Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 22

Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 22
Mývatnssveit | Það fór aldrei svo að Árni Halldórsson í Garði næði ekki að handfjatla bröndu úr neti á þessum vetri. Í dymbilvikublíðunni var hann að vitja um þegar tíðindamaður rakst á hann undan Háey. Veiði í Mývatni er að öllu jöfnu ekki stunduð yfir veturinn en ákveðið var að leyfa hana nú í marslok til að kanna ástand sil- ungsins. Árni hefur stundað veiði í Mývatni áratugum sam- an og þykir hún hafa farið minnkandi hin síðari ár. Það er Athena Neve, frænka hans, sem fylgist með af áhuga. Morgunblaðið/BFH Handfjatlar brönduna Fengurinn Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Skotin á færi | Álft var skotin á færi rétt við bæinn Flatey á Mýrum í gær að því er fram kemur á vefnum horn.is. Það var lög- reglumaður á Höfn í Hornafirði sem aflífaði fuglinn, sem var vængbrotinn, en sam- kvæmt dýraverndunarlögum er lögreglu skylt að skjóta dýr sem finnast særð á víða- vangi. Vegfarandi tilkynnti um álftina, en talið er að hún hafi flogið á rafmagnslínu rétt hjá. Að sögn lögreglunnar á Höfn er talsvert um að aflífa þurfi særð dýr í um- dæminu. Þau eru grafin á sérstöku urð- unarsvæði sveitarfélagsins í Lóni. Apríl mun verðarysjóttur enengin stór- vonska segir í nýrri veðurspá frá Veður- klúbbnum á Dalbæ í Dalvíkurbyggð. Á fundi þar sem spáin var sett saman var mikið rætt um þann einstaka hlýindakafla sem gekk yfir landið um nýliðna páska og muna veðurklúbbs- félagar vart eftir jafn hlýjum páskum fyrr. Í spánni kemur fram að búast megi við lægra hitastigi í apríl en var í mars, en áfram verða vestanáttir ríkjandi. „Hitatungan sem við höfum verið í yfirgefur okkur til norðausturs,“ segir í spánni. Rysjóttur Fáir staðir njóta eins mikilla vinsælda og Kjarna-skógur á Akureyri og þá ekki síst á góðviðris-dögum. Fjöldi fólks lagði leið sína í þessa útivistar- paradís um páskana og átti þar ánægjulega stund. Þessi myndarlegi hópur var að fá sér í svanginn þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins var þar á ferð. Morgunblaðið/Kristján Veðurblíðan Davíð Hjálmar Haraldsson yrkirum heimkomu Fischers: Mín von er að verða að liði og verðugt hér tilefni fann: Æ, látið nú Fischer í friði, þennan friðsama, hógværa mann. Einar Kolbeinsson fylgist með sprettu túnfífla: Vinarþel og vonir ber, vorsins hlýi andi, þegar óvænt fjölga fer, fíflum hér á landi. Einar Georg Einarsson yrkir: Eindrægnin var einkar þekk í aðgerðunum héðan blessun Davíðs Bobbý fékk en Baugur kom svo með hann. Ganga má hann víða á vegg í vissum greinum slyngur brosir gegnum blómlegt skegg Bobbý Íslendingur. Sæmi Guð um björgun bað nú blundar Fischer í góðu rúmi svo held ég það væri hollast að hengja þá Búss og Kóisúmi. Fíflum fjölgar pebl@mbl.is Súðavík | Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, Ómar Már Jónsson, telur víst að refaveiði í sveitarfélaginu leggist af að mestu næstu tvö sumur að minnsta kosti vegna minnk- andi framlaga ríkissjóðs til eyðingar refa og minka að því er fram kemur á vef Bæj- arins besta. Þar segir sveitarstjóri málið ekki einkamál sveitarfélaga og ríkið verði að axla sínar skyldur eigi að halda þessum dýrategundum í skefjum. Á síðasta ári fóru um 5% af skatttekjum Súðavíkurhrepps í þennan málaflokk. Á fundi landbúnaðar- nefndar Súðavíkurhrepps á dögunum var lagt fram yfirlit yfir kostnað sveitarfé- lagsins við eyðingu refa og minka á árunum 2000–2004. Kom þar fram að kostnaðurinn hefur verið 1,7–2,3 milljónir króna á ári. Á árum áður skiptu ríki og sveitarfélög á milli sín kostnaði við eyðinguna en frá árinu 2003 hefur ríkið einungis greitt um 30% af kostnaði sem hefur leitt af sér aukinn kostnað þeirra sveitarfélaga sem sinnt hafa eyðingunni. Á síðasta ári var kostnaður þessi ríflega 4% af skatttekjum sveitarfé- lagsins. Að lokinni umræðu í landbúnaðar- nefnd Súðavíkurhrepps var samþykkt