Morgunblaðið - 09.05.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 126. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Perúsk með
afrískar rætur
Viðtal við Susana Baca sem syngur á
Listahátíð í Reykjavík | 24
Tímarit Morgunblaðsins | Færeyingar á Íslandi Er daður það
sama og viðreynsla? Sumartískan Snúna krossgátan
Atvinna | Að ráða nýjan starfsmann Lífsýnataka á vinnustöðum
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
ÞINGMENN repúblikana í Bandaríkjunum
hafa flestir komið Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra til varnar eftir að hann bar vitni
fyrir tveim þingnefndum á föstudaginn vegna
upplýsinga um að banda-
rískir hermenn í Írak hefðu
misþyrmt og niðurlægt
íraska fanga sem þeir
gættu.
En hvorki repúblikanar
né demókratar fóru leynt
með, að þeir voru reiðir
Rumsfeld fyrir að hafa ekki
varað þingflokksformenn við því að hneyksli
væri í uppsiglingu. Þingmenn repúblikana
sögðu ennfremur, að þeir væru alls ekki vissir
um að Rumsfeld myndi sitja áfram sem varn-
armálaráðherra ef frekari upplýsingar um mis-
þyrmingar á föngum kæmu fram, en Rumsfeld
sagði í vitnisburði sínum að við því mætti búast.
John McCain, öldungadeildarþingmaður
repúblikana frá Arizona, kvaðst óánægður með
að Rumsfeld skyldi ekki geta gefið upplýsingar
um hverjir væru yfirmenn bandarísku fanga-
varðanna sem misþyrmdu Írökunum, en
McCain sagði Rumsfeld hafa beðist „karlmann-
lega“ afsökunar á misþyrmingunum og því að
hafa ekki upplýst þingið um málið fyrr.
Repúblikan-
ar reiðir
Rumsfeld
Washington. The Washington Post.
AÐ fara með bílinn í skoðun gefur í huga
fæstra sérstakt tilefni til hátíðahalda. Hjá
Fornbílaklúbbnum er þessu öðruvísi farið. Í
gær var hinn árlegi skoðunardagur Forn-
hádegisverði var þrammað um álfabyggðir.
Eins og fornbílaeigenda er von og vísa var tek-
inn rúntur í Firðinum svo að bæjarbúar fengju
að berja nýskoðaða eðalvagnana augum.
bílaklúbbs Íslands og eigendur gamalla glæsi-
kerra flykktust með þær í skoðun til Frum-
herja. Fjörukráin í Hafnarfirði var því næst
viðkomustaður fornbílaeigenda og að loknum
Morgunblaðið/Golli
Eðalvagnar á ferð um Hafnarfjörð
TOGSTREITA og núningur milli forseta-
embættisins og stjórnkerfisins, einkum gagn-
vart utanríkis- og forsætisráðuneytunum,
hafa verið opinbert leyndarmál innan stjórn-
kerfisins, að því að kemur fram í seinni hluta
umfjöllunar Árna Þórarinssonar í Tímariti
Morgunblaðsins í dag um átta ára feril Ólafs
Ragnars Grímssonar í forsetaembættinu. Al-
varlegasta tilfellið hafi verið á sl. ári þegar
utanríkisráðuneytið sá sig knúið til að grípa
inn í og fá aflýst fundum sem forsetinn hafði
á eigin spýtur og gegnum sín persónulegu
sambönd boðað til í Washington með nokkr-
um bandarískum embættismönnum.
Eftir því sem næst verður komist stafa
samskiptaörðugleikarnir sumpart af málefna-
legum ástæðum, prótokollmálum, þ.e. hvort
forsetinn starfi í þessu samhengi eftir við-
teknum og hefðbundnum boðleiðum um
ákvarðanir og vinnubrögð, en einnig sumpart
af togstreitu stjórnmálamanna og persónu-
legri óvild, gamalli eða nýrri.
Því er einnig haldið fram að Ólafur Ragnar
hafi í sumum tilfellum þótt nokkuð yfirgangs-
samur í samskiptum sínum við embættis-
menn í stjórnkerfinu og jafnvel sýnt þeim til-
litsleysi. „Hann var frekur til fjörsins sem
pólitíkus og er frekur til fjörsins sem for-
seti,“ segir heimildarmaður. „Ímyndarbreyt-
ing er ekki það sama og persónuleikabreyt-
ing.“
Samskipti forsetans við önnur ríki og ráða-
menn reyna mikið á samstarf við utanrík-
áfram gegnum viðkomandi sendiráð.
