Morgunblaðið - 01.04.2005, Page 43

Morgunblaðið - 01.04.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 43 MINNINGAR vindi einnig sem yfirmanni hjá Vegagerð ríkisins þar sem Eyvindur var umdæmisstjóri Reykjanesum- dæmis. Eyvindur var traustur yf- irmaður sem kom fram við aðra af kurteisi og virðingu og hann gegndi sínum störfum af mikilli samvisku- semi. Eyvindur barðist lengi við erfiðan sjúkdóm sem að lokum bar hann of- urliði. Með honum er genginn góður maður. Við minnumst hans með hlý- hug og vottum Auði og dætrunum samúð okkar. Jóhannes og Þórður. Kveðja frá samstarfsfólki Þegar við héðan í frá lítum vor- blómin í klettunum við Kleifarvatn eða ökum þar um hvamminn hans gróna, þegar við horfum á gömlu grjóthleðslurnar í Hvalfirði eða hug- um að vegum í Kjós, verður öðling- urinn Eyvindur Jónasson ætíð með í ferð. Nálægðin verður að vísu með öðrum hætti en hingað til, því nú er hann horfinn af þessum heimi. Í lok farsællar starfsævi fyrir fimm árum greindist hann með Parkinsonsveiki, en síðasta árið hafði hallað bratt undan fæti og bar- áttu þeirra Auðar við æ þyngri veik- indi hans lauk aðfaranótt föstudags- ins langa. Eyvindur vann mestan hluta starfsævi sinnar hjá Vegagerðinni, byrjaði þar 1948 sem verkamaður, vann á eigin tækjum um tíma, varð flokksstjóri 1955 og síðustu áratug- ina var hann yfirverkstjóri í Reykja- nesumdæmi, þar til hann lét form- lega af störfum í lok ársins 2000. Segja má að hann hafi fæðst inn í þennan starfsvettvang, þar sem fað- ir hans gegndi sama starfi á árum áður. Eyvindur var þeirrar kynslóðar sem óx úr grasi þegar verklag var að breytast frá notkun seinvirkra handverkfæra yfir í sífellt stórvirk- ari tæki. Það kunni hann vel að meta og notfæra sér, gerðist ungur vinnu- vélaeigandi og kynntist afkastamikl- um vinnubrögðum frá grunni áður en hann hóf sjálfur að stjórna verk- um. Hann var mikill ferða- og útivist- armaður sem leitaðist alla tíð við að víkka sjóndeildarhringinn, fór snemma að fara um á jeppum og vél- sleðum í tómstundum og var fyrir þrítugt kominn með einkaflug- mannspróf. Hann var víðlesinn og lét sér mjög annt um náttúru og óspillt um- hverfi. Ærið oft þurfti hann og tókst með ágætum að samræma með sjálfum sér sjónarmið þess, sem vildi halda fögru landslagi óbreyttu og svo hins, sem þurfti að breyta því vegna vegagerðar. Hann var mjög félagslyndur og virkur í félagsstarfi, bæði innan Vegagerðarinnar og utan. Hann hafði einstakt lag á að um- gangast fólk og þá gjarnan þar sem hagsmunir eða skoðanir fóru ekki saman, sem oft var og er reyndin í starfi okkar. Sannarlega gat hann verið fastur fyrir og ákveðinn, en vegna ljúfmennsku hans og hæglæt- is tók ekki nokkur maður eftir því. Hann var sannur í því sem hann tók sér fyrir hendur og strangheiðarleg- ur og það vissu allir og þess nutum við. Hann var viskubrunnur okkar þegar þurfti að grennslast um menn, lönd og málefni, gömul sem ný. Eiginlega sáum við ekki fyrir okkur að Eyvindur mætti nokkurn tímann hætta hjá Vegagerðinni, enda gerði hann það ekki meðan stætt var og var með okkur öðru hvoru fram á síðasta vor. Við þökkum Eyvindi dýrmæta leiðsögn og samveru sem aldrei bar skugga á. Auði og fjölskyldunni allri send- um við samúðarkveðjur. Kveðja frá Karlakór Reykjavíkur Eyvindur byrjaði að syngja í Karlakór Reykjavíkur 1968. Hann söng óslitið í aðalkórnum fram á árið 1993, lengst af 1. tenór, en kom stuttu síðar til liðs við okkur „eldri félaga“. Hann hafði mikið yndi af söng og góðri tónlist. Upp úr 1960 sótti hann söngtíma hjá Einari Sturlusyni söngvara í eina þrjá vet- ur. Og um miðjan 8. áratuginn keypti hann sér píanó og varð sér úti um kennslu sem dugði honum til að geta spilað „röddina sína“. Hvort söngtímarnir hjá Einari voru gagn- gert hugsaðir sem