Morgunblaðið - 02.06.2004, Síða 26

Morgunblaðið - 02.06.2004, Síða 26
UMRÆÐAN 26 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÉG VAR nýlega að lesa í The Guardian Weekly þýtt viðtal úr franska blaðinu Le Monde við breska rithöfundinn alkunna John Le Carré. Hann kemur víða við í máli sínu. M.a. berst í tal ástand heimsmála, ófrið- arógnir og eymdarbasl almennings í fátæktarlöndum. Um það efni hefur Le Carré m.a. þessi orð: ,,Svo lengi sem við [vest- urlandamenn] göngum á vegum hins frjálsa markaðar og valds fé- sýslufyrirtækja, mun- um við auka á fátækt- ina og halda áfram manndrápum.“ Samtímis er ég að lesa nýútkomna bók eftir bandaríska konu af kínverskum ættum, en þó svo að fólk henn- ar hefur, svo kynslóðum skiptir, til- heyrt kínversku þjóðarbroti á Fil- ippseyjum og stundar þar viðskipti í stórgróðaskyni. Bókarhöfundur, Amy Chua að nafni, er prófessor við lagadeild (lagaskólann) í Yalehá- skóla, þeirri kunnu menntastofnun í New Havenborg í Connecticutríki. Umrædd bók heitir á frummáli World on Fire (Heimur í báli) með áherslumiklum undirtitli, sem hljóðar eitthvað á þessa leið: [Bók] um það hvernig útflutningur (exporting) á lýðræði hins frjálsa markaðar elur af sér kynþáttahatur (ethnic hatred) og hnattvæddan óstöðugleika (global in- stability). Þessar tvær vísanir til skoðana hugsandi og velmenntaðs fólks í Bretlandi og Bandaríkjunum stinga heldur betur í stúf við lofgerðarrollu íslenskra stjórnmálamanna, háskóla- kennara, bankastjóra, ,,athafnaskálda“ og blaðamanna um hnatt- væddan kapítalisma og afskiptaleysisstefnu (laissez-faire) í hans nafni. Það sem Amy Chua, höfundur Heims í báli, sýnir fram á er, að hnattvædd við- skiptaumsvif kapítal- ismans eru yfirleitt í höndum ,,þjóðarbrota“ (ethnic groups) innan fátæktarlanda, þ.e. minnihlutahópa, sem vinna í nánu samstarfi við vestræna auðhringa og fleyta rjómann ofan af því sem arð- bærast er í hverju landi án þess að skeyta hið minnsta um heildarhag, almannavelferð. Gróðinn staðnæmist í sjóðum þeirra sem standa að brask- inu í heimalandinu auk þess sem hann er fluttur úr landi sem verða má og liggur hnattvæddum kapítalisma til grundvallar. Arðránseðli óheftrar auðvaldsstefnu er samt við sig, hvort sem marxisminn er dauður eða ekki. Ef marxisminn er dauður er ekkert líklegra en að hann verði upp vakinn áður en langt um líður. Skammt er öfganna milli. Hlýtur ekki ,,miðju- mönnum“ eins og mér og Halldóri Ásgrímssyni að óa slík tilhugsun? Nýkapítalisminn Nýkapítalismi dagsins í dag er raun- ar hálfu verri en kapítalismi 19. aldar. Nútímakapítalismi er altækur í orði og gerð. Hann hvetur m.a. til þess að gera hvert mannsbarn að verð- bréfabraskara. Svo langt gekk kapít- alismi 19. aldar ekki, jafnvel ekki í Bandaríkjunum. Verðbréfabrask takmarkaðist yfirleitt við afmarkaða hópa efnamanna og fjárglæfra- manna, hina nýríku. Þorri fólks, dag- launamenn, verslunar- og skrif- stofufólk, smáborgarar hvers konar og sveitamenn — þ.e.a.s. sinnug al- þýða — tók til sín hvatningu siðlátra umbótamanna um örugga ávöxtun sparifjár í sparisjóðum og sameign- arfélögum ýmiss konar. Þrátt fyrir uppgang kapítalismans á 19. öld þrif- ust sparisjóðir og kaupfélög og önnur samvinnufélög í borgum og sveitum, allt á grundvelli samhjálpar og fé- lagshyggju, lýðræðislegs sósíalisma í víðtækri merkingu þess orðs. Þannig sniðgekk alþýðan ráðslag kapítalist- anna og vann stórvirki í sína þágu meðan það entist. Þá er þess að minnast að félagshyggja var með sanni hluti frjálsræðis- og framfara- stefnu 19. aldar, fjölhyggju þeirrar eftirminnilegu og frjóu aldar, sem nú er helst siður að dæma til fyrirlitn- ingar m.a. fyrir þjóðrækni og sjálf- stæðisbaráttu þjóða sem lutu erlendu valdi. Á 19. öld var heilmikil