Morgunblaðið - 13.01.2005, Page 18

Morgunblaðið - 13.01.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI AUSTURLAND Neskaupstaður | Félagar í hinum rómaða klúbb Blús-, jass- og rokkklúbbnum á Nesi (BRJÁN) eru komnir til Reykjavíkur og setja þjóðvegarokkssýn- inguna Glímt við þjóðveginn á svið í Broadway annað kvöld, föstudaginn 14. janúar. Er þetta í sjö- unda sinn sem BRJÁN-félagar setja árlega sýn- ingu sína upp í Reykjavík og má segja að þessi við- burður sé orðin árleg stórhátíð Austfirðinga í Reykjavík. Þema sýningarinnar að þessu sinni vísar til þess að lögin, sem öll eru íslensk, koma víðs vegar að af landinu. Þá er sýningin með örlítið öðru sniði en áður, þar sem samhliða söngnum er settur upp léttur leikþáttur. Austfirska hljómsveitin Dúkkulísurnar er gestur sýningarinnar og forsvarsmenn BRJÁN fortaka ekki fyrir óvæntan gestagang að auki. Eftir sýn- ingu leikur hljómsveitin Draumadrengirnir ásamt Dúkkulísunum fyrir dansi. Þátttakendur í Glímt við þjóðveginn eru tæplega þrjátíu talsins, söngv- arar, hljómsveit og aðstoðarfólk. Sýningin lagðist mjög vel í Austfirðinga í upphafi vetrar en alls sáu hana þúsund manns á fimm uppfærslum í Egilsbúð í Neskaupstað. Rokkveisla BRJÁN flutt suður yfir heiðar í sjöunda sinn Glímt við þjóðveginn Jón Hilmar Kárason spilar á gítar ísýningunni. „Ég verð sjálfsagtblóðugur, marinn og blár, því sýn- ingin sjálf tekur tæpa tvo tíma og svo spilum við fyrir dansi út nóttina,“ segir Jón Hilmar, sem kennir við Tónskólann í Neskaupstað þegar hann er ekki á rokk- túrum í öðrum landshlutum. „Það er mikil vinna að setja upp sýn- ingu af þessu tagi. Aðstaðan á Broadway er ágæt, sviðið nokkru minna en við er- um vanir en á móti kemur dansgólf, sem við nýtum líka. Allur búnaður er á staðn- um en við komum með hljóðfæri og sviðsmynd. Í henni eru þjóðvegir, fjöll og firnindi meðal annars. Sýningin er sett upp þannig að við spilum fyrst í félags- heimili sem hljómsveit að ferðast um landið og svo er seinni helmingurinn af sýningunni látinn gerast á útihátíð. Við reynum að taka fyrir helstu hljómsveit- irnar úti á landi og einhverjar Reykja- víkurhljómsveitir líka. Músíkin er hröð og frekar mikil keyrsla hjá okkur. Svo heldur hljómsveitin, sem fer hring um landið í sýningunni, áfram að spila fram á nótt og Dúkkulísurnar ætla að troða upp líka.“ Reykjavík verður undirlögð af Norð- firðingum alla helgina, því hópurinn ætl- ar að dvelja þar fram á sunnudag. „Jú þetta er nokkurskonar Norðfjarðar- innrás í Reykjavík,“ segir Jón Hilmar. Taka með sér fjöll og firnindi Þéttir Jón Hilmar Kárason á gítar ásamt Guðmundi R. Gíslasyni söngvara og Ein- ari Braga Bragasyni saxófónleikara. Helgi Magnússon, sem stýrirHeklu á Austurlandi þegar hanner ekki að rokka upp um alla veggi, segir daginn í dag fara í að koma upp sviðsmynd og undirbúa sýninguna að öðru leyti fyrir annað kvöld. „Ég hef sjálfsagt verið í þessum BRJÁN uppfærslum í tíu ár, yfirleitt sem söngvari“ segir Helgi, sem stjórnar Heklu á daginn og rokkar á kvöldin, eftir því sem tími gefst. „Í þessari sýningu tek ég Hvers vegna varstu ekki kyrr, Stolt siglir fleyið mitt og Fjólublátt ljós við barinn. Ég er ekk- ert banginn við að taka lagið fyrir fullu húsi á Broadway, það breytir engu hvort það eru þrír eða þúsund sem eru að hlusta þegar stemningin er góð.