Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 32
LISTIR 32 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Laugavegi 32 sími 561 0075 ur þeirra og beitt aðferðum „einsög- unnar“, sem svo er stundum nefnd. Hafa þær rannsóknir verið einn helsti vaxtarbroddurinn í íslenskum félagssögu rannsóknum á síðustu ár- um. Þetta rit er afrakstur rannsókn- arverkefnis, sem stóð um sex ára skeið, frá 1997-2003, og tók til þátta í íslenskri alþýðumenningu, sem kenna má við rit og bókarmennt, menntun alþýðufólks og félagshreyf- ingar. Bókin skiptist í fjóra hluta og ber hinn fyrsti yfirskriftina „Prentað mál og handskrifað“, annar nefnist stutt og laggott „Alþýðumenntun“, hinn þriðji „Viðtökur og nýting lestr- arefnis“ og hinn fjórði „Hugmynda- heimur og félagsleg vakning“. Hver bókarhluti samanstendur af tveimur eða fleiri ritgerðum um af- mörkuð rannsóknarefni og lúta þau öll með einum eða öðrum hætti að menntun alþýðufólks, framleiðslu og útgáfu lesefnis, ýmist á vegum al- þýðu eða fyrir hana. Ritstjórarnir rita og rækilegan inngang og eftir- RANNSÓKNIR á alþýðumenn- ingu hvers konar, þ.e.a.s. menningu annarra stétta en yfirstéttarinnar og þeirra, sem kölluðust lærðir eða skólagengnir, hafa verið vinsælt við- fangsefni fræðimanna víða um heim á undanförnum árum og áratugum. Íslenskir fræðimenn eru engin und- antekning í þessu efni og hér á landi hafa komið út ágæt rit, sem fjalla um menningu alþýðufólks frá ýmsum sjónarhornum, ekki síst verkmenn- ingu, ritmenningu bænda og annars alþýðufólks og heimildir um daglegt líf. Þar er víða rýnt í heimildir er snerta einstaklinga og daglegt amst- mála og kemur fram í inngangi, að markmiðið með rannsóknarverkefn- inu var að „skýra hin djúptæku áhrif sem vaxandi alþýðumenntun, form- leg og óformleg, samfara stóraukinni miðlun í rituðu og prentuðu máli, hafði á hugmyndaheim, félagslega þátttöku félagslega vitund almenn- ings á Íslandi 1830–1930“. Þegar á heildina er litið virðist mér að rannsóknin hafi náð þessu meginmarkmiði. Ritgerðirnar í bók- inni eru alls tíu, auk inngangs og eft- irmála, og höfundar samtals sjö. Þeir byggja allir ræðu sína á rækilegri rannsókn heimilda og allir hafa þeir margt fram að færa, sem góður feng- ur er að. Hér gefst þess enginn kostur að fjalla um hverja einstaka ritgerð, en þær eru allar vel skrifaðar og flestar fróðlegar. Er ekki að efa, að fræði- menn og aðrir, sem áhuga hafa á við- fangsefninu, munu taka þessari bók fagnandi og geta margt í hana sótt. Hitt er svo aftur þversögn, að hætt er við því að hinum svokallað al- menna lesanda, „alþýðunni“, muni þykja efni ritsins býsna hart undir tönn. Íslensk alþýðumenning okkar daga er um flest ólík þeirri, sem um er fjallað á þessari bók, og þau menningar- og menntunartæki sem um er fjallað í ritgerðunum munu margir kalla úrelt nú á dögum. Er þar að finna verðugt rannsóknarefni fyrir fræðimenn með áhuga á al- þýðumenningu. Að öllu samanlögðu hygg ég að góður fengur sé að þessu riti. Hinu er þó ekki að neita, að það vakti nokkra furðu mína að lítið sem ekki er fjallað um eða vísað til rannsókna þeirra sagnfræðinga sem á síðustu árum hafa nálgast rannsóknir á ís- lenskri alþýðumenningu út frá sjón- arhorni „einsögunnar“, sem áður var getið. Þær rannsóknir eru þó á margan hátt hinar merkustu og hafa hleypt nýju lífi í athuganir á íslenskri menningar- og félagssögu. Til þeirra hljóta aðstandendur þessarar bókar að þekkja. Fróðlegt ritgerðasafn BÆKUR Sagnfræði Ritað mál, menntun og félagshreyfingar. Ritstjórar Ingi Sigurðsson og Loftur Gutt- ormsson. Sagnfræðirannsóknir. Studia Historica 18. bindi. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík 2003. 