Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 13
FYRSTA lyf Actavis-samstæðunn-
ar sem framleitt er á Íslandi var
sent til Rússlands í upphafi vik-
unnar en það er hjartalyfið Lis-
inopril, sem fékkst skráð í Rúss-
landi í byrjun árs. Send voru utan
níu bretti eða um tvær milljónir
taflna að því er kemur fram í til-
kynningu Actavis. Þar segir að
Rússland og nálæg lönd séu stór
markaður fyrir Actavis eða um
fimmtán prósent af heildarsölu
samstæðunnar. Vörur Actavis á
svæðinu hafi nær eingöngu verið
framleiddar í Búlgaríu hingað til og
því marki útflutningurinn nú viss
tímamót fyrir Actavis í Rússlandi.
Nýrri lyf sem væntanlega
skila hærri framlegð
Jónas Tryggvason, framkvæmda-
stjóra Actavis í Moskvu, telur þenn-
an útflutning mikilvægan fyrir fé-
lagið þar sem það selji nú nýrri lyf
á markaðnum sem búast megi við
að skili meiri framlegð. Markaður-
inn sé jafnframt að breytast, krafa
sé um nýrri lyf og samsetning lyfja-
úrvals sé önnur. „Þar nýtist vel
styrkur samstæðunnar í formi öfl-
ugrar þróunarvinnu og breiðs vöru-
úrvals. Þá er Rússlandsmarkaður
sá markaður sem spáð er næst-
mestum vexti í heiminum á næstu
árum fyrir utan Kína og því góð
tækifæri þar fyrir Actavis,“ segir
Jónas. Á þessu ári er búist við að
framleidd verði fleiri lyf á Íslandi
og markaðssett í Rússlandi, m.a.
Cetrizin, Fosinopril, Risperidon og
Citalopram en sendingin nú er sú
fyrsta af þremur, sem ráðgerðar
eru á þessu ári.
Um 200 manns starfa hjá Actavis
í Rússlandi og nálægum löndum.
Starfseminni er stýrt frá Moskvu
en fimm skrifstofur eru á svæðinu, í
Moskvu, Minsk í Hvíta-Rússlandi,
Kíev í Úkraínu, Almata í Kasakstan
og Tbilisi í Georgíu. Á síðasta ári
var heildarsala Actavis á þessum
markaði um 68 milljónir evra, jafn-
gildi um 5,3 milljarða íslenskra
króna.
Actavis framleiðir lyf
fyrir Rússlandsmarkað
Á leið til Rússlands Actavis á Íslandi sendir um tvær milljónir taflna af
hjartalyfinu Lisinopril sem fékkst skráð í Rússlandi í janúar.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Flaga hækkaði um 4,6%
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands námu
í gær 9.298 milljónum króna, mest
með hlutabréf eða fyrir 7.348 milljónir
en næstmest með íbúðabréf eða fyrir
1.597 milljónir. Mestu hlutabréfa-
viðskipti voru með bréf Samherja eða
fyrir um 4.573 milljónir króna og
hækkaði gengi þeirra um 0,4%.
Mesta hækkun dagsins varð á bréf-
um Flögu Group eða 4,6%. Bréf Mar-
el og Og fjarskipta lækkuðu hins-
vegar mest eða um 1,2%.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
David Baker
ráðinn
forstjóri
Medcare
FLAGA GROUP hefur ráðið Bret-
ann David Baker sem forstjóra
Medcare og mun hann bera ábyrgð
á stefnu, rekstri og
afkomu Medcare
en félagið er leið-
andi í sölu lausna
til svefnmælinga
um allan heim.
Í tilkynningu í
Kauphöllinni kem-
ur fram að ráðning
David Baker komi í
framhaldi af nýlegri skipulags-
breytingu þar sem nafni félagsins
hafi verið breytt í Flaga Group, sem
rekur tvær aðskildar rekstrarein-
ingar, Medcare sem sérhæfir sig í
tækjum og búnaði til svefnmælinga
og SleepTech sem rekur svefnmæl-
ingastofur í New York og nærliggj-
andi ríkjum Bandaríkjanna.
David Baker hefur yfir 20 ára
reynslu af stjórnunarstörfum, þar
af tíu ár á svefnmarkaðinum. Hann
var einn af stofnendum Sandman
árið 1992 og stýrði uppbyggingu
fyrirtækisins sem nú er hluti af
Tyco Healthcare samsteypunni.
David var forstjóri Sandman þar til
það var selt árið 1995 og fram-
kvæmdastjóri félagsins til ársins
2003 þegar hann tók við starfi að-
stoðarforstjóra hjá Phoenix Sleep,
sem rekur svefnmælingastofur í
tveimur fylkjum í Bandaríkjunum.
Sparisjóður
Norðlend-
inga hagn-
ast um 126
milljónir
HAGNAÐUR af starfsemi Spari-
sjóðs Norðlendinga nam rúmlega
126 milljónum króna á síðasta ári
en var tæplega 58 milljónir króna
árið á undan.
