Morgunblaðið - 13.01.2005, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
Sölvi
Sveinsson
Hann sendir kver
með þankagangi
sínum í stað jólakorta
og kynntist Elvis
hjá tannlækninum
ÞÓ AÐ héraðsdómur hafi ómerkt
úrskurð umhverfisráðherra þess
efnis að ekki þurfi nýtt mat á um-
hverfisáhrifum fyrir álver Alcoa,
falla ekki sjálfkrafa úr gildi starfs-
leyfi og framkvæmdaleyfi á staðn-
um, og þegar dómnum verður
áfrýjað verður áfram sama rétt-
arstaða og var áður en dómur hér-
aðsdóms féll.
Aðalheiður Jóhannsdóttir, lektor
í lögfræði við Háskóla Íslands, og
sérfræðingur í umhverfisrétti, seg-
ir að með þessum dómi héraðs-
dóms sé búið er að ómerkja úr-
skurð umhverfisráðherra frá 15.
apríl 2003 þess efnis að álver fyrir
allt að 322 þúsund tonna álfram-
leiðslu þurfi ekki að fara í mat á
umhverfisáhrifum. Þar til málinu
hafi verið formlega áfrýjað sé
staðan sú að það liggi ekkert mat
á umhverfisáhrifum fyrir, og sam-
kvæmt lögum um mat á umhverf-
isáhrifum megi ekki gefa út starfs-
leyfi fyrr en slíkt mat liggi fyrir.
Þó segir hún að engin viðurlög séu
við því að ekki liggi fyrir mat á
umhverfisáhrifum, samkvæmt
fyrrgreindum lögum.
Þessi niðurstaða héraðsdóms
hefur ekki þau áhrif að starfsleyfi
eða framkvæmdaleyfi sveitar-
stjórna falli sjálfkrafa úr gildi. En
þar til málinu hefur verið formlega
áfrýjað má segja að efnislegur
grundvöllur leyfisveitinganna sé
brostinn, segir Aðalheiður. Þegar
málinu hefur
verið áfrýjað er
meginreglan sú
að sama réttar-
staða er í málinu
eins og var áður
en héraðsdómur
gekk.
Ef Hæstirétt-
ur staðfestir
dóm héraðsdóms
þarf að taka af-
stöðu til starfs-
leyfisins og framkvæmdaleyfisins,
en þau falla engu að síður ekki
sjálfkrafa úr gildi. Þá þyrfti að
koma krafa frá einhverjum þar til
bærum aðila um að þessi leyfi
verði felld úr gildi, nema stjórn-
völd taki þar frumkvæði og felli
þau úr gildi án kröfu. Þá þarf að
gera fullt mat á umhverfisáhrifum
sem tekur að lágmarki þrjá mán-
uði, og oft mun lengri tíma, segir
Aðalheiður. Ef dómi héraðsdóms
verður hnekkt segir það sig aftur
á móti sjálft að úrskurður ráð-
herra stendur.
Aðalheiður segir niðurstöðu hér-
aðsdóms athyglisverða, og segir að
betra hefði verið að fá rökstutt álit
dómsins á öllum atriðum, en dóm-
urinn tók einungis efnislega af-
stöðu til einnar kröfu, en öðrum
þáttum málsins var ýmist vísað
frá, eða stefndu sýknaðir. Ljóst er
af rökstuðningi dómara að grund-
vallaratriði er að önnur tegund
mengunarvarna er í því álveri sem
Alcoa er nú að reisa en áformað
var í álveri og rafskautaverk-
smiðju sem upphaflega var kannað
í umhverfismati.
Skylt er samkvæmt lögum
að gera samanburð
Miklu skiptir, að mati Aðalheið-
ar, þrátt fyrir að ekki sé vísað til
þess beint í dómnum, að þegar
ákveðið var að láta gamla um-
hverfismatið duga þrátt fyrir ann-
ars konar álver voru í raun ekki
bornir saman möguleikar eins og
gera ber við mat á umhverfisáhrif-
um. Skylt er samkvæmt lögum að
gera slíkan samanburð til að hægt
sé að taka upplýsta ákvörðun.
