Morgunblaðið - 02.06.2004, Qupperneq 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALGERT reykingabann á veitinga-
húsum, krám og öðrum almennings-
stöðum gekk í gildi í Noregi í gær en
aðaltilgangur þess er að vernda
starfsmenn fyrir óbeinum reyking-
um. Noregur fylgir í fótspor Írlands
sem tók upp slíkt bann í mars síðast-
liðnum.
Bannið miðast einkum við veit-
ingastaði og öldurhús en eigendur
þeirra þurfa nú að greiða 1.500
norskar krónur eða um 16 þúsund ís-
lenskar í sekt fyrir hvern þann sem
brýtur bannið. Verði eigandi uppvís
að stærra broti á reykingabanninu á
hann á hættu að staðnum verði lok-
að. Gestir verða því að reykja utan-
dyra héðan í frá.
Til verndar starfsfólki
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
þjónustufólk veitingastaða og kráa á
frekar á hættu að fá lungnakrabba
en aðrir starfsmenn sem ekki anda
að sér tóbaksreyk. Aukin þekking al-
mennings á hættum óbeinna reyk-
inga hefur breytt afstöðu fólks til
reykinga í Noregi og hefur reykinga-
mönnum fækkað um hundrað þús-
und frá því frumvarpið var lagt fram.
Skoðanakannanir sýna að meiri-
hluti Norðmanna er hlynntur bann-
inu. Fjórðungur reykingafólks ætlar
að hætta að reykja nú þegar bannið
hefur tekið gildi og um 80% veitinga-
húsa- og kráaeigenda telja að sér
muni takast að fylgja banninu eftir.
Heilbrigðisráðherra Noregs, Dag-
finn Høybraten, fagnar því að bannið
dragi úr reykingum en segir það ekki
hafa verið upphaflegt markmið þess.
Stemningin var rafmögnuð á
norskum öldurhúsum þegar nálgast
tók miðnætti mánudags, að sögn
fréttastofunnar AFP. Norski rokk-
slagarinn The Final Countdown eða
Hin hinsta niðurtalning glumdi í há-
tölurum American Bar í Ósló þar
sem kráargestir reyktu í kapp við
tímann. Þegar klukkan sló tólf söfn-
uðu starfsmenn kráarinnar ösku-
bökkunum saman og brutu þá með
táknrænum hætti í stórri plastfötu.
Starfsfólk barsins bauð gestum
bjórkrús í skiptum fyrir sígarettu-
pakka og þáðu margir boðið.
Reykja bara lax
Konungsfjölskyldan er ekki und-
anþegin banninu því norska kon-
ungshöllin er nú reyklaus með öllu.
Haraldur Noregskonungur hætti að
reykja þegar hann greindist með
krabbamein nýlega og krónprinsess-
an Mette-Marit og Martha prinsessa
hættu báðar að reykja þegar þær
urðu ófrískar.
Norsk yfirvöld hafa hrundið af
stað kynningarherferð vegna reyk-
ingabannsins og má sjá veggspjöld
víða í Noregi sem á stendur: „Vel-
komin til Noregs. Við reykjum bara
lax.“
Reykingabanni
komið á í Noregi
Norðmenn feta í fótspor Íra og banna
reykingar á almenningsstöðum
Ósló. AFP, AP.
ÍRASKIR stjórnmálasérfræðingar segja ný-
skipaða stjórn Íraks undir hæl Bandaríkja-
stjórnar og að völdin hafi verið hrifsuð úr
höndum Lakhdar Brahimis, sérlegs sendi-
manns Sameinuðu þjóðanna, sem átti að
hafa umsjón með myndun hinnar nýju rík-
isstjórnar.
Þeir benda á að væntanlegur forseti
Íraks hafi búið í Sádi-Arabíu í fimmtán ár,
annar varaforsetinn nýskipaði hafi flúið
Írak árið 1980 og forsætisráðherrann tíu
árum fyrr. Allir hafi þeir síðan orðið sam-
ferða innrásarliðinu í Írak því þeir tengist
ráðandi öflum í Washington.
„Fólkið sem þjáðist og var pyntað í Írak
á skilið þessar stöður,“ segir Hussein Hafed
al-Ukaly, sérfræðingur í alþjóðamálum við
Bagdadháskóla. Verðandi Íraksforseti,
Ghazi al-Yawar, er súnní-múslimi, forsætis-
ráðherrann Iyad Allawi er sjía-múslimi,
varaforsætisráðherrann Kúrdi og varafor-
setarnir tveir Kúrdi og sjíti.
