Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 36

Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN TALSVERT hefur verið fjallað um mikla verðhækkun á húsnæði að undanförnu. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,7% og skýrir verðhækkun húsnæðis meira en helming hækkunar- innar, svo sem sjá má á vef Hagstofu Ís- lands. Meðalverð hús- næðis á höfuðborg- arsvæðinu var um 13% hærra á árinu 2004 en árið 2003 og hækkunin er meiri ef litið er til breytinga síðustu tólf mánuði, en þá hækkaði með- alverð um 28%. Hækkunin var reynd- ar meiri á Austurlandi á síðasta ári og ef litið er til áranna frá 2000 til 2004 var hækkunin á Reykjanesi og á Vesturlandi um 50% þegar hún var tæplega 40% í Reykjavík. Þannig að verðið hækkar víðar og jafnvel meira en í Reykjavík. Samkvæmt upplýs- ingum frá Fasteignamati ríkisins hækkaði íbúðaverð á höfuðborg- arsvæðinu að jafnaði um 13,2% á milli ársmeðaltala 2003 og 2004. Mest var hækkunin í Garðabæ 18,9%, en 13,0% í Reykjavík. Þeg- ar skoðuð er breyting á milli ár- anna 2000 og 2004 kemur í ljós að hækkunin var þá einnig mest í Garðabæ, eða 45,2%, en í Reykja- vík 39,8%. Verðhækkun í öðrum sveitarfélögum var ekki fjarri þessu. Kaupmáttur launa og aukin lán Það er eðlilegt að spurt sé hvað valdi þessum verðhækkunum, einkum hinum miklu hækkunum sem verið hafa síðustu mánuði. Nokkrar skýringar hafa verið gefnar. Það liggur beint við að skoða skýrslur fag- og fræðimanna um þessi efni. Í skýrslu sem Seðlabanki Íslands vann fyrir fé- lagsmálaráðherra á síðasta ári kemur fram að það sé tvennt sem helst hafi áhrif á þróun verðs á húsnæði. Til lengri tíma litið er það launaþróun í landinu, en til skemmri tíma breytingar á að- gengi að lánsfé og vaxtabreyt- ingar. Þá benda tölfræðilegir út- reikningar sem KB banki birtir til þess að jákvætt og til- tölulega náið samband sé á milli launabreyt- inga og eftirspurnar eftir húsnæði. Nú er það ljóst að kaupmáttur launa hef- ur aukist nokkuð jafnt og þétt. Jafnframt ætti öllum að vera ljóst að sú meg- inbreyting sem orðið hefur að undanförnu og hefur áhrif á fast- eignamarkað er breytingin á lánakerf- inu. Þar hafa orðið straumhvörf. Lán hafa hækkað og lengst og vextir lækkað vegna samkeppni bankanna innbyrðis og við Íbúðalánasjóð. Þetta hefur leitt til þess að skuldir heimila við inn- lánsstofnanir hafa aukist síðasta árið um 50%. Frá miðju ári 2004 til ársloka jukust útlán til heimila um 114 milljarða króna. Sé tekið tillit til uppgreiðslna hjá Íbúða- lánasjóði, lífeyrissjóðum og öðrum sjóðum var nettóaukningin frá miðju síðasta ári til áramóta ná- lægt 70 milljörðum króna. Þetta aukna fjármagn skýrir að mestu leyti aukna eftirspurn í þessum geira og hækkandi verð síðasta ár- ið. Lóðaverð vegur lítið Af þessum ástæðum er dálítið sérkennilegt að hlusta á minnihlut- ann í borgarstjórn Reykjavíkur sem vill kenna litlu framboði af nýjum lóðum um verðhækkanir. Í því efni ber að benda á að framboð af lóðum er og hefur á síðustu ár- um verið með mesta móti í borg- inni. Í öðru lagi verður að skoða höfuðborgarsvæðið í heild sinni og í þriðja lagi að líta á þá staðreynd að nýtt húsnæði er ekki nema lítill hluti af sölu alls húsnæðis á svæð- inu. Í þessu efni er fróðlegt að lesa skýrslu sem KB banki gaf nýverið út. Þar er því haldið fram að upp- boð á lóðum hækki ekki fast- eignaverð, heldur ráði verðinu heildareftirspurnin á öllum hús- næðismarkaði fyrir notað húsnæði og nýtt. Í skýrslunni er reyndar gagnrýnd sú stefna sem var hér á áratugum áður þegar lóðir voru nánast gefnar svo byggð þróaðist mjög dreifð með tilheyrandi óhag- ræði fyrir rekstur borgarinnar. Við þær aðstæður sem nú hafa skapast vegna mikillar útlána- aukningar sem drifið hefur upp verð á öllum húsnæðismarkaði er eðlilegt að reynt sé að bregðast við og láta það ekki bitna um of á hinum afmarkaða lóðamarkaði og þeim fjölskyldum sem vilja byggja yfir sig nýtt húsnæði. Hluti lóða hefur verið boðinn upp, enda er það eðlileg aðferð þegar um er að ræða gæði sem ekki eru óþrjót- andi og nokkur eftirspurn er