Morgunblaðið - 07.05.2004, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.05.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 11 ÚR VERINU NORSK stjórnvöld vinna nú að því að draga úr brottkasti fisks eða koma í veg fyrir það hjá fiskiskipa- flota sínum og skipum annarra þjóða, sem stunda veiðar innan lög- sögu Noregs. Markmiðið er að fá bæði meiri verðmæti að landi og réttari upplýsingar um hve mikið er í raun veitt. Talið er að brottkast á ári hjá norskum fiskiskipum sé á bilinu 57.000 tonn til 200.000 en árlegur afli þeirra er á bilinu 2,5 til 3 milljónir tonna. Talið er að verðmæti þess fisks sem kastað er á glæ geti verið allt að 8 milljarðar íslenzkra króna. Sjávarútvegsráðuneytið hefur lát- ið semja skýrslu um stöðu mála, hve mikið brottkastið sé, af hverju það stafi og hvernig megi koma í veg fyr- ir það. Skýrslan var gerð opinber í lok apríl. Þar kemur fram að hvatinn að brottkastinu sé yfirleitt sá að menn vilja fá sem mest út úr leyfileg- um afla. Því sé ódýrari fiski og smærri fiski hent. Hugarfarsbreyting Skýrsluhöfundar telja að það þurfi ákveðna hugarfarsbreytingu hjá sjó- mönnum, þeir verði að átta sig á því að þeir hafi leyfi til að nýta sameig- inlega auðlind þjóðarinnar, en því fylgi sú ábyrgð að þeir verði að fara að settum reglum, sem meðal annars banni brottkasts. Jafnframt verði þeir að átta sig á því að með því að fleygja fiski í sjóinn séu þeir í raun að minnka þá möguleika sem þeir í raun hafi til að auka tekjur sínar, ekki aðeins með því að koma með meira að landi, heldur einnig með því að stuðla að því að fiskifræðingar geti betur metið hvað má veiða og betur gangi að byggja fiskistofnana upp. Á hinn bóginn sé það grundvall- aratriði að styrkja eftirlitið á öllum sviðum, bæði á landi og úti á sjó. Það þurfi gera kröfur um nákvæmar afladagbækur og það þurfi að vera hægt að bera saman aflasamsetn- ingu skipa og báta sem séu að fiska á sama svæði. 80 manns í eftirlit á sjó og landi Höfundar leggja til að eftirlits- mönnum um borð í fiskiskipum verði fjölgað í 40 og að þeir eigi að vinna í nánu samstarfi við Hafrannsókna- stofnun með því að mæla stærð fiska og samsetningu aflans, svo stofnunin geti nýtt sér upplýsingar þeirra við stofnstærðarmat. Þá verði að fjölga eftirlitsmönnum í landi þannig að þeir verði 39 alls. Síðan verði að bera saman upplýs- ingar um stærð fiska og aflasam- setningu utan af sjó og í landi, en með því geti verið hægt að meta brottkastið. Gert er ráð fyrir því að kostnaður við eftirlit 40 manna á hafi úti kosti um 300 milljónir íslenzkra króna á ári og eftirlitið í landi kosti ríflega 200 milljónir. Þá verði að koma upp upplýsinga banka til að vega og meta ólíkar upp- lýsingar og nýta þurfi eftirlit um gervitungl. Það þurfi að stykja Fiski- stofu og Landhelgisgæzlan þurfi að fá um 500 milljónir króna til að geta haldið flota sínum í fullu úthaldi. Lagt er til að bannað verði að vera með hakkavélar um borð í skipum til að hakka úrgang og þar með fisk, sem hent sé. Úrgangi og fiski verði að kasta frá skipinu yfir sjólínu, en þá fljóti fiskurinn og sjáist betur. Loks er lög áherzla á aukna notkun búnaðar til að velja fisk í veiðarfæri, eins og smáfiskaskiljur. Morgunblaðið/RAX Norðmenn ráðast gegn brottkasti Stóraukið eftirlit á sjó og landi meðal annars lagt til FRANZ Fischler, fiskimálastjóri Evrópusambandsins, hvetur þær þjóðir sem stunda veiðar á kolmunna, til að setjast að samningaborðinu og semja um raunhæfa skiptingu afla- heimilda og hætta stjórnlítilli veiði langt umfram ráðleggingar. Hann segir pattstöðuna í málinu óþolandi. Engu að síður hefur Evrópusam- bandið ákveðið að auka leyfilegan afla aðildarríkjanna um 90% eða úr 400.000 tonnum í 750.000 tonn. