Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 41
sólargeislinn í lífi mömmu sinnar og ömmu. Hann er einstaklega vel gerður drengur, móður sinni afar góður og hefur alla tíð verið til mikils sóma. Seinna kynntist Fríða Kristjáni Helgasyni og giftu þau sig í desem- ber 1997. Það var yndislegt að sjá hve hamingjusöm þau voru og aðdá- unarvert hve Kristján hefur reynst Fríðu góður eiginmaður. Fríða var bóhem. Hún hafði sterk- an persónuleika, var glaðsinna og reyndi eftir fremsta megni að lifa líf- inu eins og hún vildi en ekki láta sjúkdóminn fjötra sig meira en nauðsyn krafði. Aðdáunarvert var hvað hún átti gott með að sjá já- kvæðar hliðar á lífinu þrátt fyrir þverrandi krafta. Það var þungbært að sjá hvernig sjúkdómurinn tók æ meiri toll af þessari glæsilegu ungu konu og yfirbugaði hana að lokum. Í bók Kahlil Gibrans um Spámanninn segir m.a. um dauðann: Hvað er það að deyja annað en standa nak- inn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Á leiðarlokum vil ég og fjölskyld- an öll votta Sveini Hólmari, Krist- jáni, Jóni Páli og öðrum ástvinum Fríðu innilega samúð. Megi góður guð blessa minningu frænku minnar, Hólmfríðar Ástu. Ása St. Atladóttir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 41 Söknuður minn er mikill. Ég hef líka svo ótal margt að þakka fyrir. Gott að þú komst, voru viðtekin kveðjuorð okkar á milli. Það er því við hæfi að kveðja mín til Níelsar séu þessar fallegu ljóðlínur Önnu S. Björnsdóttur, enda segja þau allt sem segja þarf um okkar samband. Hlýtt straukst regnið um kinn mína. Gott að þú komst. Hljótt bærðist golan í hári mínu. Gott að þú komst. Heitur var faðmur þinn þegar þú sagðir. Það var gott að þú komst. Magdalena S. Ingimundardóttir. Á gömlum slóðum í Skarðshlíð- inni rifjuðum við upp gömul og góð kynni janúarkvöld fyrr á þessu ári. Níels var í heimsókn og læri var stungið í ofninn. Við fórum yfir margar sameiginlegar gleðistundir og eitt og annað bar á góma. Hann staldraði lengi við. Þetta kvöld í janúar sáum við hann síðast. Heyrðum oft í honum í síma eftir það. Og þótti leitt að heyra að hann hefði greinst með krabbamein skömmu fyrir páska, aðgerð yfir- vofandi. Hann ræddi um veikindin við okkur, en bar sig vel. Aðgerðin reyndist honum um megn, hann lést í kjölfar hennar. Níels höfum við þekkt frá unga aldri og um langt árabil verið ein- læg vinátta okkar á milli. Bar aldrei skugga á í þau nær fimmtíu ár sem kynni okkar vörðu. Það var gott að eiga trúnað hans og finna fyrir ein- lægni hans og góðvild þegar á þurfti að halda. Ekki síður en að gleðjast með honum á góðri stund. Níels var hlýr maður og sérlega barngóður. Það fundu dætur okkur alla tíð og áttu í honum góðan vin. Þær eldri ólust upp í nánu sambýli við þau hjónin, Hildi og Níels. Til þeirra var hægt að leita hvenær sem var. Yngri dæturnar nutu þess að heimsækja þau á Bíldudal og Hornafjörð. Voru fullar tilhlökkun- ar þegar að ferðalaginu kom og nutu þess mjög að dvelja hjá þeim að sumarlagi. Kynni strákanna hófust strax á unga aldri, þeir léku saman fótbolta á Oddeyrinni þar sem báðir ólust upp. Þegar svo systurnar frá Greni- vík fluttu til Akureyrar á unglings- aldri byrjaði Dísa að vinna í Kjör- búð KEA við Brekkugötu 1. Þar var Níels á meðal starfsmanna, sporléttur svo eftir var tekið. Örlögin höguðu því svo á þann veg að líf okkar fléttaðist saman þegar unga fólkið, Hildur og Níels og svo aftur við tvö rugluðum sam- an reytum. Systurnar voru sam- rýndar og strákarnir ágætisfélagar, sem léku saman knattspyrnu með KA og ÍBA. Það var svo sameiginleg ákvörð- un okkar að festa kaup á nýjum íbúðum í glænýju fjölbýlishúsi við Skarðshlíð í Glerárhverfi árið 1965 og flytja þangað með fjölskyldur okkar. Íbúðirnar, á annarri hæð í stigagangi númer 36, lágu saman. Samgangur milli fjölskyldna okkar var því ævinlega mikill, það var ekki langt að skjótast yfir í