Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 12

Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Leiðsögukort í bílinn Bílar á morgun Ratað um landið með GSP - tækjum BÁTASMIÐJAN Seigla hef- ur afhent nýjan bát til Borgarfjarðar eystra. Það er Glettingur NS, sem er nýsmíði númer 21 hjá Seiglu ehf. Hann er 14,9 brúttótonn, 11,6 metra langur og 3,6 metra breið- ur. Í bátnum er 650 hest- afla Volvo-aðalvél og er mesti ganghraði 30 sjómíl- ur á klukkustund. Lestin tekur tólf 660 lítra fiski- kör. Í lúkar er góð aðstaða fyrir þrjá menn. Hann er búinn ísskáp, örbylgjuofni, keramikhelluborði og sjón- varpi. Í stýrishúsi eru tæk- in frá R.Sigmundssyni en sjálfstýringin er frá Elcon. Kaupandi er Kári Borgar ehf. og verður báturinn gerður út frá Borgarfirði eystra í krókaaflamarki og á grásleppu. Í bátnum er nýjung í raf- kerfum fyrir báta. „Sameiginleg hönnun JLH Rafmagn ehf. og Raf- nesti ehf. í samvinnu við Seiglu ehf. á rafkerfum fyrir báta er nýjung í hönnun rafkerfa á þessu sviði sem byggð er á iðn- tölvukerfi tengt skjákerfi sem er forritað eftir þörf- um hverju sinni og einfald- ar mjög allar lagnir. Hönn- unin gerir einnig hefðbundnar lagnir milli stýrishúss og vélar að mestu óþarfar. Kerfinu má stýra hvort sem er frá stýr- ishúsi með snertiskjá, frá vélarúmi með 12 rofa for- ritanlegu rofaborði eða frá dekki, með 3ja rofa forrit- anlegu rofaborði. Í kerfinu er sjálfvirkt viðvör- unarkerfi fyrir bruna og sjó og býður upp á sjálf- virka lensivöktun. Allar breytingar á kerf- inu eru mjög auðveldar þar sem þeim er stýrt í gegn um tölvu. Kerfið hefur verið tekið út og er samþykkt af Sigl- ingastofnun Íslands,“ segir í frétt frá Seiglu. Nýr bátur á Borgarfjörð eystra Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson ÁRNI M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra skoðaði Evrópu- sjávarútvegssýninguna í Brussel í gær og kom að sjálf- sögðu við í básum íslenzku fyr- irtækjanna, sem eru fjölmenn að vanda. Árni segir það ljóst að sýningin hafi aldrei verið jafn stór og í ár og sömuleiðis hafi Íslendingar aldrei verið jafn umsvifamiklir á svæðinu og nú. Þannig séu hátt í 100 starfsmenn frá Marel á sýn- ingunni. Einnig séu bankar og flutningafyrirtæki meira áber- andi en áður. Árni segir bása íslenzku fyrirtækjanna vera til fyrirmyndar í alla staði og framleiðsla þeirra og þjónusta veki mikla athygli. Hundruð gesta komu á kynningarbás HB Granda á fyrsta degi sjávarútvegssýn- ingarinnar. Starfsfólk HB Granda hefur tekið á móti fjölda áhugasamra kaupenda á sýningunni og kynnt fyrir þeim afurðir fyrirtækisins. Gert hefur verið kynningarefni fyrir félagið og vörur þess og hannaðar umbúðir undir eigin merkjum. „Í markaðsstarfi HB Granda er lögð áherzla á að vera í nánu sambandi við þá kaupendur sem eru nálægt hinum endanlegu neytendum og geta unnið með fyrirtækinu að því að uppfylla kröfur þeirra,“ segir í frétt frá Granda. Sýningunni í Brussel lýkur í dag. Mikil íslensk umsvif í Brussel Sýningar Ingólfur Árnason frá Skaganum á Akranesi sýnir Árna M. Matiesen sjávarútvegsráðherra hvernig vél frá fyr- irtækinu bæði sker fiskflök í bita og hreinsar úr þeim beinin. ÚR VERINU SÓLVEIG Pétursdóttir, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, tók þátt í umræðum um orkumál á aprílfundi Evrópuráðsþingsins sl. þriðjudag. Sagði hún að m.a. í ræðu sinni að ábyrg nýting auðlinda væri forsenda hagsældar, velferðar og ör- yggis. Greindi Sólveig frá frumkvæði Ís- lendinga og samstarfsaðila þeirra á sviði vetnisframleiðslu. Í vetnissam- félagi framtíðarinnar lægju miklir möguleikar til hagsbóta fyrir kom- andi kynslóðir. Sagði Sólveig að ár- angur Íslands væri til marks um að allar þjóðir, stórar sem smáar, gætu lagt sitt af mörkum til að leysa úr að- steðjandi vanda á sviði orkumála, með samstarfi aðila á sviði vísinda, viðskipta og stjórnmála. Sólveig tók einnig þátt í umræðum sem fram fóru á þinginu um kjarn- orkuáætlanir Írana og viðbrögð