hnattvæðing við lýði, nema hvað! Nýlendu- og heimsvaldastefnan var í algleymingi. Engin tilraun var gerð til þess að dylja markmið hnattvæðingar, sem var það að gera vestrænar þjóðir, einkum Evrópuþjóðir, sem auð- ugastar og valdamestar. Að Bretar hafi staðið framarlega í hnattvæð- ingu þessa tímabils og Frakkar að sínu leyti, jafnvel Þjóðverjar og Ítal- ar, þarf varla að nefna. Ekki er ör- grannt um að Hollendingar og Belg- ar kæmu þar við sögu, Portúgalar og Spánverjar, yfirleitt hvert það ríki stórt og smátt sem átti land að sjó og réð yfir haffærum skipum. Jafnvel Danir (forsjármenn Íslendinga) voru með í þessum leik. Öll var þessi hnattvæðingarútþensla Evrópu- manna á 19. öld byggð á þeim fræga efnahags- og menningarlega darvin- isma, að sá skyldi ,,lifa af“ og ráða sem ,,hæfastur“ væri. Hæfnin réðst að sjálfsögðu af auðmagni og hern- aðarmætti og yfirburðum vestrænn- ar háskólamenningar, einkum raun- vísinda, sem svo kallast, undirstöðu margslunginnar véltækni sem þróa má til hvers sem er í valda- og land- vinningaskyni. — Þetta var allt hreint og klárt, næstum að segja sið- legt og heiðarlegt að því leyti að engu var leynt um tilganginn, þ.e. heims- yfirráð vestræns kapítalisma. Sama meginhugsun ríkir reyndar í nýkapítalísku kaupsýslukerfi dagsins í dag að því undanskildu (sem miklu munar) að óheiðarleikinn er auðsær. Nú er reynt að dylja markmiðin með blekkingum og ósannindum. En kap- ítalisk hnattvæðing er nú sem fyrr reist á vestrænni fégræðgi, ágirnd eins og íslenskir þýðendur biblíunnar orða það. Milljörðum saman nýtur al- þýða manna í þriðja heiminum einsk- is af fégróða alþjóðlegra stórfyr- irtækja. Gróðinn lendir í vasa milljarðamæringa velmegunarþjóð- anna og leppa þeirra í fátækt- arlöndunum. — Þetta vita allir nema þeir sem ,,menntaðir“ eru í ,,við- skiptaháskólum“ nútímans heims- horna á milli frá Brazkzentrum í Boltzewitze til Bifrastar í Borg- arfirði. Nemendur slíkra skóla eru einhliða þjálfaðir til þjónustu við ríkjandi sjónarmið í verslunar- og viðskiptamálum, þ. á m. kapítaliska alþjóðavæðingu, sem er eins og hún er. Frá Brazkzentrum til Bifrastar Ingvar Gíslason fjallar um nýkapítalisma ’Nýkapítalismi dagsinsí dag er raunar hálfu verri en kapítalismi 19. aldar.‘ Ingvar Gíslason Höfundur er fyrrv. alþingismaður Framsóknar- flokksins og fyrrv. ráðherra. NÚ er senn komið að því að samn- ingar við kennara renni út. Kenn- arasambandið hefur sett fram ákveðnar kröfur, fullháar að því er mér finnst. Það verður þó að viðurkennast að það má að mörgu leyti líta á þær sem metnaðarfull markmið. Staða kennarans er í raun og veru sterk. Hver vill ekki að hæfur einstaklingur sjái um kennslu barns síns? Hver vill ekki að kenn- arinn fái mannsæmandi laun og geti lifað á þeim? Ég vil a.m.k. ekki hafa laun kennara svo léleg, að kennari barnanna þurfi að vinna aðra vinnu og slíta sér út. Mikil aukavinna, t.d. kvöldvinna, auk almennrar kennslu er slítandi og getur leitt af sér að kennarinn mæti þreyttur til kennslu, nú eða gefi sér ekki þann tíma sem þarf til þess að undirbúa kennsluna. Því eru það hagsmunir allra að kennarinn uni sáttur við sitt, sé fjár- hagslega öruggur og glaður með sína stöðu. Það öryggi og sú gleði mun smita út frá sér og óbeint leiða til heilbrigðari kennsluhátta. Vinnuskylda kennara og foreldra Á einu ári eru um 180 kennsludagar og auk þess nokkrir starfsdagar. Kennsluárið er nú lengra en áður og þessu hefur verið reddað með svo- nefndum vetrarfríum. Starfsdagar kennara eru því um 200 dagar af 365 dögum sem árið telur. Kennarinn ver því u.