kaffi- sopa og dálítið spjall. Eiga saman notalega stund. Þurfti enga yfirhöfn þó að menn væru á bregða sér yfir. Í minningunni eru þetta góð ár sem nú að leiðarlokum er gott að rifja upp. Árin urðu 12, en þá kom að flutningi, Hildur og Níels keyptu raðhúsíbúð við Heiðarlund og við settumst að í Litluhlíð. Þó svo að meira þyrfti við að hafa til heim- sókna, inniskórnir einir dugðu ekki lengur, urðu heimsóknir tíðar sem fyrr. Það urðu því nokkur viðbrigði þegar Níels tók við stöðu útibús- stjóra Landsbankans á Bíldudal og þau fluttu burtu um langan veg. Það kom þó ekki í veg fyrir að áfram var haldið að hittast af og til og eiga saman góðar stundir. Leiðin var bara dálítið lengri. Eins var það þegar Níels varð útibússtjóri á Höfn í Hornafirði og undir það síð- asta þegar þau fluttu á Selfoss. Æv- inlega var gott að koma til þeirra hjóna, þau voru höfðingar heim að sækja. Farið var í lengri og skemmri ferðir og þau voru óþreyt- andi að sýna helstu undur náttúr- unnar á þeim stöðum sem þau dvöldu á hverju sinni. Margt hefur á dagana drifið, árin orðin mörg. Og minningarnar ótelj- andi. Ekki óraði okkur fyrir að svo snöggt yrði klippt á þráðinn. Að við ættum ekki eftir að njóta samvista við Níels lengur. Vissulega dapur- legt, en engu að síður gangur lífs- ins. Við vottum börnum hans, Hönnu Þóreyju, Steinunni Elsu og Jóni Viðari og börnum þeirra okkar inni- legustu samúð okkar nú við skyndi- legt fráfall föður þeirra. Hann átti nú hin síðari ár góðar stundir með vinkonu sinni, Magdalenu Ingi- mundardóttur sem ásamt börnum hennar gerðu daga hans eftir lát Hildar bjartari. Þeim vottum við einnig samúð okkar. Eydís og Þór. Það var orðið dimmt þegar þau komu. Frammi í eldhúsi var farið að undrast um ferðafólkið. Svo heyrðust gamalkunnu óhljóðin í Bjöllunni. Skyndilega á miðri Öxna- dalsheiði blasti við opið ræsi þvert yfir veginn. Bílstjórinn hafði lítið svigrúm til ákvarðana. Kostirnir tveir; að nauðhemla eða gefa dug- lega inn, freista þess að fljúga yfir. Gat brugðið til beggja vona, hvor þeirra svo sem yrði fyrir valinu. Tók þann síðari. Bjallan tókst á loft. Fjölskyldan skvettist til inni í bílnum, en allt fór vel. Bílstjórinn var Níels Brimar Jónsson. Afrekið þótti frækilegt. Varð fyrir vikið dálítil hetja. Maður sem flaug. Fyrir daga súpermanns. Í það minnsta hafði enginn í Skarðshlíð heyrt um þann ágæta mann. En okkar maður fór bara í stakan jakka daginn eftir. Tók stig- ann í léttu stökki. Á Bjöllunni niður í banka. Skildi eftir sig angan af Old Spice í stigaganginum. Eins og ekkert hefði gerst. Örlátur maður, Níels. Mikið fyrir að gauka aurum að smáfólki. Túkall vís í hægri vasanum. Stundum bara upp úr þurru. Líka svo notalegur, glaðvær. Samt ekkert alltaf skelli- hlæjandi. Hummaði svolítið. Ræskti sig. Krakkarnir máttu leita að stilli- myndinni í sjónvarpinu. Hann setti plötu á fóninn. Friður í tuttugu mínútur. Níels virtist una sér vel alls stað- ar. Móts við lágvaxna Vaðlaheiði, undir fjallinu bratta á Bíldudal, rétt eins og við rætur Vatnajökuls og flatlendinu sunnan heiða. Að ekki sé talað um útlönd. Það skipti mestu að vera ánægður. Sama hvar var. Hann hafði ekki smekk fyrir vor- hreti. Kalsa og hryssingi. Hlýtt, það átti að vera hlýtt. Uppáhaldsveðrið án efa sólskin, sunnanandvari, þokkalegur hiti, 15 gráður fínt. Svoleiðis hlýindi einmitt í stíl við hann sjálfan. Ósköp hlýr. Góður. Og bar einhvern vegin sólskinið með sér. Hvert sem hann fór. Margrét Þóra. Miðvikudaginn 28. apríl barst okkur andlátsfregn Níelsar B. Jónssonar, fyrrverandi samstarfs- manns okkar í útibúi Landsbankans á Akureyri. Hann hafið látist á Landspítalan- um daginn áður, eftir erfiða skurð- aðgerð. Þegar kær vinur fellur frá hvarfl- ar hugurinn til baka og minningar streyma fram. Níels hóf störf við útibúið á Ak- ureyri 1961 og bættist þá í hóp starfsmanna sem þar unnu undir stjórn góðra