Morgunblaðið - 02.06.2004, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 47
PATREKUR Jóhannesson leikur
ekki með Íslendingum gegn Ítölum
um næstu helgi í seinni leik þjóð-
anna um sæti á HM í handknattleik
í Túnis í janúar á næsta ári. Patrek-
ur er meiddur í þumalputta og
verður frá keppni í sex vikur af
þeim sökum. Vegna meiðslanna
mun Patrekur ekki geta tekið þátt í
öllum undirbúningi íslenska lands-
liðsins fyrir Ólympíuleikana í
Aþenu í ágúst, en undirbúning-
urinn hefst upp úr 20. júní.
Guðmundur Þórður Guðmunds-
son landsliðsþjálfari hefur ákveðið
að kalla á þrjá leikmenn til viðbótar
til æfinga með landsliðshópnum
fyrir leikinn gegn Ítölum. Þetta eru
þeir Arnór Atlason, Kristján Andr-
ésson og Roland Eradse, markvörð-
ur.
Ísland sigraði Ítali með sex
marka mun, 37:31, í fyrri leik þjóð-
anna síðastliðinn laugardag í Te-
ramo á Ítalíu.
Patrekur frá í sex vikur og
ekki með gegn Ítölum
Patrekur Jóhannesson
DANÍEL Hjaltason gat ekki leikið
með Víkingi gegn FH í úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gærkvöld þar
sem hann meiddist í upphitun. Vík-
ingar söknuðu einnig Sigursteins
Gíslasonar sem tók út leikbann.
ÁSGEIR Gunnar Ásgeirsson hjá
FH fór meiddur af velli undir lok
fyrri hálfleiksins í Víkinni í gær-
kvöld.
GRÉTAR Hjartarson varð í gær-
kvöld fyrsti leikmaður Grindavíkur
til að skora 40 mörk í efstu deild.
Hann bætti því enn markamet fé-
lagsins í deildinni en hann hefur náð
þessum 40 mörkum í aðeins 66 leikj-
um.
LOS Angeles Lakers eru komnir í
úrslit NBA deildarinnar eftir 96:90
sigur á Minnesota Timberwolves og
unnu þar með einvígið 4:2. Þar mæta
þeir annaðhvort Detroit Pistons eða
Indiana Pacers. Shaquille O’Neal
var stigahæstur í liði Lakers með 25
stig og tók ellefu fráköst. Kobe
Bryant skoraði 20 stig. Í liði Minne-
sota skoraði Latrell Sprewell 27 stig
og Kevin Garnett 22 og tók 17 frá-
köst. Sam Cassell lék ekki með
Minnesota en hann var meiddur.
KAREEM Rush skoraði 18 stig
fyrir Lakers sem er það mesta sem
hann hefur skorað í úrslitakeppni.
Öll stigin skoraði hann fyrir utan
þriggja stiga línuna en hann nýtti 6
af 7 tilraunum sínum þar. Þetta er í
fimmta sinn á sex árum sem Lakers
spilar til úrslita í NBA-deildinni en
liðið hafði unnið titilinn fjögur ár í
röð áður en San Antonio Spurs
stöðvuðu sigurgöngu þess í fyrra.
ÓVÆNT úrslit urðu í fjórðungs-
úrslitum opna franska meistara-
mótsins í tennis í gær þegar báðar
Williams-systurnar, Venus og Ser-
ena, féllu úr leik í fjórðungsúrslitum.
Serena lá fyrir Jennifer Capriati í
þremur settum á meðan Venus tap-
aði fyrir Anastasiu Myskina frá
Rússlandi í tveimur settum.
DICK Advocaat, þjálfari hollenska
landsliðsins í knattspyrnu, hefur
kallað hinn 34 ára Paul Bosvelt inn í
landsliðshóp sinn fyrir EM í sumar.
Bosvelt, sem nú leikur með Man-
chester City, kemur í stað Mark Van
Bommel sem er meiddur.
UWE Rösler hefur verið ráðinn
þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins
Lilleström frá og með næstu leiktíð
en með liðinu leika þeir Gylfi Ein-
arsson og Davíð Þór Viðarsson.
Rösler, sem lék í tvö ár með Lille-
ström, tekur við starfi Arne Er-
landsens.
