Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ið sín í svo stórum stíl, svo mikil
vöxtum og ofhlaðin hljómflúri. Á
það t.d. við hið fallega „Mín móð-
ir“ sem virkaði mun betur í ein-
faldari útgáfu á Eivöru. En svo
eru það hin sem taka algjörum
stakkaskiptum og springa hrein-
lega út, þurftu greinilega á þess-
um aukakrafti að halda. Bestu
dæmin um það eru upphafslögin
tvö; „Nú brennur tú í mær“ og
„Rósufarið“, sem voru satt að
segja ekkert sérlega rismikil á
Kráku-plötunni, en eru hér al-
gjörlega mögnuð í tilkomumiklum
stórsveitaútsetningum sem minna
á það sem meistarar stemmning-
arinnar, kvikmyndahöfundarnir og
útsetjararnir John Barry og Lalo
Schifrin, gerðu manna best. Einn-
ig koma hin gullfallegu „Om jag
vågar“ og „Må solen alltid skina“
af Eivøru, ofsalega vel út sem
tregafullar djassballöður; verða að
nýjum og jafnvel enn áheyrilegri
lögum.
Það er einkar fróðlegt að heyra
hina ótrúlega fjölhæfu Eivøru
ÞAÐ má með sanni segja að Eivør
Pálsdóttir sé leitandi tónlist-
arkona. Hver plata sem hún gefur
út er gerólík
hinni fyrri og
það er hrein un-
un að fá að
fylgjast með
henni þreifa sig
áfram um víðar
lendur og næra einstaka hæfileika
sína. Og framtakssöm er hún með
afbrigðum og djörf. Fyrir jólin síð-
ustu gaf hún út fína þjóðlaga-
skotna plötu þar sem hún naut að-
stoðar Kanadamannsins Bills
Bournes og nú hefur hún gefið út
plötu þar sem hún nýtur fulltingis
Stórsveitar danska ríkisútvarpsins
– hvorki meira né minna. Og til að
gera langa sögu stutta þá gengur
samstarfið að mestu leyti upp,
einkum fyrir tilstuðlan Eivarar og
ótrúlegrar söngraddar hennar og
túlkunar. Stórsveitin leikur svo
auðvitað á als oddi enda vart við
öðru að búast því þar er fagmaður
á hverju hljóðfæri.
Lögin eru öll eftir Eivøru – utan
nokkurra nettra forspila sem sam-
in voru af Peter Jensen. Nær öll
hafa komið út áður, flest af tveim-
ur síðustu plötum hennar Eivør og
Krákan. Þetta eru upp til hópa
frábær lög, tilfinningaþrungnir
ástaróðar samdir í alþýðlegri hefð,
sem virðist eiga afar vel við Ei-
vøru. Þegar saman koma svona
sterk lög eftir hana kemur svo
mjög skýrt í ljós hversu hæfur
lagahöfundur hún er orðin, en það
virðist svolítið gleymast í umræð-
inni um það hversu góður túlkandi
hún er. Ég hef sagt það áður og
geri enn; hún þarf að gefa sér tóm
til að rækta þennan hæfileika sinn,
því þar felast töfrarnir fyrst og
fremst, er hún túlkar sínar eigin
tilfinningar, sína eigin hugsanir og
reynslu.
Eins og við mátti búast þá er
samstarf Eivarar og Stórsveit-
arinnar dönsku af djössuðum toga.
Oft tekst vel til við að gæða lögin
þessu nýja lífi, en ekki alltaf. Sum
laga hennar eru hreinilega of við-
kvæm og innileg til að þau fái not-
spreyta sig á djasssöngnum með
svo góðum árangri. Þá eru Garba-
rek-legar tilraunir hennar með að
tvinna saman djassinn – í þessu
tilfelli stórsveitardjassinn – og
þjóðlagastílinn sinn allrar athygli
verðar, sbr. djössuðustu lög plöt-
unnar „Lær með guð at liva“ og
„Jeg vil mig herren love“, bræð-
ingur sem hefðu örugglega fengið
liðna meistara tilraunamennsk-
unnar, Miles Davis og hans líka,
til að klæja bæði í fingur og varir.
Ekki verður heldur hjá komist
að geta smekklegra og vel út-
færðra umbúða, sem bera vott um
þau vönduðu vinnubrögð sem höfð
voru að leiðarljósi hér í hvívetna.
Á heildina litið gengur þessi
djarfa tilraun, þessi framandi sam-
runi Eivarar og stórsveitarinnar,
upp í flestum megindráttum; þökk
sé frambærilegum lagasmíðum,
glæsilegri spilamennsku, djörfum
útsetningum og framúrskarandi
túlkun Eivarar Pálsdóttur.
Morgunblaðið/Þorkell
„Það er einkar fróðlegt að heyra hina ótrúlega fjölhæfu Eivøru spreyta sig
á djasssöngnum með svo góðum árangri,“ segir í umsögn um plötu Eivarar
og Stórsveitar danska ríkisútvarpsins, Tröllabundin.
