Morgunblaðið - 16.12.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 23
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
FORSVARSMENN Seltjarnar-
ness og Reykjavíkur hafa skrifað
heilbrigðisráðherra og óskað form-
lega eftir að
heilbrigðisyf-
irvöld sam-
þykki bygg-
ingu og
rekstur níutíu
rýma hjúkr-
unarheimilis
á lóð Lýsis í
vesturborg-
inni. Ráðu-
neytið hefur í framhaldinu óskað
eftir viðræðum við fulltrúa beggja
sveitarfélaganna um verkefnið.
Segir staðsetninguna frábæra
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, sagði í
samtali við Morgunblaðið að í nóv-
ember síðastliðnum hefðu Sel-
tjarnarnesbær og Reykjavíkur-
borg undirritað samkomulag með
aðild Íslenskra aðalverktaka sem
væru eigendur lóðarinnar þar sem
fram kæmi að þeir væru tilbúnir
að standa að kaupum á lóðinni og
stofnfjárfestingu í hjúkrunarheim-
ilinu. Á þeim grunni hefði verið
farið fram á það við heilbrigðis-
ráðuneytið að það kæmi að þátt-
töku í verkefninu. Ráðuneytið
hefði svarað og óskað eftir við-
ræðum við fulltrúa beggja sveitar-
félaga um verkefnið. Jónmundur
sagði að hugmyndin væri sú að
þarna risi hjúkrunarheimili af hag-
kvæmri stærð eða með níutíu rým-
um. Seltirningar væru reiðubúnir
að leggja til stofnkostnað vegna
þrjátíu rýma af þessum níutíu, en
það endurspeglaði framtíðarþörf
þeirra fyrir hjúkrunarrými til
lengri tíma litið. „Þar með værum
við raunverulega að leysa okkar
þörf fyrir hjúkrunarrými í fyrir-
sjáanlegri framtíð,“ sagði Jón-
mundur.
Hann sagði að staðsetning á
hjúkrunarheimili á Lýsislóðinni
væri frábær þar sem í næsta ná-
grenni væru þjónustuíbúðir fyrir
aldraða og þjónustukjarnar. Ís-
lenskir aðalverktakar hefðu síðan
verið með hugmyndir um að reisa
einnig á lóðinni þjónustuíbúðir fyr-
ir aldraða í tengslum við hjúkr-
unarheimilið.
Kostnaður 1 til 1,2 milljarðar
Gert er ráð fyrir að stofnkostn-
aður vegna hjúkrunarheimilis af
þessari stærð sé um 1.000–1.200
milljónir kr.
Fram kom hjá Jónmundi að lög-
gjöf um málefni aldraðra gerði ráð
fyrir því að ríkið tæki þátt í stofn-
kostnaði og axlaði jafnframt
ábyrgð á rekstrinum til lengri
tíma litið.
Jónmundur sagði einnig að unn-
ið væri að málinu á grundvelli
viljayfirlýsingar Reykjavíkurborg-
ar og heilbrigðisráðuneytisins frá
því fyrir um það bil tveimur árum,
en samkvæmt henni væri gert ráð
fyrir 70% þátttöku ríkisins í stofn-
kostnaði og 30% sveitarfélagsins.
Reiknað væri með að kostnaður
sveitarfélaganna skiptist hlutfalls-
lega á milli þeirra, þannig að einn
þriðji kæmi í hlut Seltjarnarness.
Vilja reisa hjúkrunar-
heimili á lóð Lýsis
BÖRN af er-
lendum upp-
runa eru nú
630 á leikskól-
um í höfuð-
borginni sam-
kvæmt frétt
frá Leikskól-
um Reykjavík-
ur. Foreldrar
barnanna eru
af 89 þjóðern-
um og tala samtals 52 tungumál.
Börnum af erlendum uppruna í
leikskólum fjölgar mismunandi
mikið milli ára en þeim hefur
fjölgað um 124 frá hausti 2003 til
hausts 2004.
Foreldrar flestra barnanna
koma frá Evrópu (348) og næst-
flestir frá Asíu (190). Algengast er
að foreldrar barnanna eigi ensku
að móðurmáli (55) en næstalgeng-
asta móðurmálið er taílenska (46).
Þar á eftir koma filippseyska og
pólska.
Börn af 89 þjóð-
ernum á leik-
skólum Reykjavíkur
,$ ! %
-
.% (&