Heimildarmönnum blaðsins ber saman um
að alvarlegasta uppákoman í þessum sam-
skiptum hafi verið í fyrra þegar utanrík-
isráðuneytið taldi sig tilneytt að grípa inn í
og fá aflýst fundum sem forsetinn hafði á eig-
in spýtur og gegnum sín persónulegu sam-
bönd boðað til í Washington með nokkrum
bandarískum embættismönnum og, sam-
kvæmt sumum heimildum, einnig þingmönn-
um; hvorki utanríkisráðuneytið né forsæt-
isráðuneytið voru þarna höfð með í ráðum.
Stóllinn fyrir dyrnar
Einn heimildarmanna í stjórnkerfinu segir:
„Þarna varð utanríkisráðuneytið að setja for-
setanum stólinn fyrir dyrnar.“ Heimildir úr
annarri átt halda því hins vegar fram að
fundunum hafi verið aflýst vegna þess að
mannskæður fellibylur gekk yfir Washington
á þessum tíma og raskaði dagskránni.
Ýmsir heimildarmenn í stjórnkerfinu taka
undir það að í langflestum tilvikum gangi allt
samkvæmt bókinni. En það eru undantekn-
ingarnar sem valda töluverðum pirringi í
samskiptunum. Því hefur verið haldið fram
að þessi pirringur hafi leitt til þess að Hall-
dór Ásgrímsson hafi í seinni tíð hætt að
fylgja forsetanum í opinberar heimsóknir.
Aðrir segja hins vegar að ferðalög forsetans
hafi aukist svo að utanríkisráðherra hafi ekki
haft tíma til að taka þátt í þeim öllum vegna
annarra skyldustarfa.
isráðuneytið og mun það hafa gengið misvel
eða misilla eftir tímabilum. Stuðningsmenn
forsetans halda því fram að árekstrarnir stafi
af því að ráðuneytinu mislíki sú viðleitni
Ólafs Ragnars að gera forsetaembættið sjálf-
stæðara og ekki algjörlega háð frumkvæði
utanríkisþjónustunnar. Gagnrýnendur hans
innan stjórnkerfisins benda hins vegar á að
slík viðleitni eigi sér engar forsendur. Það sé
utanríkisráðherra sem hafi forræði yfir sam-
skiptum Íslands við útlönd og vilji forseti
leggja fram tillögur eða hugmyndir um verk-
efni í þeim efnum beri honum að leita til ut-
anríkisráðuneytisins sem síðan vinnur málið
Togstreita forsetaembættisins og stjórnkerfisins opinbert leyndarmál
Fundum forseta í Washington
aflýst eftir inngrip ráðuneytis
Ólafur Ragnar Grímsson og Halldór Ás-
grímsson saman við athöfn vegna inngöngu
Póllands í NATO í mars 1999.
Morgunblaðið/Kristinn
VOPNAÐIR leynilögreglumenn verða um
borð í sumum áætlunarflugvélum frá Ástralíu
til Bandaríkjanna, samkvæmt samningi sem
Ástralar og Bandaríkjamenn skrifuðu undir í
gær. Dómsmálaráðherra Ástralíu, Chris Ell-
ison, sagði að þær flugferðir sem lögreglu-
mennirnir yrðu í yrðu valdar af handahófi.
„Þessar öryggisráðstafanir byggjast á
löngu samstarfi Ástrala og Bandaríkjamanna í
löggæslu, flugöryggismálum og baráttu gegn
hryðjuverkum,“ sagði Ellison. Ástralar hafa
síðan um jól haft leynilögreglumenn um borð í
vélum sem fljúga til Singapore, og frá 2001
hafa þeir verið um borð í vélum í innanlands-
flugi.
Lögregla í ástr-
ölskum flugvélum
Sydney. AP.
ÞÝSK yfirvöld hafa handtekið 18 ára karl-
mann sem grunaður er um að vera höfundur
tölvuormsins „Sasser“, sem komist hefur í
þúsundir tölva um allan heim. Lögregla og
saksóknarar leituðu á heimili foreldra manns-
ins í bænum Waffensen á föstudaginn, sagði
talsmaður saksóknara í Hannover. Þýska
vikuritið Der Spiegel sagði, að leyniþjónustan
og alríkislögreglan í Bandaríkjunum hefðu
tekið þátt í leitinni að höfundi Sasser.
Ormurinn dreifðist um tölvur um allan heim
í síðustu viku og nýtti sér galla í Windows-
stýrikerfi Microsoft-fyrirtækisins. Ólíkt
mörgum öðrum ormum þurftu tölvueigendur
ekki að opna tölvupóstsviðhengi til að Sasser
kæmist inn í tölvuna. Hann leitar sjálfur á
Netinu að tölvum sem hafa umræddan galla í
stýrikerfi og sendir afrit af sjálfum sér í þær.
Meintur höf-
undur „Sasser“
handtekinn
Berlín. AP.
Tímaritið og Atvinna í dag
♦♦♦
♦♦♦