húsbænda. Flest vor- um við ung að árum og lífið blasti við okkur. Níels var búinn að finna sér lífsförunaut, Hildi Sigursteins- dóttur. Fjölskyldan stækkaði og börnin urðu þrjú. Margar ánægju- legar stundir áttum við saman í leik og starfi. Á hverju sumri fórum við starfsfólkið í bankanum með mök- um okkar í ferðalög og skoðuðum landið okkar fagra og skemmtum okkur vel. Við héldum árshátíðir og sáum sjálf um flest skemmtiatriði. Við stofnuðum starfsmannafélag og keyptum sumarbústað, þar sem við nutum hvíldar með fjölskyldum okkar. Já, þetta voru ljúfar sam- verustundir. Tíminn leið og hóp- urinn tvístraðist. Sumir létu af störfum vegna aldurs, aðrir eru horfnir á braut og enn aðrir fóru til starfa í öðrum útibúum bankans, þar á meðal Níels. Hann gerðist útibússtjóri á Bíldudal og síðar á Höfn í Hornafirði. Síðustu starfs- árin var hann við störf í útibúinu á Selfossi. Níels var lipur og góður starfmaður og vinsæll meðal sam- starfsmanna og viðskiptavina bank- ans. Þó vík væri milli vina, þá rofn- aði ekki sambandið og alltaf var gaman að hitta þau hjónin. Fyrir fimm árum lést Hildur, eftir erfið veikindi og var það honum mikið áfall. Á síðasta ári fréttum við að hann hefði orðið alvarlega veikur og átt erfiða daga, en hann komst til heilsu aftur. Í janúar sl. þegar hann kom norður og hitti okkur vinina, þá grunaði okkur ekki að það væri síðasta samverustundin. Að leiðar- lokum kveðjum við góðan vin og sendum fjölskyldu Níelsar innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Níelsar B. Jónssonar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Samstarfsfólk í Lands- bankanum á Akureyri. Elsku afi. Okkur finnst svo sorglegt að þú skulir vera dáinn. Það var alltaf gaman þegar þú komst til okkar á Akureyri. Og líka þegar við heim- sóttum þig og ömmu á Selfossi. Við gerðum margt saman og átt- um góðar og skemmtilegar stund- ir sem við munum alltaf. Takk fyrir allt, elsku afi. Nína og Orri. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Hólmfríði Ástu Bjarnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐFINNUR FRIÐFINNSSON, áður til heimilis í Melási 12, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, mánudaginn 3. maí. Svava Jenný Jóhannesdóttir, Guðmundur B. Friðfinnsson, Sigríður Alda Ásmundsdóttir, Erna Friðfinnsdóttir, Örn Friðfinnsson, Pétur Hákon Friðfinnsson, Hjördís Braga Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EINARS M. JÓHANNSSONAR fiskvinnslufræðings, Bleikjukvísl 18, og heiðrað minningu hans. Guð blessi ykkur öll. Sigríður G. Jóhannsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Bogi Ásgeirsson, Gísli Marteinsson, Jóhann Einarsson, Hrafnhildur H. Þorgerðardóttir og barnabörn. Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN HJALTASON, Vallargerði 4b, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju þriðjudag- inn 11. maí kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningar- sjóð Heimahlynningar á Akureyri. Ásta Valhjálmsdóttir, Anna Aðalsteinsdóttir, Björn Aðalsteinsson, Freyr Aðalsteinsson, Lilja Aðalsteinsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR I. KRISTJÁNSSON byggingameistari, Miðleiti 5, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudag- inn 5. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Unnur Runólfsdóttir, Runólfur Grétar Þórðarson, Sigríður Lúðvíksdóttir, Kristján Þórðarson, Dóra Kristín Halldórsdóttir, Kristín Þórðardóttir, Kristinn M. Kristinsson, Margrét Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR EGGERT SIGURÐSSON, Hvassleiti 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju mánu- daginn 10. maí kl. 13:30. Björg Sigurðardóttir, Hlynur Andrésson, Sigurður Kristinn Sigurðsson, Kristín Jóhannesdóttir, Inga Sigurðardóttir, Sigurður Hergeir Einarsson, Magrét Sigurðardóttir, Halldór Þorkelsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.