Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hugsanlegt er að þér verði falin aukin
ábyrgð á næstu vikum. Ef þú ert bæði
kallaður og útvalinn skaltu ekki skorast
undan. Þú munt standa þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú finnur til æ meiri löngunar til þess að
færa út kvíarnar með ferðalögum eða
menntun. Næstu vikur eru upplagðar til
þess að sækja námskeið eða setjast á
skólabekk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Líklegt er að gildismat annarra hafi
áhrif á þig á næstunni. Vandinn er sá að
þú ert því ósammála. Lausnin felst í því
að leita málamiðlana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Búðu þig undir áherslur sem tengjast
maka og nánum félaga á næstu vikum.
Sólin er beint á móti þínu merki núna og
samskipti þín út á við þar af leiðandi í
brennidepli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert fær um að takast á við hvaða
verkefni sem er núna og hefur kraft til
þess að skipuleggja þig betur í vinnunni
en ella. Þú munt búa yfir þessum krafti í
nokkrar vikur, sem eru góðar fréttir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti við börn gætu orðið meiri en
ella á næstunni. Allt sem tengist listum,
afþreyingar- og skemmtanaiðnaðinum
og atvinnumennsku í íþróttum höfðar
líka til þín núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Heimili og fjölskylda eru þér mikilvæg-
ari en ella núna. Endurfundir, fjöl-
skylduheimsóknir og samskipti við ætt-
ingja taka sinn tíma um þessar mundir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Spennið beltin! Annríkið verður mikið
næstu sex vikurnar. Stuttar ferðir, er-
indi, tjáskipti við systkini og skyldfólk og
verslun og viðskipti eru í brennidepli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt til að byggja loftkastala um skjót-
fengin auðævi. Stundum verður hann að
veruleika, stundum ekki. Hvað sem því
líður verður draumurinn um ríkidæmi
með þér næstunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sólin fer inn í merki steingeitarinnar í
dag og færir með sér kraft, þrek og betri
heilsu. Nú er komið að þér að hlaða batt-
eríin fyrir komandi ár.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að afla þér eins mikillar hvíldar
og afslöppunar og þér er unnt á næstu
vikum og sinntu vinnunni bak við tjöldin
ef hægt er. Þú þarft að draga þig eilítið í
hlé.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gerðu þér far um að vera félagslyndur
næstu vikurnar, fiskur, og skipuleggðu
samveru með þínum nánustu. Ræddu
vonir þínar og drauma við nákomna vini.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert viljasterk og ákveðin manneskja
sem veit hvenær maður á að láta
skoðanir sínar í ljós og hvenær á að láta
kyrrt liggja. Styrkleiki þinn kemur bæði
fram í orðum og orðalaust. Þú ert að
jafnaði dul manneskja og elsk að bæði
börnum og dýrum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ung hryssa, 8
deilur, 9 kvendýrið, 10
málmur, 11 dútla, 13
hafna, 15 sorgar, 18 klauf-
dýr, 21 tikk, 22 barði, 23
stéttar, 24 mannkostir.
Lóðrétt | 2 dugnaðurinn, 3
áreita, 4 gyðja, 5 snáði, 6
skinn, 7 elska, 12 úrskurð,
14 bókstafur, 15 kjöt, 16
beiskt bragð, 17 stíf, 18
rengdi, 19 háski, 20 kven-
mannsnafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gubba, 4 fölsk, 7 tolla, 8 nebbi, 9 lús, 11 nýra, 13
satt, 14 fullt, 15 svöl, 17 ósum, 20 ætt, 22 ganar, 23 álfar, 24
mærin, 25 narra.
Lóðrétt | 1 gætin, 2 bolur, 3 aðal, 4 fans, 5 labba, 6 Krist, 10
útlit, 12 afl, 13 stó, 15 sogum, 16 ösnur, 18 sófar, 19 merla,
20 æran, 21 tákn.
Tónlist
Borgarneskirkja | Systrakvartettinn í
Borgarnesi verður með náttsöng í Borg-
arneskirkju kl. 21.
Kvartettinn skipa: Birna og Theodóra
Þorsteinsdætur og Jónína Erna og Unn-
ur Hafdís Arnardætur. Fluttir verða jóla-
söngvar frá ýmsum löndum. Tónleikarnir
eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.
Ýmir | Lúðrasveitin Svanur heldur jóla-
tónleika í Ými kl. 20. Leikin verða jólalög
í bland við hefðbundna lúðrasveit-
artónlist. Aðgangseyrir 1.000 krónur,
50% afsláttur fyrir námsmenn.
