Eintak - 01.12.1993, Blaðsíða 54
Guðrún Nordal
Guörún lauk doktorsprófi í
miðaldafræðum frá háskól-
anum í Oxford, viðfangsefni
hennar var siðfræði Sturlungu.
Að því loknu var Guðrún um
hríð lektor við University
College í London, þar sem er
mikið vígi íslenskra fræða.
Guðrún starfar nú við rann-
sóknir á Stofnun Árna
Magnússonar.
JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR
„Starf Amnesty International þyggir á þeirri grundvallarhugmynd að mannréttindi
séu alþjóðleg og vernd þeirra samábyrgð okkar allra, að hvert okkar beri ábyrgð á
því að mannréttindi séu virt. Þess vegna starfa ég með Amnesty." í fjögur ár var
Jóhanna formaður þessara samtaka sem hafa hátt í hundrað deildir út um allan
heim og fjögur þúsund meðlimi á Islandi, en er nú framkvæmdastjóri þeirra.
Jóhanna, sem er mannfræðingur að mennt, segist ekki síst verða vör við árangur
starfsins í samskiptum við þegna fyrrum einræðisríkja; til marks um það sé þegar
fólk sem hefur sætt fangavist og mannréttindabrotum þyki mikilsvert að stofna
Amnestydeildir loks þegar það hefur tök á.
Björk
Guðmundsdóttir
Björk. Hún er ábyggilega
orðin heimsfrægasti
íslendingur fyrr og síðar.
________ Heimsfrægari en Halldór
Laxness og Leifur Eiríksson. Hún er
í öllum tímaritum og alls staðar
hljómar músíkin hennar. Og af því
við íslendingar erum svo útbelgdir af
menningararfi okkar og bókmennt-
um er það svolítið fyndið að það
skuli vera svona skemmtileg stelpa
sem getur sér heimsfrægðina sem
þjóðina hefur alltaf dreymt um,
svona álfastelpa - eða sagði ekki
einhver að Björk væri einstætt
sambland af stúlkubarni og norn?
JULIE INGHAM
Julie stundaði háskólanám í Leeds
og kom til l’slands 1982 til að safna
efni í ritgerð um íslenskar
útlagasögur. Þetta var upphafið að
útlegð hennar frá heimalandinu,
Englandi, því lengst af síðan þá
hefur hún verið búsett hér og á nú
þrjú börn með íslenskum eiginmanni
sínum. Julie hefur fundið sér
viðurværi við helstu útflutningsgrein
Breta; enska tungu. 1986 stofnaði
hún ásamt vinkonu sinni
Enskuskólann og síðan hefur hann
stækkað og dafnað og fest sig í
sessi. „Við leggjum áherslu á litla
bekki, beina þáttöku og vingjarnlegt
andrúmsloft. Þetta virðist vera
eftirsóknarvert, því síðast þegar við
auglýstum eftir kennurum í Times
Literary Supplement fengum við
hundrað umsóknir."
tlNl'AKMYND: BONNI
Asdís Thoroddsen
Ásdís gerði kvikmynd og það var af henni
saltbragð. Hún gerðist í afskekktu
sjávarplássi fyrir vestan, en af því það
einstaka og einangraða er oft
sammannlegast þegar öllu er á botninn hvolft
hefur Ingaló farið víða um jarðir og vakið
athygli á kvikmyndahátíðum. Hún er einhver
margverðlaunaðasta mynd sem íslendingar
hafa gert; hlaut tvenn verðlaun á
kvikmyndahátíðinni ÍTroia í Portúgal,
verðlaun á Filmare-hátíðinni í San Remo á
Ítalíu, á norrænu kvikmyndahátíðinni í
Rúðuborg, auk þess sem hún hreppti
svokölluð OCIC-verðlaun sem eru veitt af
kaþólsku kirkjunni. Nú erÁsdís að hugsa sér
til hreyfings að fara að gera aðra mynd. Hún
segir að hún fjalli um ástir og svik - „þrjár
stúlkur sem láta seiðast af sama ilmi af leðri,
viskíi og vindlum og heillast af sama
manninum".
Halldóra Ragnarsdóttir
Halldóra gekk til liðs við
Landhelgisgæsluna fyrir tveimur
árum, eftir aö hafa unnið til margra
ára á skrifstofu í Reykjavík. Nú er
hún háseti á varðskipi. Hún vildi
breyta til, og neitar því ekki að
áræðni og ævintýraþrá hafi ráðið
töluverðu um þá ákvörðun að fara á
sjóinn. ,,Ég kann vel við mig að
vinna með strákunum. Ég er
búfræðingur að mennt, og því vön
frá fornu fari að vinna nær eingöngu
með karlmönnum Mér líkar það
mjög vel."