Morgunblaðið - 08.04.2005, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Leikstjórinn Ólafur Jóhann-esson ætlar að leiða leik-arana Eggert Þorleifssonog Ladda saman í kvik-
myndinni Minningar Hringfara.
„Ég líki þessu við þegar Robert De
Niro og Al Pacino léku saman í
myndinni Heat en að færa saman
Eggert Þorleifsson og Ladda er
slíkur stórviðburður. Þessir tveir
hafa aldrei verið saman í aðalrullum
kvikmyndar, þannig að mér fannst
það bara sjálfgefið að setja tvo bestu
gamanleikara okkar í þessi skrýtnu
hlutverk,“ segir Ólafur en hann og
fyrirtæki hans Poppoli gerðu nú síð-
ast heimildarmyndina Blindsker um
Bubba Morthens og hrepptu Eddu-
verðlaun fyrir.
Myndina vinnur hann með „kvik-
myndabróður sínum Ragnari Sant-
os“, sem kvikmyndar ásamt því að
framleiða. Úlfur Grönvold er síðan
aðalframleiðandi verkefnisins. „Aðr-
ar stöður erum við að manna, ég er
að skapa kvikmyndateymi sem ég
get búið að næstu árin og framleitt
með myndir reglulega.“
Minningar Hringfara er gerð eftir
bókinni Diary of a Circledrawer.
„Vinur minn Stefan Schaefer sem
býr í New York rakst á þessa bók
sem reyndist vera eftir íslenskan
mann, Jósep Guðmundsson. Ég fór
að leita að þessum Jósep en það var
eins og tilvist hans hefði ekki verið
skráð svona almennt. Ég hætti því
að leita en ákvað að byrja skrifa
handrit eftir bókinni, sem er skrifuð
í minningarformi,“ segir hann en
leitin bar árangur að lokum.
Ólafur komst í samband við Jósep
í gegnum vin sinn og fékk leyfi til að
gera mynd eftir bókinni. „Eina skil-
yrðið sem hann setti var að fá að
mæta á frumsýningu myndarinnar
þegar hún verður tilbúin. Þessi Jós-
ep þykir afar sérlundaður en hann
býr í sveitsetri á meginlandi Evr-
ópu. Hinsvegar er það reynsla mín
að sérlundað fólk er yfirleitt mun
heilbrigðara en við hin,“ segir Ólaf-
ur.
Samvinna vestur um haf
„Það tók um þrjá mánuði að
skrifa handritið, eða fyrsta uppkast
en fyrrnefndur Stefan Schaefer
skrifar það með mér, enda átti hann
upptökin að þessu. Stefan þessi er
kvikmyndagerðarmaður og var að
klára sína fyrstu mynd í New York í
fyrra og ætlum við að taka höndum
saman við framleiðslu myndarinnar.
Hann er að ljúka við handrit fyrir
Shirley MacLaine, klárar það á
næstu vikum og þá munum við hitt-
ast og gera lokaútgáfu af Minning-
um Hringfara.“
Framleiðslan teygir anga sína enn
frekar til New York. „Það var í síð-
asta mánuði að ég sendi grófklipp að
næstu mynd minni Africa United,
sem fjallar um afrískt knattspyrnu-
lið hérna á fróni, til ýmissa framleið-
enda hér og hvar í heiminum að ég
komst í samband við framleiðslu-
fyrirtæki í New York sem vildi fá
eitthvað efni frá mér. Ég sendi þeim
nokkrar hugmyndir en Minningar
Hringfara virtist vera það sem þeir
voru að leita að. Myndin gerist að
einum þriðja í New York og restin
hér á Íslandi og því þurfti ég að fjár-
magna íslenska hlutann. Það hefur
tekist, á mettíma með hjálp fólks
sem hefur stutt mig með ráðum og
dáð í gegnum tíðina,“ segir Ólafur
ánægður.
Hver er þessi Jósep?
Sagan er áhugaverð og berst víða.
„Myndin fjallar um Jósep Guð-
mundsson (Eggert Þorleifsson) sem
er hamingjusamur sjálfselskur hálf-
viti. Hann nýtur mikillar velgengni í
starfi og einkalífi. Hann starfar sem
hugmyndasmiður á stórri íslenskri
auglýsingastofu, spilar veggtennis
með strákunum, á þrjú viðhöld,
bestu græjurnar, fallegasta bílinn,
lifir háu lífi sem ber við hrokafullan
himin. Allt hverfur þetta á ljóð-
rænan hátt þegar Jósep fær blóð-
tappa og lamast á vinstri hluta lík-
amans,“ segir Ólafur og er þráður-
inn tekinn upp á ný tveimur árum
síðar.
„Jósep er einmana þunglyndis-
sjúklingur með drykkju- og lottó-
spilunaráráttu. Viðhöldin, pening-
arnir og plastvinirnir hafa yfirgefið
hann og starfið hangir á meðvork-
unn yfirmanna. Miður árangurs-
ríkar tilraunir til að taka upp fyrra
líferni gera lítið annað en að auka
sjálfsvorkunnina. Jósepi er sagt upp
í vinnunni, sem verður til þess að
hann ákveður að enda líf sitt. Það
mistekst og þá kemur til sögunnar
geðlæknirinn Ásgeir Hallgrímsson
(Laddi), sá besti á landinu, sem á að
lækna þetta viðrini sem Jósep er
orðinn,“ segir Ólafur en þessi hluti
myndarinnar gerist á Íslandi en
leikar berast svo vestur um haf.