Í stórum stíl
TÓNLIST
Íslenskar hljómplötur
Samstarfsverkefni Eivarar Pálsdóttur og
Stórsveit danska ríkisútvarpsins. Sveitin
var skipuð 22 spilurum og lék undir
stjórn Jesper Riis lög eftir Eivøru. Peter
Jensen samdi þrjár prelúdur. Upptökur
fóru fram hjá danska ríkisútvarpinu í
mars 2004 og janúar 2005. Upptökum
stjórnuðu Nikolaj Bentzon og Eivør Páls-
dóttir. Útgefendur 12 Tónar, Cope
Records og DR.
Danish Radio Big Band & Eivør Pálsdóttir
– Tröllabundin
Skarphéðinn Guðmundsson
TÖKUR á hinni vinsælu framhalds-
mynd Sjóræningja Karíbahafsins:
Bölvun Svörtu perlunnar hafa valdið
usla á eyjunni Dominica í Karíbahaf-
inu.
Charles Williams, höfuð Carib-
ættbálksins, sem í eru alls um 3.500
manns, hefur hvatt fólk sitt til að
sniðganga myndina því hún sýni for-
feður þeirra ranglega sem mann-
ætur. Senan sem um ræðir gerist
um miðja myndina þegar persóna
Johnny Depp, sjóræninginn Jack
Sparrow, er látinn stikna yfir eldi.
Williams hafði frá upphafi verið
mótfallin því að myndin yrði tekin á
eyjunni en félst á það af tillitssemi
við ættfólk sitt sem leyst betur á það
og fékk enda hlutverk í myndinni
fyrir um 6 þúsund kr. á dag.
Disney hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu vegna þessa. „Sjóræningjar
Karíbahafsins: Dauðs manns kista
er ævintýramynd full af gríni, róm-
antík og ímynduðum atriðum úr
hugarheimi handritshöfundanna.
Við getum ekki gefið neitt upp um
söguþráðinn en getum sagt að þær
eyjar og ættbálkar sem koma fram í
myndinni eru skálduð og felst í því
engin tilvísun í ákveðinn hóp fólks.“
Myndin er sú fyrri af tveimur
framhaldsmyndum sem verið er að
kvikmynda samhliða í Karíbahafinu.
Dauðs manns kista verður frumsýnd
sumarið 2006 og búast má við því að
þriðja myndin, sem enn hefur ekki
hlotið nafn, verði sýnd árið 2007.
Kvikmyndir | Tökur á framhaldsmynd
Sjóræningja Karíbahafsins valda usla
Grallarinn Jack Sparrow (Johnny Depp) verður léttsteiktur í framhalds-
myndinni um sjóræningja Karíbahafsins, Dauðs manns kista.
Ósætti um
mannætusenu
Leikkonurnarog vinkon-
urnar Jennifer
Aniston og
Courtney Cox
standa saman í
gegnum súrt og
sætt. Síðan að
sambandsslit
Aniston og Brad
Pitt urðu opinber hefur Cox verið
sem klettur í lífi leikkonunnar og
það eina sem hefur haldið henni
gangandi að sögn vina þeirra.
Aniston hefur hug á að kaupa
hús við hliðina á vinkonu sinni til
að geta verið sem næst henni á
þessum erfiðu tímum. Það verður
því ekki langt fyrir þær að nálgast
hvor aðra ef eitthvað bjátar á.
Poppdrottn-ingin Ma-
donna hefur tek-
ið að sér
hlutverk í nýrri
teiknimynd um
Stígvélaða kött-
inn. Myndin er
byggð á persónu úr myndinni
Shrek 2 en þar fór Antonio Band-
eras á kostum sem Stígvélaði kött-
urinn. Madonna hreifst mjög af
leik Banderas í þeirri mynd og
þessi nýja reynsla er, að sögn vinar
söngkonunnar, kærkomið tæki-
færi.
Söngkonan er ekki óvön að stíga
af sviðinu og reyna fyrir sér í öðru
en söng. Barnabækur hennar hafa
slegið í gegn og nú stendur einnig
til að gera mynd byggða á bókinni
Enska rósin. Þar mun hún einnig
ljá persónu bókarinnar rödd sína.
Fólk folk@mbl.is
Heimsfrumsýnd 29. apríl Heimsfrumsýnd 29. apríl
Miðasala opnar kl. 15.003
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
f r i til r !
a a r r llv kj tryllir frá s rav !
WWW.BORGARBIO.IS
Sýnd kl. 8 og 10. 30 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 5.50 Síðustu sýn. Sýnd kl. 5.30
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina
sem getur fundið morðingjann
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG
LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann að
berjast fyrir lífi sínu!
Sýnd kl. 10 B.I 16 ÁRA
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!I
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
kl. 6 og 8 B.I 16 ÁRA. Síðustu sýn.
Sýnd kl. 10.15. bi. 16 ára
Nýjasta meistaraverk Woody Allen
Gagnrýnendur eru sammála um að þetta sé hans
besta mynd í mörg ár. Mynd sem engin sannur
kvikmyndaáhugamaður má missa af!
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali
Will Smith er
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÓÖH DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 5.45, og 10.20.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20
HL MBL M.J. Kvikmyndir.com
B.B. Sjáðu Popptíví
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA UM HELGINA
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS