Morgunblaðið - 07.05.2004, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Á VISSAN hátt er Ned Kelly
frelsinshetja Ástrala. Hann kannski
breytti ekki öllu fyrir ástralska al-
þýðu, en gaf þeim von þegar hann
sem útlagi barðist við viktoríönsku
lögregluna, og það hefur haldið
nafni hans á lofti. Líkt og Skotar
gerðu mynd um William Wallace og
Írar um Michael Collins er nú komin
röðin að Áströlunum. En þeir fara
aðeins öðruvísi að.
Ned langar ekkert meira en að
lifa góðu og heiðarlegu lífi, og vera
til staðar fyrir móður sína ekkjuna
og systkini sín. En hann er skap-
hundur með réttlætiskennd og lend-
ir því fljótt og oft í útistöðum við yf-
irvöldin sem níðast á öllum sem
minna mega sín, fátæklingum og
innflytjendum.
Þessi mynd er mun raunsærri, og
áreiðanlega nær raunveruleikanum
en flestar hetjumyndir. Bæði er
sviðsmyndin öll og búningarnir
mjög raunsæ, skítug og engan veg-
inn skjallandi fyrir Hollywood-
stjörnurnar. Heath Ledger og Or-
lando Bloom eru hreinlega gerðir
ljótir og skítugir, líkt og þessir
náungar áreiðanlega voru. Sama má
segja um frásögnina sjálfa. Það sem
ég þekki af sögu Ned Kellys þá
kemur það satt og rétt fram í mynd-
inni. Maður veit auðvitað aldrei
hversu alvond lögreglan var eða al-
góður Kelly var, en einsog sést í
fréttum þessa dagana, geta þeir sem
hafa valdið lagst býsna lágt við mis-
beitingu þess.
Stíll myndarinnar er allur hinn
hógværasti og höfundur virðist ekki
ýkja viðburði eða uppákomur svo
þeir passi inn í handrit sem mun
„virka“. Meira að segja er hápunkt-
ur myndarinnar frekar þunglama-
legur. Hetjan sjálf er frekar mikil
andhetja, góðhjartaður og oft
klaufalegur drengur, en ekki mik-
ilmenni með háleitar hugsjónir. Allt
þetta kunni ég að meta, og fannst
gaman að fá að sjá það sem mjög
líklega gerðist, en ekki sanna sögu
tífaldaða í Hollywood-stílnum.
Til þess að saga verði þess virði
að segja verður hún þó að hafa
áhrifamátt á einhvern hátt. Upp á
þetta fannst mér svolítið vanta. Ned
Kelly talar yfir myndina líkt og
hann sé sjálfur að segja sögu sína,
og það fannst mér flott og gerði
myndina ljóðræna og svolítið varn-
arlausa. Hins vegar hefði mátt nota
söguröddina hans á enn áhrifaríkari
hátt og kallast meira á visst atvik í
æsku hans sem hafði mikil áhrif á
hann og sjálfsmynd hans.
Leikararnir eru allir ástralskir og
því með hreiminn á hreinu, sem er
mikill léttir. Hollywood-stjörnum
hópsins þykir áreiðanlega tilbreyt-
ing í því að leika í raunsæismynd, og
fá að vera ljótar. Heath Ledger nær
að gefa Ned Kelly skemmtilegt sér-
vitringsyfirbragð, Naomi Watts gef-
ur smekklega og raunsæja mynd af
hefðarfrú sem hrífst af „villimann-
inum“, Orlando Bloom leikur félaga
Byrne mjög skemmtilega og þótt
ekki reyni svo sem mikið á Geoffrey
Rush, þá stendur hann sig ágætlega.
Mér finnst Ned Kelly heillandi lít-
il mynd með stórum leikurum.
Bravó fyrir leikstjóranum að þora
að segja sannleikann og taka þannig
skref í rétta átt.
Heillandi
sannleikur
KVIKMYNDIR
Sambíó og Háskólabíó
Leikstjórn: Gregor Jordan. Handrit: John
M. McDonagh eftir sögu Robert Drewe.
Kvikmyndataka: Oliver Stapleton. Aðal-
hlutverk: Heath Ledger, Orlando Bloom,
Geoffrey Rush, Naomi Watts, Joel Edg-
erton, Laurence Kinlan og Phil Barantini.
110 mín. Ástralía Universal Pictures
2003.
