Morgunblaðið - 13.01.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 11. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Níu nýjar
bíómyndir
Löng trúlofun er opnunarmynd franskrar
kvikmyndahátíðar | Menning
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir
Viðskipti | Skattar og skattaumhverfi Engin aukning lána hjá Íbúðalánasjóði
Samskip opna í Úkraínu Úr verinu | Lúðuseiði fyrir hundruð milljóna Frost-
fiskur í Þorlákshöfn Íþróttir | Helgi frá keppni Tryggvi til Stabæk?
Nýtt kortatímabil
ÚTSALA
Opið til 21 í kvöld
ATVINNULEYFI til handa 54 er-
lendum starfsmönnum Impregilo
hafa ekki enn verið gefin út. Að sögn
Gissurar Péturssonar, forstjóra
Vinnumálastofnunar, verður fundur
haldinn í dag með fulltrúum Impreg-
ilo og fyrr mun hann ekki tjá sig um
afgreiðslu málsins. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins eru hátt-
settir yfirmenn Impregilo í höfuð-
stöðvunum í Mílanó, m.a. starfs-
mannastjórinn, komnir til landsins til
fundar við Vinnumálastofnun, félags-
málaráðherra og fleiri aðila.
Miðstjórn ASÍ kom saman til fund-
ar í gær þar sem greinargerð sam-
bandsins til Árna Magnússonar fé-
lagsmálaráðherra var rædd. Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir ein-
dreginn stuðning vera innan mið-
stjórnar við það sem í greinargerðinni
komi fram, en þar er að finna þungar
ávirðingar og ásakanir í garð ítalska
verktakafyrirtækisins, m.a. þess efnis
að Impregilo vilji ekki eða ætli sér
ekki að virða íslenskar leikreglur og
sýni því takmarkaðan áhuga á að ráða
Íslendinga til starfa.
Þolinmæði ASÍ á þrotum
Grétar segir miðstjórnina hafa lagt
áherslu á að málinu verði fylgt eftir af
fullum þunga. ASÍ hafi til þessa sýnt
Impregilo langlundargeð og þolin-
mæði, margt horfi að vísu til betri
vegar, en nú finnist mönnum „nóg
komið“. Ef viðurkennd sé sú stefna
Impregilo að miða við lágmarkskjör
launafólks þurfi verkalýðshreyfingin
að taka upp allt önnur vinnubrögð.
Lýsir Grétar yfir ánægju með við-
brögð ríkisstjórnarinnar og félags-
málaráðherra á þriðjudag, að skipa
alla ráðuneytisstjórana í starfshóp.
Það sé merki um mikinn alvarleika
málsins. Að sögn Grétars tók mið-
stjórn ekki ákvörðun um að fara með
deiluna fyrir Félagsdóm, það sé verið
að íhuga þá leið ásamt fleirum.
Talsmaður Impregilo vísar ásökun-
um ASÍ á bug, fyrirtækið hafi brugð-
ist við öllum athugasemdum sem upp
hafa komið en gagnrýni við aðbúnað-
inn í upphafi framkvæmda sé skilj-
anlegur. Impregilo hafi haft skamm-
an undirbúningstíma og orðið að reisa
stórt starfsmannaþorp á mettíma.
Alvarlegar ávirðingar og ásakanir í greinargerð ASÍ
Yfirmenn Impregilo
á fund með ráðherra
Vilja ekki og ætla ekki/28–29
FYRSTU bandarísku hermennirnir
munu fara frá Írak á þessu ári og þá
munu íraski herinn, þjóðvarðliðið og
lögreglan taka að sér öryggisgæslu í
auknum mæli. Kom þetta fram hjá
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í gær.
Powell sagði, að hann gæti ekki
nefnt nein tímamörk en um 150.000
bandarískir hermenn eru nú í Írak.
Sagði hann einnig, að þingkosn-
ingunum í Írak í lok þessa mánaðar
yrði ekki frestað þótt „hryðjuverka-
menn og morðingjar“ vildu koma í
veg fyrir þær.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær,
að leitinni að gereyðingarvopnum í
Írak hefði verið hætt.
Fyrstu hermenn
frá Írak á árinu
Washington. AP.