351 bls., myndir. ALÞÝÐUMENNING Á ÍSLANDI 1830–1930 Jón Þ. Þór Dagskráin í dag er eftirfarandi: Kl. 10 og 13 Bókasafn Kópavogs Selurinn Snorri – ævintýri í máli og mynd- um um dýrin í sjónum fyrir börn á leik- skólaaldri. Myndasýning, sögustund og skroppið á hvalbak. Þátttaka tilkynnist í síma: 570 0430. Leikskólar bæjarins: Opið hús og dag- skrá í tilefni Kópavogsdaga: Leikskólinn Efstihjalli kl. 15: Sýning á verkum barnanna. Leikskólinn Álfaheiði: Danssýn- ing fyrir hádegi. Leikskólinn Marbakki: Sýn- ing á verkum barnanna. Leikskólinn Grænatún kl. 15.30: Útihátíð í garðinum með skemmtiatriðum. Sýning á verkum barnanna. Kl. 15 Lindasafn Krakkar leika á flautur og önnur hljóðfæri. Þátttakendur í Stóru upplestrarkeppninni 2004 lesa fyrir börn- in. Kl. 20.30 Gjábakki Félagsvist á vegum eldri borgara. 2.– 11. maí Kópavogsdagar Ljósmyndasafn Reykjavíkur Sýningu á ljósmyndum Leifs Þor- steinssonar, Fólk og borg, lýkur á sunnudag. Á sýningunni eru svart/ hvítar ljósmyndir teknar á um 40 ára tímabili, frá 1963 allt til dagsins í dag. Hafnarborg Tveimur sýningum lýkur í Hafn- arborg á mánudag. Ljósmyndasýn- ingu Rafns Hafnfjörðs og málverka- sýningu Bjargar Atla. Opið alla daga, nema þriðjudaga, kl. 11–17. Sýning framlengd Málverkasýning Guðmundar Björgvinssonar í Seli Gallerís Reykjavíkur, Skólavörðustíg 16 er framlengd til 8. maí. Á sýningunni eru 12 nýleg akrílmálverk og er við- fangsefnið mannskepnan. Sýningum lýkur SÍÐUSTU sýningar á verki Eugene O’Neill, Sorgin klæðir Elektru, verða annað kvöld og sunnudags- kvöld, kl. 19. Um er að ræða nú- tímaharmleik, innblásinn af Óresteiu, þríleik forngríska skálds- ins Æskílosar. Eldheitar ástríður og þrár, brennandi afbrýðisemi og blóðugar hefndir. Í aðalhlutverkum eru Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Guðrún Gísladóttir, Ingvar E. Sigurðsson sem nú leikur aftur í Þjóðleikhúsinu eftir nokkurt hlé og Rúnar Freyr Gíslason. Með önnur hlutverk fara Nanna Kristín Magnúsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson/Ívar Örn Sverrisson og Hjalti Rögnvaldsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Harmleikur af sviðinu KLEINUR, hið góða íslenska kaffi- brauð, geta haft undarlegustu áhrif á örlög fólks. Að minnsta kosti á ör- lög Sigga, aðalsöguhetjunnar í sam- nefndu leikverki Þórunnar Guð- mundsdóttur sem Hugleikur frumsýnir í Kaffileikhúsinu í kvöld. Leikritið Kleinur sýnir svipmyndir úr ævi Sigga, þar sem hann lendir í ýmsum uppákomum í tengslum við bakkelsið. „Kleinur koma ítrekað við sögu í gegnum allt hans lífshlaup,“ segir leikskáldið, Þórunn Guðmunds- dóttir, eða dr. Tóta eins og margir leikfélaga hennar í Hugleik kalla hana. Þórunn hefur nefnilega dokt- orsgráðu í söng og kennir við fjóra tónlistarskóla á höfuðborgarsvæð- inu, en fæst meðfram því við leik- ritaskrif. Áður hefur hún meðal annars skrifað söngleikinn Kol- rössu, sem Hugleikur sýndi við miklar vinsældir í Tjarnarbíói fyrir tveimur árum síðan. Kleinurnar undu hins vegar upp á sig, í óbeinum skilningi. „Leikritið er í fimm þáttum og sá fyrsti er skrifaður fyrir nokkrum árum. Ann- an þáttinn skrifaði ég aðeins seinna og þá fór persónan Siggi og hans umhverfi og fjölskyldulíf að taka á sig skýrari mynd. Þá fór ég að fá spurningar um þennan mann, hvernig tilhugalífið hafi verið hjá honum og konunni hans, og hvernig æska hans hafi verið. Ég var því hálfpartinn að svara eftirspurn með því að skrifa fleiri þætti um þennan mann og upplýsa fólk um þessa sér- kennilegu en vonandi áhugaverðu persónu.