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Fischler en þar segir hann svo: „Síðustu 7 árin hefur Evrópu- sambandið hvatt aðrar aðildarþjóðir til þess að samþykkja eðlilega og sanngjarna skiptingu aflaheimilda úr kolmunnastofninum enda er slíkt samkomulag forsenda þess að hægt sé að koma á árangursríkri fisk- veiðistjórnun á þessum alþjóðlega fiskistofni. Til að ná þessu markmiði og til að vernda kolmunnastofninn, en staða hans hefur valdið vís- indamönnum áhyggjum, hefur ESB einhliða takmarkað afla sinn árum saman. Hinar aðildarþjóðirnar hafa hvergi farið að dæmi ESB og stór- aukið afla sinn og þannig krafizt mun meiri hlutdeildar en þær eiga rétt á. Þess vegna er þolinmæði sambands- ins á þrotum. Í ljósi þessara aðstæðna og í ljósi góðrar stöðu kolmunna- stofnsins, hefur Evrópusambandið ákveðið einhliða að auka kvóta sinn um 350.000 tonn og færa heimildirnar þannig nær þeim afla sem það var að taka á 10. áratugnum.“ Hann segir ennfremur að hann hvetji aðildarþjóðirnar til að við- urkenna að þessi pattstaða sé óvið- unandi og bjóði þeim að samninga- borðinu. Nú sé rétti tíminn til að komast að sanngjarnri niðurstöðu um skiptinguna þar sem stofninn standi vel. Kolmunninn er nokkuð mikilvægur Evrópusambandinu, en skip frá Spáni, Danmörku, Bretlandi, Hol- landi, Írlandi, Frakklandi, Þýzka- landi, Portúgal og Svíþjóð stunda þessar veiðar í mismiklum mæli. Auk þess er kolmunni 40% þeirra veiði- heimilda sem sambandið notar í skiptum í samningum við Norðmenn. Á síðasta ári jók ESB heimildir sín- ar um 250.000 tonn og um 350.000 á þessu ári. Norðmenn leyfa frjálsar veiðar, en kvóti Íslendinga var lækk- aður lítillega vegna tillagna fiskifræð- inga um minni veiði. Óviðunandi pattstaða ESB óánægt með ofveiði á kolmunna en eykur þó kvóta sinn um 90% ÖRYRKJABANDALAG Íslands hefur sent ríkisstjórninni yfir- lýsingu þar sem harðlega er átalið að rúmir fjórir mánuðir skuli nú liðnir án þess að þorri öryrkja hafi fengið greiddar þær bætur sem um var samið í að- draganda síðustu kosninga. „Þúsundir öryrkja höfðu treyst því að ríkisstjórn Íslands myndi standa við það samkomu- lag sem kynnt hafði verið svo rækilega fyrir kosningar. Það er ágreiningslaust af fulltrúum beggja samningsaðila að ekki hefur enn verið staðið við sam- komulagið,“ segir í yfirlýsing- unni. „Öryrkjabandalag Íslands skorar á ríkisstjórn og Alþingi að gera þegar í stað ráðstafanir til að samkomulagið megi koma til fullra framkvæmda, svo að máli þessu verði lokið eigi síðar en við framlagningu fjárlaga- frumvarps í byrjun október næstkomandi. Að öðrum kosti eru stjórnvöld, eina ferðina enn, að neyða Öryrkjabandalag Ís- lands til að leita viðurkenningar dómstóla á þeim alvarlegu van- efndum sem hér um ræðir og hvetja bandalagið til að grípa til allra þeirra baráttuleiða sem ör- yrkjum eru tiltækar. Orð skulu standa.