Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Útiinnsetning | Aðvörun! er titill
sýningar sem opnuð verður í Gall-
eríi+ í Brekkugötu 35 laugardaginn
8. maí, kl. 16. Þar sýnir listakonan
Fee og er sýningin utandyra, nokk-
urs konar útiinnsetning, og því hægt
að skoða hana allan sólarhringinn.
Fee er fædd í Singapúr og lærði
myndlist í New York og vann síðan
sem sýningarstjóri við listasafnið í
Singapúr (Singapore Art Museum)
og sá um að skipuleggja sýningar á
nútímalist. Hún hóf störf þar 1996 á
sama tíma og safnið var opnað. Árið
2000 flutti Fee til Íslands og er þetta
fyrsta sýning hennar hérlendis.
Búkolla aftur á svið | Leikritið
um Búkollu verður sett á svið hjá
Leikfélagi Akureyrar á ný, en sýn-
ingum var hætt síðastliðið vor fyrir
fullu húsi. Leikritið byggist á hinni
alkunnu þjóðsögu um Búkollu og
strákinn og er hún ævintýraleg, ým-
is furðukvikindi koma við sögu önn-
ur en þau sem nefnd eru í sögunni.
Í leikritinu eru lög eftir Skúla
Gautason. Sýnt verður laugardaginn
8. maí og sunnudaginn 9. maí kl. 14
og laugardaginn 15. maí kl. 14 og 16.
Parakeppni | Skákfélag Akureyrar
heldur árlega parakeppni á föstu-
dagskvöld, 7. maí kl. 20. Hún fer
þannig fram að keppendur eru
dregnir saman í pör í upphafi móts
og pörin keppa síðan innbyrðis. Á
sunnudag kl. 14 er svo svokallaður
Atdagur á dagskrá en þar er bland-
að saman hraðskákum og atskákum.
Að venju er teflt í Íþróttahöllinni.
Fuglaskoðunarferð | Ferðafélag
Akureyrar efnir til fuglaskoðunar-
ferðar á morgun, laugardaginn 8.
maí. Leiðsögn er í höndum Sverris
Thorsteinsen. Farið verður frá skrif-
stofu félagsins, Strandgötu 23, kl. 9.
Skráning í ferðina er á skrifstofunni
í dag, föstudag, frá kl. 17.30 til 19.
við bjóðum upp á og margvíslega
möguleika sem eldri borgurum
stendur til boða í bænum.“
Áhersla verður í komandi dagskrá
lögð á mikilvægi þess að vera virkur í
samfélaginu. „Dagskráin næstu daga
verður fræðandi, en líka létt og
skemmtileg,“ sagði Jakob.
Öldrunarþjónusta er umfangs-
mikil á Akureyri, á fjórða hundrað
starfsmanna starfar við þjónustu við
aldraða og reksturinn kostar hátt í
einn milljarð á ári.
Opnunarhátíð Litríka vorsins
verður á Glerártorgi í dag, föstudag
kl. 16, þar sem Óskar Pétursson
syngur sem og Kór eldri borgara. Þá
verður opnuð sýning á einkasöfnum
LITRÍKT vor – virkir eldri borgarar
er heiti á fræðslu- og kynningardag-
skrá sem Akureyrarbær stendur fyr-
ir, en hún hefst í dag, föstudaginn 7.
maí, á Glerártorgi kl. 16.
„Við teljum að Akureyrarbær veiti
mjög góða öldrunarþjónustu,“ sagði
Jakob Björnsson formaður bæj-
arráðs sem kynnti Litríka vorið á
fundi í gær. Hann sagði umræðu um
málaflokkinn hafa einkennst nokkuð
af því að skortur væri á hjúkrunar-
rýmum í bænum og hún því verið á
neikvæðum nótum. „Úrbætur á þeim
vettvangi eru í sjónmáli,“ sagði hann.
„Við viljum með þessari dagskrá
vekja athygli á því sem vel er gert,
kynna þá fjölbreyttu þjónustu sem
60 ára og eldri á Amtsbókasafninu kl.
14.
Af öðrum dagskrá liðum má nefna
að útgerð Súlunnar býður eldri borg-
urum í siglingu á sunnudagsmorgun,
handverkssýning verður í Hlíð á
sunnudag frá 14 til 17, ÍBA og ÍSÍ
kynna íþróttir fyrir eldri borgara í
Boganum á þriðjudag og fimmtudag,
m.a. boccia, golf og stafagöngu. Þá
gefst kostur á að kynna sér íþróttina
krullu í Skautahöllinni á föstudag.
Farið verður í Sólgarð og Smámuna-
safnið skoðað á miðvikudag. Kynn-
ingarátakinu lýkur svo með fræðslu-
degi í Glerárkirkju laugardaginn 15.
maí þar sem flutt verða erindi og
skemmtiatriði.
