Morgunblaðið - 01.04.2005, Síða 16

Morgunblaðið - 01.04.2005, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● KAUPFÉLAG Eyfirðinga sf. seldi í gær allan 10% hlut sinn í Sam- herja hf. Um er að ræða 166 millj- ónir hluta og er gengi bréfanna 12,1 sem þýðir að viðskiptaverð er rúmir 2 milljarðar króna. Helstu hluthafar Samherja hafa gert sam- komulag um stjórnun og rekstur fyrirtækisins og er skylt að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Fyrirtækið verður skráð úr Kaup- höll Íslands. KEA selur í Samherja ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu rúmlega 12,6 milljörðum króna í gær. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um 6,1 milljarð. Mest viðskipti voru með bréf Samherja. Mest hækkun varð á bréfum Fiskmarkaðar Íslands, 1,8%, en mest lækkun varð á bréfum Actavis, 1%. Úrvalsvísitala aðallista hækkaði um 0,45% og er hún nú 3.917 stig. Actavis lækkaði mest ● STJÓRN Somerfield hefur sam- þykkt að hefja viðræður við þá þrjá aðila sem hyggjast gera yfirtöku- tilboð í fyrirtækið en sem kunnugt er er Baugur einn þeirra aðila. Talsmenn stjórnarinnar sögðust myndu ræða við þessa aðila með það í huga að skoða hvort formlegt tilboð frá einhverjum þeirra væri viðunandi, samkvæmt frétt Reut- ers. Hluti af viðræðuferlinu felst í áreiðanleikakönnun en búist er við að viðræðurnar muni standa yfir í nokkrar vikur. Somerfield samþykkir viðræður UNDIRBÚNINGUR fyrir skrán- ingu Actavis Group í kauphöllina í London er langt kominn. Þetta kom fram í máli Björgólfs Thors Björg- ólfssonar, stjórnarformanns félags- ins, á aðalfundi þess í gær. Ennfrem- ur sagði Björgólfur Thor að stjórn félagsins vildi fara hægt í sakirnar og tímasetja skráninguna vel. Ekki hef- ur þó verið ákveðið hvenær skráning mun fara fram „þar sem mikilvægt er að bíða tækifæris og sæta lagi þegar byrlega blæs í seglin“, sagði Björg- ólfur. Björgólfur sagði árið 2004 vera það besta í sögu Actavis Group hvað varð- ar hagnað en hann nam 63 milljónum evra, sem samsvarar tæpum 5 millj- örðum króna, og jókst um 55% frá fyrra ári. Jafnframt jókst velta fé- lagins um 43% á milli ára. Róbert Wessman, forstjóri Actav- is, sagði félagið sérstaklega horfa til Mið-Evrópu, Indlands og Bandaríkj- anna vegna fjárfestinga til ytri vaxt- ar. Bandaríkjamenn standa fyrir helmingi allrar lyfjaneyslu í heimin- um í dag og er því eftir miklu að slægjast þar. Jafnframt sagði Róbert að þróun- arstarf Actavis hefði aldrei verið öfl- ugra en nú auk þess sem orðspor fé- lagsins í skráningum lyfja væri gott. Þeir Björgólfur Thor og Róbert lögðu báðir mikla áherslu á að verð hlutabréfa í Actavis hefði aukist veru- lega á síðustu árum og að ekki væri einungis hægt að líta til síðasta árs þegar verð hlutabréfanna lækkaði. Stjórn Actavis Group var endur- kjörin á aðalfundinum en auk Björg- ólfs Thors eiga í henni sæti þeir Andri Sveinsson, Karl Wernersson, Magnús Þorsteinsson og Sindri Sindrason. Mikilvægt að bíða færis Morgunblaðið/Árni Torfason Vel mætt Hluthafar Actavis Group sóttu vel aðalfund félagsins á Grand hóteli í gær. SAMSKIP hafa opnað nýjar skrifstofur á þremur stöðum í Eystrasaltslöndunum, Tallinn í Eistlandi, Riga í Lettlandi og Klaipeda í Litháen. Munu þær heyra undir höfuðstöðvar Samskipa í Rotterdam. „Við ætlum að styrkja stöðu okkar á þessum mörkuðum með því að koma betur á framfæri þeim skraddarasaumuðu heildarlausnum á öllum sviðum flutninga sem Samskip bjóða upp á,“ segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðs- mála hjá Samskipum erlendis. Í tilkynningu frá Samskipum segir að skrifstof- unum sé ætlað að sinna ört vaxandi starfsemi félags- ins í Eystrasaltslöndunum og efla enn frekar sókn Samskipa inn á rússneska markaðinn og áfram aust- ur á bóginn. Náið samstarf verður við skrifstofur fé- lagsins í Rússlandi og Úkraínu til að ná fram sem mestri hagkvæmni. „Þungamiðja flutningastarfsemi í Evrópu er að færast austar og hér höfum við sterka stöðu, hvort sem um er að ræða flutningsmiðlun áfram austur á bóginn með skipum, lestum eða flutningabílum,“ seg- ir Björn. Svæðisstjóri Eystrasaltsskrifstofanna er Belgíu- maðurinn Hans Christiaensen en hann starfaði áður fyrir Ahlers Logistic and Maritime Services í Eystra- saltslöndunum. Einnig hafa Samskip tekið að sér að vera umboðs- aðili japanska skipafélagsins Mitsui O.S.K. Lines í Eystrasaltslöndunum þremur en félagið hefur verið umboðsaðili Mitsui í Rússlandi frá árinu 2001. Segir Björn að með þessu séu Samskip betur í stakk búin til að sinna vaxandi flutningum til Rússlands og fyrrum Sovétlýðvelda sem og fleiri áfangastaða í Mið-Asíu. Samskip herða útrás í austurveg Opna þrjár skrifstofur í Eystrasaltslöndunum Morgunblaðið/Þorkell Hert útrás Samskip bæta við starfsemi sína. Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is „ÞETTA eru vonbrigði,“ segir Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra um fjölda kvenna í stjórnum fyrirtækja í Úr- valsvísitölu. En sagt var frá því í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær að konum hefði fjölgað þar um eina í aðalfundalotu ársins og þær séu nú sex talsins af 87 stjórnar- mönnum. „Þessir máttarstólpar í íslensku atvinnulífi hafa því miður ekki séð ástæðu til þess að gera breytingar á svo nokkru nemi,“ segir Valgerður en hún sendi í febrúarbyrjun 80–90 stærstu fyrirtækjum landsins bréf þar sem hún hvatti forsvarsmenn til að beita sér fyrir því að fjölga konum í stjórn. Valgerður segir að þrátt fyrir vonbrigði sín með Úr- valsvísitölufyr- irtækin þá séu þau tiltölulega fá miðað við öll þau fyrirtæki sem hún sendi bréf. „Ég hef nú reyndar fengið býsna margar góðar fréttir og held að ástandið sé heilt yfir miklu betra en þarna. Þegar þessari aðal- fundalotu lýkur, sem styttist mjög í, þá verður farið yfir allt sviðið,“ segir Valgerður og vill bíða með allar yfirlýsingar þar til niður- staða liggur fyrir. Það verði nokk- uð örugglega í næsta mánuði. Vonbrigði Valgerðar Telur að hlutfall kvenna í stjórnum hafi þó aukist víða Valgerður Sverrisdóttir ● PAUL Wolfowitz var formlega ráð- inn í stöðu bankastjóra Alþjóða- bankans í gær og verður hann því tíundi bankastjóri bankans. Wolfowitz, sem er fyrrverandi að- stoðarvarnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, var einróma kosinn í starf- ið og kemur hann í stað James Wolfensohn sem nú lætur af störf- um. Wolfowitz formlega ráðinn                       23 0 4!5 * 2 4!5 * 6  0" 4!5 * 6!& # * 7  4!5 * 7! & *   8  * 9 !5$ 6: & 8  * 9"! * ;  8     * <   * =  5 * / *   * ! "#$! / !! 7 #  8 * >! *  !  "#  7  &!    * 6 4   * 5&  * ? &8  * ;,@ .&! * AB*   * /7 * /#!1  /!&!   0 /"!& * &C* * %C &"& * D!"& * E.&!  -/@8  * $  # %# &' 2!!8  * 7   FC  &  * ! "#$!% ;  ,    * ! "#$! %@@ * & (#  GHFI /,&  0&0 &             -    - - - -  -   - - - - - - - 6 C # C 0&0 & - -   - - - - - - - - - - - - - - - - - - - ' -+) - ' +) '  +) - ' -+) '  +) ' +) ' +) '  +) ' +) ' - +) - ' -+) ' +) ' +) - - - - - - - ' +) ' +) - - - - - - -  0&5  %8& ,   9 !5 /                            - - - -  -   - - - - - - -                       -  -                          D&5 , $:  2%  J 2*!!  7 "  0&5    - - - - -  - - - - - - - 2% - K0 ! # * "! *!  # 2% - /C  &     C8 * !   2% - D C0  !  #"! 1  VÖRUSKIPTI í febrúar voru óhag- stæð um 2,3 milljarða króna en í sama mánuði í fyrra voru þau hagstæð um 0,1 milljarð á föstu gengi. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins samanlagt nam halli á vöruskiptunum við útlönd 5,7 milljörðum króna en á sama tíma- bili í fyrra voru þau hagstæð um 0,4 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður. Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,4 milljarða króna og fluttar inn vörur fyrir 18,7 milljarða króna. Fyrstu tvo mánuði ársins voru samtals fluttar út vörur fyrir 30,3 milljarða króna en inn fyrir 36 millj- arða króna. Sjávarafurðir 58% af vörum Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 1,4 milljörðum eða 4,7% meira en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 58% alls út- flutnings og var verðmæti þeirra 3,2% meira en á sama tíma árið áður. Út- fluttar iðnaðarvörur voru 38% alls út- flutnings og var verðmæti þeirra 6,1% meira en árið áður. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 7,5 milljörðum eða 26,1% meira en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á flutn- ingatækjum, eldsneyti og smurolíu og fjárfestingarvöru. Vöruskipti 6 milljörðum óhagstæðari HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs Vestmannaeyja nam 120,5 milljónum króna á árinu 2004. Rekstrartekjur námu 627,6 milljónum króna og rekstrargjöld námu 425,2 milljónum að meðtöldum afskriftum. Bókfært eigið fé Sparisjóðsins í árslok 2004 var 754,8 milljónir og hafði aukist á árinu um 19%. Eigin- fjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum var 13,2%. Í árslok var niðurstaða efnahagsreiknings 5.186,6 millj. kr. og hafði hækkað um 15% á árinu. Innlán og verðbréfaútgáfa Spari- sjóðsins nam í árslok 3.895,9 millj- ónum og hafði aukist um 23,4% á árinu. Heildarútlán að meðtöldum fullnustueignum námu í árslok 3.265,7 milljónum og höfðu aukist um 12,3% á árinu. Langstærstu útlána- flokkarnir voru til einstaklinga og íbúðalán eða rúmlega 67%. Hlutfalls- lega lækkuðu lán til sjávarútvegs en hækkuðu verulega til einstaklinga. Hagnaður 120 milljónir ♦♦♦ A  L /MN         + + 7%/F O2P     + + H2H =<P      + + 97P A      + + GHFP OQ ?       + +

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.