Eintak - 01.12.1993, Blaðsíða 55
Tinna Gunnlaugsdóttir
Tinna hefur verið einhvern veginn sjálfsögð í hlutverk kvennanna sem
karlmenn eru reiðubúnir að fórna öllu fyrir, srundum jafnvel lífinu;
Snæfríðar íslandssólar, Uglu í Atómstöðinni. En það verða
kynslóðaskipti í leikhúsinu líkt og annars staðar; eftir hól leikurTinna
í söngleiknum Gauragangi í Þjóðleikhúsinu - móður unglings.
Málmfríður
Einarsdóttir
Málmfríður var ólíkindatól
sem tók upp á því að fara að
skrifa bækur á gamals aldri,
en hafði reyndar iðkað þýð-
ingar og Ijóðagerð frá því hún
dvaldi ung kona á berklahæli.
Þekkt skáld gaf henni viður-
nefnið „strammaskáld" og
það festist við hana, enda var hún öðrum út-
smognari í þeirri íþrótt að sauma út. Hún skrifaði
ekki margar bækur, en þær eiga skilið að vera lesnar
upp til agna - uppfullar af skringilegheitum,
kenjum og einstæðum húmor.
Steinunn Sigurðardóttir
Sú saga er sögð að einu sinni, fyrir
meira en áratug, hafi Steinunn
ráðgert að flytja af landi brott. Hún
var komin með annan fótinn út fyrir
landsteinana. Mönnum leist ekki
meira en svo á blikuna, sérstaklega
ekki Nóbelskáldinu okkar sem gekk
um í öngum sínum og sagði hverjum
sem vildi heyra að besti og
skemmtilegasti kvenkostur á landinu
væri að flytja burt. Það mætti ekki
verða. Að lokum fór svo að
Steinunni snerist hugur - var það
ekki jafngott?
Helga Guðrún Jónasdóttir
Það er varla neitt alvanalegt að
Reykjavíkurstúlka, uppalin hér á mölinni
og í Kaupmannahöfn, gerist eindreginn
talsmaður bændastéttarinnar í stríðinu
sem nú geisar milli vina og óvina
landbúnaðarins. Helga Guðrún er
stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði
um hríð sem blaðamaður og fréttakona,
en réði sig síðan til starfa hjá
Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. Af
skrifstofu sinni í Bændahöllinni skylmist
hún fimlega í fjölmiðlum við þá miklu
hjörð sem hefur fátt annað fyrir stafni en
að hreyta ónotum í bændur.
María Ellingsen
Maria hefur undanfarin
ár alið manninn vestur i
Hollywood og hefur meðal
annars leikið í sápuóperunni
Santa Barbara og í nokkrum
kvikmyndum. Hún gerir þó
ekki mikið úr frægð sinni og
frama í draumaverksmiðj-
unni. „Ég er bara i smá
víkingaleiðangri núna.
Heima átelandi er
alvörulifið."
Amal Quase
Amal Quase býr á Islandi og þótt
hún sé ættuð frá hinni stríðshrjáðu
Sómalíu lætur hún eins og hún sé
heima hjá sér á íslandi, en ekki
gestur, líkt og er algengt með
útlendinga. Og kannski ætlumst við
til þess íslendingar, að minnsta kosti
sumir, að útlendingar sem setjast
hér að hegði sér eins og þakklátir og
kurteisir gestir. Því er Amal ekki
sammála, enda hefur hún látið í sér
heyra í fjölmiðlum og á fundum.
„Það þýðir ekki að hegða sér eins
og gestur ævilangt. Margir
útlendingar sem hér eru lesa ekki
dagblöð, hlusta ekki á fréttir og
umgangast ekki íslendinga. Ég er
hins vegar opin og svara fyrir mig
og þannig hefur mér ekki reynst
neitt mál að kynnast íslendingum.“