Morgunblaðið - 06.04.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.04.2005, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FORYSTUMENN stærstu stjórn- málaflokkanna í Bretlandi hófu í gær fjögurra vikna kosningabaráttu eftir að Tony Blair forsætisráðherra til- kynnti að þingkosningar ættu að fara fram fimmtudaginn 5. maí. Blair von- ast til þess að verða fyrsti leiðtogi Verkamannaflokksins til að gegna embætti forsætisráðherra þrjú kjör- tímabil í röð. Nýlegar skoðanakann- anir benda þó til þess að þingkosning- arnar verði hinar tvísýnustu í Bretlandi frá 1992. Verkamannaflokkurinn er talinn sigurstranglegur í kosningunum þrátt fyrir mikla andstöðu meðal Breta við þá ákvörðun Blairs að senda breska hermenn til Íraks. Forystumenn Verkamannaflokks- ins ætla að leggja áherslu á innanrík- ismál í kosningabaráttunni, einkum efnahags-, heilbrigðis- og menntamál. Þeir hafa lofað að styrkja frekar efna- haginn og bæta opinbera þjónustu. „Við ætlum að fylgja eftir þeim ár- angri sem við höfum þegar náð, flýta breytingunum og auka frekar tæki- færi bresku þjóðarinnar,“ sagði Blair. Lofa bættri þjónustu Michael Howard, leiðtogi Íhalds- flokksins, varaði hins vegar breska kjósendur við því að verðlauna Blair fyrir „svikin loforð“ og sagði að hon- um væri ekki treystandi. „Varist enn einar kosningarnar þar sem Blair segir eitt til að fá atkvæðin ykkar á kjördegi en gerir eitthvað allt annað seinna,“ sagði Howard. „Blair glottir nú þegar í laumi yfir líkunum á þriðja sigrinum. Þið þurfið ekki að gera ykk- ur það að góðu.“ Forystumenn Íhaldsflokksins hafa lofað að lækka skatta og bæta opin- bera þjónustu, segjast ætla að efla lögregluna og stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda. How- ard sakar Blair um að hafa sólundað fjármunum í skriffinnsku og segir að hægt sé að lækka skatta með því að stöðva sóunina. Frjálslyndir demókratar hafa lagt áherslu á þá tillögu sína að hækka skatta á þá sem hafa hæstar tekjur til að bæta opinberu þjónustuna, auk þess sem þeir vilja breyta lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Flokkurinn var andvígur innrásinni í Írak og hyggst kalla breska herliðið þar heim komist hann til valda. Charles Kennedy, leiðtogi flokks- ins, kvaðst í gær ætla að svara „hræðsluáróðri“ hinna flokkanna með því að beina athyglinni að „vonum bresku þjóðarinnar, í stað þess að kynda undir ótta fólks“. Nokkrar skoðanakannanir, sem birtar voru í gær, benda til þess að Íhaldsflokkurinn hafi saxað á forskot Verkamannaflokksins og að það sé nú aðeins um tvö til fimm prósentustig. Munurinn á fylgi flokkanna tveggja er innan skekkjumarka í sumum þessara kannana, þannig að segja má að þeir standi nú jafnir að vígi. Sér- fræðingar í breskum stjórnmálum segja þó að Íhaldsflokkurinn þurfi að fá talsvert meira kjörfylgi en Verka- mannaflokkurinn til að komast til valda þar sem kjördæmaskiptingin sé síðarnefnda flokknum hagstæð. Óttast litla kjörsókn Verkamannaflokkurinn er nú með 410 þingsæti af 659 og 161 fleiri en all- ir hinir flokkarnir samtals. Stjórnar- flokkurinn fengi um 80–100 sæta meirihluta ef úrslitin yrðu í samræmi við síðustu kannanir. Kjörsóknin var aðeins 59,4% í síð- ustu þingkosningum í Bretlandi árið 2001 og hafði aldrei verið jafnlítil. Forystumenn Verkamannaflokksins óttast að kjörsóknin verði enn minni í kosningunum í maí og að margir stuðningsmenn flokksins mæti ekki á kjörstað, annaðhvort vegna þess að þeir telji ekki þingmeirihlutann í hættu eða vegna óánægju með stjórn- ina og innrásina í