Morgunblaðið - 01.04.2005, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 57
!
"
# $"
!
%
& & ! '
() * % ' ! + $ ! ,
-
% % .
/0 1%
2
2 2
2
2
/
3
3 4
3
53 " 63
3
3 *
"%
3 3
4
3
3
6 3
"
3
3
73 8%3
3 "
3
3
3
3
3
3
83 8 %83 83
3
3 83 43 9
3
3
3
6
3 % 3
"3
3 " 3 3 3
3
3 %
3
"% 3 3
3 %
3
! "!
#" $% &%
'# (# )*!)"+! ,-# .*#"%
*# /) ! " && 0 1#. % $%233
*)!) .%4
5!) .%4
" 1
) *"! # ! "!
Í
var Helgason leikur Franz
Jósef Austurríkiskeisara í
söngleiknum Elisabeth,
sem sýndur er í Apollo
Theater í Stuttgart. Söng-
leikurinn hefur notið mikilla vin-
sælda í þýskumælandi löndum.
Hann var frumsýndur fyrir tólf
árum í Vín og gekk þar í sjö ár.
„Þetta lítur bara mjög vel út
eins og er,“ segir Ívar og hefur
verið uppselt á allar sýningar en
söngleikurinn var frumsýndur 6.
mars. Húsið tekur 1.800 manns í
sæti og sýningarnar eru sjö á
viku. „Þetta er frekar strembin
dagskrá,“ segir hann en sýningar
eru tvær á dag um helgi, frí er á
mánudögum og þriðjudögum og
ein sýning hina dagana.
Söngleikurinn fjallar um síð-
ustu ár keisaradæmisins í Aust-
urríki. Þá ríkti keisarinn Franz
Jósef og Elisabeth kona hans en
saga þeirra er í forgrunni í söng-
leiknum. Hann spannar frá 1852
til dauðadags keisarans árið 1916.
Dramatískur og nákvæmur
„Hann átti að giftast systur
hennar en honum fannst Elisa-
beth miklu meira spennandi.
Tragedían í þessu öllu er að þau
áttu illa saman,“ segir Ívar og út-
skýrir að Elisabeth hafi verið
frjálslega upp alin og dreymt um
að vera sirkusstjarna. „Franz
Jósef var alinn upp við að verða
hermaður, lítill tindáti.“
Ívar segir að mörgu leyti erfitt
að leika keisarann því hann eigi
að vera með tilfinningar en sé
samt fastur í þessu formi. „Hann
er með margar skyldur. Allt það
sem mamma segir eru lög í hans
eyrum.“
Til viðbótar eru Franz Josef og
Elisabeth systkinabörn eins og
var algengt í hjónaböndum kon-
ungsfólks á þessum tíma.
Hann segir þetta spennandi
hlutverk og söngleikinn drama-
tískan. Mikið er í hann lagt og
eru búningarnir nákvæm eftirlík-
ing af fötum þessa tíma.
Söngleikjanám í Vín
Ívar er menntaður í söng bæði
á Íslandi og í Austurríki. Hann og
kona hans, Margrét Árnadóttir,
fluttu árið 2001 til Vínar eftir að
hafa útskrifast úr Söngskólanum í
Reykjavík. „Ég og konan mín
kynntust í Söngskólanum og
ákváðum að prófa hvort við kæm-
umst í framhaldsnám og tókum
inntökupróf í Tónlistarháskólann í
Vín. Við komumst bæði inn. Hún
fór í ljóða- og óratoríudeildina og
ég fór í söngleikjadeildina. Seinna
bætti hún við sig óperudeildinni
og er að klára hana í júní.“
Námið hjá Ívari tók tvö ár.
„Áður en ég tók lokaprófið var ég
kominn með vinnu í Raimund
Theater í Vín. Ég var dansari og
söng í kórnum í söngleiknum
Barbarella.“
Ívar var í fyrstu í vafa um
hvort hann ætti að sækja um
söngleikja- eða óperudeildina.
„Það er þannig í Söngskólanum
að maður er ekki að fara að gera
neitt annað en klassík en mig
langaði alltaf að fara í söngleik-
ina. Sú prufa var fyrst og ég
komst inn, ákvað að ég mundi
gera þetta og sé engan veginn
eftir því.“
Til viðbótar við Barbarellu lék
Ívar í sýningunni Broadway Can
Bounce. „Félagi minn úr Barba-
rellu skrifaði þennan söngleik en
hann var líka settur upp í Rai-
mund Theater en ég var í aðal-
hlutverki.“
Hann hafði þó ekki æft dans
áður en hann hóf söngleikja-
námið. „Ég var með mjög góðan
danskennara í þessi tvö ár sem ég
var í náminu. Þetta nám byggist
mikið upp á því að allar þrjár
hliðar söngleikjanna séu jafn
sterkar, leikur, söngur og dans,“
segir Ívar sem hefur jafngaman
af þessu öllu.
Var ósáttur við þýskuna
Honum leist ekki í fyrstu á að
fara til þýskumælandi lands til
náms en er nú sáttur við ákvörð-
unina. Fjölskyldunni hefur líkað
vel í Austurríki og Ívar er löngu
búinn að ná tökum á þýskunni.
Ívar flutti í janúarbyrjun til
Stuttgart en kona hans og dóttir
eru enn í Vín. „Dóttir mín er í
öðrum bekk í Vínarborg og þarf
að klára það. Konan mín þarf að
klára óperudeildina. Þær koma til
mín í enda júní. Við erum að fara
núna að skoða íbúðir.“
Það leggst vel í hann að búa í
Þýskalandi. „Stuttgart er eins og
safn af litlum bæjum, dálítið eins
og heima. Ég held að okkur eigi
eftir að líða vel hérna. Ég vona
bara að söngleikurinn gangi sem
lengst,“ segir hann og bætir við
að samningar séu gerðir til eins
árs í einu. „Ef sýningarnar ganga
ekki lengi getur þetta orðið dálít-
ið sígaunalíf. Það getur verið erf-
itt með fjölskyldu.“
Þrátt fyrir að honum líki vel að
starfa á þessum slóðum býst hann
ekki við að ílengjast erlendis.
„Síðasta sumar keyptum við okk-
ur hús á Íslandi. Við getum alltaf
farið heim. En við ákváðum að
svo framarlega sem þetta gengur
hjá okkur og við erum með vinnu
hérna úti, verðum við hér. En ég
held að við ílengjumst ekki hér.“
Tónlist | Ívar Helgason leikur aðalhlutverkið í söngleiknum Elisabeth í Stuttgart
Langaði alltaf í söngleikina
Ívar í fullum skrúða á sviði en mikið er lagt í búningana. Ívar Helgason er menntaður í söng bæði á Íslandi og í Austurríki.
Söngvarinn, leikarinn
og dansarinn Ívar
Helgason fer í vel
pússaða skó Franz
Jósefs Austurríkis-
keisara sjö sinnum
í viku. Inga Rún
Sigurðardóttir
ræddi við hann.
ingarun@mbl.is