Stjórnandi Lúðrasveitarinnar Svans er
Rúnar Óskarsson. www.svanur.org.
Bækur
Kaffi Reykjavík | 25. og síðasta Skálda-
spírukvöldið á þessu ári. Eftirfarandi
skáld lesa upp úr nýjum bókum sínum:
Benedikt S. Lafleur, Auður Jónsdóttir,
Einar Már Guðmundsson, Jón Birgir Pét-
ursson, Huldar Breiðfjörð, Jóhanna
Kristjónsdóttir og Gunnar Dal. Tónlist-
arbandið Hraun leikur tónlist.
Leiklist
Iðnó | Jólasöngleikurinn Jólin syngja er
sýndur í Iðnó fram að jólum. Í aðal-
hlutverkum eru Rut Reginalds og Rósa
Guðmundsdóttir. Hægt er að panta miða
í 562 9700.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn
Sigurbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíu-
málverk.
Gallerí Banananas | Fyrsta einkasýning
Úlfs Chaka.
Gallerí Dvergur | Kanadíska listakonan
Erica Eyres.
Gallerí 101 | Daníel Magnússon.
Gallerí Tukt | Innrás úr Breiðholtinu í
Gallerí Tukt. Samsýning níu myndlist-
arnema úr FB.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir –
„Efnið og andinn“.
Gerðuberg | Ari Sigvaldason fréttamað-
ur – mannlífsmyndir af götunni.
Gerðuberg | Þetta vilja börnin sjá! –
Myndskreytingar úr íslenskum barnabók-
um sem gefnar hafa verið út á árinu.
Sýndar eru myndir úr nær fjörutíu bók-
um eftir tuttugu og sjö myndskreyta.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný ol-
íumálverk í forkirkju Hallgrímskirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistarmaður sýnir málverk
og tússmyndir í Menningarsal.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
20 listamenn sýna.
Listasafn Reykjanesbæjar | Í Listasafni
Reykjanesbæjar stendur yfir sýning á ol-
íuverkum úr safneigninni þar sem nátt-
úra Íslands er viðfangsefnið. Má þar m.a.
sjá verk eftir gömlu meistarana Kjarval,
Jón Stefánsson og Þórarin B. Þorláks-
son. Sýningin er opin alla daga kl. 13–
17.30 og stendur til jóla.
Listasafn Rvk., Ásmundarsafn | Mað-
urinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Rvk., Hafnarhús | Grafísk
hönnun á Íslandi. Stendur til áramóta.
Erró – Víðáttur. Stendur til 27. feb. nk.
Listasafn Rvk., Kjarvalsstaðir | Text-
íllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvals-
safni.
Listmunahúsið | Sýning á verkum Valtýs
Péturssonar í Listmunahúsinu, Síðumúla
34.
Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir –
Gróður og grjót.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
SÍM salurinn | Sigurborg Jóhannsdóttir
sýnir myndir unnar í ull. Opið virka daga
kl. 10–16.
Skólavörðustígur 20 | Gunnella sýnir ný
málverk að Skólavörðustíg 20. Opið er á
virkum dögum frá 12–18 og um helgar frá
11–18. Ath. einungis opið fram að jólum.
Suzuki Bílar | Björn E. Westergren sýnir
myndir málaðar í akrýl og raf.
Mannfagnaður
Kaffi Nauthóll | Týsdaginn 21. desember
veður haldin vetrarsólstöðuhátíð í Öskju-
hlíð kl. 18. Safnast verður saman við
Kaffi Nauthól kl. 18. Fagnað verður sigri
birtunnar yfir myrkrinu. Fólk mæti gjarna
með kyndla.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og
héraðsskjalasöfn um land allt hafa sam-
einast um vefinn www.skjaladagur.is þar
sem er að finna fróðleik og sýningu um
árið 1974 í skjölum.
Þjóðminjasafn Íslands | Gluggagægir
kemur í heimsókn kl. 13. Þá eru íslensku
jólasveinarnir komnir á jólasveinadagatal
sem fæst í safninu. Jólasveinakvæði Jó-
hannesar úr Kötlum er einnig í dagatal-
inu. Veitingastofa safnsins býður fjöl-
þjóðlegar jólakræsingar. Einnig eru
kynntir japanskir og pólskir jóla- og ný-
árssiðir auk íslenskra.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer þriðjudags-
ins 21. desember er 101165.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs er opin kl. 16–18.
