Morgunblaðið - 16.12.2004, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!" #$ %&'
!
(& !" #$ %&'
"#
$
%& &
!
!
! " #
$ ! % ! !
!
! &#
'
($) & * + , & , & -
! ! !
.
* ! /
0
*1 ! 2 3
" ! * 1 *
#/
4 !
BROTTFALL nemenda af há-
skólastigi á Íslandi árið 2002–2003
var 14,7%. Þetta kemur fram í nýrri
samantekt sem Hagstofa Íslands
hefur unnið. Forstöðumaður Fé-
lagsvísindastofnunar segir þetta
hlutfall ótrúlega lágt.
Brottfall af háskólastigi var skoð-
að með því að bera saman upplýs-
ingar um nemendur úr Nem-
endaskrá Hagstofu Íslands og gögn
um námslok úr Prófaskrá Hagstof-
unnar. Niðurstöðurnar sýna að 2.037
nemendur haustið 2002 hafa hætt
eða tekið sér hlé frá námi haustið
2003.
Meira brottfall meðal karla
Brottfall nemenda af háskólastigi
var hlutfallslega jafnmikið fyrir
fimm árum og það er nú, þrátt fyrir
mikla fjölgun nemenda á þessum
fimm árum. Rúmlega helmingur
brottfallshópsins fyrir fimm árum
hefur hafið nám á ný. Þar af tók tæp-
lega fjórðungur hópsins aðeins
árshlé frá námi.
Í samantektinni kemur fram að
brottfallið er minna meðal nemenda í
dagskóla og fjarnámi, en talsvert
meira meðal nemenda í kvöld-
skólum. Þá er brottfall umtalsvert
minna meðal nemenda í fullu námi
en í hlutanámi.
Brottfall er meira meðal karla en
kvenna og að jafnaði meira meðal
eldri nemenda en þeirra yngri.
Minnst er brottfallið meðal 20–24
ára nemenda, þ.e. þess aldurshóps
sem sækir háskólanám fljótlega að
loknu námi í framhaldsskóla. Ef
skoðað er samband aldurs og um-
fangs náms kemur í ljós að brottfall
eykst með aldri meðal nemenda í
fullu námi, en það er þó ekki einhlítt.
Nokkur munur er á brottfalli eftir
því að hvaða háskólagráðu nemar
vinna að. Þannig er brottfall minnst
meðal nemenda sem vinna að fyrstu
háskólagráðu, en nokkru meira með-
al þeirra sem eru í við bótarnámi að
lokinni fyrstu háskólagráðu og
þeirra sem eru í námi sem ekki lýkur
með háskólagráðu. Svo virðist sem
brottfall sé meira á meðal þeirra sem
eru í framhaldsnámi. Þannig virðist
fimmti hver nemandi í meistaranámi
vera hættur og rúmlega helmingur
nemenda í doktorsnámi. Skýrsluhöf-
undar benda á að svo virðist sem
ekki séu allir nemendur í meistara-
og doktorsnámi alltaf skráðir í nám
meðan þeir vinna að rannsóknum
sínum og því megi vera að brottfall
framhaldsnemenda á háskólastigi sé
ofmetið í tölum skýrslunnar.
Samkvæmt niðurstöðum Hagstof-
unnar kemur fram að nánast enginn
munur er á brottfalli eftir staðsetn-
ingu skóla, þ.e. hvort hann er á höf-
uðborgarsvæðinu (13,2%) eða á
landsbyggðinni (14,1%). Einnig er
afar lítill munur á brottfalli í einka-
skólum (10,6%) og opinberum skól-
um (13,7%).
Niðurstöðurnar gefa tilefni
til nánari skoðunar
Að mati Friðriks H. Jónssonar,
dósents í félagssálfræði við Háskóla
Íslands og forstöðumanns Fé-
lagsvísindastofnunar, gefa nið-
urstöður úttektar Hagstofunnar
ekki tilefni til áhyggna. „Raunar
finnst mér brottfallið ótrúlega lágt,
því satt að segja hefði ég átt von á að
það væri miklu hærra,“ segir Friðrik
og bendir til samanburðar á sé litið
til háskóla í nágrannalöndum okkar
sé allt að helmingur nemenda sem
ekki ljúka námi.
Að sögn Friðriks er eðlilegra að
gera ráð fyrir mun meira brottfalli í
skólum sem taka alla nemendur inn,
svo sem Háskóli Íslands og Háskól-
inn á Akureyri, þar sem skólarnir
nota fyrsta misserið til þess að at-
huga hverjir ráða við námið, en í
einkaskólum sem valið geta góðu
nemendurna úr stórum hópi um-
sækjenda. „Miðað við tölur Hagstof-
unnar kemur mér raunar á óvart
hvað munurinn á brottfalli er lítill,
því fyrirfram hefði ég spáð því að
hann væri mun meiri.“
Spurður um aukið brottfallshlut-
fall eftir því sem fólk er komið lengra
í námi segist Friðrik halda að lítið sé
að marka þær tölur. „Ástæðan er sú
að mikið af masters- og doktorsnem-
endum stundar nám sitt með vinnu.
Þeir ljúka öllum námskeiðum og eiga
þá bara eftir ritgerðina þegar þeir
skrá sig í leyfi í því skyni að spara
sér skráningargjöldin við Háskól-
ann. Fólk skráir sig þannig í leyfi í
eitt til tvö ár meðan það er að vinna
að ritgerðinni og skráir sig svo eftir
þegar það skilar af sér, enda er þetta
fólk sem ætlar sér í flestum tilvikum
að ljúka námi,“ segir Friðrik.
