Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HEILSU PÁFA HRAKAR
Heilsu Jóhannesar Páls II páfa
hrakaði í gær og óstaðfestar fregn-
ir hermdu í gærkvöldi að hann
hefði fengið síðustu smurningu.
Haft var eftir læknum að páfi væri
„mjög, mjög veikur“. Talsmenn
Páfagarðs sögðu hann vera með há-
an hita og lágan blóðþrýsting vegna
þvagfærasýkingar.
Óánægja innan RÚV
Starfsmenn RÚV lýstu van-
trausti á Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóra á fjölmennum starfs-
mannafundi í gær. Mikil óánægja
ríkir meðal starfsmanna með fram-
göngu Markúsar Arnar und-
anfarnar vikur.
Ráðist á kennara
Síðustu tvö ár hafa kennarar í 20
af grunnskólum Reykjavíkur orðið
fyrir 85 líkamsárásum af hendi
nemenda. Algengast er að nem-
endur með alvarleg geðræn vanda-
mál ráðist á kennara.
Taugafrumur myndaðar
Hægt er að nýta blóðmyndandi
stofnfrumur úr beinmerg til að
mynda starfhæfar taugafrumur.
Þetta kemur fram í rannsókn Ólafs
Eysteins Sigurjónssonar, doktors-
nema við Háskólann í Ósló.
Terri Schiavo látin
Terri Schiavo, alvarlega heila-
sködduð kona í Bandaríkjunum,
lést á sjúkrahúsi í gær, þrettán
dögum eftir að næringarslanga,
sem hélt í henni lífinu, var tekin úr
sambandi. Talsmenn Páfagarðs for-
dæmdu þá ákvörðun bandarískra
dómstóla að heimila að slangan yrði
aftengd. Þeir lýstu ákvörðuninni
sem „árás á lífið og þar með á
Guð“.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Fréttaskýring 8 Minningar 40/46
Viðskipti 14/15 Skák 51
Erlent 16/17 Brids 51
Minn staður 22 Myndasögur 50
Höfuðborgin 24 Dagbók 50/53
Akureyri 26 Staður og stund 52
Suðurnes 26 Af listum 53
Landið 27 Leikhús 54
Menning 31 Bíó 58/61
Umræðan 34/39 Ljósvakamiðlar 62
Bréf 39 Veður 63
Forystugrein 32 Staksteinar 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!!"
!
"
#
$
%&' (
)***
LÖGREGLUMAÐUR var dæmdur
fyrir brot í opinberu starfi í gær
fyrir að stefna ökumanni bifhjóls í
hættu á Ægisíðu í Reykjavík í fyrra
með því að sveigja lögreglubíl í veg
fyrir hjólið. Slasaðist bifhjólamað-
urinn nokkuð við áreksturinn. Var
lögreglumaðurinn dæmdur til að
greiða 200 þúsund krónur í sekt og
bifhjólamanninum195 þúsund kr. í
skaðabætur auk 150 þúsund kr.
málskostnaðar.
Aðdragandi málsins var sá að
lögreglan var að leita bifhjólamanna
sem höfðu ekið um borgina á mikl-
um hraða. Barst eltingarleikurinn
út á Seltjarnarnes. Þegar lögreglu-
maðurinn sá bifhjólamanninn koma
úr gagnstæðri átt á Ægisíðu beygði
hann til vinstri svo árekstur varð.
Héraðsdómur Reykjavíkur segir í
dómi sínum lögreglumaðurinn hafi
ekið í veg fyrir bifhjólið í því skyni
að stöðva akstur þess. Að mati
dómsins var þetta gert í slíkri
skyndingu að bifhjólamaðurinn
hafði ekki ráðrúm til þess að af-
stýra slysinu. Yrði að telja að með
því hefði lögreglumaðurinn stefnt
honum í augljósa og verulega
hættu. Ekki yrði séð að við þessar
aðstæður hefði lögreglumaðurinn
mátt víkja frá almennum umferð-
arreglum og grípa til svo hættu-
legrar ráðstöfunar sem var í and-
stöðu við sérstaka og almenna
varúðarskyldu reglna um neyð-
arakstur. Lögreglumaðurinn gætti
þannig af stórfelldu gáleysi ekki
réttra reglna í aðferðum sínum og
taldist þannig hafa gerst brotlegur í
opinberu starfi. Auk þess hafi hann
brotið umferðarlög.