“ Öryrkjabandalag Íslands Áskorun um að staðið verði við samkomulag LANDHELGISGÆSLAN tók fyrir skömmu þátt í sameiginlegri æfingu björgunarstjórnstöðva og björgun- arflokka við Norður-Atlantshaf en æfingin er haldin árlega og gengur undir nafninu Bright Eye. Að þessu sinni stilltu Íslendingar og Færey- ingar saman strengi sína. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar gekk æfingin út á að finna tvo gúmmíbjörgunarbáta sem varðskip Landhelgisgæslunnar hafði sett út nálægt miðlínunni milli Íslands og Færeyja í fyrradag. Það var svo hlutverk áhafnar Fokker- flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF- SYN, og færeyska varðskipsins Brimils að finna bátana. Um borð í TF-SYN var fimm manna áhöfn Landhelgisgæslunnar og þrír menn frá Flugbjörgunar- sveitinni í Reykjavík sem höfðu það hlutverk að vera útverðir, þ.e. að svipast um eftir björgunarbátunum sem leitað var að. Markmiðið var einnig að þjálfa samskipti milli björgunarstjórn- stöðvanna í Þórshöfn í Færeyjum og björgunarstjórnstöðvar Landhelgis- gæslunnar. Eftir talsverða leit tókst áhöfn TF-SYN að finna björgunar- bátana. Seinna í mánuðinum verða tveir seinni hlutar æfingarinnar haldnir og þá bætast við björgunaraðilar frá Grænlandi, þ.e. dönsku herstöðinni í Grønnedal og flugstjórnarmiðstöð- inni í Syðri-Straumsfirði og björg- unarstjórnstöðinni í Bodø í Noregi. Landhelgisgæslan á æfingu í N-Atlantshafi TAKIST forráðamönnum Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) það augljósa ætlunarverk sitt að bola Ís- lenskum markaði (ÍM) úr Leifsstöð mun það skapa óvissu fyrir fjölda starfsmanna fyrirtækisins auk þess sem eigendur munu verða fyrir miklu fjárhagstjóni. Stjórnendur FLE eru með þessum einhliða geð- þóttaaðgerðum í raun að setja Ís- lenskan markað á hausinn. Þetta segir Logi Úlfarsson, fram- kvæmdastjóri Íslensks markaðar, en eins og fram hefur komið hafa stjórn- endur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sagt upp leigusamningi við Ís- lenskan markað en ÍM hefur selt ferðamönnum íslenskan varning all- ar götur frá því að flugstöðin var opn- uð fyrir 34 árum. Lásu um skýringarnar í Morgunblaðinu „Það liggur fyrir að Íslenskur markaður er bara með starfsemi í Flugstöðinni og ef menn ætla að út- hýsa okkur héðan þýðir það endalok fyrirtækisins. Störf þeirra 25 starfs- manna, sem flestir eru konur, sem hjá okkur starfa eru því hættu en all- ir nema einn eru búsettir á Suð- urnesjum þar sem nú er alvarlegt at- vinnuleysi,“ segir Logi. „Þeir sendu okkur uppsagnarbréf föstudaginn 30. apríl algerlega óund- irbúið, við höfðum ekkert heyrt frá þeim áður. Skýringarnar sem voru gefnar lásum við fyrst um í Morg- unblaðinu á mánudeginum 3. maí. Við höfum ekki heyrt eitt einasta orð um þær áður, þ.e. skýringar á upp- sögninni. Þessar skýringar voru út í hött að okkar mati. Okkar skilningur er sá, að minnsta kosti þangað til annað kemur í ljós, að það sé verið að refsa okkur fyrir hafa verið „óþekk- ir“. En það er auðvitað grundvall- arréttur þeirra sem búa í lýðræð- isríki að ef þeir eru ekki sáttir hafa þeir þann valkost að leita til dóm- stóla. Við töldum að það væri verið að fremja á okkur lögbrot og vildum fá staðfestingu dómstóla á því. Málið snerist ekki um að við værum að reyna að koma höggi á Flugstöðina á einn eða annan hátt heldur vorum við einfaldlega að vinna að hagsmunum fyrirtækisins og raunar annarra fyr- irtækja einnig.