þ.b. 55% af heildardögum árs- ins í vinnu. Annar hver dagur fer í vinnu. Vinnuskylda annarra er auðvitað misjöfn. Ef við gefum okkur foreldri sem skilar 240 vinnudögum á ári, þá ver það foreldri 66% af heildardögum ársins í vinnu. Tveir þriðju fara í vinnu. Einnig má benda á að vinnu- markaðurinn hefur breyst frá því sem áður var; nú vinna báðir for- eldrar úti. Púsluspilið Á hverju ári standa foreldrar frammi fyrir þeim vanda að frí í skóla er um 70 virkir dagar. Ég veit ekki hvernig aðrir leysa sín mál, en ég leysi þau þannig að fyrst fer annað foreldrið í frí og svo fer hitt for- eldrið. Þrátt fyrir þetta standa um tuttugu dag- ar eftir. Það kemur því nokkuð oft fyrir að maður situr sveittur heima, leggur höfuðið í bleyti og gerir lista yfir þá sem eru líklegastir til að bjarga málum. Ömmur og afar eru oft fyrsta lausnin, en sumir enda þó á því að taka börnin með til vinnu. Sú leið hlýtur að teljast slæm fyrir for- eldra og barn, og ósanngjörn gagn- vart fyrirtækjum. Lausn Hægt er að koma til móts við þarfir foreldra með tvennum hætti. Að við kennum 11 mánuði á ári, nú eða finn- um aðra til að sinna ,,kennslu“ þá daga sem kennarinn er ekki að störf- um. Þriðji kosturinn er reyndar fyrir hendi, það er að fjölga kennurum og láta suma kennara kenna frá ágúst- lokum fram í byrjun júní. Hinir kenna frá septemberlokum fram í byrjun júlí. Þar með náum við 11 mánaða skóla. Fyrsti kosturinn er máski ekki sá sem ég er að falast eftir. Í mínum huga er það bara gott mál að kenn- arinn þurfi ,,bara“ að skila inn 180 kennsludögum. Þetta eru góð kjör sem ég er ekkert endilega að falast eftir að þeir missi. Að auki er ég ekk- ert viss um að 11 mánaða skóli með stífri kennslu sé hentugur fyrir börn- in okkar. En hvað er þá til ráða? Ég vil að ákveðin leið verði skoðuð, en hún byggist þó á 11 mánaða ,,skóla“. Sem sagt ,,frí“ barna verði um 20 vinnu- dagar á ári. Kennarar munu sjá um kennslu eins og áður. Enda er þarna sér- menntað fagfólk á ferð. Hina daga ársins (daga eins og starfsdaga, vetr- arfrídaga og sumarfrídaga) tekur annar ,,skóli“ við. Sá skóli verður byggður á annars konar menntun sem er ekki síðri. Sá skóli yrði byggð- ur upp á meiri leik þar sem félagslegi þátturinn væri númer eitt, tvö og þrjú. Hér get ég vel séð fyrir mér að Íþrótta- og tómstundaráð (ÍTR) taki við. Það væri hægt að ,,kenna“ ýmsar íþróttagreinar, leyfa krökkunum að prófa ólíkar íþróttagreinar. Einnig væri hægt að leyfa krökkunum að velja hvort þau vildu læra á hljóðfæri eða myndlist. Nú, eða hugsanlega hvort tveggja. Þessi skóli gæti líka byggst á almennri kennslu líkt og er í skólum í dag. Að vera í takt við réttan tíma – nútímann Vissulega er það svo að ÍTR er með lausnir á sumrin fyrir börnin. Þær lausnir eru þó bara námskeið en ekki heildstæður skóli. En engin lausn er til með vetrarfríin og því eru börnin okkar í lausu lofti þá daga. Mín skoð- un er sú að hér eigi Kennarasam- bandið að koma að málum með sínar hugmyndir um breytingar á skól- anum. Kennarasambandið á ekki bara að vera launaapparat, heldur líka samband frumlegra hugmynda, skólastarfinu til heilla. Lengi vel vann verkalýðshreyf- ingin þannig að laun hækkuðu um mörg prósent. Því var svarað með margra prósenta hækkun á vöru- verði. Loks komu menn sér saman um gáfulegri leið. Sú leið er nefnd þjóðarsátt. Að hækka laun kennara umtalsvert án þess að lengja kennsluárið umtalsvert, mun ekki skapa sátt, heldur leiða til þess að sveitarfélögin þurfi að rukka í meira mæli foreldra, nú eða lækka annað þjónustustig. Því lítur þetta í hugum foreldra út sem krafa um að fá allt fyrir ekkert. Mín skoðun er sú að það sé löngu tímabært að við komumst að annarri sátt. Skólasátt. Launakröfur kennara – barn síns tíma? Pétur Óli Jónsson skrifar um kjaramál kennara ’Að hækka laun kenn-ara umtalsvert án þess að lengja kennsluárið umtalsvert, mun ekki skapa sátt.