Morgunblaðið - 02.06.2004, Page 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 21
Framlengd | Sýningin Aðvörun
sem Fee sýnir úti við Gallerí + ,
Brekkugötu 35 á Akureyri, verður
framlengd um viku og stendur til og
með 6. júní.
Sýningin hefur vakið gríðarlega
athygli og vegna óska sem fram hafa
komið verður hún viku í viðbót. Hún
er úti og því opin allan sólarhring-
inn.
AKUREYRI
Mótmæla frumvarpi | Almennur
fundur kennara við Menntaskólann
á Akureyri tekur undir ályktun
stéttarfélaga ríkisstarfsmanna um
andstöðu við frumvarp fjár-
málaráðherra um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna. Verði
frumvarpið að lögum verður felld
niður sú skylda forstöðumanns að
áminna starfsmann með formlegum
hætti, áður en til uppsagnar úr
starfi kemur. Þar með geta duttl-
ungar stjórnenda ráðið starfs-
örygginu.
Frumvarpið er aðför að starfs-
réttindum ríkisstarfsmanna. Fund-
urinn mótmælir frumvarpinu harð-
lega, segir í fréttatilkynningu frá
Kennarafélagi MA.
JAFNRÉTTIS- og fjölskyldunefnd
Akureyrar lýsir yfir stuðningi við
þær tillögur sem fyrir liggja um
breytingu á almennum hegningar-
lögum og varða kaup á vændi. Í
ályktun sem samþykkt var á fundi
nefndar kemur fram að það sé mat
nefndarinnar „að með því sendi
stjórnvöld skýr skilaboð til sam-
félagsins um að ekki sé ásættanlegt
að kaupa aðgang að líkömum ann-
arra og nýta sér þannig neyð þeirra“.
Einnig kemur fram að Jafnréttis-
og fjölskyldunefnd Akureyrar vilji í
þessu sambandi vekja athygli á því
að í jafnréttisstefnu bæjarins er eitt
af leiðarljósunum að stuðlað verði að
því að andleg og líkamleg heilsa
kynjanna verði sem best og kynlífs-
þrælkun, kynferðisleg misnotkun og
kynbundið ofbeldi því fordæmt í
hvaða mynd sem það kann að birtast
í bæjarfélaginu.
Jafnréttis- og
fjölskyldunefnd
Styður
frumvarpið
BÍLAKLÚBBUR Akureyrar er 30
ára um þessar mundir og af því
tilefni var efnt til afmælishófs í fé-
lagsheimili BA við Frostagötu.
Fjölmargir gestir þáðu veitingar
og kynntu sér sögu klúbbsins frá
stofnun hans 27. maí 1974 til dags-
ins í dag og framtíðaráform. Þá
skrifuðu þeir Kristján Þ. Krist-
insson, formaður stjórnar BA, og
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
undir samstarfssamning en BA og
Akureyrarbær hafa ákveðið að
taka höndum saman í forvarnar-
og uppbyggingarstörfum í akst-
urs- og umferðarmálum.
Markmiðið er að bæta umferð-
aröryggi á svæðinu, stuðla að því
að ná hraðakstri af götum bæj-
arins og bæta enn ímynd bæjarins
sem fremsta kost landsins til bú-
setu. Þetta skal gert með því að
koma upp í bæjarlandinu aksturs-
gerði, sem saman stendur af æf-
ingabrautum fyrir unglinga og
hinn almenna bæjarbúa, kennslu-
brautum fyrir ökukennara og æf-
ingabrautum fyrir lögreglu,
slökkvilið og björgunarsveitir.
Einnig verði komið upp í þessu
akstursgerði fullkomnasta keppn-
issvæði landsins í akstursíþróttum,
kvartmílubraut í löglegri stærð,
Go-Kart braut og rally-kross
braut. Þá ætla málsaðilar að
standa fyrir menningarlegum
uppákomum tengdri bílasögu Ak-
ureyringa, m.a. með árvissum bíla-
dögum í kringum þjóðhátíðardag-
inn 17. júní, hópakstri yfir
sumartímann, námskeiðum og al-
mennum kynningum.
Bílaklúbbur Akureyrar og
Akureyrarbær í samstarf
Morgunblaðið/Kristján
Bílaklúbburinn 30 ára: Guðný Jóhannesdóttir, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs, og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri létu sig ekki vanta í af-
mælishóf BA. Á milli þeirra stendur Kristján Þ. Kristinsson, formaður BA.
Markmiðið að bæta
umferðaröryggi
Keflavík | Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, vígði í gær nýja kap-
ellu í sjúkrahúsi Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja í Keflavík. Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
hefur staðfest formlega framtíð-
arsýn stofnunarinnar.
Munir kapellunnar voru bornir úr
þeirri eldri og kom biskup þeim fyrir
á altari og tendraði þar ljós.
Biskup lýsti því yfir að kapellan
væri vígð í nafni Guðs og afhenti
prestum og söfnuðum hana til afnota
og umönnunar.
Við athöfnina afhenti fulltrúi
Kvenfélags Keflavíkur málverk eftir
Elínrósu Eyjólfsdóttur og verður
hún hengd upp í kapellunni.