Bókfært eigið fé Sparisjóðs
Norðlendinga í lok árs 2004 nam
594 milljónum króna. Eiginfjár-
hlutfall sparisjóðsins var 11,6% í
árslok. Skuldir og eigið fé námu
samtals rúmum 5,9 milljörðum
króna í árslok 2004, samanborið við
ríflega 4,6 milljarða árið áður, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Útlánin 4,2 milljarðar
Útlán í árslok 2004 námu tæpum
4,2 milljörðum króna og hækkuðu
um rúman milljarð króna á milli
ára. Skuldabréfalán voru þar fyr-
irferðarmest, eða tæplega 2,9 millj-
arðar króna, en yfirdráttarlán
námu rúmum 1,2 milljörðum króna.
Um 77% af útlánum sparisjóðsins
eru til einstaklinga. Innlán námu í
árslok tæpum 4 milljörðum króna
og hækkuðu um 496 milljónir
króna milli ára. Vaxtatekjur námu
tæpum 519 milljónum króna og
vaxtagjöld tæpum 211 milljónum.
Aðrar rekstrartekjur námu tæpum
445 milljónum og önnur rekstrar-
gjöld tæpum 230 milljónum króna.
Framlag í afskriftareikning útlána
var 58 milljónir króna.
Stofnfé sparisjóðsins nam í árs-
lok fjórum milljónum króna og
skiptist það í 100 hluti sem eru í
eigu 87 aðila. Stjórn sjóðsins legg-
ur til að greiddur verði 22,2% arð-
ur til stofnfjáraðila á árinu 2005
vegna ársins 2004 og hann færður
til hækkunar á stofnfé.
Ávöxtun Frjálsa
umfram væntingar
● ÁVÖXTUN Frjálsa lífeyrissjóðsins
var umfram væntingar á síðasta ári.
Í fréttatilkynningu frá sjóðnum kemur
fram að ávöxtun hinna þriggja fjár-
festingarleiða sjóðsins var 13,8%
(Frjálsi 1), 14,6% (Frjálsi 2) og
10,3% (Frjálsi 3). Eignir sjóðsins um-
fram áfallnar skuldbindingar voru
19,4% og eignir umfram heild-
arskuldbindingar voru 3,6% þrátt fyr-
ir að nýjar töflur um auknar lífslíkur
auki skuldbindingar sjóðsins.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam
í lok árs 35,7 milljörðum og jókst um
9,8 milljarða á milli ára, eða um
38%. Þar af var ávöxtun ársins rúmir
4 milljarðar.
!"#
!"#"$
% "&' (&
)* &# +&(&
)#&
,&' (& % "&'
-$"
.# /
01$/ 01 !/ $ &#(
2
! 1 % "&'
3 &'
31 /&
4(&
,56& /7 &&
89$/
0%!
0" :"# 0"&'
0"1 ;
<;##  &
= && " &
>17 11 ?06($#
!
(
! $"' @;// ,&' 51 % "&' <6 6
" #$
AB@C
05
$
?
?
?
?
?
?
?
?
$; &#
; $
? ? ? ? ? ?
? ?
?
?
?
? ?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
D ? EF
D ?EF
D ?EF
D ? EF
D EF
D ? EF
D
EF
D EF
?
D EF
D ?EF
D ?EF
D EF
D EF
D EF
?
?
?
D ?EF
?
?
D EF
?
D EF
?
?
?
?
?
?
?
?
3$ "'
'# &
< "( 5 " '# G
) 0"
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
= 5 *+
<3 H #&" !/"'
?
?
?
?
?
?
?
<3? I 1 1 " "/ <3? 0;"' " "$##/ 1 ; "( $ & <3? = ; 1 / 1#&& :"#
Veltan á fast-
eignamarkaði
ekki að minnka
ENGIN merki eru um að velta á
fasteignamarkaði sé að dragast sam-
an ef marka má veltutölur frá Fast-
eignamati ríkisins að því er segir í
Hálffimm fréttum Kaupþings banka.
Þar kemur fram að veltan síðustu
tvær vikur hafi verið með minna
móti vegna páskafría en þvert á það
sem haldið hafi verið fram hafi velt-
an verið með ágætasta móti þegar
leiðrétt sé fyrir fjölda virkra daga.
„Veltan var um einn milljarður á dag
þessar tvær vikur og var veltan því
nær sú sama og vikurnar á undan. Í
raun er um 18% veltuaukning miðað
við 12 vikna meðaltal og er velta á
fasteignamarkaði nú um 62% meiri
en á sama tíma og í fyrra,“ segir í
fréttinni.
Þá er á það bent að fjöldi kaup-
samninga hafi einnig verið svipaður,
síðustu tvær vikur hafi milli 40 og 45
samningar verið samþykktir á dag
sem sé það sama og 12 vikna með-
altal. „Það er því vandséð út frá
veltutölum að eitthvað sé að róast á
fasteignamarkaði. Ætla mætti þó að
heldur hefði hægt á verðhækkunum
en hækkanir á fasteignaverði eru
langt komnar með að vega upp lægri
fjármagnskostnað,“ segir í Hálffimm
fréttum Kaupþings banka.
8 'J
0KL E
E
!<0@
MN
E
E
BB .-N
E
E
)!N
8 $
E
E
AB@N MO 4&$
E
E