Morgunblaðið - 07.05.2004, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 49
Hreppamenn
sigruðu MBF
Nú er lokið allri bridsspilamennsku hér í
sveitinni þennan veturinn enda komið vor og
nokkrir úr spilahópnum eiga kindur sem þeir
geta ekki hugsað sér að fara frá um sauðburð,
aðrir fara í garðvinnu og bústörf, golf o.fl. o.fl.
Föstudagskvöldið 23. apríl fór fram hin ár-
lega bridskeppni milli starfsmanna Mjólkur-
bús Flóamanna, sem voru gestgjafar að þessu
sinni, og Hreppamanna. Þessi keppni hefur
farið fram í áratugi og sækir hvort liðið annað
heim annað hvert ár. Hefur skapast mikil og
góð vinátta milli þessara spilafélaga hér aust-
anfjalls.
Að þessu sinni fóru leikar svo að Hreppa-
menn sigruðu með 66 stigum gegn 54 stigum
starfsmanna MBF. Á fyrsta borði fóru leikar
11–19 fyrir Hreppamenn.
Á öðru borði 23–7 fyrir MBF. Á þriðja borði
9–21 fyrir Hreppamenn og á því fjórða 11–19
fyrir Hreppamenn.
Þá er nýlokið tvöfaldri sveitakeppni á Flúð-
um. Þar fóru leikar svo að efst varð sveit Ás-
geirs Gestssonar sem hlaut 62 stig. Önnur varð
sveit Knúts Jóhannssonar með 47 stig, þriðja
sveit Karls Gunnlaugssonar með 43 stig og í
fjórða sæti varð sveit Lofts Þorsteinssonar
með 12 stig. Hlutu sigurvegarar efstu sveit-
arinnar, sem var skipuð auk Ásgeirs, Guð-
mundi Böðvarssyni, Margréti Runólfsdóttur
og Bjarna H. Ansnes, veglegan bikar sem
Knútur Jóhannesson gaf.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Samskipti Hreppamanna og MBF hafa verið
mjög ánægjuleg í áratugi. Myndin er frá
verðlaunaafhendingunni í mótslok.
Bikarkeppni BSÍ
2004
Bikarkeppnin verður með hefð-
bundnum hætti í ár. Hægt er að skrá
sig í bikarinn til sunnudagsins 23.
maí kl. 14 og verður dregið í 1. um-
ferð sama dag.
Fyrirliðum er bent á, að við skrán-
ingu skal tilkynna sérstaklega ef
sveit á rétt á að sitja yfir í fyrstu um-
ferð.
Skráning í s. 587 9360 eða
www.bridge.is.
Síðasti spiladagur hverrar um-
ferðar:
1. umf. sunnudagur 20. júní
2. umf. sunnudagur 18. júlí
3. umf. sunnudagur 15. ágúst
4. umf. sunnudagur 12. sept.
Undanúrslit og úrslit verða spiluð
25. og 26. sept.
TIL SÖLU
Fasteignir til sölu
Tilboð óskast í eftirtaldar fasteignir Sláturfé-
lags Austurlands.
Sláturhús Fossvöllum: Stærð á bilinu 1.300-
1.600 m2.
Sláturhús Breiðdalsvík: Stærð 990 m2.
Eignirnar seljast í því ástandi sem þær eru í
nú eftir úreldingu til sauðfjárslátrunar.
Allar upplýsingar veitir Sigurjón Bjarnason
í síma 471 2042 og 848 3314. Netfang
sau@simnet.is.
Sláturfélag Austurlands.
Hestamannafélagið
Fákur
Kaffihlaðborð
Hið árlega kaffihlaðborð Fáks verður í félags-
heimilinu laugardaginn 8. maí kl. 14.
Harðarfélagar koma í heimsókn.
Ath! Hlégarðsreiðin verður laugardaginn 22.
maí. Lagt af stað frá félagsheimili Fáks kl. 13.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Þroskahjálpar Norðurlandi eystra
verður haldinn mánudaginn 17. maí kl. 20 að
Botni (rétt sunnan við Hrafnagil).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýir félagar velkomnir. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Til væntanlegra fram-
bjóðenda í forsetakosn-
ingum 26. júní 2004
Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis kemur
saman til fundar í dómssal Héraðsdóms
Suðurlands á Austurvegi 4, Selfossi,
miðvikudaginn 19. maí 2004,
kl. 11:00 til að taka við meðmælenda-
listum frambjóðenda í Sunnlendinga- og
Austfirðingafjórðungi (Austur-Skafta-
fellssýslu) og gefa vottorð um meðmæl-
endur forsetaframboða samkvæmt 4. gr.
laga nr. 36 frá 1945 um framboð og kjör
til forseta Íslands. Þess er óskað að fram-
bjóðendur, ef unnt er, skili meðmælend-
alistum með nöfnum meðmælenda til
formanns yfirkjörstjórnar Karls Gauta
Hjaltasonar sýslumanns, Heiðarvegi 15,
Vestmannaeyjum, fyrir þriðjudaginn 18.
maí svo unnt sé að undirbúa vottorðs-
gjöf yfirkjörstjórnar.