Bráðabirgðastjórnarskrá Íraks mælir
fyrir um að ríkisstjórnin eigi að end-
urspegla samsetningu írösku þjóðarinnar
með tilliti til þjóðflokka, trúarhópa og ætt-
bálka.
„Írakar gera ekki upp á milli sjíta,
súnníta, Kúrda, gyðinga eða kristinna. Það
er ekki nauðsynlegt,“ segir al-Ukaly og tel-
ur það skammsýni bandarískra stjórnvalda
að halda að út brjótist þjóðflokkastríð ef
uppruni ráðherranna endurspegli ekki
samsetningu írösku þjóðarinnar.
Ráða Brahimi og Bremer?
Samkvæmt áætlunum áttu Brahimi,
bandaríski landstjórinn Paul Bremer og
framkvæmdaráðið að stjórna myndun rík-
isstjórnarinnar en fræðimenn efast margir
um að svo hafi verið. Framkvæmdaráðið
sagði af sér og er fyrrverandi formaður
þess verðandi forseti.
Al-Ukaly segir engan botna í því hvað sé
á seyði og telur Bremer og Brahimi ráða
ferðinni bak við tjöldin.
Hassan Alany, stjórnarskrársérfræð-
ingur við Bagdad-háskóla, bendir á að for-
sætisráðherrann hafi mikla reynslu í ör-
yggismálum en hann vann náið með
leyniþjónustu Bandaríkjanna CIA. Þau
tengsl eru þó talin líkleg til þess að sverta
ímynd forsætisráðherrans í huga Íraka.
Írakar fullir
efasemda
Bagdad. AFP.
SÚNNÍTINN og ættbálkaleiðtoginn Ghazi
Mashal al-Yawar, formaður framkvæmdaráðs
Íraks, var í gær kjörinn til þess að gegna emb-
ætti forseta Íraks. Nær engin völd fylgja emb-
ættinu, það er fyrst og fremst táknrænt. Al-
Yawar, sem er fæddur 1958 og með háskóla-
menntun frá Sádi-Arabíu og Bandaríkjunum
hét því í gær að hefja sig yfir flokkadrætti,
byggja upp lýðræðislegt ríki sem yrði laust við
„alræðisstjórn og misrétti“ og jafnframt hét
hann að vinna að endurreisn siðmenningar í
landinu.
Sumar fjölskyldurnar sem tilheyra Shamm-
ar-ættbálki al-Yawars eru úr röðum sjíta. „Ég
heiti ykkur því að standa dyggan vörð um vonir
ykkar um að þjóðin öðlist á ný fullveldi sitt og
að komið verði á lýðræði og sambandsríki þar
sem fólk getur notið þess að vera frjálsir borg-
arar í ríki laga, reglu og frelsis,“ sagði
al-Yawar.
Bandaríkjamenn segjast
ekki hafa beitt þrýstingi
Adnan Pachachi, sem Bandaríkjamenn
studdu, hafði daginn áður hafnað embættinu af
persónulegum ástæðum, eins og hann orðaði
það. Pachachi er einnig súnníti, 81 árs gamall
og fyrrverandi utanríkisráðherra landsins en
var áratugum saman í útlegð. Liðsmenn fram-
kvæmdaráðs Íraks, sem leysti sig upp í gær og
þeir al-Yawar og Pachachi áttu báðir sæti í,
sökuðu Bandaríkjamenn um að reyna að
þröngva þeim til að velja fremur Pachachi.
Talsmaður Bandaríkjamanna í Bagdad, Dan
Senor, vísaði þeim ásökunum á bug í gær og
sagði ráðamenn í Washington hafa talið báða
mennina mjög hæfa til að gegna forsetaemb-
ættinu.
Al-Yawar hefur verið mjög gagnrýninn á
stefnu Bandaríkjamanna í Írak. Sagði hann
nýlega að vanhæfni Bandaríkjamanna ætti sök
á óöldinni í landinu. Hann hefur hins vegar for-
dæmt árásir á liðsmenn herja bandamanna.
Nýr forseti starfar með bráðabirgðastjórn
sem tekur við völdum í lok júní en bandarískur
embættismaður sagði í gær að framkvæmda-
ráðið hefði verið leyst upp til þess að nýja
stjórnin gæti strax byrjað að hasla sér völl.