eftir. Þar sem verið er að bjóða nýjar lóðir á eldri svæðum, s.s. í Selja- hverfi, er eðlilegt að eftirspurn verði mikil meðal íbúanna sem vilja stækka við sig eða breyta, en halda sig í sama hverfi með fjöl- skyldu sína. Reykjavíkurborg hef- ur því reynt að þróa nýjar leiðir til þess að gera venjulegu fólki kleift að byggja, svo sem fram hefur komið að undanförnu. Húsnæðis- mál fjölskyldna eru einn stærsti og mikilvægasti þáttur velferðar í hverju samfélagi. Borgarstjórn Reykjavíkur leggur metnað sinn í að sinna þessum málaflokki eins vel og henni er unnt. Ástæður verðhækkunar húsnæðis að undanförnu Stefán Jóhann Stefánsson fjallar um lóðaúthlutun R-listans ’Hluti lóða hefur veriðboðinn upp, enda er það eðlileg aðferð þegar um er að ræða gæði sem ekki eru óþrjótandi og nokkur eftirspurn er eftir.‘ Stefán Jóhann Stefánsson Höfundur er í borgarstjórnarflokki Reykjavíkurlistans. INGIMAR Baldvinsson skrifar grein, sem birtist í Morgunblaðinu þann 27. febrúar síðastliðinn, þar sem hann fjallar um gagnrýni Land- verndar á lækkun vörugjalda á nýjum pallbílum niður í 14% og þykir sú gagnrýni illa rökstudd. Í grein- inni sakar hann fram- kvæmdastjóra Land- verndar um vanþekkingu og for- dóma og telur að gleymst hafi að taka með í reikninginn nýja staðla um meng- unarvarnir frá fyr- irtækjum í Evrópu og Bandaríkjunum. Í bréfi sem Ingimar hef- ur sent fjármálaráðu- neytinu um sama mál, og hægt er að finna á heimasíðu IB, er því haldið fram að rök Landverndar byggist á takmarkaðri þekk- ingu sérfræðinga, sem unnið hafa fyrir Land- vernd, á þeirri tækniþróun sem átt hefur sér stað á nokkr- um síðustu árum. Í bréfinu er því haldið fram að þessi tækniþróun geri þessa ákveðnu pallbíla sér- staklega umhverf- isvæna miðað við þá bíla sem þeir leysa af hólmi. Ingimar er framkvæmdastjóri IB á Selfossi og einn þeirra aðila sem flytja inn hina margumræddu pall- bíla. Hann hefur því beinna fjár- hagslegra hagsmuna að gæta í þessu máli og eðlilegt að hann láti sig það varða. Þar sem ég er einn þeirra sér- fræðinga sem Ingimar vísar til, og starfað hafa fyrir Landvernd að loftslagsverkefni samtakanna, leyfi ég mér þó að gera sömu kröfu til hans og hann gerir til sérfræðinga Landverndar, þ.e.a.s. að hann byggi málflutning sinn á réttum upplýs- ingum. Ingimar byggir sinn rökstuðning að mestu leyti á skýrslu sérfræðings um nýja mengunarvarnastaðla sem hægt er að nálgast á heimasíðu IB. Ég hef kynnt mér efni þessarar skýrslu og hún er bæði fróðleg og að mörgu leyti vel unnin. Hún fjallar hins vegar ekki um losun gróð- urhúsalofttegunda frá bifreiðum heldur beinir hún sjónum að losun mengandi efna sem geta valdið stað- bundnum umhverfisvandamálum en teljast ekki til gróðurhúsaloftteg- unda þó sumar þessara lofttegunda geti haft óbein áhrif á styrk gróð- urhúsalofttegunda. Reyndar er minnst lítillega á gróðurhúsaloftteg- undir í skýrslunni, en sá þáttur er því miður villandi og ekki rétt farið með staðreyndir. Þannig er t.d. talað um kolmónoxíð (CO), rokgjörn líf- ræn efni (VOC) og nituroxíð (NOx) sem þrjú efni sem nú nefnist einu nafni gróðurhúsalofttegundir. Þess- ar lofttegundir flokkast hins vegar ekki sem gróðurhúsalofttegundir, þó þær geti valdið óbeinum áhrifum eins og fyrr segir. Þær eru óæskilegar vegna staðbundinnar meng- unar sem þær valda og því afar mikilvægt að draga úr útblæstri þeirra frá bifreiðum en skipta ekki miklu máli þegar kemur að því verkefni að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Helstu gróðurhúsa- lofttegundir sem bif- reiðar losa eru koldíox- íð (CO2) og tvíköfn- unaroxíð, eða hláturgas (N2O). Jafnvel þó hlát- urgasið sé margfalt virkari gróðurhúsa- lofttegund en koldíoxíð skiptir það þó ekki eins miklu máli í þessu sam- hengi þar sem magnið sem losast er aðeins lít- ið brot miðað við losun koldíoxíðs. Um fjórð- ungur losunar gróð- urhúsalofttegunda á Ís- landi er tilkominn vegna losunar frá bif- reiðum og er losun koldíoxíðs meira en 90% þessarar losunar (þá er búið að umbreyta losun N2O í svokölluð koldíoxíðsígildi). Besta leiðin til að