Skurðstofur í D-álmunni
Því var einnig fagnað í gær að lok-
ið er endurbótum á mótttöku Heil-
brigðisstofnunarinnar og bráða- og
slysamóttöku. Við athöfn sem efnt
var til af þessu tilefni skrifuðu
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra og Sigríður Snæbjörns-
dóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigð-
isstofnunar, undir skjal með
framtíðarsýn stofnunarinnar til árs-
ins 2010. Er þetta stefna sem fram
kemur í skýrslu ráðherraskipaðrar
nefndar um framtíðaruppbyggingu,
þróun og skipulag stofnunarinnar
sem skilaði tillögum sínum á síðasta
ári.
Meðal markmiða er að auka þjón-
ustu HSS við Suðurnesjamenn svo
að 80% legudaga þeirra á spítölum
verði í heimahéraði en það hlutfall er
nú aðeins helmingur.
Fjárfrekasta framkvæmdin sem
ráðast á í á tímabilinu er að innrétta
þriðju hæð D-álmu spítalans fyrir
skurðstofur og tólf rúma legudeild.
Á móti verður plássið sem losnar
þegar skurðstofurnar flytjast notað
til að koma upp deild fyrir heilabil-
aða aldraða einstaklinga.
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra tók fram þegar hann
hafði skrifað undir skjalið að fram-
tíðarsýnin væri staðfest með fyr-
irvara um fjárveitingar og heimildir
til að ráðast í nauðsynlegar fram-
kvæmdirnar. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið að unnið væri að
undirbúningi og kvaðst vonast til að
unnt yrði að gera eitthvað á næsta
ári.
Jón sagði í ávarpi sínu að aldraðir
hefðu áfram forgang að leguplássi í
D-álmu sjúkrahússins og að vilji
væri til að efla heimaþjónustu við
aldraða enn frekar. Hann sagði að til
athugunar væri að breyta hluta af
dvalarheimilinu Hlévangi í Keflavík
í hjúkrunarrými. Loks gat hann þess
að umsókn Reykjanesbæjar um
heimild til að byggja hjúkr-
unarheimili væri til jákvæðrar um-
fjöllunar í ráðuneytinu. Jón sagði í
samtali við blaðamann að umsóknin
frá Reykjanesbæ væri nýlega komin
og að í henni væri ekki tilgreindur
fjöldi rýma. Þurfi að vinna málið
áfram. Sagði ráðherra að for-
ystumenn bæjarfélagsins hefðu
nefnt að mögulegt væri að byggja
heimilið í einkaframkvæmd eins og
lög nú heimiluðu. Það yrði skoðað.
Heilbrigðisráðherra staðfestir framtíðarsýn HSS
Ný kapella vígð á sjúkrahúsinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vígsla: Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, blessar nýju kapelluna. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra var við-
staddur. Við hlið hans er Konráð Lúðvíksson lækningaforstjóri.
FULLTRÚAR líknarfélaga af-
hentu Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja (HSS) gjafir við athöfn
sem fram fór í gær. Verðmæti
gjafanna er talsvert á fjórðu
milljón kr.
Landssamtök hjartasjúklinga
og félag hjartasjúklinga á Suð-
urnesjum gáfu tæki til að fylgj-
ast með starfsemi hjartans við
áreynslu, hjartalínurit og tæki
til að fylgjast með hjartslætti í
sólarhring.
Lionsklúbburinn Keilir,
Lionsklúbbur Keflavíkur, Lions-
klúbbur Njarðvíkur, Lions-
klúbburinn Æsa og Lionessu-
klúbbur Keflavíkur gáfu ómhníf
til nota við skurðaðgerðir.
Lionsklúbburinn Æsa og
Lionessuklúbbur Keflavíkur
gáfu blöðruómsjá.
Eydís Eyjólfsdóttir gaf inn-
rammað skjal frá árinu 1974
þar sem tilkynnt var að ömmu
hennar, Elínrósu Benedikts-
dóttur ljósmóður, hefði verið
veitt fálkaorðan. Skjalið verður
hengt upp á fæðingardeild spít-
alans.
Verðmætar gjafir afhentar
Valt á Reykjanesbraut | Tveir
voru fluttir á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss eftir bílveltu á
Reykjanesbraut við Strandarheiði
rétt fyrir klukkan hálfsex í gær-
morgun. Þrír voru í bifreiðinni. Einn
slapp án meiðsla, að sögn lögreglu,
en hinir kvörtuðu undan eymslum í
baki og hálsi. Af þeim sökum var
ákveðið að veita þeim aðhlynningu á
sjúkrahúsi.
Útaf á stolnum bíl | Bifreið var ek-
ið út af Reykjanesbrautinni móts við
Vogaveg laust fyrir klukkan sex að
morgni annars í hvítasunnu. Þau
fjögur sem í bifreiðinni voru sluppu
án meiðsla og hlupu á brott en náð-
ust. Þau voru færð á lögreglustöð
grunuð um nytjastuld bifreiðarinnar
og akstur undir áhrifum áfengis. Um
er að ræða einstaklinga á aldrinum 16
til 28 ára. Bíllinn skemmdist eitthvað.
Lögreglumenn höfðu afskipti af
fjórum ökumönnum á Reykjanes-
braut annan í hvítasunnu vegna hrað-
aksturs. Sá er ók hraðast var á 146
km hraða.