
myndum sem lofsungu hraðbrautina
en í fjarska var reykjarkóf verk-
smiðjuhverfanna. Loks má nefna
Vitamin, sem var snilldarvel gerð
grafík sem leiddi hugann að pillunum
sem halda í okkur lífinu, nauðsynleg-
ar en um leið þvingandi.
Sviðsframkoma þeirra félaga var
svo rúsínan í pylsuendanum, því hún
var engin (sem er vitanlega sviðs-
framkoma útaf fyrir sig). Minnsta
hreyfingin var hjá Florian Schneider,
hann stóð svo grafkyrr fyrsta klukku-
tímann að mann tók að renna í grun
um að þar væri eitt vélmennið komið.
Alls lék hljómsveitin í um tvo tíma,
um tuttugu lög taldist mér, og öll þau
helstu: Pocket Calculator, The
Robots, Das Modell, Tour De France,
Vitamin, Computer World, Radio-
activity, Autobahn, Die Mensch-
Maschine og Trans-Europa Express
svo dæmi séu tekin. Hún lét sér ekki
nægja að taka eitt uppklapp heldur
urðu þau þrjú, þó róbótar hafi tekið að
sér að troða upp eitt uppklappið.
Kraftwerk er hljómsveit vel við ald-
ur, stofnuð fyrir rúmum þremur ára-
tugum, en seint verður því haldið
fram að hún sé gamaldags. Þannig
hljómuðu mörg laganna jafn fram-
and- og furðuleg í Kaplakrikanum og
á sínum tíma og nýju lögin eru ekki
síðri, til að mynda Vitamin af nýju
plötunni sem er eitt það besta sem
Kratfwerk hefur gert.
Ástæða er til að þakka tónleika-
höldurum sérstaklega fyrir það þjóð-
þrifaverk að fá Kraftwerk hingað til
lands. Bíð spenntur eftir Pixies.
Hylling hins mannlega
Tónleikar þýsku raftónlistarsveitarinnar
Kraftwerk í Kaplakrika. Áhorfendur um
2.500. Haldið sl. miðvikudag 5. maí.
Morgunblaðið/Sverrir
Árni Matthíasson
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.12 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 10 og 12.
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatrið
i, geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær
gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd
sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda
IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í
höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Fyrst
a
stórm
ynd
suma
rsins
.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
SV. MBLVE. DV
Tær snilld.
Skonrokk.
Stranglega bönnuð
innan 16 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3, 6, 8,9.15,10.30 og 12 á miðnætti. (POWERSÝNINGAR 10.30 og 12 á miðnætti.)
POWERSÝNINGAR
kl. 10.30 og 12
á miðnætti.
I
l. .
i i.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda
IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í
höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. Sýnd kl. 8.
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatriði,
geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
i ,
l l i i,
j i
i
l
i ll
l i
Sýnd kl. 5.45, 8.10 og 10.20.
Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ Sýnd kl. 5.30. B.i. 12.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
Það eru 4 leiðir inn í Drekafjöll,
en það er ekki allt sem sýnist!
Frábær fjölskyldu og
ævintýramynd
Með
íslen
sku
tali
Sýnd kl. 6. Með ísl tali
Valin besta breska myndin á
BAFTA verÐlaunahátíÐinni
Það er óralangt
síðan ég sá jafn
skelfilega
grípandi mynd.
Án efa ein
besta myndin í
bíó í dag.
KD, Fréttablaðið
SKONROKK
HJ MBL J.H.H
Kvikmyndir.com
„Þetta er
stórkostlegt
meistaraverk“
ÓÖH, DV
Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd
byggð á sannri sögu!
Kvikmyndir.is
Mögnuð mynd byggð á sönnum arburðum.
Með Orlando Bloom (Lord of the Rings, Pirates of the
Caribbean), Heath Ledger (A Knight’s Tale), Naomi Watts
(The Ring), og Óskarsverðlaunahafinn Geoffrey Rush (Shine).
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Frum
sýnd
samt
ímis
um a
llan h
eim
í dag
7. m
aí.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda
IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing
á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
www.hm.is • Sími 5 88 44 22
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ
Strandarpils/
slæða
1.563,-
Bikini
2.377,-