„Tilgangurinn með mati á um-
hverfisáhrifum er að bera saman
kosti, það er það sem þetta gengur
allt út á, og svo velja þann kost
sem minnst áhrif hefur á umhverf-
ið.
Með því að nota gamla matið fór
þetta mat ekki fram, og að mati
héraðsdóms hafði það úrslitaáhrif í
málinu,“ segir Aðalheiður.
Aðalheiður Jóhannsdóttir um áhrif ómerkingar
héraðsdóms á úrskurði umhverfisráðherra
Framkvæmdaleyfi fellur
ekki sjálfkrafa úr gildi
Aðalheiður
Jóhannsdóttir
ESTHER Blöndal
Stenseth í Stillwater,
Minnesota, Kanada
lést 29. desember sl.,
89 ára að aldri.
Esther fæddist í
Reykjavík 24. desem-
ber 1915, dóttir Gunn-
ars Halldórssonar, f.
24. okt. 1894 í Reykja-
vík, og Sigríðar Jóns-
dóttur, f. 15. júli 1893
í Neðridal, V-Eyja-
fjallahreppi. Kjörfor-
eldrar Estherar voru
Kirstin Kartin Guð-
johnsen, f. 19. september 1874 á
Húsavík, og Ásgeir Lárusson
Blöndal, f. 10. febr. 1858 á Lamba-
stöðum á Seltjarnar-
nesi. Fyrri maður
hennar var Zophonías
Pétursson og síðari
maður Melvin Eug-
ene Stenseth.
Esther bjó lengi í
Alaska með síðari
eiginmanni sínum, en
flutti með honum til
Minnesota, þar sem
hún bjó alla tíð síðan.
Hún var húsmóðir
alla tíð. Hún hélt allt-
af góðum tengslum
við Ísland, og átti hér
marga vini, og fékk alltaf sendan
íslenskt hangikjöt og jólamat um
hver jól.
Andlát
ESTHER BLÖNDAL
STENSETH
NÆGUR snjór er á skíðasvæðunum í Bláfjöllum og
Skálafelli og hafa skíðamenn tekið honum fagnandi.
Vegna hvassviðris þurfti að hafa lokað á skíðasvæðinu í
Skálafelli í gær.
Opið var í Bláfjöllum en ekki var hægt að nota stóla-
lyftuna í Kóngsgili vegna hvassviðris. Alvöruskíða-
menn létu ekki smávegis vindgnauð á sig fá og gripu
tækifærið til að bruna um brekkurnar.
Samkvæmt veðurspá mun viðra illa til skíðaiðkunar
á suðvesturhorninu næstu daga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grípa tækifærið meðan það gefst
ALCOA Fjarðaál hyggst áfrýja
dómi héraðsdóms varðandi álverið
í Reyðarfirði til Hæstaréttar.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Fjarðaáls, segir að þegar fyrir-
tækið verði búið að skoða og meta
dóminn muni það á næstu dögum
ráðfæra sig við stjórnvöld. Hann
telur að dómurinn muni ekki hafa
nein áhrif á framkvæmdirnar
strax.
Hann segir að í umræðunni
gæti misskilnings varðandi um-
hverfisáhrif ál-
versins. „Málið
er að þarna er
um minna álver
að ræða,“ segir
Tómas. „Kröfur
sem við hjá Al-
coa gerum sjálf
eru þær að
menga ekki sjó.
Þar af leiðandi
setjum við upp
mjög fullkominn þurrhreinsibún-
að sem þeytir útblæstri frá ál-
verinu upp í loft en ekki út í sjó
eins og hin verksmiðjan gerði ráð
fyrir.
Betri mengunarvörn en gert
var ráð fyrir upphaflega
Tæknilega er því ákveðinn mis-
skilningur í gangi í þessu. Það er
mitt mat og okkar að þetta sé
betri mengunarvörn en gert var
ráð fyrir upphaflega,“ segir Tóm-
as Már Sigurðsson.
Tómas Már Sigurðsson forstjóri Fjarðaáls
Hefur ekki áhrif á framkvæmdir
Tómas Már
Sigurðsson