BERT van Marwijk hefur verið
ráðinn þjálfari þýska knattspyrnu-
liðsins Dortmund í stað Matthias
Sammer sem tekið hefur við þjálf-
arastöðunni hjá Stuttgart. Marwijk
kemur frá Feyenoord sem hann
stýrði til sigurs í UEFA keppninni
árið 2002 og það gegn Dortmund.
FÓLK
ÍA 2:1 KA
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla,
4. umferð
Akranesvöllur
Þriðjudaginn 1. júní 2004
Aðstæður:
Logn, rigning.
Blautur en góður völlur.
Áhorfendur: 932
Dómari:
Gísli H. Jóhannsson,
Keflavík, 4
Aðstoðardómarar:
Örn Bjarnason,
Sigurður Óli Þórleifsson
Skot á mark: 18(9) - 12(7)
Hornspyrnur: 6 - 1
Rangstöður: 1 - 3
Leikskipulag: 4-4-2
Þórður Þórðarson MM
Hjálmur Dór Hjálmsson M
Reynir Leósson
Gunnlaugur Jónsson
Andri Lindberg Karvelsson M
Julian Johnsson
(Ellert Jón Björnsson 68.)
Pálmi Haraldsson M
Kári Steinn Reynisson M
Haraldur Ingólfsson M
Grétar Rafn Steinsson
(Hjörtur J. Hjartarson 71.)
Garðar Gunnlaugsson
(Guðjón H. Sveinsson 83.)
Sándor Matus M
Steinn V. Gunnarsson
Atli Sveinn Þórarinsson M
Ronni Hartvig M
Óli Þór Birgisson
Dean Martin M
Pálmi Rafn Pálmason
Kristján Elí Örnólfsson
(Steingrímur Örn Eiðsson 67.)
Örn Kató Hauksson M
Hreinn Hringsson
Elmar Dan Sigþórsson
(Jóhann Þórhallsson 72.)
1:0 (6.) Eftir hornspyrnu Kára Steins Reynissonar, sem kom inn á markteigslín-
una, náði Gunnlaugur Jónsson að skalla knöttinn í netið, rétt áður en
Sándor Matus, markvörður KA, náði til knattarins.
1:1 (54.) Dean Martin tók aukaspyrnu á vinstri vængnum, nokkuð utarlega.
Hann sendi boltann inn á vítateig ÍA þar sem Atli Sveinn Þórarinsson
gerði vel í að halda Gunnlaugi Jónssyni frá sér og skallaði í netið.
2:1 (72.) Kári Steinn Reynisson óð inn í vítateig KA og var að komast framhjá
Óla Þór Birigssyni en féll við. Dómarinn dæmdi vítaspyrnu sem Har-
aldur Ingólfsson skoraði úr. Matus kastaði sér í rétt horn en boltinn
fór undir hann.
Gul spjöld: Örn Kató Hauksson, KA (6.) fyrir brot. Hreinn Hringsson, KA (45.) fyrir brot.
Óli Þór Birgisson, KA (46.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Hreinn Hringsson, KA (80.) fyrir brot.
Heimamenn léku án StefánsÞórðarsonar, sem veiktist í
gær og gat ekki leikið. Hjörtur
Hjartarson kom inn í
hópinn í hans stað og
Garðar Gunnlaugs-
son fór í byrjunarlið-
ið. Leikurinn byrjaði
fjörlega, bæði lið voru óhrædd við að
sækja og boltinn gekk ágætlega inn-
an liðanna. Heimamenn komust yfir
strax á sjöttu mínútu þegar fyrirlið-
inn Gunnlaugur Jónsson brá sér í
sóknina þegar liðið fékk hornspyrnu
og skoraði með skalla. Hornspyrnan
kom eftir þunga sókn heimamanna
og fína aukaspyrnu Haralds Ingólfs-
sonar sem Sandor Matus, markvörð-
ur KA, varði mjög vel í horn.
Skagamenn voru sprækari en
gestirnir í fyrri hálfleiknum, fengu
nokkur færi og hefðu hæglega getað
gert ein tvö mörk til viðbótar við
mark fyrirliðans. Þegar skotin hittu
á markið var Matus sá þröskuldur
sem Skagamenn komust ekki yfir.
Þrátt fyrir að ÍA hafi verið betri
aðilinn í fyrri hálfleik, börðust leik-
men KA af krafti og pressuðu varn-
armenn ÍA stíft þegar þeir voru með
boltann. Heimamenn leystu það þó
oftast með ágætum og lentu ekki í
teljandi vanda þrátt fyrir pressuna.