Írak. Skoðanakönnun, sem Financial Times birti í gær, bendir til að þessar áhyggjur séu ekki ástæðulausar. Könnunin náði aðeins til þeirra sem sögðust „alveg örugglega“ mæta á kjörstað og 39% þeirra sögðust ætla að kjósa Íhaldsflokkinn. Aðeins 34% hugðust kjósa Verkamannaflokkinn. Forystumenn Verkamannaflokks- ins sögðust í gær ekki hafa miklar áhyggjur af niðurstöðum þessara kannana og sögðu að auðveldara yrði að fá óánægða stuðningsmenn flokks- ins til að mæta á kjörstað ef kosning- arnar yrðu tvísýnar og ljóst væri að kjörsóknin gæti ráðið úrslitum. Þeir vöruðu andstæðinga Íraksstríðins í Verkamannaflokknum við því að Michael Howard gæti komist „inn um bakdyrnar“ á Downing-stræti 10 ef þeir mættu ekki á kjörstað eða kysu Frjálslynda demókrata. Vantrúaðir á loforð Íhaldsflokksins Samkvæmt könnun, sem The In- dependent birti í gær, eru breskir kjósendur enn tortryggnir á að Íhaldsflokkurinn geti staðið við það loforð að lækka skattana án þess að skerða þjónustu sjúkrahúsa og skóla. Aðeins 41% taldi að hægt væri að gera hvort tveggja og 52% sögðu að það væri ekki hægt. Þó hefur dregið úr þessari tor- tryggni því að í samskonar könnun í nóvember töldu 58% að ekki væri hægt að lækka skatta án þess að skerða þjónustuna en 37% sögðu það gerlegt. Verkamannaflokkurinn getur ekki einblínt á Íhaldsflokkinn í kosninga- baráttunni þar sem Frjálslyndir demókratar hafa einnig sótt í sig veðrið að undanförnu. Kannanir benda til þess að fylgisaukning Frjálslyndra demókrata hafi að mestu verið á kostnað Verkamanna- flokksins. Það gæti því verið helsta verkefni Blairs í kosningabaráttunni að koma í veg fyrir að óánægðir stuðningsmenn Verkamannaflokks- ins snúist á sveif með Frjálslyndum demókrötum sem sjá mörg sóknar- færi, einkum í borgunum. Blair stendur frammi fyrir tvísýnni baráttu Stjórnarand- staðan sækir í sig veðrið fyrir kosn- ingarnar 5. maí Charles Kennedy, leiðtogi Frjáls- lyndra demókrata, hóf kosninga- baráttuna í Newcastle. Michael Howard, leiðtogi Íhalds- flokksins, flytur ræðu á kosninga- fundi í Birmingham í gær. AP Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tekur mynd af sér með farsíma fyrir framan börn í siglingaskóla nálægt Weymouth á Englandi í gær. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Róm. AFP, AP. | Stjórnarflokkarnir á Ítalíu guldu afhroð í héraðskosning- um sem fram fóru í landinu á sunnu- dag og mánudag en niðurstaða kosn- inganna varð ljós í gær. Leiðtogar samstarfsflokka Forza Italia, flokks Silvios Berlusconis forsætisráðherra, voru fljótir að kenna honum um nið- urstöðuna en kosningarnar eru mik- ilvægar sökum þess að þær gefa vís- bendingu um afstöðu kjósenda í aðdraganda þingkosninga sem eiga að fara fram á Ítalíu á næsta ári. Kosið var um héraðsstjórnir í þrettán af tuttugu héruðum. Stjórn- arflokkarnir unnu aðeins sigur í tveimur héruðum, misstu völdin í sex af þeim átta héruðum sem þeir áður réðu ríkjum í. Ráða stjórnarflokkar nú aðeins í tveimur héruðum af þeim þrettán, sem kosið var í. Þegar á heildina er litið fengu stjórnarflokkarnir aðeins 45,1% at- kvæða, mið- og vinstriflokkarnir fengu hins vegar 52,9%. „Með þess- um kosningum eru Ítalir að fara fram á það við okkur að við búum okkur undir að stýra landinu,“ sagði Rom- ano Prodi, fyrrverandi forsætisráð- herra Ítalíu, sigurreifur. Hann er nú leiðtogi ítölsku stjórnarandstöðunnar eftir að hafa um skeið gegnt embætti forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins. Skýr skilaboð kjósenda Forza Italia, flokkur Berlusconis, fékk aðeins 18,4% atkvæða í kosning- unum. „Niðurstaða héraðskosning- anna er viðvörunarmerki, skýr og eindregin skilaboð frá kjósendum,“ sagði Gianfranco Fini, utanríkisráð- herra Ítalíu og leiðtogi Þjóðfylking- arinnar, arftaka gamla fasistaflokks- ins, sem er næststærsti flokkurinn í fjögurra flokka stjórn Berlusconis. „Ríkisstjórnin hefur veikst,“ sagði Fini. „Það þýðir ekki að hún þurfi að víkja en stjórnarmeirihlutinn þarf hins vegar að setjast niður og ræða málin, leita skýringa á þessum ósigri.