Lítill munur á einkaskólum
og opinberum skólum
Aðspurð segir Jarþrúður Ás-
mundsdóttir, formaður Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands, afar at-
hyglisvert að sjá hve lítill munur er í
raun á brottfalli nemenda úr einka-
skólum og opinberum skólum.
„Þetta sýnir að þau rök að skólagjöld
tryggi fremur að fólk haldi áfram í
námi og ljúki prófum eiga aug-
ljóslega ekki við.“ Spurð hvernig hún
telji að skýra megi hið mikla brottfall
masters- og doktorsnema segist Jar-
þrúður viss um að þar spili margt
saman. „Það er náttúrlega ljóst að
mastersnám á Íslandi er ennþá að
slíta barnsskónum að mörgu leyti,
m.a. með tilliti til skipulagningar
námsins. Auk þess spilar örugglega
líka inn í að fólk sem fer í masters-
og doktorsnám er orðið fullorðnara,
farið að vinna og sinna fjölskyldu og
flosnar þá kannski fremur upp úr
námi þess vegna.“
Jarþrúður segir niðurstöður út-
tektar Hagstofunnar gefa fullt tilefni
til að skoða betur hvernig bæta megi
skipulagningu framhaldsnámsins á
háskólastigi og aðbúnað nemanda.
Hún segir alltaf áhyggjuefni þegar
nemendur hverfa frá námi, sama á
hvaða stigi það sé, og því gefi töl-
urnar ástæðu til að skoða nánar af
hverju brottfallið stafar og grípa til
viðeigandi ráðstafana.
„Brottfall
háskólanema
ótrúlega lítið“
!"
#
$
%
&
'
(!
&) *
+
,
+
,
#
- ,
+
,
.,
,
* Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
FORSVARSMENN útvegsbænda
og fiskvinnslufyrirtækja í Vest-
mannaeyjum afhentu í gær Hall-
dóri Ásgrímssyni forsætisráðherra
áskorun til ríkisstjórnarinnar um
að hún stuðli að því að ferðum
Herjólfs fjölgi í alls 13 á viku frá
og með áramótum.
Áttu þeir fund með forsætisráð-
herra og Hjálmari Árnasyni al-
þingismanni í gær til að ræða
samgöngumál Eyjamanna.
Magnús Kristinsson, formaður
Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja, segir í tilkynningu að
forsætisráðherra hafi tekið er-
indinu vel og hyggist kynna það
frekar á vettvangi ríkisstjórn-
arinnar.
Ferðum Herjólfs
fjölgi í 13 á viku
FYRSTA SMS-skeytið var sent í
talsíma í síðustu viku. Um var að
ræða tilraunasendingu hjá Síman-
um en að undanförnu hafa tækni-
menn Símans unnið að uppsetn-
ingu SMS-kerfis fyrir talsíma.
Uppsetningin hefur gengið vel og
tilraunir lofa góðu, þannig að við-
skiptavinum Símans mun standa
þessi þjónusta til boða strax í byrj-
un næsta árs, segir í fréttatilkynn-
ingu.
SMS-kerfi talsímans byggist á
sömu tækni og GSM-símar nota og
hefur sömu eiginleika og SMS-
kerfi þeirra. Til þess að ráða við
SMS þarf nýleg símtæki, en meg-
inhluti þráðlausra talsíma, sem
Síminn hefur selt að undanförnu,
hefur þennan möguleika og skipta
þeir nú þegar þúsundum á íslensk-
um heimilum. Auk þess þarf
heimanúmerið að vera með núm-
erabirtingu.
Fyrsta SMS-
skeytið sent
í talsíma
NÝJAR Playstation II-tölvur sem
komnar eru til landsins kosta um
8.000 krónum meira en þær
gerðu áður en þær urðu upp-
seldar í síðustu viku, eins og
Morgunblaðið sagði frá. Innflytj-
andinn, BT og Skífan, segir þetta
stafa af því að vélarnar voru
fluttar inn frá öðrum aðila en
venjulega, þær séu fluttar hingað
frá Austur-Evrópu. Seljandinn
þar hafi einungis viljað selja vél-
arnar með tölvuleik og minnis-
kubb í pakkanum. Því þurfi að
selja vélarnar á um 25.000 kr.
með leik og minniskubb en ekki
tæplega 17.000 kr. án nokkurra
aukahluta eins og áður. Stakur
minniskubbur kostar á bilinu
4.000 til 5.000 kr.
Fluttu inn tölvur
frá A-Evrópu
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt rúmlega tví-
tugan mann í hálfs árs skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að skalla
mann í andlitið í miðbæ Akureyr-
ar á nýársdag í fyrra með þeim
afleiðingum að fórnarlambið nef-
brotnaði auk þess sem litli fingur
hægri handar brotnaði.
Ákærði viðurkenndi brot sitt
en sagði það hafa verið framið í
sjálfsvörn. Þremur vitnum bar
hins vegar saman um það fyrir
dómi að maðurinn hefði skallað
brotaþola er sá síðarnefndi var
að ganga á milli ákærða og ann-
ars manns og reyna að stilla til
friðar.
Ákærði mótmælti bótakröfu en
var dæmdur til að borga fórnar-
lambi sínu rúmlega 282 þúsund
krónur í bætur auk vaxta.
Kristinn Halldórsson, settur
héraðsdómari, dæmdi málið.
Verjandi ákærða var Þorsteinn
Hjaltason hdl. og sækjandi Guð-
jón Jóel Björnsson sýslufulltrúi.
Hálfs árs fangelsi
fyrir líkamsárás