Súrrealískur undirtónn
„Það sem gerist svo í New York
er að þegar Jósep reynir að fremja
sjálfsmorðið vaknar hann í einhverri
íbúð í Stóra eplinu. Þar er honum
sagt að það eigi að þjálfa hann upp í
starf Hringfara, sem er að hjálpa
látnu fólki að loka opnum endum úr
lífsgöngunni. Látnir einstaklingar
geta fengið líkama hans lánaðan til
að ljúka við allt frá erfðaskrám eða
gefa síðasta kossinn til ástvina,“
segir Ólafur, þannig að Jósep er
ekki allur þar sem hann er séður.
„Þetta gerist á sama tíma og Jós-
ep er staddur á geðsjúkrahúsi á Ís-
landi, þannig að annars vegar er
hann geðsjúklingur, og hins vegar
er hann Hringfari í New York í
sama tíma og veruleika. Hasarinn
hefst svo þegar Ásgeir, geðlækn-
irinn hans Jóseps, sér sjúklingi sín-
um bregða fyrir í fréttapistli Sjón-
varpsins frá New York.“
Má því segja að það sé súrrealísk-
ur undirtónn í myndinni og segir
Ólafur að það sé nokkuð sem hafi
alltaf heillað hann. „Vitaskuld
heillar það alltaf. Áhorfendur eru
löngu orðnir meðvitaðir um hinar
hefðbundnu Hollívúdd-formúlur. Ég
hef alltaf verið áhugamaður um hluti
sem eru öðruvísi í okkar hversdags-
leika, þessir hlutir sem eru svo
skrýtnir, en samt svo eðlilegir að við
sjáum þá ekki,“ segir Ólafur og bæt-
ir við að það standist ekki alltaf allt í
lífinu sem okkur hefur verið kennt.
„Þrátt fyrir það reynum við ávallt að
troða okkur inn í venjulega veru-
leikann og út kemur einhver afsköp-
unarbrenglun. Það er því bráðnauð-
synlegt að beina athyglinni að
skekkjunni, fremur en beinni línu
hins svokallaða veruleika.“
Óhátíðleikinn og Soderbergh
Minningar Hringfara er því í ætt
við mynd eins og Being John Malko-
vich eftir Spike Jonze og berst talið
að starfandi kvikmyndagerðar-
mönnum heima og erlendis.
„Mér finnst margir góðir en fleiri
misgóðir. Af íslenskum eru það
Dagur Kári, Baltasar og Óskar Jón-
asson sem eru á fremsta bekk. Af
erlendum þá tek ég mér Steven
Soderbergh til fyrirmyndar, bæði
vegna þess að hann er afkastamikill
og þorir að leika sér með formið.
Hann tekur formið ekki of hátíðlega,
sem er stefna sem ég hef tileinkað
mér, að taka ekki nokkurn hlut há-
tíðlega.“
Tökur á Minningum Hringfara
hefjast á þessu ári. „Tökur á mynd-
inni verða í október og nóvember á
þessu ári hér á Íslandi, svo förum
við til New York í janúar á næsta ári
til að ljúka við herlegheitin. Hins-
vegar þarf fyrst að leggja lokahönd
á handritið og það gerum við í maí
þegar ég heimsæki Stefan. Það
verður gaman því ég hef aldrei kom-
ið til New York.“
Fótboltalið og búddamunkur
Þangað til er nóg að gera hjá Ólafi
við önnur verkefni. „Africa United
er að verða tilbúin. Hún verður
frumsýnd í Cannes, sem hljómar
vissulega afar vel og digurmanns-
lega, en hún er sýnd þar í ein-
hverjum litlum sal fyrir áhugasama
kaupendur,“ segir Ólafur en myndin
verður frumsýnd hérlendis 1. sept-
ember á þessu ári.
Ólafur er jafnframt að vinna að
klippingu á annarri mynd, sem ber
nafnið Fare Lonely as Rhinoceros
og er heimildarmynd um búdda-
munkinn Dhammando, sem hét áður
Robert T. Eddison.
„Titillinn kemur úr fornu ljóði um
líf munksins. Fílar ferðast í hjörð-
um, en nashyrningarnir eru ánægðir
einir. Þannig að titillinn gæti þýtt
einmana eins og nashyrningur, sem
lýsir munkalífinu ágætlega. Annars
er þýðandinn minn með þann haus-
verk á herðunum,“ segir hann en
báðar þessar myndir eru á ensku.
Til viðbótar er Ólafur að vinna að
Spaceman, kvikmynd byggðri á bók
Þorvaldar Þorsteinssonar, Við fót-
skör meistarans. „Það átti að vera
fyrsta myndin, hún hefur bara vaxið
svo mikið að ég vil byrja á Hringfar-
anum áður ég fer í það.“
Kvikmyndir | Ólafur Jóhannesson leiðir saman Eggert Þorleifsson og Ladda í væntanlegri mynd
Athyglinni beint
að skekkjunni
Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður tekur hlutina ekki of
hátíðlega. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við hann um nýjasta
verkefnið hans, mynd sem gerist bæði á Íslandi og í New York.
www.poppoli.com
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson lætur fátt mannlegt sér
óviðkomandi en hann er með myndir um búddamunk, afrískt fótboltalið
á Íslandi og súrrealíska sögu af Jósep í gangi.