Kaflaskil/14
SUM barnanna í Aceh-héraði á
Súmötru, sem varð harðast úti í
hamförunum fyrir nærri þremur
vikum, eru aftur farin að sækja
skóla. Að þessu sinni fer kennslan
þó fram undir berum himni þar sem
lítið er um uppistandandi hús á
stórum svæðum. Í gær var tilkynnt
að alls væru 159.000 látnir og meira
en 30.000 manna enn saknað./14
Reuters
Aftur skóli í Aceh
ÁKVÖRÐUN um að nota aðrar mengunarvarnir í álveri Al-
coa en mat á umhverfisáhrifum álvers Norsk Hydro gerði
ráð fyrir, er meginforsenda þess að Héraðsdómur Reykja-
víkur ómerkti í gær úrskurð umhverfisráðherra frá því í
apríl 2003 um að staðfesta þá ákvörðun Skipulagsstofnunar
að 322 þúsund tonna álver Alcoa í Reyðarfirði þyrfti ekki að
fara í umhverfismat. Segir í dómnum að breyttar aðferðir
við hreinsunina hafi þær afleiðingar að útblástur í andrúms-
loft á flúoríði aukist verulega og útblástur á brennisteins-
díoxíði margfaldist. Alcoa hyggst nota þurrhreinsibúnað við
hreinsun á útblæstri álversins en Norsk Hydro ætlaði að
nota vothreinsibúnað.
Bæði umhverfisráðuneytið og Alcoa Fjarðaál ætla að
áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Stefnandi í málinu er Hjör-
leifur Guttormsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra.
Í dómi héraðsdóms segir að búnaður til að lágmarka og
hreinsa útblástur mengandi efna hafi úrslitaþýðingu fyrir
áhrif álvers á umhverfið. Það leiði því af hlutarins eðli að í
skýrslu um mat á umhverfisáhrifum verður ekki undir nein-
um kringumstæðum litið fram hjá búnaði álversins til að lág-
marka og hreinsa útblástur mengandi efna.
„Skipulagsstofnun lagði á sínum tíma mat á hvaða áhrif
breytingin myndi hafa á umhverfið,“ segir Magnús Jóhann-
esson ráðuneytisstjóri. „Þegar var búið að gera umhverf-
ismat á 420.000 tonna álveri og þegar ákveðið var að minnka
það lagði stofnunin mat á breytinguna. Okkur þykir ekki að
dómurinn hafi hrakið það mat stofnunarinnar.“ Tómas Már
Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, telur að dómurinn muni
ekki hafa nein áhrif á framkvæmdirnar að svo stöddu.
Hjörleifur Guttormsson segir niðurstöðuna merkilega.
„Ég sé ekki betur en að álverið á Reyðarfirði sé þar með
komið á byrjunarreit,“ segir Hjörleifur.
Að sögn Aðalheiðar Jóhannsdóttur, sérfræðings í um-
hverfisrétti, falla starfsleyfi og framkvæmdaleyfi Alcoa ekki
sjálfkrafa úr gildi þó að héraðsdómur hafi ómerkt úrskurð
umhverfisráðherra.
Undanþága álvers Alcoa frá umhverfismati felld úr gildi
Í mat vegna breytts
mengunarbúnaðar
Ráðuneytið og Alcoa áfrýja til Hæstaréttar
Álver Alcoa/10 og 12
STAÐFESTI Hæstiréttur
dóm héraðsdóms þarf fram-
kvæmdin við álver Alcoa að
fara í mat á umhverfisáhrif-
um, og tekur það ferli að
lágmarki þrjá og hálfan
mánuð, en að lágmarki
fimm og hálfan mánuð ef
niðurstaðan verður kærð,
segir Ásdís Hlökk Theó-
dórsdóttir, starfandi skipu-
lagsstjóri.
Ferlið við mat á umhverf-
isáhrifum hefst á því að
framkvæmdaraðili gerir
matsáætlun, og tekur form-
legt ferli við að fá það sam-
þykkt um einn mánuð, fyrir
utan þá vinnu sem fram-
kvæmdaraðilinn þarf að
leggja í að safna gögnum.
Því næst er matsskýrsla
unnin, og er það ferli í hönd-
um framkvæmdaraðila, og
fer því eftir honum hvaða tíma tekur
að vinna það. Þegar matsskýrslan er
tilbúin tekur við kynning sem tekur
að lágmarki 10 vikur. Verði nið-
urstaðan kærð má svo búast við
tveimur mánuðum til viðbótar, segir
Ásdís. Því sé sá tími sem mat á
umhverfisáhrifum taki að lágmarki
þrír og hálfur mánuður. Kæruferli
geti svo tekið um tvo mánuði til við-
bótar, og því geti þetta ferli staðið í
að lágmarki fimm og hálfan mánuð.
Gæti tekið um 6 mánuði ef kæra berst
Ásdís Hlökk
Theódórsdóttir