Morgunblaðið - 09.05.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 57
Vöru og fisk flutningar
Getum bætt við verkefnum í
þungafl. Hvert á land sem er,
stakar ferðir/föst viðskipti, góð
tilboð. Frjálsa flutningafélagið
s. 894 9690.
Við bjóðum
framkvæmdaaðilum
eftirtaldar
framleiðsluvörur okkar
á verksmiðjuverði:
Fráveitubrunnar Ø 600
Fráveitubrunnar Ø 1000
Sandföng
Vatnslásabrunnar
Rotþrær
Olíuskiljur
Fituskiljur
Sýruskiljur
Brunnhringi
Brunnlok
Vökvageymar
Vegatálmar
Kapalbrunna
Einangrunarplast
Sérsmíði f. vatn
og fráveitur
Borgarplast
Sefgörðum 3,
Seltjarnarnesi,
sími 561 2211
Teg. 2069 - nýkominn. Rosa
góður, fæst í mörgum litum. Skál-
ar B-D. Súperverð kr. 1.995. Bux-
ur í stíl kr. 995.
Mega vinsælu íþrótta-
brjóstahaldararnir nýkomnir aft-
ur á súperverði kr. 1.995.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 2070. Opið kl. 12-18
mán.-fös. og lau. kl. 11-14.
Sumarsandalar
Tilboð 1 par 1.290 - 2 pör 2.000.
Stærðir 35-41, margir litir. Nýir litir
í barnastærðum. Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Sumar-derhúfurnar komnar
kr. 990.
Semelíustafahálsmen kr. 690.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Ljósmyndatökur á ótrúlegu
verði. Ferming, brúðkaup, útskrift
og hvað sem er. Persónuleg og
sveigjanleg þjónusta. Pantaðu
strax! S. 849 7826 - 552 6171.
www.mmedia.is/machete, alltaf
ódýrari!
Stang- og hreindýraveiðiferðir
til Grænlands í júlí og ágúst.
Nánari upplýsingar: Ferðaskrif-
stofa Guðmundar Jónassonar,
sími 511 1515. www.gjtravel.is.
Sérlega vönduð patróna, passar
á flestar gerðir rennibekkja.
Gylfi Sigurlinnason ehf.,
gylfi@gylfi.com, sími 555 1212.
Dísel rafstöð með rafstarti. 1,5
kw Lister rafstöð með rafstarti,
1 cyl., er gefin upp 1,5kw, er í
mjög góðu standi, olíutankur fylg-
ir. Tilboð óskast. Upplýsingar í
síma 862 7261.
www.midlarinn.is
Til sölu Grásleppu og Skötuselsn-
et, þorskanetaúthald, netaspil.
Einnig vantar á skrá, DNG rúllur
og STK tækið. Sími 892 0808
midlarinn@midlarinn.is
Línubalar 70-80 og 100L með
níðsterkum handföngum
Fiskiker fyrir smærri báta, gerðir
300-350 og 450
Blóðgunarílát 250-500L
BORGARPLAST
Seltjarnarnesi: S 5612211
Landsins mesta úrval af bátum,
utanborðsmótorum og bátavör-
um. Sumaropnun í verslun - opið
frá kl. 08.00 til 18.00.
Vélasalan ehf., Ánanaustum 1,
S. 580-5300 www.velasalan.is
Fjölskylduvænu álkanóarnir eru
tilbúnir til afgreiðslu. Vega aðeins
32 kg., l. 4,5 m., br. 0,94 m., efnisþ.
1,27 mm, burðarg. 295 kg. Uppl.
í s. 893 5777. d-tour.is
Toyota Landcruiser 90LX, árg.
'98, ek. 16 þús. Breyttur 35".
Áhv. 950 þús. V. 2.150 þús. Uppl.
í s. 897 1012.
Til sölu VW Golf GL 1800 árgerð
'95. Gott verð. Upplýsingar í síma
691 9610.
Til sölu Hyundai Coupe árg.'98,
ek. 102 þ. beinsk.
Fallegur bíll fyrir gæja og pæjur.
Lækkað verð 450 þús.
Upplýsingar í síma 691 9610.
Suzuki Grand Vitara árg. '03. Ek.