Lýðræðislegar kosningar eru hins vegar fyr-
irhugaðar í Írak í janúar á næsta ári.
Þá sagði Lakhdar Brahimi, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna í Írak, að Ibrahim
al-Jaafari og Rowsch Shaways hefðu verið út-
nefndir varaforsetar. Jaafari er leiðtogi Dawa,
stjórnmálaflokks sjíta og Shaways er forseti
þings Kúrda í borginni Irbil, höfuðborg sjálfs-
stjórnarsvæðis Kúrda. Brahimi óskaði í gær
þeim al-Yawar og Allawi til hamingju með nýju
embættin og sagði írösku þjóðina biðja þess að
þeim tækist ætlunarverkið, að endurreisa
Írak. Til stóð að Brahimi, sem átti að velja nýju
embættismennina í samráði við innlenda aðila,
skýrði frá valinu á mánudag en það dróst að
sögn vegna deilna framkvæmdaráðsins við
Paul Bremer, æðsta embættismann Banda-
ríkjanna í landinu. Sagði Brahimi að samninga-
viðræðurnar hefðu verið „erfiðar“.
Lokaorðið „í höndum Íraka“
Sjía-múslíminn Iyad Allawi, sem verður for-
sætisráðherra nýju ríkisstjórnarinnar og nýt-
ur stuðnings Bandaríkjamanna, kynnti í gær
33 ráðherra stjórnar sinnar. Hann sagði að
Írökum þætti eins og öðrum ekki gott að búa
við erlent hernám en þeir myndu þurfa á að-
stoð alþjóðlegra herja til að berjast gegn „óvin-
um þjóðarinnar“. Er talið að þetta merki að
nýja stjórnin muni semja við bandamenn um
að herlið þeirra verði áfram í landinu eftir 30.
júní.
Annar sjíti, Adil Abdel-Mahdi, verður fjár-
málaráðherra og við embætti innanríkismála
tekur Falah Hassan, sonur hershöfðingja sem
flúði land seint á áttunda áratugnum og var
virkur í andspyrnunni meðal íraskra útlaga
gegn Saddam Hussein.
Kúrdinn Hoshyar Zebari verður áfram utan-
ríkisráðherra og við embætti varnarmála tekur
Hazem Shalan al-Khuzaei. Nýr iðnaðarráð-
herra, Hajim al-Hassani, sagði í samtali við ar-
abísku al-Jazeera-sjónvarpsstöðina að frá mið-
vikudeginum myndu bandarískir ráðgjafar
ekki lengur ráða ríkjum í íröskum ráðuneytum.
„Ráðuneytin geta notfært sér sérfræðiþekk-
ingu sem til ráðstöfunar er en lokaorðið verður
í höndum Íraka,“ sagði hann.
Skipan bráðabirgða-
stjórnar í Írak lokið
Nýr forseti hefur gagnrýnt stefnu Bandaríkjamanna í Írak en samt er
búist við að erlent herlið verði áfram í landinu eftir valdaskiptin 30. júní
Bagdad. AP, AFP.
AP
Nýr forseti Íraks, Ghazi Mashal Ajil al-
Yawar, á fundi í Bagdad í gær þar sem ný
ríkisstjórn landsins var kynnt.
TVÆR miklar sprengingar heilsuðu
nýrri ríkisstjórn í Írak í gær, þrír
dóu og 34 særðust af völdum bílsp-
rengju við aðalstöðvar annars öfl-
ugasta flokks Kúrda í norðurhér-
uðum og sjást menn hér kanna
tjónið. Einnig var skotið úr
sprengjuvörpu á vel víggirta bæki-
stöð embættismanna Bandaríkjanna
í borginni.
Ellefu féllu og á þriðja tug særðist
þegar sjálfsmorðingi sprengdi fyrr
um daginn bíl sinn upp við inngang
herbækistöðvar Bandaríkjamanna í
borginni Bayji, um 35 km frá Tikrit,
heimaborg Saddams Husseins.
„Ég stóð við innganginn að her-
bækistöðinni þegar svartur BMW-
bíll sprakk upp rétt við bandarískan
Humwee-jeppa. Ég er viss um að all-
ir hermennirnir í honum dóu. Síðan
leið yfir mig,“ sagði Amr Abed
Ismail, Íraki sem vinnur í herstöð-
inni og særðist lítillega.
AP
Sjálfsmorðstilræði nálægt Tikrit