undirbúningur fyrir inngöngu í karlakórinn skal ósagt látið. En áhugi Eyvindar fyrir því að sækja sér undirstöðumenntun í söng og nótnalestri er til marks um þær kröfur sem hann gerði til sjálfs sín. Hann vildi jafnan koma vel und- irbúinn til leiks, hvort sem viðfangs- efnið var söngur eða eitthvað annað. Eyvindur var ritari í stjórn kórsins frá 1989 til 1991 og lá aldrei á liði sínu þegar taka þurfti til hendi fyrir kórinn. Kórfélagarnir frá þessum tíma minnast sérstaklega frum- kvæðis Eyvindar og ötullar fram- göngu við fjáröflun fyrir kórinn eftir söngferð til Kína 1979. Hann hafði áður tekið þátt í söngferðum til út- landa, en í Kínaferðinni var Auður með í fyrsta skipti og ferðin var þeirra brúðkaupsferð. Í hverju fólst svo frumkvæði Eyvindar að fjáröfl- un? Jú, það var að rækta rófur; fengu kórfélagar góðfúslega afnot af landspildu á Varmalandi í Mosfells- dal. Þarna ræktuðu þeir rófur tvö ár í röð, 1980 og 1981. Í bókinni Hraustir menn, sögu Karlakórs Reykjavíkur 1926–2001, segir að það hafi verið „rófnarækt sem bjargaði fjármálum kórsins að þessu sinni […] Eyvindur Jónasson, kórfélagi og starfsmaður hjá Vegagerðinni sá um að vinna landið og sá í akurinn […] hagnaðurinn var svo mikill að hann hrökk langleiðina upp í skuld- irnar vegna Kínaferðarinnar“. (bls. 282). Afraksturinn af rófnaræktinni fyrra árið var 24 tonn. Eins og fyrr segir kom Eyvindur í hóp okkar eldri félaga eftir að hann hætti í aðalkórnum. Með okkur söng hann fram til ársins 1998. Nú að leiðarlokum þökkum við honum samfylgdina og kveðjum þakklátum huga þennan trausta og hógværa söngbróður. Við sendum Auði og öll- um ástvinum samúðarkveðjur. Gunnar Guttormsson. Einn besti félagsskapur sem hægt er að hugsa sér er söngurinn og allt það líf og mannleg samskipti sem honum tengist. Allar tilfinningar okkar frá gleði til sorgar rúmast í söngnum. Í þrjá áratugi átti Eyvind- ur Jónasson sér vettvang í söngnum hjá Karlakór Reykjavíkur og síð- ustu árin í kór eldri félaga Karla- kórsins. Á þessum tíma var mörgum ljúfum stundum fagnað á söngpalli vítt um heim og sá sem hér heldur á penna átti Eyvind að herbergis- félaga í einni slíkri ferð um háborgir tónlistar í Austurríki og fyrrum Tékkóslóvakíu og Júgóslavíu haust- ið 1973. Þá kynntist ég ekki aðeins ljúfum og þægilegum ferðafélaga, heldur ekki síður manni sem mótaði sér skoðanir í flestum málum, mark- aðar víðsýni og umburðarlyndi. Sex árum síðar fór Karlakór Reykjavíkur í magnaða söngferð austur í Kínaveldi og þá vildi svo til, að konur okkar urðu herbergisfélag- ar og bundust vináttuböndum. Þannig var, að hinir kínversku gest- gjafar og skipuleggjendur, skipu- lögðu sérstaka ferð fyrir konur söngmanna og kom það mörgum karlinum heldur betur á óvart. Þeg- ar komið var á Kínagrund, héldu kórmenn í eina átt og makar þeirra í aðra. Við leiðarlok hittust svo hóp- arnir aftur og allir virtust sáttir við kínverska skipulagið. Þessar ferðir eru nefndar sem dæmi um að starf í kór snýst ekki aðeins um sönginn, heldur ekki síð- ur um vináttuna og félagsskapinn sem borin eru uppi á vængjum söngsins. Við Ritva kveðjum ljúfan félaga, sem allt of fljótt kvaddi. Kæra Auð- ur, dætur og aðrir aðstandendur, okkar innilegasta samúð. Reynir Ingibjartsson. Aðfaranótt föstudagsins langa lést nágranni okkar Eyvindur Jón- asson. Ekki kom þessi fregn á óvart því Eyvindur hafði lengi barist við erfiðan sjúkdóm af æðruleysi og karlmennsku. Þegar litið er um öxl og rifjuð upp síðastliðin tuttugu og þrjú ár í nábýli við Eyvind og Auði konu hans þá hófust okkar kynni þannig að við fluttum í Glæsibæinn með viku milli- bili. Innkeyrsla að húsunum lá sam- an og má segja að við höfum haft hana sameiginlega. Aldrei bar skugga á samskipti okkar og ekki hefðum við getað kosið okkur