“ Rokkar fyrir þrjá eða þúsund Íslensk útihátíð Helgi Magnússon á fullri fart í þjóðvegarokkinu. Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarða-byggðar, er einn af þeim sem rokka og róla ásýningu BRJÁN á Broadway annað kvöld. Smári segir að þrátt fyrir annir í bæjarpólitíkinni verði menn alltaf að gera eitthvað sem er skemmtilegt inni á milli. „Ég syng og tralla í sýningunni og bregð mér þarna í ýmissa manna hlutverk“ segir hann. „Meðal annars treð ég upp sem Geirmundur Valtýsson, Hall- björn Hjartarson og Þorgeir Ástvaldsson. Þarna eru ýmsir góðir smellir á ferðinni og þegar hæfileikarnir eru svona ofboðslegir þá er létt að skipta um ham. Þetta er skemmtilegt og mikið stuð og gaman. Músíkina þekkja allir og hún er þannig að það er reynt að fara vítt og breitt um landið og fólk hefur af þessu ómælda skemmtun virðist vera.“ Smári segist vita af töluvert mörgum heimamönnum að austan sem ætli að mæta á Broadwaysýninguna. „Þetta er orðin einhverskonar þjóðhátíð Austfirðinga syðra og ótrúlega margir sem gera sér ferð suður og sjá þetta þar, sem eru búnir að sjá sýninguna fyrir austan. Við höfum verið að fá á bilinu 800 til 1200 manns á sýn- ingarnar á Broadway og þær því rosalega vel sóttar. Við erum brött, þetta er skemmtilegur og samstæður hópur í kringum sýninguna og sýnir hvað menn geta gert saman, eytt öllu sem heitir kynslóðabil og öðru því um líku og rokkað saman.“ Smári syngur og trallar Ljósmynd/BRJÁN Trallað í útilegu Smári Geirsson tekur lagið í Glímt við þjóðveginn. Dagný Linda Kristjánsdóttirskíðakona frá Akureyrihefur enn ekki náð sér eftir meiðsli sem hún varð fyrir í upphitun fyrir keppni í heimsbik- arnum á skíðum í Frakklandi fyr- ir um ári. Hún er þó á batavegi en telur litlar líkur á að hún geti keppt á Skíðamóti Íslands í vetur. Þetta var mikið áfall fyrir Dag- nýju Lindu, sem hefur verið einn fremsti skíðamaður landsins um árabil og var að gera mjög góða hluti í hraðagreinum, bruni og risasvigi, í keppnum erlendis. Hún missti af landsmótinu í fyrra en árið 2003 sigraði hún í stórsvigi og varð þrefaldur Íslandsmeistari í alpagreinum árið 2002. Dagný Linda, sem æfði með sænska skíðalandsliðinu og keppti erlendis áður en hún meiddist, hefur dvalið á Akureyri síðasta árið en hún er þessa dagana í sjúkraþjálfun í Reykjavík. Í slys- inu í Frakklandi sleit Dagný Linda fremra krossbandið í vinstra hnénu, teygði á liðböndum og skemmdi báða liðþófa. „Það er nánast allt í komið í lag sem skemmdist í Frakklandi en það eru skemmdir í brjóskinu undir hnéskelinni og ég er því enn að berjast í þessu. Ég er að vinna í því af fullum krafti að koma mér í gang og hef aðeins prófað að fara á skíði en það er örlítið sárt ennþá. En ég er ákveðin í því að vinna mig út úr þessu og hefja æf- ingar og keppni á nýjan leik – annað kemur ekki til greina. Ég er í stöðugu sambandi við Svíana og reikna með að geta haldið áfram að æfa með þeim.