“ Logi segir yfirlýsingar fram- kvæmdastjóra FLE, m.a. þess efnis að ÍM uppfyllti ekki skilyrði sem sett hafi verið um áframhaldandi versl- unarrekstur á fríhafnarsvæðinu, mjög einkennilegar. „Það er auðvitað einkennilegt að halda því fram að fyrirtæki sem er búið að vera í Flug- stöðinni í 35 ár og er fremst í sinni röð á sínu sviði og hefur mesta þekk- ingu og reynslu allra í þessum flug- stöðvarbransa skuli skyndilega ekki uppfylla skilyrði um að geta annast svona starfsemi. Það er auð- vitað skýring sem mað- ur gefur ekkert fyrir.“ Hafa ekki fengið tækifæri til að lýsa hugmyndum sínum Logi segir hug- myndir varðandi fram- tíðarskipulag versl- unarrekstrar í húsinu ekki hafa verið ræddar þannig að þótt ÍM hefði hugmyndir í þeim efn- um hefði fyrirtækið ekki fengið tækifæri til þess að lýsa þeim. „Ég skil því ekki al- veg hvernig þeir vita um hugmyndir okkar. Við settum fram ákveðnar hug- myndir í forvalinu á sínum tíma en það voru fyrst og fremst hugmyndir um okkar fyrirtæki og hvernig við sæjum það í framtíðinni. Þær hugmyndir voru fyrst og fremst byggðar á ákveðinni forskrift sem þeir gáfu upp í sínum gögnum, m.a. teikningum o.fl. Þannig að ef þetta er byggt á þeim hug- myndum þá eru þær löngu úreltar vegna þess að það eru tvö ár síðan þær voru settar fram. Og það hefur svo sannarlega ýmislegt gerst á þeim tíma.“ Logi segir að þar sem FLE séu í eigu ríkisins sé það óbeint að vísa fyrirtækinu út. Hann hins vegar neiti að trúa því að menn séu sér almennt meðvitaðir um þessa meðferð á Ís- lenskum markaði. Spurður um íhlutun af hálfu sam- keppnisyfirvalda segir Logi að ÍM hafi snúið sér til Samkeppnisstofn- unar. „Við höfum lagt fram gögn fyrir stofn- unina þar sem við telj- um að Flugstöðin sé að rjúfa biðstöðu sem fyr- irskipuð var af sam- keppnisráði á sínum tíma. Og í því ljósi telj- um við að þessar upp- sagnir séu hreinlega ólöglegar. Við væntum þess að Samkeppn- isstofnun taki á málinu og förum fram á bráða- birgðaúrskurð til þess að þurfa ekki að bíða mjög lengi enda ekki nema 85 dagar til stefnu þangað til uppsögnin tekur gildi.“ Keppinautur varð húsbóndi Logi minnir á að ÍM hafi hafið starfsemi í Flugstöðinni árið 1970 og staðið sig vel allan tímann, fyrirtækið eigi stóran þátt í því hvernig FLE er nú. „Mestan hluta þessa tíma störf- uðum við við hliðina á ríkisrekinni Fríhöfn eða þangað til 1998. Árið 2000 var þeirri verslun steypt saman við FLE og með þeirri löggjöf þurrk- uðust okkar réttindi gersamlega út. Þá var keppinautur okkarorðinn hús- bóndi okkar líka og undir sérstakri vernd ríkisins sem við njótum auðvit- að ekki. Þar fyrir utan átti ríkið í ÍM alveg fram til ársins 1998 en þá var ríkishluturinn keyptur þannig að það má líka segja að að því leytinu séu menn að koma í bakið á þeim sem settu mörg hundruð milljónir í þau kaup á þeim tíma. Þeir hluthafar skilja auðvitað ekki núna hvað var verið að selja þeim,“ segir Logi. Logi Úlfarsson, framkvæmdastjóri Íslensks markaðar Verið er að bola ÍM út úr Leifsstöð Logi Úlfarsson „Þeir sendu okkur uppsagnarbréf föstudaginn 30. apríl algerlega óundirbúið, við höfðum ekkert heyrt frá þeim áður“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.