betri nágranna og ber að þakka það hér í þessum fátæklegu orðum. Þau hjón- in voru iðin við að fegra húsið og garðinn, klippa trén og reyta arfann. Síðustu árin kom það meira í hlut Auðar enda hamhleypa til vinnu. Þá brosti Eyvindur sínu kankvíslega brosi og sagði: „Hún hefur svo gam- an af þessu,“ og það voru sannmæli. Eyvindur var góður söngmaður og söng í mörg ár með Karlakór Reykjavíkur sem tenór. Það var gaman að heyra frá söngferðalögum kórsins, t.d. Kínaförinni sem var þeim hjónum ógleymanleg. Á sumr- in fóru þau í sumarhúsið nálægt Hestfjalli. Þar undu þau sér vel í náttúrunni og einnig við kartöflu- rækt. Eyvindur var bæði vel lesinn og skarpgreindur og skemmtilegt að heyra hann velta fyrir sér fleiri en einni hlið á ýmsum málum. Far þú í friði á vit hins óþekkta. Auði og dætrunum og öllum ætt- ingjum og vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og von- um að minning þessa góða drengs lifi sem lengst í hugum okkar allra. Theódór Óskarsson, Arnheiður Árnadóttir. Góður samferðamaður til margra ára er fallinn frá og langar mig að minnast hans í nokkrum orðum. Fyrstu kynni mín af Eyvindi voru þegar ég, unglingur í Varmadal, sá hann vinna á jarðýtu sem hann átti sjálfur við vegagerð hér í sveitinni og þótti mér mikið til koma. Það lag sem hann hafði á þessari stóru jarðýtu og hvað vegkantarnir urðu fallegir eftir vinnu hans og það sáu einnig yfirmenn hans hjá Vegagerð ríkisins og töldu vegagerðinni enn meiri hag þess að nýta verkhyggni hans og samviskusemi sem vega- verkstjóra og buðu honum það starf sem varð síðan hans ævistarf. Þetta var góður gjörningur fyrir báða aðila og Eyvindur seldi þeim manni sem hann treysti best til að feta í fótspor sín við snyrtilegan frá- gang á allri vinnu fyrir Vegagerðina og býður mér í grun að það hafi ver- ið aðalatriðið í huga Eyvindar frem- ur en kaup og kjör við söluna á ýt- unni. Guðmundur Þorbjarnarson brást ekki trausti Eyvindar og sinnti störfum sínum af kostgæfni. Snyrti- mennska Eyvindar var mikil og áhersla lögð á fallegan frágang vega og námusvæða. Alla verkstjórnartíð sína náði hann að ráða til Vegagerð- arinnar afburðaflinka jarðýtustjóra svo framkvæmdirnar yrðu Vega- gerðinni til sóma. Þegar Eyvindur, sem verkstjóri, fékk lof fyrir snyrti- lega og fallega framkvæmd sagði hann: „Já, þeir eru snillingar þessir ýtumenn,“ og gerði lítið úr verk- stjórninni. Þegar ég minntist þess hér fyrr að ráðning Eyvindar hafi verið góð fyrir báða aðila á ég við að Vegagerð ríkisins hafi fengið sérstaklega sam- viskusaman mann, gjörkunnugan allri vinnutilhögun, staðkunnugan og lipran í samskiptum við bændur, landeigendur og aðra þá er Vega- gerðin þurfti að semja við við lagn- ingu nýrra vega, heimreiða að bæj- um og rekstur námusvæða. Þar var hann á heimavelli, alinn upp hér í Kjalarneshreppi og þekkti hér alla. Síðast en ekki síst var Eyvindur af góðu fólki kominn en faðir hans Jón- as Magnússon hafði helgað Vega- gerð ríkisins starfskrafta sína um langan aldur við góðan orðstír. Eins og svo oft áður sannaðist orðatil- tækið að eplið fellur sjaldnast langt frá eikinni þó að mörgu leyti væru þeir ólíkir, feðgarnir frá Stardal. En hlutur Eyvindar var líka góð- ur, starfið var afar fjölbreytt, mikil útivera, ferðalög og samskipti við fólk. Þá átti hann afar auðvelt með að hafa mannaforráð og aldrei minn- ist ég þess að hann hafi þurft að ávíta starfsfólk sitt, öll vinna hans gekk eins og vel smurð vél. Eyvind- ur var mikill félagi okkar vörubíl- stjóranna og er mér minnisstætt er hann kom með bát upp í Hvítanes í Hvalfirði. Þar unnum við við lagn- ingu þjóðvegarins um Hvalfjörð sem nú er og tók hann þá okkur nokkra með í siglingu eitt kvöldið um Hval- fjörðinn og út í Geirshólma. Einnig veiddum við nokkur kvöld í soðið