Eintak - 01.12.1993, Blaðsíða 8
hefur hlotið frá-
bæra dóma fyrir
Ijóðabókina Ytri
höfnin sem kom út
fyrir stuttu. Hann
starfar einnig við
þýðingar, nýskeð
kom út þýðing
hans á skáldsög-
unni Glerborgin
eftir Paul Auster.
Bragi er gamall hljómsveitatöffari,
einu sinni hitaði hann upp á sveita-
böllum með hljómsveitinni Stuð-
ventlum, en síðar beið hans öllu
meiri músíkfrægð í Sykurmolunum.
Því þótti við hæfi að senda Braga
vestur í Búðardal og á Króksfjarðar-
nes þar sem hann var í slagtogi við
KK-Bandið.
Gérard Lemarquis hefur búið á
Islandi hátt í tvo
áratugi. Hann
kennir við Háskóia
íslands og
Menntaskólann í
Hamrahlíð, en
hann er einnig
fréttaritari fyrir
fjölmiðla í ættlandi
sínu, Frakklandi;
stórblaðið Le Monde og
fréttastofuna AFP. Stuttu eftir að
Gérard kom til íslands tókust góð
kynni með honum og Þorgeiri
Þorgeirssyni rithöfundi sem hann
segir að hann hafi talið eins konar
meistara sinn. Gérard tekur viðtal
við þennan góðvin sinn.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fjallar
um Steinar Sigur-
jónsson, þennan
einstæða rithöfund
sem margir álitu
sérvitran, klikkaðan
og sífullan, en var
þó í aðra röndina
snillingur. Þóra,
sem er höfundur
viðtalsbókar við
Guðberg Bergsson
sem kom út fyrir
síðustu jól, velur sér ekki auðveld-
ustu leiðina í blaðamennsku sinni.
Hún leitar gjarna uppi stór og krefj-
andi verkefni sem hún vinnur af
mikilli alúð, eins og glöggt má sjá á
grein hennar um Steinar.
Friðrik Þór Guðmundsson verð-
skuldar fremur en flestir íslenskir
blaðamenn heitið rannsóknar-
blaðamaður. Hann hefur einkum
fengist við að skrifa greinar sem
fjalla um ýmsar hliðar viðskipta-
lífsins, þó oftast þær sem eru huldar
sjónum almennings. Hér beitir
Friðrik Þór kröftum sínum til að
skrifa grein um Vífilfell, þetta vold-
uga fjölskyldufyrírtæki sem virðist
slétt og fellt á yfirborðinu, en þar
sem allt hefur logað í illdeilum og
málaferlum hin síðari ár.
Tolli listmálari, eða Þorlákur
Kristinsson eins og hann heitir fullu
nafni, tekur viðtal við kollega sinn,
hinn síunga öndvegismálara Stefán
Jónsson frá Möðrudal. Stefán fer á
kostum í viðtalinu, enda Ijóst að Tolli
hefur af eðlislægri Ijúfmennsku sinni
einstakt lag á að ná sambandi við
fólk sem fer kannski ekki alveg
alfaraleið í lífinu.
Bragi Ólafsson
Steinn Ármann
Magnússon radíus-
bróðir og leikari freistar
þess að taka viðtal við vin
sinn og kollega, Davíð Þór
Jónsson radíusbróður. Eins og
við er að búast af þeim félögunum
getur það farið á alla vegu; kannski
vill Davíð Þór ekki láta taka við sig
viðtal, kannski vill hann taka viðtal
við Stein Árman eða kannski fer
þetta allt út um þúfur?
Niu konur skrifa um konur, um
ýmsar klisjur, fullyrðingar, stað-
hæfingar og staðleysur sem konur
hafa mátt hlusta á í gegnum tíðina.
Þær gera annað hvort að hrekja
þessar klisjur eða að færa rök fyrir
því að þær standist þrátt fyrir allt.
Það eru mætar konur sem leggja
fram greinar í þennan greinaflokk:
Tíu listamenn skapa verk
sem öll eru innblásin af
sömu konunni, Brynju
Vífilsdóttur sjónvarpsþulu.