“ Siggi er leikinn af Sævari Sig- urgeirssyni, en önnur hlutverk eru í höndum annara Hugleikara. Leik- stjóri er Þorgeir Tryggvason. „Leikritið gerist frá því að Siggi er fjörgamall maður og þar til hann er kornabarn og gerist í þessari röð. Við byrjum þar sem hann er rígfull- orðinn og fikrum okkur aftur þar til hann er bara nokkurra daga gamall. Jafnvel þá hafa kleinurnar líka áhrif á hann og hans líf.“ Þegar Þórunn er spurð hvort Siggi sé til í raun og veru, segist hún vona ekki. „Ég hef samt rekist á fólk sem býr yfir ýmsum þáttum sem finna má í fari hans, en kannski ekki öllum í einu – ég held að það gæti verið dálítið yfirþyrmandi að rekast á svoleiðis manneskju,“ segir Þórunn og hlær. „Hann er bæði um- hverfisblindur og niðurstöðugjarn – getur sem sagt verið svolítið erf- iður, þó að meiningin sé alltaf góð hjá honum.“ Sýningar á Kleinum verða fjórar. Þær verða í kvöld, annað kvöld og sunnudagskvöld, og lokasýning sunnudaginn 16. maí. Sýningar hefj- ast kl. 20 í Kaffileikhúsinu. Kleinur sem undu upp á sig Siggi og konan hans, Gunna, ræða saman – kannski um kleinur. Sævar Sig- urgeirsson og Hulda B. Hákonardóttir í hlutverkum sínum. ingamaria@mbl.is Í FÉLAGSHEIMILINU Klifi í Ólafsvík verður dagskrá tileinkuð Jóhanni Jónssyni skáldi frá Ólafs- vík. Dagskráin hefst kl. 15 á morg- un, laugardag, og er yfirskriftin ,,Gráttu ekki góða mamma“. Verk og lífshlaup skáldsins verða kynnt í tali og tónum. Erindi flytja Egill Þórðarson frá Ólafsvík, Eysteinn Þorvaldsson prófessor og Óskar Guðmundsson rithöfundur. Veron- ica Osterhammer mezzosópran og Örn Magnússon píanóleikari flytja lög eftir Jón Leifs við ljóð Jóhanns. Örn hefur m.a. flutt og gefið út tón- list Jóns Leifs. Yfirskriftin að kynningardag- skránni er tekin úr einu ljóða Jó- hanns sem hann orti á barnsaldri eftir lát yngri systur. Vísan hefur verið sungin fyrir börn í Ólafsvík í gegnum tíðina. Að sögn Elínar Unu Jónsdóttur, safnavarðar, muna Óls- arar enn eftir Steinunni móður hans, gamalli konu sem bar snjáð sendibréf frá syni sínum innan á brjóstinu. Minningin um Jóhann og örlög hans hefur lifað í heimabæn- um alla öldina og fram á þennan dag. Aðalsteina Sumarliðadóttir, húsfreyja í Ólafsvík, hefur safnað og varðveitt fróðleik um skáldið um árabil sem hún kemur nú á fram- færi. Jóhann lét ekki eftir sig mörg fullunnin ljóð en helgaði líf sitt samt sem áður ritlistinni og rit- störfum. Hann hafði afburða frá- sagnarhæfileika og stóð metnaður hans aðallega til að skrifa skáld- sögur. Sögurnar komust að vísu ekki á blað en hann samdi margt og sagði vinum sínum. Töluverðar heimildir hafa varðveist um líf Jóhanns og verk því hann var öflugur bréfritari og skrifaðist reglulega á við marga, m.a. Jón Leifs, Kristin E. Andrésson, Gunn- ar Gunnarsson, Friðrik Friðriksson og Arnfinn Jónsson. Jóhann Jónsson var fæddur að Staðarstað á Snæfellsnesi 1896 en ólst upp í Ólafsvík. Hann barðist við berkla lungann úr ævinni sem var stutt og einmanaleg og lauk fjarri ættlandinu, í Leipzig árið 1932. Jó- hann dó því aðeins 35 ára gamall ,,frá sál sinni ófullkveðinni, æfi sinni hálfnaðri og verkum sínum mikils til óskrifuðum“ eins og Kristinn E. Andrésson komst að orði forðum. Þeir sem þekktu Jóhann á barns- aldri sögðu hann óvenju skynugan og skáldmæltan dreng. Ólsarar minnast Jóhanns Jóns- sonar skálds Jóhann Jónsson NEMENDUR úr söngdeild Tónlist- arskóla Borgarfjarðar flytja atriði úr óperunni Hans og Grétu kl. 20 í sal skólans, Borgarbraut 23, í kvöld, föstudagskvöld. Óperan hef- ur að geyma skemmtitónlist eftir Engelbert Humperdinck. Önnur og þriðja sýning verða á laugardag kl. 15 og kl. 17, mánu- daginn 10. maí kl. 18 og 20. Óperan Hans og Gréta flutt í Borgarnesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.