Eintak - 01.12.1993, Blaðsíða 59
María Gísladóttir
Þeir sem til þekkja
segja að María sé að
vinna mikið þrekvirki
með íslenska dans-
flokknum, sumir segja
jafnvel kraftaverk. Hún
hætti sjálf að dansa fyrir
þremur árum eftir glæsi-
sem satt að segja naut
ekki mikils álits. En það
er allt að breytast undir
styrkri leiðsögn Maríu;
hún beitir þeim afdráttar-
lausu kröfum um fag-
mennsku sem hún tamdi
sér í útlöndum, hefur
látið eldri dansara fara,
en fengið í staðinn unga
og fríska dansara, bæði
íslenska og útlenda.
Enda hafa sýningar
flokksins stórbatnað,
hann er ekki lengur hafð-
ur í flimtingum eins og
var um tíma og virðist
líklegur til frekari átaka
og afreka.
í ‘ttBfiBlSilWt'fti'iitAvYt'iif'ítii'Y»iíí>*í ii
;
Steinunn Olína
Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólina er vísast
yngsta atvinnuleikkona
í leikhúsunum. Ekki það
að hún sé neinn nýgræð-
ingur. Það er orðið æði
langt siðan hún lék stórt
hlutverk i Land mins föður
í Iðnó. Svo fór hún út og lærði
við Drama Centre i London, við heim-
komu biðu hennar aðalhlutverk; meðal annars ein helsta prímadonnurulla
i leikhúsi heimsins, hlutverk Elisu Doolittle í My Fair Lady. Nú er hún að
æfa hlutverk brúðarinnar i Blóðbrullaupi eftir Garcia-Lorca.
Brynja Baldursdóttir
„Bóklist er mitt aðallistform, þótt
það verði nú að segjast að ég fari
ansi frjálslega með hugtakið.
Bóklistaverk bræða saman bók
og myndlist, þeim eru engin
takmörk sett nema kannski
hugkvæmni listamannsis.
Aðferðirnar eru jafnmismunandi
og verkin. Þetta listform býður
upp á allt aðra möguleika en til ■
dæmis mynd á vegg. Eigindir
tímans og rúmsins verða mun
sterkari og nálægari, þátttaka
viðtakandans er meiri því það
felur í sér snertingu." Brynja er að
Ijúka doktorsnámi í heimspeki og
myndlist frá Royal College of Art í
London.
Björg Þorláksdóttir
var ekki einasta fyrsta íslenska konan
sem lauk stúdentsprófi, heldur hélt
hún áfram menntabrautina og varð
fyrsta konan sem lauk doktorsprófi - í
lífeðlisfræði, fagi sem íslendingar voru
varla mikið að eltast við á fyrstu ára-
tugum aldarinnar. Doktorsnafnbótina
fékk hún í Sorbonne-háskóla í París
1926, þá komin á sextugsaldur og
skilin við mann sinn, Sigfús Blöndal,
hinn nafntogaða norrænufræðing.
Raunar hefur það orð legið á að gáfu-
og eljukonan Björg eigi meira en lítið í
höfuðverki manns síns,
íslensku orðabókinni.
Guðríður Þorbjarnardóttir
Guðríður var kona Þorfinns þess sem nefndur
var karlsefni. Með honum fór Guðríður í
landnámsferð frá Grænlandi til Vínlands. Þar
lentu þau í ýmsum hremmingum og flýðu aftur
til Grænlands, en síðar fluttust þau til íslands.
Eftir lát Þorfinns mun Guðríður enn hafa lagt land
undir fót og í þetta skiptið farið til Rómar í pílagrímsför. Hún er því
víðförlasta konan sem sögur fara af í (slandssögunni og þykir
visast mörgum að það hálfa hefði verið nóg, að minnsta kosti
þegar hugsað er til þess ferðamáta sem þá tíðkaðist.
EINTAKMYND: BONNI