draga úr losun koldíoxíðs er ein- faldlega sú að nota minna eldsneyti (bensín eða dísilolíu). Þó talsverður árangur hafi náðst við að auka spar- neytni nýrra bíla þá er sá árangur ekki bundinn við stóra bíla. Sé borin saman eyðsla stórra pallbíla með kraftmikla vél og venjulegra fólks- bíla er ljóst að pallbílar losa allajafna meira koldíoxíð. Það mikla forskot sem pallbílar fá með einungis 14% vörugjaldi (í samanburði við 45% gjald á stóra bíla og 30% gjald á smærri bíla) leiðir til þess að pallbíl- arnir leysa ekki einungis af hólmi eldri pallbíla heldur verða þeir val- kostur margra sem annars hefðu væntanlega keypt sér minni og spar- neytnari bíla. Rétt er að taka fram að þó Land- vernd hafi gagnrýnt breytingar á vörugjaldi er ekki þar með sagt að samtökin sjái neitt athugavert við að pallbílar séu notaðir þar sem þeirra er þörf. Gagnrýnin beinist að þeirri aðgerð stjórnvalda að lækka vöru- gjald á þessa tilteknu tegund farar- tækja umfram aðra bíla. Þessi að- gerð gengur þvert á loftslagsstefnu stjórnvalda þar sem fram kemur að aðlaga eigi vörugjöld á bifreiðum til að þau hvetji til innflutnings á spar- neytnari bílum. Pallbílar og gróður- húsalofttegundir Auður H. Ingólfsdóttir fjallar um mengun og bílainnflutning Auður H. Ingólfsdóttir ’Rétt er að takafram að þó Landvernd hafi gagnrýnt breyt- ingar á vöru- gjaldi er ekki þar með sagt að samtökin sjái neitt at- hugavert við að pallbílar séu notaðir þar sem þeirra er þörf.‘ Höfundur er umhverfisráðgjafi og verkefnastjóri loftslagsverkefnis Landverndar. Espigerði 4 – 108 Reykjavík Höfum fengið í sölu 118,2 fm íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni. Eldri innréttingar. Stofa og borðstofa samliggjandi, 4 svefnherbergi, tvennar svalir í suður og vestur. Verð 25.millj. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn í síma 414 6600 VEÐRÁTTAN undanfarið hefur minnt okkur skemmtilega á það að stutt er til sumars. Nú þegar maður hitt- ir menn og fer að ræða um sumarfrí og ferðalög kemur í ljós að margir eru að skipuleggja ferðir um allan heim og margt spennandi er í boði. En það má gjarnan minna á að um allt Ísland er verið að skipuleggja skemmtilega viðburði, setja saman matseðla sumarsins á veitinga- stöðum og hótelum, starfsfólk sumarhótela að hefja undirbúning undir miklar annir í gistingu, flúðasigl- ingar, hundasleðar, hjólaferðir eru nokkur dæmi. Ferðaþjónustan á Íslandi verður skipulagðari og skemmtilegri með hverju árinu sem líður og þá verðum við ferðalangarnir að skoða okkar hug tím- anlega. Fyrstu helgina í apríl mun verða haldin lífleg og skemmtileg kynning undir nafninu Ferðatorg 2005. Þar munu verða kynntir margir skoðunarverðir staðir út um allt land og sérfróðir aðilar frá svæðunum verða gestum til halds og trausts við að ákveða ferðalag sumarsins um Ísland. Í starfi mínu sem kennari í Ferða- málaskólanum í Kópavogi kemur það mér skemmtilega á óvart að sjá hversu margt nýtt er í boði um allt land, hversu frjó hugsun er í gangi innan ferðaþjónustunnar, hversu mikið samstarf er meðal ferðaþjónustuaðila í öllum lands- hlutum. Á Ferðatorginu mun gest- um einnig gefast tækifæri á að vinna góða ferðavinninga, sund- kort, flugferðir og ferðir á skemmtilega staði í getraunum og happdrættisvinningum. Hver vill til dæmis ekki skoða ferðamöguleika á Hornstrandir, eða fá að heyra um sýningar við Síldarminjasafnið á Siglufirði, eða að fá að kynnast hálendisleiðum og ferðamannaskálum um hálendi Íslands? Möguleikarnir eru óþrjótandi og með því að safna saman fagfólki í ferðaþjónustu á einn stað með fangið fullt af upp- lýsingum er ferðaþjónustan að koma færandi hendi til fólksins í landinu. Verið velkomin á Ferðatorg í Vetrargarði Smáralindar 1.–3. apríl. Ættjarðarást og ferðalög um Ísland Hildur Jónsdóttir fjallar um Ferðatorg 2005 Hildur Jónsdóttir ’Ferðaþjónustan á Ís-landi verður skipulagð- ari og skemmtilegri með hverju árinu sem líður og þá verðum við ferða- langarnir að skoða okk- ar hug tímanlega.‘ Höfundur er landfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.