Vestmannaeyjum, 5. maí 2004
f.h. yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis,
Karl Gauti Hjaltason.
Kópavogsbúar
laugardagsfundur
Sjálfstæðisfélag Kópavogs býður Kópavogsbúum
í opið hús á laugardagsmorgnum milli kl. 10.00
og 12.00 í Hlíðasmára 19.
Þar gefst Kópavogsbúum kostur á að hitta alþing-
ismenn, bæjarfulltrúa, nefndarfólk og aðra
trúnaðarmenn flokksins, skiptast á skoðunum og
koma málum á framfæri.
Á morgun, laugardaginn 8. maí, mun
Gunnar I. Birgisson, alþingismaður og formaður
bæjarráðs Kópavogs, fjalla um framkvæmdir og
fjármál Kópavogsbæjar, auk skattamála o.fl.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Bókaveisla
í Kolaportinu um helgina
Bækur á 200 kr. stk.
Ekki missa af þessu!
Gvendur dúllari - alltaf góður
Ársfundur Eftirlaunasjóðs
starfsmanna Íslandsbanka
Ársfundur eftirlauna-
sjóðs starfsmanna
Íslandsbanka verður
haldinn fimmtudaginn
24. maí nk. kl. 17.15
á 5. hæð (Hólum) á
Kirkjusandi.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar kynntir.
3. Skýrsla um trygginga-
fræðilega úttekt kynnt.
4. Fjárfestingarstefna kynnt.
5. Önnur mál.
Stjórn Eftirlaunasjóðs Íslandsbanka
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 13. maí 2004 kl. 14.00 á neðan-
greindum eignum:
Birkimelur 5, Varmahlíð, 50% hl., þingl. eign Lindu Bjargar Reynis-
dóttur. Gerðarbeiðendur eru Sparisjóður Vélstjóra og Greiðslumiðlun
hf. Visa Ísland.
Borgarflöt 1A, Sauðárkróki, ásamt vélum, tækjum og búnaði, þingl.
eign Lóns eignarhaldsfélags ehf. Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun.
Þormóðsholt, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Sævars Þrastar
Tómassonar. Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
6. maí 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Vatnsendablettur 173, þingl. eig. Þröstur Hlöðversson og Rakel Bald-
ursdóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., sýslumað-
urinn í Kópavogi og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn
11. maí 2004 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
6. maí 2004.
Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Suðurlandsvegur 4, Hella, þingl. eig. Búheimar ehf., gerðarbeiðendur
Bílanaust hf., Fjöltækni ehf., Fóðurblandan hf., Harpa-Sjöfn hf., Slát-
urhús Hellu hf. og Öryggismiðstöð Íslands hf., mánudaginn 10.
maí 2004 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
6. maí 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hellishólar, Rangárþingi eystra, þingl. eig. Sigurborg Óskarsdóttir,
gerðarbeiðendur Ker hf., Byggðastofnun, Lánasjóður landbúnaðar-
ins, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Stálverktak hf., sýslumaðurinn
á Hvolsvelli og Kaupþing Búnaðarbanki hf., þriðjudaginn 11. maí
2004 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
6. maí 2004.
Aðalfundur
samtakanna Regnbogabarna
verður haldinn 24. maí nk. kl. 18:00 í húsi sam-
takanna í Mjósundi 10, Hafnarfirði.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Endurskoðaðir reikningar.
Lagabreytingar.
Kosningar.
Önnur mál.
Stjórn Regnbogabarna.
Málþing:
Viljum við erfðabreytt
matvæli?
Verndun og ræktun (VOR) - félag framleiðenda
í lífrænni ræktun, Neytendasamtökin og áhuga-
hópur neytenda standa að málþingi um erfða-
breytt matvæli. Málþingið verður haldið á
Grand Hóteli Reykjavík við Sigtún laugardag-
inn 8. maí kl. 13.30-16.30. Verslunin Yggdrasill
býður upp á lífrænar veitingar. Aðgangseyrir
er 500 krónur.
Frummælendur:
Guðfinnur Jakobsson, bóndi í lífrænni ræktun,
Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Vottunarstofunnar Túns,
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna,
Þórður Halldórsson, garðyrkjubóndi, formaður
VOR.
Að framsögum loknum verða umræður.
Fundarstjóri er Svanborg R. Jónsdóttir kenn-
ari.
TILKYNNINGAR