16 þús. XL7, V6 2700, sjálfsk., loft-
kæling, ABS, fjarst. samlæsingar,
hraðastillir og margt fleira. Tilboð
2.670. Uppl. í síma 696 7329 eða
696 1001.
Opel Astra árg. '9,9 ek. 73 þús.
km. 1600cc station. Góður fjöl-
skyldubíll. Aukahl. álfelgur, sam-
læsingar, vetrardekk á felgum og
líknarbelgir. Vel með farinn. Uppl.
í símum 660 8167 og 421 5115.
Kia Grand Sportage, árgerð '99
5 gíra, ekinn 113 þús. Verð 950
þús. Uppl. í s. 691 9610.
Innflutningur USA Bílar, vélar,
sjálfsk. Verðd. Grand Laredo, árg.
2000, 1,8 millj., árg. 2004 3,6 millj.
Heiðarlegur og vanur innflytjandi
(líklega ódýrastur á markaðinum).
Heimasíða centrum.is/bilaplan,
en upplýsingar í síma 896 5120.
Audi A-4 Quattro Avante Turbo
ek. 39 þús. Einn með öllu! Ek. 39
þ., svart leður, 5 gr. tölvukubbur,
17" felgur, 1,8 T, 210 HP, spoiler-
kit, sportstýri, xeonljós, 6 CD,
filmur frá Auto Sport, s. 544 4640/
692 0517.
Partasala, varahlutir. Mazda,
Mitsubishi, Nissan.
Bílaviðgerðir. Sími 587 8040,
892 5849 og 897 6897.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Bifhjóla og ökukennsla
Eggert Valur, ökukennari.
Ökukennsla/skóli/mat.
Nýr M. Benz. Uppl. í símum
893 4744/565 3808/853 4744.
Fellihýsi til sölu. Til sölu er felli-
hýsi með hörðum hliðum, gerð
Rapido ásamt fortjaldi, ný yfir-
farið. Sími 555 1127/693 9577.
Til sölu Jarðvegssög
(skurðfræsari), keyrð 400 tíma,
4x4, fjórhjólastýri, 6 sviða tönn,
auka vökvaúrtök. Uppl. í síma
893 9190.
Herbalife. Heilsa, megrun og
fegrun. Láttu þér líða vel á meðan
kílóin fjúka. www.slim.is, sími 699
7383 - 565 7383.
Gleraugnaverslun til sölu á
góðum stað í Reykjavík. Miklir
möguleikar. Áhugasamir leggi inn
nöfn og síma á augl.deild Mbl
merkt: „G-15344“ fyrir 21. maí.
Bókhald og reikningsskil. Bók-
hald, ársuppgjör, VSK uppgjör og
skattaframtöl.
Upplýsingar í síma 551 4347.
Nissan Patrol SE+ 06/1999. Ek.
71 þ. km, leðuráklæði, þaklúga,
loftkæling, ABS hemlakerfi, rafm.
í rúðum, speglum og sætum,
dráttarkrókur. Verð 2.800 þ. kr.
Uppl. í s. 552 6452 og 864 5032.
Athafnafólk ath.
Gríðarlegir möguleikar fyrir alla
sem vilja auka tekjurnar. Skoðið
www.Markmid.com og/eða
www.Samskipti.com eða sendið
fyrirspurn á Info@markmid.com.
NÝJA viðhaldsstöð Atlanta-
samsteypunnar í Shannon á Írlandi,
Air Atlanta Aero Engineering, AA-
EA, sem tekin var í notkun nýverið
við hátíðlega athöfn, mun bæði ann-
ast ákveðnar skoðanir á þotum fé-
laga innan Atlanta-hópsins og fyrir
aðra aðila eftir því sem afkastagetan
leyfir. Hafþór Hafsteinsson, for-
stjóri Atlanta, segir í samtali við
Morgunblaðið að hagkvæmt sé að
geta fengið sem mest af minni háttar
skoðunum á einum og sama stað og
hann segir hugsanlegt að í framtíð-
inni verði afkastageta stöðvarinnar
aukin með því að byggja annað flug-
skýli við hlið hins.