að leggja til við hreppsnefnd að ekki verði ráðnir verktakar til að sinna grenjavinnslu á ref næstu tvö árin þ.e. árin 2005 og 2006. Segir í tillögunni að á þeim tíma verði þó tryggt að hægt verði að kalla út veiðimann til að sinna sérverkefnum t.d. ef vart verð- ur við dýrbíta. Þá segir einnig að ekki verði greidd skotlaun fyrir unna refi árin 2005 og 2006 nema til bænda á lögbýlum eða aðila í umboði þeirra. Tillaga landbúnaðarnefnd- ar bíður nú afgreiðslu hreppsnefndar. Óm- ar Már segist telja víst að tillaga nefnd- arinnar verði samþykkt í hreppsnefnd. Hann segir eyðingu minka og refa ekki einkamál einstakra sveitarfélaga, en eitt- hvað hljóti undan að láta þegar ríkið ákveði einhliða að minnka sinn hlut í kostnaðinum. Engar refa- og minka- veiðar næstu sumur Skagafjörður | Um 70% íbúa á Norður- landi vestra er hlynntur sameiningu sveit- arfélaga að því er fram kemur í frétta- blaðinu Feyki á Sauðárkróki. Í Skagafirði og nærsveitum eru 73% almennt hlynnt sameiningu en hlutfallið er 65% á Húna- flóasvæðinu og nærsveitum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið á viðhorfi fólks til sameiningar sveitarfélaga. Könnunin var unnin á tímabilinu frá des- ember 2004 til mars 2005. Þetta er svipað hlutfall og á landsvísu en á landinu öllu voru rúm 66% mjög hlynnt eða frekar hlynnt sameiningu sveitarfélaga. 70% hlynnt sameiningu ♦♦♦ FLUTNINGUR á 29 metra brú frá Flúðum að Straumfjarðará á sunn- anverðu Snæfellsnesi fyrir skemmstu gekk mjög vel. „Það kom ekkert upp á,“ sagði Gísli Vagn Jónsson markaðsstjóri hjá Límtré vírneti ehf., en þar var brúin smíð- uð innandyra og að öllu leyti hönn- uð hjá fyrirtækinu. Um er að ræða bogabrú sem byggð er úr límtré en klædd með bárujárni. Þessi þjónustubrú sem sett verð- ur upp við Múlavirkjun var flutt í heilu lagi, en hún vegur tæp 13 tonn. Vakti flutningurinn mjög mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem ökumenn mæta brú með þessum hætti á þjóðvegum landsins. Brúin verður sett upp við Múla- virkjun síðar í vor og væntanlega komin í fulla notkun um mánaða- mótin maí-júní. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Flutningurinn vakti athygli Mikilvægt að bæta aðstöðu | Bæjarráð Siglufjarðar frestaði afgreiðslu á erindi frá KS varðandi grasvelli við íþróttamiðstöðina á Hóli og óskaði frekari upplýsinga. KS hefur óskað eftir nokkrum endur- bótum á tækjabúnaði og aðstöðu á svæðinu, s.s. vökvunartækjum, sáningartækjum o.fl. Mikilvægt er að mati félagsins að aðstaða verði jafnframt lagfærð í samræmi við regl- ur er gilda um knattspyrnuleiki í 1. deild karla. Á sama fundi bæjarráðs var fjallað um framkvæmdir við sparkvöll en stjórn KS hefur fagnað framtaki bæjaryfirvalda um að ráðast í gerð slíks vallar í samráði við KSÍ og telur að þessi framkvæmd muni koma knattspyrnumönnum en þó fyrst og fremst skólabörnum mjög til góða í framtíð- inni. „Sparkvöllur sem þessi eykur mögu- leika á hollri hreyfingu utanhúss og getur jafnframt nýst á þann hátt að ekki þarf eins mikla notkun í íþróttahúsi,“ segir í bókun. Stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum hinn 23. febrúar sl. að óska eftir því við bæj- aryfirvöld að KS tæki að sér þá fram- kvæmd við völlinn sem Siglufjarðarkaup- stað er ætlað að sjá um skv. samkomulagi við KSÍ.    Grásleppan | Grásleppuvertíðin er hafin á Ströndum en nokkrir bátar frá Drangs- nesi hafa lagt grásleppunet. Grásleppu- sjómenn á Hólmavík hafa ekki enn lagt netin, en þeir eru uggandi um að fá seint og lít- ið borgað fyrir afurðirnar, þar sem það lítur illa út með sölu á grásleppuhrogn- um en kaupendur liggja með talsverðar birgðir frá síðustu vertíð, segir í frétt á vefnum strandir.is. „Óhætt er því að segja að hálfgert ástand sé á útgerðinni um þessar mundir en verð á þorski hefur verið í algjöru lág- marki undanfarið og varla að það svari kostnaði að sækja hann.“   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.