Fræðslu- og kynningardagskrá fyrir eldri borgara
Morgunblaðið/Kristján
Hulda Þórey Gísladóttir og Hafdís Hrönn Pétursdóttir, fulltrúar í undirbúningsnefnd, Jakob Björnsson, formaður
félagsmálaráðs, og Karl Guðmundsson, sviðsstjóri félagssviðs Akureyrarbæjar.
Litríkt vor
SUÐURNES
Gæsluvöllum lokað | Fjölskyldu- og félags-
málaráð Reykjanesbæjar hefur lagt til við
bæjarstjórn að hætt verði að hafa gæsluvelli
opna yfir vetrartímann. Á sumrin verði tveir
gæsluvellir opnir.
Fram kom á fundi ráðsins fyrir skömmu að
nýting gæsluvallarins við Heiðarból hafi verið
óveruleg í vetur. Alls hafi að meðaltali tvö börn
á dag sótt völlinn.
Fram kemur að þetta sé sama þróun og í
öðrum sveitarfélögum og víðast hvar hafi
gæsluvellir verið lagðir niður eða einungis
hafðir opnir yfir sumartímann.
Fram kom að góð nýting hefur verið á gæslu-
völlum í Reykjanesbæ yfir sumartímann, mest
þann tíma sem leikskólar fara í sumarleyfi eða
34 börn á dag að meðaltali.
Í ljósi þessa lagði fjölskyldu- og félagsmála-
ráð til að vetraropnun gæsluvalla í Reykja-
nesbæ verði hætt og Frístundaskólanum eða
Heiðarskóla afhent húsnæði Heiðarbólsvallar
til notkunar yfir vetrarmánuðina. Brekku-
stígs- og Heiðarbólsvöllur verði starfræktir
sem gæsluvellir í júní, júlí og ágúst.
Buðu best | Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
ákveðið að ganga til samninga við SEES ehf.
um fyrsta áfanga undirbúnings nýs bygg-
ingasvæðis í Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík og
við Nesprýði ehf. um annan áfanga sama verks.
Eldgjá ehf. átti lægsta tilboð í bæði verkin en
féll frá tilboðum sínum. SEES og Nesprýði voru
eftir það lægstbjóðendur með um eða liðlega
78% kostnaðaráætlunar. Sjö til átta buðu í verk-
in.
SEES vinnur fyrsta áfangann fyrir liðlega
31,5 milljónir og Nesprýði tekur seinna verkið
að sér fyrir tæpar 34,5 milljónir.
Kannabisræktun | Lögregla í Keflavík gerði
í gærkvöldi á fjórða tug kannabisplantna upp-
tækar í heimahúsi í Keflavík.
Aðdragandi málsins er sá að í fórum manns
á fertugsaldri, sem stöðvaður var við götueft-
irlit í bænum, fannst lítilræði af hassi. Fór lög-
regla í framhaldi heim til mannsins þar sem
kannabisplönturnar fundust. Þetta voru 38
plöntur, þær stærstu um 50 til 60 sentímetrar
á hæð.
Maðurinn gekkst við því að eiga plönturnar
og var honum að svo búnu sleppt úr haldi lög-
reglunnar. Lagt var hald á gróðurinn, hassið
og tvo gróðurlampa.
Reykjanesbær | „Það er mikið að gerast
hérna núna. Ég held að tími okkar Reykja-
nesbæinga sé kominn,“ segir Halldór Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri byggingafélags-
ins Húsaness ehf., sem fengið hefur úthlutað
lóðum fyrir liðlega 100 íbúðir í hinu nýja
Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík.
Húsanes verður stórtækasti bygginga-
verktakinn í hinu nýja hverfi. Í fyrradag út-
hlutaði umhverfis- og skipulagsnefnd lóðum
fyrir 215 íbúðir og þar af fékk Húsanes lóðir
fyrir 102 íbúðir. Íbúðirnar aðallega í fjór-
býlishúsum en einnig eitthvað í stærri fjöl-
býlishúsum og raðhúsum. Þær eru í ná-
grenni Akurskóla sem verið er að byggja.
Húsanes hyggst byggja
húsin á næstu þremur ár-
um. Meirihluti íbúðanna,
ef til vill um 60 talsins,
hyggst Húsanes eiga og
leigja út. Hefur fyrirtækið
lánsloforð fyrir þeim. Af-
gangurinn verður seldur.
Húsanes hefur verið og
er að byggja leiguíbúðir í
Reykjanesbæ. Nú þegar
eru tuttugu íbúðir þar í
leigu og byrjað er að reisa hús með tólf
íbúðum sem ætlaðar eru fyrir fólk sem orðið
er 55 ára. Halldór segir að betur hafi gengið
að leigja íbúðirnar út en aðstandendur fyr-
irtækisins áttu von á í upphafi. Allar íbúð-
irnar gangi jafnóðumút og alltaf fólk á bið-
lista.