“ Fær styrk frá bænum Dagný Linda sagði að það myndi skýrast á næstu tveimur til þrem- ur mánuðum hvernig málin þró- uðust hjá sér. „Það verður ekki mikið um keppni á þessu ári og til að það breytist þarf eitthvað mik- ið að gerast. En það eru Ólympíu- leikar í Torínó á Ítalíu snemma á næsta ári og það markmið mitt að taka þátt í leikunum þar stendur enn.“ Dagný Linda hlaut hæsta styrk- inn við úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrarbæjar á dögunum, 50.000 krónur á mánuði út þetta ár. Hún sagði að í styrkt- arsamningnum væri ákvæði um endurskoðun hans eftir 6 mánuði. „Þetta sýnir að bærinn er tilbúinn að veita mér tækifæri og fyrir það er ég mjög þakklát.“ Tveir aðrir skíðamenn hlutu styrk úr Afreks- og styrktarsjóði, Hrefna Dagbjartsdóttir og Elín Arnarsdóttir og fær hvor um sig 25.000 krónur á mánuði þetta ár- ið. Þá fékk Rut Sigurðardóttir úr Þór og nýkjörinn Íþróttamaður Akureyrar 2004, styrk að upphæð 15.000 krónur á mánuði en hún stundar taekwondo. Andvirði þessara fjögurra styrktarsamn- inga er 1.380.000 krónur en þeir eiga að auðvelda viðkomandi af- reksmönnum að leggja stund á íþrótt sína. Stefnir enn á Ólympíuleikana á næsta ári Morgunblaðið/Kristján Keppnismaður Dagný Linda Kristjánsdóttir skíðakona hefur átt í erfið- um meiðslum síðasta árið en það er enginn uppgjafartónn í henni. Dagný reiknar ekki með því að keppa mikið á þessu ári Dagný Linda Kristjánsdóttir skíðakona á enn við meiðsli að stríða Djákni hjá Samhygð| Fundur í Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð,verður haldinn fimmtudagskvöldið 13. janúar í safn- aðarsal Akureyrarkirkju og hefst hann kl. 20:30 Gestur fundarins er Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju og hann mun fjalla um persónulega reynslu sína af fósturmissi. Allir eru hjartanlega velkomnir. Janúarfundur | Norðurlandsdeild Samtaka foreldra og aðstandenda sam- kynhneigðra heldur janúarfund að Sig- urhæðum á fimmtudag 13. janúar, og hefst klukkan 20. Húsið verður opið frá klukkan 19.30 og einhver úr stjórn til viðtals ef þess er óskað. Meðal þess sem fyrir verður tekið á fundinum eru umræður um vandamál samkynhneigðra við að eignast börn, „en miklar takmarkanir eru á réttindum þeirra og langt frá því að þeir standi í svipuðum sporum og annað fólk,“ segir í frétt um fundinn. Einnig verður fjallað um starfið framundan og verkefnaskrá fram til vors. Þeir foreldrar og aðstand- endur samkynhneigðra á Akureyri og annars staðar á Norðurlandi, sem ekki hafa komið til fundar eru eindregið hvattir til að koma og kynna sér starfið segir ennfremur.    Fyrirlestur | Berit Johnsen, dr.scient. í sérkennslufræðum, flytur erindi á vegum skólaþróunarsviðs kenn- aradeildar Háskólans á Akureyri í dag, fimmtudaginn 13. janúar kl. 16.15 í stofu 14 í Þingvallastræti 23. Það nefn- ist: Alþjóðlegt rannsókna- og þróun- arsamstarf í þágu skólans fyrir alla. Berit er dósent í sérkennsluskor við Háskólann í Osló. Í erindinu mun hún greina frá tveimur verkefnum sem hún hefur verið í forystu fyrir með þátt- töku háskóla í Sarajevo og Tuzla í Bosniu Herzegovinu og Addis Ababa í Eþíópíu.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.