í firðinum og var ráðskonunni færður aflinn sem tilreiddur var fyrir okkur næstu daga. Þá stóð Eyvindur fyrir þriggja daga hópferð með okkar vinnuflokk og starfsfélögum úr Ár- nessýslu upp í Landmannalaugar, Fjallabaksleið og víðar. Í þessari ferð heimsóttum við vegagerðar- menn sem voru við lagningu veg- arins um Skeiðarársand, eftirminni- leg ferð sem gleymist ekki. Í öllum þessum frístundaferðum var hann hafsjór fróðleiks. Þá eru mér einnig minnisstæðar kvöldheimsóknir til Eyvindar niður á Laugateig fyrir mörgum árum en þar bjó hann með foreldrum sínum eftir að þau fluttu frá Stardal, en þá var verið að borga út, þetta var fyrir tíma nútíma- bankaþjónustunnar. Skemmtileg kvöld, spurt og spjallað, gömlu hjón- in fengu nýjustu fréttir af Kjalar- nesinu og Kristrún bar veitingar á borð. Árin líða, samskiptin við Eyvind minnka, bundið slitlag sett á vegi, þá minnkar viðhald þeirra, útboð nýrra vega er orðið og Eyvindur er meira inni á skrifstofu Vegagerðarinnar. Kunningsskapur okkar er orðinn á öðrum forsendum, þ.e áhugamálin, Eyvindur átti mikið safn mynda og margar þeirra voru frá Vegagerð fyrri tíma og frá föður hans, sumar óþekktar og ómerktar og vann hann við að skilgreina þær og fá menn hér í sveit til að reyna að þekkja þær. Ég man hann kom til mín með bók frá leiðangri Paul Gaimard hér um landið um 1836 og spurði mig um eina mynd sem mér fannst ég gæti sagt honum hvar væri teiknuð, og það var hér norðvestan í Mosfelli af leiðangri Gaimards á leið til Þing- valla. Mikið var hann ánægður þann daginn. Eyvindur var flugáhugamaður og talaði mikið um flug, lærði að fljúga á yngri árum en aðstæður ollu að ekki varð framhald á. En sem far- þegi var hann fullur áhuga og þekkti öll örnefni hér í Kjósar- og Árnes- sýslu. Eyvindur söng í Karlakór Reykjavíkur fyrsta tenór um ára- raðir og hafði mikla ánægju af. Þá sýndi hann mér mikið af myndum úr Kínaferð sem kórinn fór í fyrir nokkrum árum. Það var mér því mikil ánægja þegar við félagar í Karlakór Kjalnesinga héldum vor- tónleika í Árbæjarkirkju síðastliðið vor að bjóða þeim hjónum, Auði og Eyvindi, að koma og hlýða á söng kórsins í sinni sóknarkirkju. Að þökkum var okkur hjónum boðið kvöldkaffi eftir tónleikana heima í Glæsibæ 3 og sátum við þar fram yf- ir miðnætti og höfðum um nóg að spjalla og sjá þeirra fallega heimili og þann besta ráðahag sem gat orð- ið við stofnun hjúskapar og ávöxt hans. Síðan fer að halla undan fæti. Ey- vindur fær illvígan sjúkdóm sem hann berst við þar til yfir lýkur. Lífstími Eyvindar er allur en góður orðstír deyr aldrei. Fjölskyldu Eyvindar votta ég samúð okkar hjóna í Varmadal. Jón Sverrir Jónsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SVANA R. GUÐMUNDSDÓTTIR, Túngötu 23, Suðureyri, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 5. apríl kl. 11.00. Aldís Elfa Gísladóttir, Tom Richardson, Gunnar Hrafn Birgisson, Hildur Halldóra Karlsdóttir, Guðni Páll Birgisson, Jenný Níelsdóttir, Sonja Elín Thompson, Sigþór Valdimar Elíasson, Richard Erik Thompson, Elsa María Thompson, Jón Skúlason, Íris Edda Thompson, Ómar Ingi Eggertsson, barnabörn og bræður. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIGFÚS PÉTURSSON frá Hellissandi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 29. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Guðlaugsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HJALTA BJÖRNSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala Landakoti og á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir vel- vild og góða umönnun. Sigurlín Helgadóttir, Birgir Hjaltason, Bjarndís Sumarliðadóttir, Helgi Hjaltason, Guðrún Stefánsdóttir, Björn Hjaltason, Kolbrún Hjaltadóttir Lowell, John Lowell, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.