al- þjóðasamfélagsins. Í ræðu sinni sagði Sólveig m.a. að stjórnvöld í Ír- an hefðu sýnt það á undanförnum árum að þau hik- uðu ekki við að fara á svig við al- þjóðlegar skuld- bindingar sínar á sviði kjarnorku- mála. Fagnaði hún tilraunum Frakklands, Þýska- lands og Bretlands til að fá Írana að samningaborðinu og jafnframt ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að styðja frumkvæðið. Sagði Sólveig menn vonast til að Íranar bættu ráð sitt. Hins vegar væri rétt að minna á að utanríkisstefna klerkastjórnarinn- ar í Teheran væri í algerri andstöðu við Evró-Atlantshafsríki og að hún hefði til þessa notað vægast sagt mis- jafnar aðferðir til að verja málstað sinn. Minnti hún á að Íranar hefðu lengi leitast við að valda óstöðugleika í mörgum ríkjum Mið-Austurlanda og að stjórnvöld í Íran styddi leynt og ljóst hryðjuverk sem spilltu fyrir frið- arferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá yrðu menn einnig að muna að Ír- anar hefðu staðið á bak við hryðju- verk sem beindust að Bandaríkjun- um í Sádi-Arabíu á síðasta áratug. Auk þess hefðu Íranar reynt ítrekað að valda uppþotum í Írak. Í ræðu sinni sagði Sólveig að nú væri ef til vill tækifæri til að ná samkomulagi við Írana. Stjórnmálaástandið í land- inu og efnahagslífið væri þannig að tækifæri til samninga gætu verið í sjónmáli. Vesturlönd ættu að einbeita sér að því að nota efnahagsmátt sinn til að styðja við bakið á umbótaöflum í Íran. Þannig gætu aukin viðskipti og erlendar fjárfestingar, sem eru af af- ar skornum skammti, dregið úr sókn Írana í gereyðingarvopn. Sólveig Pétursdóttir við umræður á þingi Evrópuráðsins Sólveig Pétursdóttir Ábyrg nýting auðlinda forsenda hagsældar SAMTÖK atvinnulífsins halda því fram að lög um siglingavernd, sem sett voru á síðasta ári, hafi í för með sér kostnað sem er nálægt 500 millj- ónum króna á ári, að mati Samtaka atvinnulífsins. Í umfjöllun SA um lögin kemur fram að neytendur greiði þennan kostnað í hærra vöru- verði og að einhverju leyti með hærri opinberum gjöldum. Hins vegar sé ávinningurinn lítt sýni- legur. Lögin hafa að markmiði að tryggja vernd skipa, áhafna, far- þega, farms og hafnaraðstöðu fyrir hvers kyns ógn af hryðjuverkum og öðrum ólögmætum aðgerðum Samtökin studdu frumvarpið á sínum tíma en í umfjöllun SA um lögin kemur fram að sá stuðningur hafi byggst á því að kostnaði og um- stangi yrði haldið í lágmarki. Nú hafi borist ábendingar og kvartanir um það frá félagsmönnum SA að kostnaðurinn sem þessu fylgi sé mjög mikill og að reglur séu mun strangari hér en í nálægum löndum. 500 milljóna kostnaður vegna siglingaverndar Í SVÖRUM við fyrirspurnum Morg- unblaðsins frá einum aðstandenda vefsíðunnar savingiceland.org í Bret- landi kemur fram að mikill áhugi sé fyrir því á Íslandi að taka þátt í mót- mælendabúðum sem á að slá upp við Kárahnjúkavirkjun í sumar. „Við finnum fyrir samstöðu og eld- móði fólks alls staðar í heiminum en þó sér í lagi frá Íslandi,“ segir í svör- unum, sem merkt eru JM og stendur væntanlega fyrir þá Jenny Meltzer sem svaraði fyrstu fyrirspurnum blaðsins um þessar fyrirhuguðu mót- mælaaðgerðir. Ennfremur segir að aðgerðirnar séu skipulagðar af hópi fólks af ýmsu þjóðerni sem sé að svara kalli um hjálp frá Íslandi. Kannanir sýni að meira en helmingur þjóðarinnar sé andvígur Kárahnjúkavirkjun og bú- ast megi við að flestir þátttakendur í mótmælendabúðunum í sumar verði Íslendingar. Þegar nær dragi við- burðinum verði tengiliðir kynntir til sögunnar. Benda aðstandendur vefsíðunnar á að 29 breskir þingmenn hafi nýlega lýst stuðningi við þingsályktun- artillögu þess efnis að hvetja bresk stjórnvöld til að fá þau íslensku til að hætta við virkjunaráformin við Kára- hnjúka, svo vernda megi síðustu ósnortnu víðerni Evrópu. Kemur til- lagan frá þingkonunni Sue Doughty úr skuggaráðuneyti Frjálslynda demókrataflokksins í umhverf- ismálum. Mótmælendabúðir við Kárahnjúka Mikill áhugi á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.