NED KELLY Hildur Loftsdóttir
HLJÓMSVEITIN hans Barða Jó-
hannssonar, Bang Gang, mun halda
fágæta en kærkomna tónleika hér á
landi í kvöld.
Barði er líka
önnum kafinn
maður með meiru,
jafnt hér sem er-
lendis, þar sem
hann hefur notið
þónokkurrar vel-
gengni, bæði með
Bang Gang og
Lady & Bird, dúett
sem hann starfræk-
ir með söngkonunni Keren Ann. Hér
heima kemur hann líka að tónlistar-
stjórn fyrir söngleikinn Fame sem
settur verður upp í Vetrargarði
Smáralindarinnar í sumar.
Tónleikar Bang Gang í kvöld verða
á Gauki á Stöng og er sumpart litið á
þá sem upphitun fyrir yfirvofandi Evr-
ópureisu þar sem til stendur að fylgja
eftir plötunni fínu Something Wrong
sem kom út undir lok síðasta árs. Plat-
an sú fékk fínar viðtökur hjá gagnrýn-
endur, jafnt hérlendis sem ytra, eink-
um í Frakklandi, þar sem Barði er
orðinn býsna stórt nafn.
Bang Gang er að upplagi sveitin
hans Barða og hefur í gegnum tíðina
verið gott flæði á meðspilurum og
-söngvurum. Í kvöld verða með honum
í Bang Gang, Esther Talia Casey
söngkona, Valdimar Kristjánsson sem
leikur á píanó, Franz Gunnarsson gít-
ar, Hallur Ingólfsson trommur og Jón
Atli Helgason á bassa.
Bang Gang leikur á
Gauknum í kvöld
Upphitun
fyrir
Evróputúr
Barði og Bang
Gang.
Tónleikar Bang Gang verða á
Gauknum og hefjast kl. 22.40.
Aðgangseyrir er 500 kr.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Thomas Kalb
Einsöngvari ::: Ute Lemper
FIMMTUDAGINN 6. MAÍ KL.19:30 NOKKUR SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 7. MAÍ KL.19:30 LAUS SÆTI
Græn #5
Á efniskrá verða m.a. lög eftir Kurt Weill, Jacques Brel,
Astor Piazzolla, Nick Cave, Norbert Scholtze og fleiri.
UTE LEMPER SYNGUR Á ÍSLANDI - LOKSINS
Laus sæti
Laus sæti
Lau. 8. maí örfá sæti laus
Fös. 14. maí örfá sæti laus
Lau. 22. maí laus sæti
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
FRUMSÝNING fi 13/5 kl 20 - UPPSELT
2. sýn su 16/5 kl 20 - gul kort
3. sýn fi 27/5 kl 20 - rauð kort
4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Í kvöld kl 20
Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 9/5 kl 20
Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT,
Lau 15/5 kl 20, Su 23/5 kl 20,
Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20,
Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20
Lau 12/6 kl 20, Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 9/5 kl 14,
Su 16/5 kl 14,
Su 23/5 kl 14
Síðustu sýningar
LISTDANSSKÓLI HAFNARFJARÐAR
Lau 8/5 kl 13 og 15 - NEMENDASÝNING
GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Fi 13/5 kl 20,
Su 16/5 kl 20
Fö 21/5 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 3/6 kl 20
Síðasta sýning
í kvöld
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil, borðap. s. 568 0878
Stuðbandalagið frá Borgarnesi
Miðasala í síma 555-2222
theater@vortex.is
Aukasýning - Síðasta sýning
Föstudaginn 7. maí kl. 21
Fantagott stykki...frábær skemmtun
sem snerti margan strenginn
-Ómar Garðarsson Eyjafréttir
eftir Jón Atla Jónsson
Eldað með Elvis
Aukasýningar vegna mikillar
eftirspurnar:
Fös. 21/5 kl. 20.
Lau. 22/5 kl. 20.
Búkolla
Barnaleikrit
lau. 8/5 kl. 14.
lau. 15/5 kl. 14 og kl.16
Miðasölusími 462 1400
www.leikfelag.is
sýnir í Tjarnarbíói
KLEINUR
eftir Þórunni Guðmundsdóttur
í Kaffileikhúsinu
Frumsýning 7. maí
2. sýn. 8. maí
3. sýn. 9. maí
Lokasýning 16. maí
Ath. aðeins þessar fjórar sýningar
Sýningar hefjast kl. 20
Miðapantanir: s. 551 2525
eða á midasala@hugleikur.is