Málið dæmdi Pétur Guðgeirsson
héraðsdómari. Verjandi var Gylfi
Thorlacius hrl. og sækjandi Sigríð-
ur Friðjónsdóttir frá ríkissaksókn-
ara.
Lögreglumaður dæmdur fyrir brot í opinberu starfi
Talinn hafa stefnt bif-
hjólamanni í mikla hættu
GERT er ráð fyrir að skuldir borgarsjóðs lækki
um 1,3 milljarða króna á árunum 2006–2008 sam-
kvæmt þriggja ára áætlun um rekstur, fjárfest-
ingar og fjármál Reykjavíkurborgar og að hreinar
skuldir nemi í lok tímabilsins um 4,8 milljörðum
króna eða 166 þúsund kr. á íbúa.
Þetta kemur fram í frétt frá borgarstjóranum í
Reykjavík, sem lagði fram frumvarp að áætluninni
á fundi borgarráðs í gær.
Fram kemur einnig að ef horft er til allrar sam-
stæðu borgarinnar muni fjárfestingar hennar á
ofangreindu þriggja ára tímabili nema 35,8 millj-
örðum króna. Tæpir 25 milljarðar króna munu
koma frá rekstri en ellefu milljarðar verða teknir
að láni og munu skuldir samstæðunnar hækka
sem því nemur. Auk borgarsjóðs er að finna innan
samstæðunnar Orkuveitu Reykjavíkur, Félagsbú-
staði, Faxaflóahafnir, Strætó, Sorpu, Bílastæða-
sjóð og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
900 milljónir vegna leikskóla
Fram kemur einnig að tvö næstu skref í átt að
gjaldfrjálsum leikskóla eru áætluð haustið 2006 og
haustið 2008, en fyrsta skrefið var tekið síðastliðið
haust. Kostnaðaraukinn er talinn nema 120 millj-
ónum króna árið 2006, 330 milljónum króna 2007
og 450 milljónum króna árið 2008 eða alls 900
milljónum króna.
Fram kemur einnig að menntamál eru um-
fangsmest í útgjöldum borgarsjóðs og að launa-
útgjöld vega þar þungt. Nýgerðir kjarasamningar
við leik-, grunn- og tónlistarskóla hafi mikil áhrif á
rekstrargjöldin og sé kostnaðarauki vegna samn-
inganna um 1,6 milljarðar króna milli áranna 2005
og 2006. Hlutur launa í heildarútgjöldum borg-
arinnar muni vaxa nokkuð á næstu árum og fara
úr 50% í 52%.
Frumvarpinu var vísað til borgarstjórnar á
fundi borgarráðs í gær og verður það til fyrri um-
ræðu þar næstkomandi þriðjudag.
Þriggja ára áætlun um rekstur Reykjavíkurborgar lögð fram á fundi borgarráðs
Skuldir borgarsjóðs lækka
um 1,3 milljarða á tímabilinu
MIÐSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins
ákvað á fundi sínum í gær að 36.
landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verði haldinn 13.–16. október 2005.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
er að jafnaði haldinn annað hvert
ár en síðast var landsfundur hald-
inn 27.–30. mars 2003.
Fram kemur í tilkynningu frá
Sjálfstæðisflokknum, að félög
flokksins um allt land kjósi fulltrúa
til setu á landsfundinum en seturétt
á landsfundum Sjálfstæðisflokksins
eigi yfir 1000 manns. Landsfundur
marki stjórnmálastefnu flokksins
til næstu ára en fyrir fundinn muni
málefnanefndir flokksins, sem eru
26 talsins, leggja fram málefna-
ályktanir til afgreiðslu. Á fundinum
fer og fram kjör formanns, varafor-
manns og miðstjórnar.
Landsfundur
Sjálfstæðisflokks-
ins í október
RANNSÓKN á fótsveppum á gólfi
búningsherbergja sundlaugar í
Reykjavík leiddi í ljós að fótsveppa-
mengun var miklu algengari á gólfum
í karlaklefanum en í kvennaklefanum.