Það er óhætt að fullyrða að
þetta séu helstu öndvegis-
listamenn þjóðarinnar, hver
á sínu sviði. Helgí Þorgils
Friðjónsson listmálari málar
af henni mynd, Þórarinn
Eldjárn skáld yrkir Ijóð,
Guðbergur Bergsson
rithöfundur skrifar örsögu,
Margrét Indriðadóttir fyrrum
fréttastjóri útvarpsins; Magnea
Matthíasdóttir rithöfundur og
snilldarprófarkalesari sem er búsett í
Danmörku; Soffía Auður Birgis-
dóttir bókmenntafræðingur sem
hefur fjallað kvenna mest um
kvennabókmenntir; Ragnhildur
Vigfúsdóttir sem hefur ritstýrt
kvennablaðinu Veru af miklum
myndugleik og dirfsku; Sigríður
Halldórsdóttir kennari og óneitan-
lega einn snjallasti pistlahöfundur
landsins; Vilborg Dagbjartsdóttir
kennari og Ijóðskáld; Súsanna
Svavarsdóttir, frægur, umdeildur
og umtalaður leikhúsgagnrýnandi;
Kristín Jóhannesdóttir kvik-
myndagerðarmaður og Frakklands-
vinur; og loks Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstjóri og fyrrum þingkona.
Páll Guðmundsson mynd-
höggvari frá Húsafelli
klappar í stein, Friðrik Þór
Friðriksson kvikmynda-
gerðarmaður býr til lítið kvik-
myndahandrit, Þorvaldur
Þorsteinsson mynd-
listarmaður og leikskáld
skrifar leikrit, Guðmundur
Jónsson arkitekt teiknar
hús sem hann velur stað
undir Svartafossi, Páll
Stefánsson tekur Ijósmynd,
Finnbogi Pétursson gerir
vídeólistaverk, en Megas
semur lag og Ijóð.
EINTAK
nr.2 2.tbl. 1. árg
Gefið út af Nokkrum (slendingum hf.
Ritstjóri og útgefandi
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóri
Egill Helgason
Ritstjóri Ijósmynda
Bonni
Útlit
Gunnar Smári Egilsson og Jón Magnússon
Höfundar efnis í þessu hefti
Bragi Ólafsson, Davíð Þór Jónsson og
Steinn Ármann Magnússon, Einar Öm
Benediktsson, Gérard Lemarquis, Friðrik
Þór Guðmundsson, Kristín Jóhannes-
dóttir, Magnea J. Matthíasdóttir, Margrét
Indriðadóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir, Soffía Auður
Birgisdóttir, Sólveig Ólafsdóttir, Stefán
Hrafn Hagalín, Súsanna Svavarsdóttir,
Tolli, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir
Höfundar Ijósmynda
Amaldur Halldórsson, Bonni, Bragi
Ólafsson, Grímur Bjamason, Gústaf
Guðmundsson, Jói Dungal, Rafn
Rafnsson, Sigurgeir Sigurjónsson og
Svava Rán Guðmundsdóttir
Myndskreytingar
Andrés Magnússon, Gunnar Smári
Egilsson og Jón Magnússon
Gröf
■ Andrés Magnússon
Umsjón með bóka- og plötugagnrýni
Egill Helgason
Umsjón með matarþætti
Rúnar Guðmundsson
Stílistar
Ari Alexander Magnússon, Bonni, Man'a
Ólafsdóttir og Svava Rán Guðmundsdóttir
Förðun
Kristín Stefánsdóttir No Name, Laufey
Birkisdóttir Guerlain, Maria Magnúsdóttir,
Sigriður Sigurjónsdóttir, Tziana Bianchi,
Þórunn Högnadóttir Make Up Forever
Hár
Ari Alexander hjá Bárn Kemp og Simbi hjá
Jóa og félögum
Fyrirsætur
Bertha Maria Waagfjörð, Ingibjörg
Stefánsdóttir, Lilja Pálmadóttir, Lovísa,
Mark Miller, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Snæfríður Baldvinsdóttir
Listaakademía þessa tölublaðs
Finnbogi Pétursson, Friðrik Þór
Friðriksson, Guðbergur Bergsson,
Guðmundur Jónsson, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Megas, Páll Guðmundsson,
Páll Stefánsson, Þorvaldur Þorsteinsson
og Þórarinn Eldjám
Nokkrir íslendingar
Vatnsstíg4, 101 Reykjavík
sími 1 68 88 - fax
sími Ijósmyndara 2 38 01
Framkvæmdastjóri
Níels Hafsteinsson
AuglýsingadeNd
Lára Gyða Bergsdóttir og Tómas Ingi
Tómasson
Tímaritið Eintak kemur út
mánaðarlega - tólf sinnum á ári.
Verð hvers Eintaks er 599 krónur með
virðisaukaskatti. Áskrifendur fá 30
prósent afslátt.
Óheimilt er að afrita eða fjölfalda efni timaritsins án
skrifiegs leyfis ritstjóra.
EINTAK DESEMBER
8