Gestirnir komu ákveðnir til leiks í
upphafi síðari hálfleiks og tókst að
jafna með skallamarki Atla Sveins
Þórarinssonar eftir aukaspyrnu. Vel
gert hjá honum.
Skagamenn svöruðu með mikilli
sókn sem ekkert varð þó úr því sem
fyrr stóð Matus fyrir sínu í markinu.
Heimamenn komust yfir á 72. mín-
útu með marki úr vítaspyrnu og átta
mínútum síðar var Hreini Hrings-
syni vikið af velli þegar hann braut á
Þórði markverði. Hann fékk sitt ann-
að gula spjald og því rautt. Réttur
dómur en Þórður hefði átt að fá
áminningu líka því þegar Hreinn
stumraði yfir honum við að biðjast
afsökunar að því er virtist, sló Þórð-
ur til hans og þetta gerðist beint fyr-
ir framan augun á dómaranum.
Gestirnir virtust eflast við að
missa mann útaf og það sem eftir var
leiks fengu þeir tvö fín færi en Þórð-
ur efldist einnig og varði bæði skotin,
það síðara á síðustu sekúndunni al-
veg meistaralega. Pálmi Rafn
Pálmason tók þá aukaspyrnu rétt ut-
an teigs og sendi boltann neðst í
vinstra hornið. Þórður var eldsnögg-
ur niður og varði gríðarlega vel, bolt-
inn fór út í fót eins KA-manns sem
fygldi vel eftir og þaðan aftur fyrir
endamörk. Heimamenn önduðu létt-
ar. Fyrsti heimasigur þeirra í deild-
inni staðreynd og liðið komið í efsta
sæti.
Skagamenn vilja
ekki veita viðtöl
Eftir leikinn óskaði Morgunblaðið
eftir að fá að ræða við fyrirliða
Skagamanna, en þau skilaboð bárust
að Skagamenn veittu engin viðtöl.
Hver ástæða Skagamanna er fyrir
því að vilja ekki segja lesendum
blaðsins skoðun sína á hvernig liðið
lék í gær, er ekki vitað. En eins og
margir vita þá eiga Skagamenn fjöl-
marga stuðningsmenn víða um land
sem fylgjast með gangi sinna manna
meira og minna í gegnum fjölmiðla.
Skagamenn vilja ef til vill leika fyrir
luktum dyrum þannig að enginn
trufli þá?
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Heimasigur
Skagamanna
SKAGAMENN komust í efsta sæti efstu deildar karla í knattspyrnu í
gær með 2:1 sigri á KA á Akranesi. Tveir síðustu leikir liðanna á
Skipaskaga enduðu 1:1 og lengi var útlit fyrir að þau yrðu einnig úr-
slitin í gær, en ÍA gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu. Þórður Þórð-
arson, markvörður ÍA, bjargaði öllum stigunum á lokasekúndunum
þegar hann varði meistaralega aukaspyrnu gestanna.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
ENGLAND og Japan gerðu 1:1 jafn-
tefli í vináttulandsleik í gærkvöldi á
Manchester-mótinu. Michael Owen
kom Englendingum yfir á 22. mínútu
en Shinji Ono jafnaði metin fyrir Jap-
an á 53. mínútu. Englendingar náðu
sér ekki á strik og Sven-Göran Er-
iksson, þjálfari Englendinga, var ekki
mjög ánægður eftir leikinn.
Frank Lampard, leikmaður
Chelsea, var í byrjunarliði Englend-
inga en miklar vangaveltur voru í
breskum fjölmiðlum undanfarna daga
um hvort hann yrði í byrjunarliðinu.
„Frank verðskuldaði að fá tækifæri í
kvöld. Hann var frábær í fyrri hálf-
leik. Ég hef ekki ennþá ákveðið
hvernig byrjunarlið Englands verður
í Evrópukeppninni,“ sagði Eriksson.
Zico, þjálfari Japan, var ánægður
með spilamennsku sinna manna.
„Eftir að við jöfnuðum metin lékum
við mjög vel og ég er ánægður með
frammistöðuna í kvöld. Ég held að
England eigi ágætis möguleika gegn
Frökkum í Evrópukeppninni,“ sagði
Zico.
England
og Japan
skildu jöfn
Michael Owen og David
Beckham fagna.
Matt Garner, leikmaður ÍBV, á hér í höggi við Kjartan Henry Finnbogason, KR-ing.