AAEA getur í dag annast viðhald
á Boeing 737 og 727 þotum og á
næstunni verður stöðin komin með
leyfi til viðhalds á 757 og 767 þotum.
Þá muni þotur bæði frá Atlanta og
Excel Airways verða sendar þangað
í skoðanir. Þá mun stöðin annast við-
hald fyrir 727 þotur hraðsendinga-
fyrirtækisins UPS næstu tvö árin.
Hafþór segir að stöðin annist í
fyrstu einkum viðhald fyrir 737 þot-
ur Íslandsflugs og síðar á árinu þot-
ur sömu gerðar í eigu Excel Air-
ways. Næsta vor er ráðgert að
stöðin verði komin með réttindi til
viðhalds á B747 þotum. Hafþór segir
að stærri A skoðanir á þotunum sem
taki þrjá daga fari fram í stöðinni
svo og minni C skoðanir.
Hægt er að koma tveimur 737 þot-
um og einni 757 eða 767 í skýlið í
senn eða einni 747. Hafþór segir að
stöðin hafi næg verkefni fyrir flug-
flota Atlanta-hópsins en ráðgert er
einnig að auka nokkuð afkastaget-
una og ráða um 60 manns til við-
bótar þeim 160 sem þegar starfa í
stöðinni.
Viðhaldsstöð Atlanta-samsteypunnar á Shannon-flugvelli hefur þegar ærin verkefni
Morgunblaðið/jtUnnt verður að sinna viðhaldi fyrir ýmsar þotugerðir í stöðinni í Shannon.
Hugsanlega bætt við öðru flugskýli
ÍRINN Tony Byrne, prestur hjá
kaþólsku kirkjunni, flutti nokkur
blessunar- og bænarorð við
vígsluathöfn stöðvarinnar. Hann
og Arngrímur Jóhannsson, annar
stofnenda Atlanta, störfuðu saman
við hjálparflugið í Bíafra-stríðinu
fyrir meira en þremur áratugum.
Tony Byrne sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir Arngrímur
hefðu kynnst á fyrstu stigum
hjálparstarfsins en Íslendingar
lögðu sem kunnugt er bæði til
mannafla og flugvélar í hjálp-
arfluginu. Stóð það í nokkra mán-
uði og var flogið með vistir frá
eynni Sao Tome til Nígeríu. „Arn-
grímur og Þorsteinn Jónsson fóru
oftast fyrstu ferðirnar frá Sao
Tome og ruddu brautina. Venju-
lega gátum við flogið 15 ferðir á
hverri nóttu,“ sagði Tony Byrne.
Hann hafði sjálfur starfað í Níger-
íu í 10 ár áður en stríðið hófst og
þekkti því vel til en hann var einn
af stjórnendum flugsins. Byrne
starfaði áfram í Afríkulöndum og
hefur búið þar alls í um 35 ár.
Stofnað var félagið Joint Church
Aid eða sameinaða kirkjuhjálpin,
sem Byrne segir að Þorsteinn
Jónsson hafi strax nefnd Jesus
Christ Airlines. Dregur hann enga
dul á að Íslendingar hafi spilað
þýðingarmikla rullu í hjálparflug-
inu og telur að alls hafi tekist að
forða um einni milljón manna frá
hungurdauða. Þegar flugið hófst
segir hann um tvö þúsund börn
hafa látist á degi hverjum úr nær-
ingarskorti.
Byrne segir flugið hafa kostað
fórnir, sjö vélar hafi farist eða
verið skotnar niður, 16 flugliðar
látist og um 150 manns á jörðu
niðri. „En í þessu verkefni sam-
einuðust allir, við lögðum til hlið-
ar skoðanamun um guðfræði og
menningu og allir lögðust á eitt
um að koma til hjálpar,“ segir
Byrne að lokum og minnist þessa
tímabils með virðingu. Í dag starf-
ar hann sem fyrr segir fyrir kaþ-
ólsku kirkjuna og sérhæfir sig
m.a. í að hjálpa þeim sem hafa
verið í sjálfsmorðshugleiðingum
og sinnir þeim sem orðið hafa fyr-
ir einelti.
Kynntust í hjálpar-
fluginu í Bíafra