“ Gagnrýndi Fini Berlusconi fyrir að hafa í kosningabaráttu Forza Italia reynt að útmála vinstriflokkana sem kommúnista sem ógnuðu landi og þjóð. Hræðsluáróður væri ekki væn- legur til að stuðla að sigri yfir mið- og vinstriflokkunum í þingkosningunum á næsta ári. Mun Berlusconi hafa vísað til fyrri kommúnistastjórna á Ítalíu og sagt að ef mið- og vinstriflokkarnir kæm- ust til valda þá myndi það færa Ítöl- um „eymd, hryðjuverk og dauða“. Neyddist Berlusconi til að draga þessi ummæli sín til baka. Flokkur Finis missti völdin í Róm- ar-héraði, sem ekki tekur til höfuð- borgarinnar sjálfrar en telst samt mjög mikilvægt, og Francesco Stor- ace, leiðtogi flokksins þar, lýsti úrslit- unum sem „stórslátrun“. Og Marco Follini, leiðtogi Kristilega lýðræðis- bandalagsins, þriðja stjórnarflokks- ins, tók undir gagnrýni Finis, sagði úrslitin algert afhroð og að stjórnar- flokkarnir þyrftu að leggjast undir feld eftir þessar kosningar. „Stórslátrun“ á Ítalíu Stjórnarflokk- arnir guldu al- gert afhroð í hér- aðskosningum AP Romano Prodi, leiðtogi ítölsku stjórnarandstöðunnar (til hægri), fagnar sigri í kosningunum ásamt Piero Marazzo, frambjóðanda í Lazio-héraði. Santa Maria. AFP. | Hagur Mich- aels Jacksons í réttarhöldum sem nú fara fram í Kaliforníu í Bandaríkjunum þykir hafa versnað eftir vitnisburð 24 ára gamals manns sem heldur því fram að tónlistarmaðurinn hafi snert á honum kynfærin með ósæmilegum hætti þegar hann var barn. Jackson er sakaður um að hafa misnotað þrettán ára gamlan dreng kynferðislega. Fréttaskýr- endur segja að það hafi verið mikið áfall fyr- ir vörnina er dómarinn í málinu úrskurðaði að saksóknarar mættu kalla til vitnis aðila að fyrri málum á hendur Jackson. Verjendur hafa byggt mála- tilbúnað sinn á því að ákærandi Jacksons í réttarhöldunum væri lygari, peð í refskák móður sem hefði það að markmiði að kúga fé út úr frægum tónlistarmanni. Takist saksóknurum hins vegar að sýna fram á, með því að kalla til vitnis aðra unga drengi sem bera fram svipaðar ásakanir á hendur söngv- aranum, að Jackson hafi „til- hneigingu“ til ósæmilegrar framkomu gagnvart ungum börnum er talið líklegt að kvið- dómur sakfelli hann. Maðurinn sem bar vitni í fyrrakvöld heitir Jason Francia og er sonur fyrrverandi þjón- ustustúlku á heimili Jacksons. Fullyrti hann að Jackson hefði í þrígang snert á honum kynfær- in. Fyrst hefði þetta gerst þegar Francia var sjö eða átta ára gamall en síðast er hann var orðinn tíu ára. Verjendur Jacksons bentu á að Francia hefði neitað því 1993, þegar lögregla spurði hann spurninga, að Jackson hefði leit- að á hann. En hann svaraði því til að hann hefði verið hræddur við að viðurkenna sannleikann og að hann skammaðist sín enn fyrir það sem gerst hefði; þrátt fyrir að hafa í fimm ár gengið til sálfræðings. Mál Francia fór aldrei fyrir dómara því að fjöl- skylda hans samdi um málið við lögmenn Jacksons sem greiddi henni tvær milljónir dollara. Skaðlegur vitnisburð- ur í máli Jacksons Michael Jackson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.