Halldór Ragnarsson er bjartsýnn á þró-
unina í Reykjanesbæ. Segir að margt sé að
gerast í atvinnumálunum. Nefnir uppbygg-
inguna við Helguvíkurhöfn, aukningu í flug-
inu, byggingu Reykjanesvirkjunar og fyr-
irhugaða sportakademíu. Þá segist hann vita
um fjölda fyrirtækja sem áhuga hafi á að
setja sig niður í bænum. „Það er loksins að
færast líf í þetta. Hér eru góðar aðstæður til
að búa og reka fyrirtæki og ég held að menn
séu að átta sig á því,“ segir Halldór.
Húsanes verður stórtækasti byggingaverktakinn í nýju Tjarnahverfi
Held að okkar tími sé kominn
Halldór
Ragnarsson
Reykjanesbær | Framkvæmdir
sem unnið er að við uppbyggingu á
keppnissvæði hestamanna á
Mánagrund vegna Íslandsmóts í
hestaíþróttum sem þar verður
haldið í næsta mánuði kosta um
11,5 milljónir kr. Reykjanesbær
leggur fram 9,5 milljónir samtals
en greiðir framlag sitt á þremur
árum.
Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundasvið Reykjanesbæjar hefur
gert verksamning við hestamanna-
félagið Mána um uppbygginguna
og framlag Reykjanesbæjar.
Skrifað var undir samninginn við
athöfn sem fram fór á Mánagrund
í fyrradag, við útilistaverkið Mána-
hestinn eftir Erling Jónsson.
Íslandsmótið verður haldið á
Mánagrund dagana 23. til 25. júní
næstkomandi. Þangað verður
stefnt helstu hestamönnum og
gæðingum landsins og er gert ráð
fyrir að minnsta kosti tvö þúsund
gestum. Hestamannafélagið fagn-
ar 40 ára starfsafmæli á næsta ári
og mun þá um haustið halda Ís-
landsmót barna og unglinga.
Meðal þeirra framkvæmda sem
ráðist verður í samkvæmt samn-
ingum er lagning reiðstígs frá
svæðinu að sveitarfélagamörkum
gagnvart Garði, gerð upphit-
unarbrautar, lenging manar við
keppnisvöllinn, lagning bílastæða,
bygging nýs dómarahúss við
hringvöll og lýsing á reiðstíg sem
liggur í gegnum félagssvæði
Mána.
Framkvæma fyrir
11,5 milljónir á
Mánagrund
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Á Mánagrund: Árni Sigfússon bæjarstjóri og Margeir Þorgeirsson,
formaður hestamannafélagsins Mána, undirrituðu verksamninginn.
Knaparnir fyrir aftan þá eru Sveinbjörn Bragason, Camilla Petra Sig-
urðardóttir og Elva Björk Margeirsdóttir.
RÚMLEGA tvítugur ökumaður var
tekinn á 160 km hraða á Ólafsfjarð-
arvegi, við Hámundarstaði, um há-
degisbil í gær. Ökumaðurinn var
færður fyrir fulltrúa sýslumanns og
sviptur ökuréttindum tímabundið í
kjölfarið. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem ökumaðurinn er tekinn fyrir
hraðakstur því hann á nokkur óupp-
gerð mál í kerfinu vegna hraðaksturs,
samkvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar í Ólafsfirði. Lögreglumenn frá
Ólafsfirði og Dalvík voru í samstarfi
við hraðamælingar í gær en embættin
á þessum stöðum vinna oft saman,
þar sem aðeins einn lögreglumaður er
á vakt í einu á hvorum stað.
Tekinn á
160 km hraða
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hef-
ur veitt 6 styrki, samtals að
upphæð rúmar 4 milljónir
króna, úr menningar- og
styrktarsjóði sínum. Flugsafn-
ið á Akureyri hlaut eina milljón
vegna uppbyggingar safnsins,
Sögufélag Eyfirðinga fékk 500
þúsund vegna útgáfu á Ábú-
enda og jarðatali Stefáns Að-
alsteinssonar, Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands fékk sömu
upphæð vegna tónleikahalds,
þá hlaut Listasumar á Akur-
eyri 750 þúsund krónur vegna
sýninga í sumar. Karlakór Ak-
ureyrar-Geysir fékk 500 þús-
und króna styrk vegna útgáfu á
geisladiski í tilefni 100 ára af-
mælis Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi og loks fékk Ferða-
félag Akureyrar eina milljón
króna í styrk vegna uppbygg-
ingar á hálendismiðstöðinni við
Drekagil í Ódáðahrauni.
KEA styrkir