Eintak - 01.12.1993, Page 62
Valgerður Matthíasdóttir
Valgeröur Matthíasdóttir hefur eitthvert bjartasta bros á íslandi. Og ólíkt
flestum hefur hún níu líf í fjölmiðlunum. Á hinum glöðu árum fjölmiðla-
byltingarinnar var hún eitt af andlitum Stöðvar 2 og fastagestur á forsíðum
tímarita. Svo fór eitthvað að sneyðast um Valgerði; var hún alveg horfin?
Nei, auðvitað birtist hún aftur, jafn hlýleg og brosmild og fyrr, í því ágæta
vandamálaprógrami Ingó og Völu - þáttum sem ólíkt flestu íslensku
sjónvarpsefni ganga fullkomlega upp.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Sjö sinnum hefur Guðfríður Lilja
orðið íslandsmeistari í skák, á átta
ára tímabili. Hún bíður þess nú að
tefla einvígi um áttunda
meistaratitilinn, þótt varla sé mikill
tími til að hugsa um skák þar sem
Guðfríður Lilja er í námi í sagnfræði,
hagfræði og félagsfræði við hinn
margfræga Harvard-háskóla í
Bandaríkjunum. Þar þótti mönnum
slíkur fengur að fá stúlkuna í
skólann að henni var veitt námsvist
löngu áður en hún lauk
stúdentsprófi á íslandi.
Kolrassa krókríðandi
Kolrassa var til skamms tíma kvennahljómsveit, alveg hrein og klár. Og
komin úr bítlabænum gamla, Keflavík. Svo þurftu stelpurnar, Elísa, Bíbí og
Sigrún að velja milli þess að vera hreinar á kenningunni eða búa til góða
músík; þær völdu síðari kostinn og fengu strák til að sitja við trommurnar hjá
sér. Þannig eru þær til alls líklegar; margir telja að ungu hljómsveitirnar
gerist ekki miklu frísklegri og skemmtilegri en Kolrassa.
jNGIBJÖRG ElNARSDÓTTIR
íslendingar hafa dáð Jón Sigurðsson, en þeim
hefur alltaf legið illa orð til Ingibjargar konu
hans. Þeir hefðu líklega heldur kosið honum
einhverja huldukonu eða álfadís og því voru
sagðar sögur um hvað hún var ófríð, gömul og
tannlaus - og að Jón hafi í raun ekki viljað eiga
hana. Ingibjörg sat lika lengst kvenna í festum,
í heil tólf ár. En hún stóð alltaf eins og klettur
við hlið manns síns, var harðsnúinn óvinur
óvina hans og þegar hann lá banaleguna gekk
hún svo nærri sér við að hjúkra honum að
andaðist aðeins niu dögum eftir lát hans.
Halla Linker
Ung var hún gefin Bandaríkjamanni
sem hafði yfir sér Ijóma ævintýra. Með'Á,
honum fór hún um allar jarðir og
Islendingar horfðu með aðdáun á þessa
Ijóshærðu fegurðardís sem virtist hafa lagt ^
heiminn að fótum sér. En það var eitthvað
bogið við þennan íslensk/ameríska draum;
maðurinn reyndist vera hin'.mesta ótukt og
hjónabandið fullt af skuggum. Halla hafði kjark til
að segja frá þessu og uppskar fyrir vikið metsölu,
virðingu og vakti til umhudsunar konur sem margar
þekktu máski hlutskipti hdnnar af eigin raun.
EINTAK 1 YND: BONNI
Elín S. Sigurðardóttir
Elín hefur starfað með Hjálparsveit skáta í fimm ár, fyrst á
Akureyri og svo í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt i þó
nokkrum leitum, meðal annars í Bláfjallaleitinni í fyrra að
tveimur snjósleðastrákum. „Þetta er einhver þörf fyrir
aksjón, að prófa eitthvað nýtt. Það er alltaf eitthvað nýtt
sem kemur upp í hverri leit." Elín segist vera að þessu
bara fyrir sjálfa sig, þetta sé þörfin fyrir að takast á við
eitthvað sem hræðir mann til að byrja með. „En svo er það
mikill sigur fyrir mann sjálfan þegar maður stenst það.“
EINTAKMYND: GÚSTAF GUÐMUNDSSON