Eintak - 01.12.1993, Blaðsíða 4
efrii þessa heftis eru sögur...
. . .af konum eins og Herdísi Þorvaldsdóttur, Andreu Gytfadóttur, Maríu
Gisladóttur og Amal Quase. Alls konar konum; sterkum, hlýjum, hörðum,
grimmum. Baráttukonum, djörfum og dularfullum. íslenskum konum.
...af mönnum. Einstaklingum. Steinarí Sigurjónssyni Manni sem var allt í
senn; hljómsveitatöffari og heimshornaflakkari, fyllibytta og séntilmaður,
stórvirkur rithöfundur en lítilsvirtur, bóhem og mannafæla.
.. .af fjölskyldunni á bak við Vifilfell, auðnum og deilunum. Coca-Cola og
ameríska draumnum á íslandi - sem ef til vill er ekki eins Ijúfur og ætla mætti.
.. .sem samdar eru með Brynju Vifilsdóttur, þuluna í sjónvarpinu, í huga. Tíu
> listamenn tóku að sér að búa til verk undir áhrifum frá hinni björtu mey;
málverk, hof, Ijóð, örsögu, vídeóverk, leikrit, höggmynd, Ijósmynd,
kvikmyndahandritog sönglag.
.. .af baráttu Þorgeirs Þorgeirssonar. Baráttu sem talin var tuð í úrillum
manni, en leiddi til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að taka eitthvert tillit til
mannréttinda. Lífssaga rithöfundar, ádeilupenna, vandræðamanns, plágu.
...af íslendingum og hinni sérlunduðu þjóðarsál þeirra, af alvöru
mönnum eins og Stefáni frá Möðrudal sem skaut sjö rjúpur í einu skoti
og málaði fjörutíu myndir sama daginn, af töffurum eins og Elvis, af
Krístjáni Krístjánssyni, KK, sveitaballaferð og rjúpnaskytteríi, af...