Fatamóttaka og úthlutun á sama tíma.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Jóla-
úthlutun verður 21. des. kl 14–17 að Sól-
vallagötu 48. Svarað er í síma 551 4349
sömu daga kl. 11–16 og tekið á móti varn-
ingi og gjöfum. Netfang: mnefnd@mi.is.
Börn
www.menntagatt.is | Fram að áramótum
verður opinn jólakortavefur á mennta-
gatt.is. Allir nemendur í leik-, grunn- og
framhaldsskólum geta sent inn myndir
og verða þær sjálfkrafa að jólakortum.
Innsendar myndir verða sýnilegar á vefn-
um og er hægt að senda þær sem jóla-
kort til vina og ættingja.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
LOKATÓNLEIKAR Camerarctica í tónleikaröðinni Mozart við kertaljós verða í Dómkirkj-
unni í Reykjavík í kvöld. Kertaljósatónleikar Camerarctica hafa verið fastur liður í að-
ventuhátíðinni í yfir áratug og þykir mörgum ómissandi að fá að setjast inn í kyrrðina og
kertaljósin á síðustu dögum hennar og hlusta á ljúfa tónlist eftir W.A.Mozart.
Camerarctica hefur nú fengið til liðs við sig Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur sópran-
söngkonu sem syngur í nokkrum verkanna.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast klukkan 21.00. Camerarctica skipa
þau Hallfríður Ólafsdóttir, flauta, Ármann Helgason, klarinett, Hildigunnur Halldórs-
dóttir, fiðla, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla, Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla og Sig-
urður Halldórsson, selló. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn, miðaverð er kr. 1.500.–
nemendur og eldri borgarar fá afslátt og ókeypis er fyrir börn.
Morgunblaðið/Sverrir
Mozart við kertaljós í Dómkirkjunni
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Ljósmynd/Gréta Guðjónsdóttir
Brúðkaup | Gefin voru saman 24. júlí
sl. í Grafarvogskirkju af sr. Vigfúsi Þór
Árnasyni þau Elín Hjálmsdóttir og
Örn Arnar Jónsson.
Pirrandi spil.
Norður
♠985
♥Á94 A/Allir
♦G32
♣G1087
Suður
♠ÁKG63
♥D85
♦4
♣ÁK63
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 spaði
2 tíglar 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur byrjar á tígulás og spilar svo
kóngnum. Hvernig er best að spila?
Það er óhætt að segja að blindur
bregðist björtustu vonum, en samning-
urinn er þó á lífi. Vandinn er sá að ekki
er hægt að komast inn í borð nema
einu sinni (á hjartaás), en í raun þarf
þrjár innkomur – til að svína í svörtu
litunum og spila hjarta að drottning-
unni. Þetta er pirrandi, en það verður
að gera það besta úr aðstæðum.
Engin leið er að ná öllum „svíning-
unum“, en hægt er að ná tveimur með
vandvirkni. Best er að fórna svíning-
unni í trompi – taka ÁK og sjá hvað
gerist:
Norður
♠985
♥Á94
♦G32
♣G1087
Vestur Austur
♠D104 ♠72
♥G73 ♥K1062
♦ÁKD95 ♦10876
♣52 ♣D94
Suður
♠ÁKG63
♥D85
♦4
♣ÁK63
Spaðadrottningin lætur ekki sjá sig,
en trompið er þó 3–2. Næst er laufás
tekinn, síðan kemur hjarta á ásinn og
svo er laufgosa spilað úr borði. Ef aust-
ur dúkkar er innkoman notuð til að
spila að hjartadrottningu. Þetta dugir í
tíu slagi, því austur á bæði laufdrottn-
ingu og hjartakóng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
MYNDLISTARMAÐURINN Carl Boutard
opnar sýninguna Inner Station – the heart
of darkness í Klink og Bank í Græna Saln-
um í kvöld kl. 20.
Sýningin er einskonar athugunarstöð
eða Wunderkammer, sem samanstendur
af hlutum og skissum myndlistarmanns-
ins sem hann hefur safnað saman og unn-
ið útfrá.
Einnig verður þeim gestum er það
þiggja boðið í gufubað á opnunardaginn.
Sýningin er opin alla virka daga til 30.
desember frá klukkan 14–18.
Gengið er inn á sýninguna Brautar-
holtsmegin.
Athugunarstöð
í Klink og Bank
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
75 ÁRA afmæli. Ídag, 21. des-
ember, er 75 ára Ör-
lygur Háldanarson,
bókaútgefandi,
Hjarðarhaga 54,
Reykjavík. Eiginkona
hans er Þóra Þor-
geirsdóttir.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is