Stjórnandi rannsóknarinnar segir að
niðurstöðurnar kalli ekki á aukin þrif í
búningsklefum og segir að aukin
mengun í karlaklefanum hafi aðrar
skýringar.
Rannsókninni stjórnaði Ingibjörg
Hilmarsdóttir, læknir og sýklafræð-
ingur á sýklafræðideild Landspítala –
háskólasjúkrahúss.
Ingibjörg segir að mikill metnaður
ríki meðal starfsmanna sundlauga um
að halda gólfunum hreinum og alls
staðar þar sem hún þekki til sé mjög
vel staðið að þrifum. Á hinn bóginn sé
minna vitað um hvernig þrifið sé á lík-
amsræktarstöðvum og slíkum stöð-
um. „Það er ekki hægt að auka þrif á
sundstöðunum, það er bara ekki pláss
fyrir kústana enda alltaf svo mikið af
fólki í sundlaugunum. Eftir að gólfin
eru þrifin á nóttunni, eins og alltaf er
gert, eru þau tandurhrein og algjör-
lega laus við sveppamengun,“ segir
hún. Þetta ástand vari þó ekki lengi
eftir að laugarnar eru opnaðar.
Ingibjörg segir að ástæðan fyrir
aukinni mengun í karlaklefanum sé
einkum tvíþætt. Í fyrsta lagi voru
65% sundlaugargesta karlmenn á
þessum tíma. Í öðru lagi kom í ljós að
karlar voru oftar sýktir en konur,
26% karla voru sýkt en 14% kvenna.
Aðrar hugsanlegar ástæður fyrir
meiri mengun í karlaklefanum eru
þær að karlar eru yfirleitt fótstærri
og því meira yfirborð á iljum sem eyk-
ur hættu á smiti. Þá segir Ingibjörg
að svo virðist sem konur noti frekar
svonefndar baðtöfflur, þ.e. inniskó.
Önnur ástæða geti verið sú að konur
nái sér frekar og fyrr í lyf við sveppa-
sýkingunum. Munurinn skýrist á hinn
bóginn ekki af því að kvennaklefarnir
séu þrifnir betur. „Þessi munur skýr-
ist af gestunum sjálfum og hefur ekk-
ert með starfsfólkið að gera.“
Ingibjörg segir að samkvæmt ný-
legri rannsókn, sem gerð var á lands-
vísu, sé tíðni naglasýkinga af völdum
fótsveppa hér á landi 8–11% meðal 16
ára og eldri. Það megi vera að þeim
fari eitthvað fjölgandi sem geti tengst
því að fólk gangi mikið berfætt á stöð-
um þar sem aðrir ganga berfættir,
svo sem í íþróttahúsum, heilsurækt-
arstöðvum, sundlaugum eða bað-
ströndum.
Spurð um ráð til að forðast fót-
sveppasýkingar segir Ingibjörg að
baðtöfflur geti hugsanlega minnkað
líkur á smiti af völdum fótsveppa.
Ekki sé þó víst að almenn notkun
slíks fótabúnaðar sé auðveld í fram-
kvæmd. „Verða þá ekki sundlaugar-
bakkar sneisafullir af baðtöfflum sem
síðan þvælast fyrir fólki eða detta of-
an í laugina og síðan tekur fólk
kannski vitlausar töfflur,“ segir hún.
Þá virðist afar misjafnt hversu fólk sé
næmt fyrir fótsveppasýkingu, sumir
séu næmari en aðrir og hafi fótsveppi
stóran hluta ævinnar meðan aðrir
sleppa.
Ingibjörg mælir á hinn bóginn
sterklega með því að fólk þurrki sér
vandlega um fæturna eftir sundferð-
ir, bæði til að fjarlægja smitefni og til
að draga úr raka í skóm. Þá ætti fólk
ekki að ganga í skóm sem valda því að
fæturnir haldast rakir. „Því raki er
það umhverfi sem þeir þrífast best í,“
segir hún.
Rannsókn sýnir að fótsveppir eru miklu algengari í karlaklefum sundlauga
Stærri fætur
karlmanna
gætu haft áhrif
Morgunblaðið/Jóra
Þessar tær virðast alveg lausar við fótsveppi.
Um 65% sundlaugargesta voru
karlar og 26% þeirra voru smituð
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is