‘ Pétur Óli Jónsson Höfundur er sölumaður. FYRIR nokkrum árum þekktu flestir, ef ekki allir íslenskir garðeig- endur tjöruefnið Sterilite. Það var notað sem vetrarúð- unarefni á limgerði og lauftré yfir vetrartím- ann, gjarnan á tíma- bilinu janúar–mars. Það kom í veg fyrir súrefnisflutning til lúsa og fiðrildaeggja sem lágu í vetrardvala á berki eða brumum trjánna þannig að kvik- indin náðu ekki að klekjast vorið eftir. Sterilite er ekki lengur framleitt, þykir ekki nógu umhverfisvænt. Nú er komið vist- vænt efni sem getur leyst tjöruefnið af hólmi. Það er paraff- ínolía sem er svo vel hreinsuð að hún er jafnómenguð og mat- arolían sem við notum til að steikja matinn okkar upp úr. Þetta er Flor- ina-olía. Hún er þó notuð á allt öðrum árstíma heldur en gamla tjöruefnið. Gerðar hafa verið tilraunir með efnið, bæði erlendis og hérlendis af fag- aðilum. Það hefur fengið samþykki umhverfisráðuneytisins og Umhverf- isstofnunar og er skráð á Íslandi sem plöntuvarnarefni. Gegn blaðlús og fiðrildaeggjum verður að nota Florina á vorin eða snemma sumars af því að hún helst ekki á gróðrinum eins lengi og tjöru- efnið gerði. Á vorin þegar farið er að hlýna klekjast fiðrildalirfurnar úr eggjunum og skríða inn í brumin. Gegn fiðrildalirfum er því best að úða olíunni áður en eggin klekjast eða rétt á eftir, þ.e. frá því í byrjun maí og fram í júní. Það er allt í lagi þótt trén séu byrj- uð að opna brumin og í raun og veru er allt í lagi að nota efnið á allaufg- aðan gróður. Á blaðlús og egg hennar virkar olían í rauninni allt árið, svo framarlega að ekki sé frost. Hins veg- ar verða fiðrildalirfurnar fljótt svo miklir skrokkar að olían nær aðeins að bremsa þær minnstu af, en vinnur ekki á þeim stóru. Olían er notuð þannig að henni er blandað saman við vatn og allt yfirborð trésins úðað með blöndunni. Mjög mikilvægt er að efn- ið hylji alveg tréð, bæði efra og neðra borð greina, bruma og blaða. Olían þarf að leggjast yfir egg eða lifandi dýr. Hún kemur í veg fyrir að þau nái í súrefni svo að þau kafna. Efnið hefur reynst vel bæði í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum. Til marks um það hversu vistvæn olían er má nefna að erlendis er hún mest notuð á ávaxtatré og berjarunna og óhætt er að borða ávextina beint af trján- um þótt olían hafi verið notuð. Að undanförnu hafa Gróðurvörur staðið fyrir tilraunum með efnið við íslenskar aðstæður. Umsjón með tilraun- unum hefur Guðmundur Halldórsson skordýra- fræðingur haft. Nið- urstöðurnar staðfesta erlendar nið- urstöður og sýna að efnið virkar vel hér á landi á blaðlús, fiðrilda- og lúsa- egg og sitkalús í barrtrjám. Lús og fiðrildalirfur á Akureyri sumarið 2003 Í byrjun júní 2003 voru gerðar til- raunaúðanir á Akureyri, m.a. á alaskavíðilimgerði. Átta metrar af limgerðinu voru úðaðir með 2% Flor- ina-olíu. Eftir úðunina voru tekin úr limgerðinu 8 snið; 4 úr þeim hluta sem ekki hafði verið úðaður og 4 snið úr þeim hluta sem hafði verið úðaður með Florina. Allar lirfur sem fundust í þessum sniðum voru tegunda- greindar og taldar. Mjög lítið var af lirfum tígulvefara og skrautfeta í þeim sniðum sem ekki höfðu verið úð- uð og ekkert í þeim sniðum sem höfðu verið úðuð. 36 lirfur haustfeta og 14 lirfur víðifeta fundust í þeim sniðum limgerðisins sem ekki var úðað en í sniðunum sem voru úðuð fundust 4 lirfur haustfeta og 6 lirfur víðifeta. Heildarniðurstaða þessarar tilraunar er sú að ,,árangur af úðun með Flor- ina Prof gegn fiðrildalirfum í birki og víði virðist vera mjög ásættanlegur og full ástæða til að huga að frekari Florin-olía í staðinn fyrir vetrarúðun Helga Hauksdóttir skrifar um úðun á limgerði og lauftré Helga Hauksdóttir ’Vöndum okkurþegar við notum varnarefni á plöntur.‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.