Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ERLENDAR skuldir
þjóðarinnar námu
1.976 milljörðum
króna í lok mars síð-
astliðins og höfðu þá
aukist um 166 millj-
arða króna frá áramót-
um og tvöfaldast frá
því í lok árs 2002 eða á
ríflega tveimur árum.
Ísland er þannig í hópi
skuldsettustu þróuðu
ríkja heims og hefur
verið um nokkurt
skeið, að því er fram kemur í
Morgunkorni Greiningar Íslands-
banka í gær.
Talið hefur verið að þessi mikla
skuldaaukning og miklu skuldir beri
með sér aukna hættu á erfiðleikum
vegna aðlögunar hagkerfisins að jafn-
vægi líkt og nú virðist blasa við á
næstu tveimur til þremur árum. Segir
í Morgunkorninu að aukning erlendra
skulda síðustu árin sé merki um þær
miklu fjárfestingar sem innlendir að-
ilar hafi verið í erlendis. Fjárfestingar
þessar hafi að stórum hluta verið fjár-
magnaðar með erlendu lánsfé. Hún sé
þannig á margan hátt afsprengi já-
kvæðrar þróunar inn-
lends efnahagslífs sem
hefur verið að gerast
nátengdara umhverfi
sínu.
Hrein staða þjóðar-
búsins við útlönd hef-
ur aukist mun minna á
síðustu misserum.
Stóð hún í 804 millj-
örðum króna í lok
mars síðastliðins sam-
anborið við 594 millj-
arða í lok árs 2002.
Segir Íslandsbanki að sennilega sé
hér um að ræða ofmat á hreinni
skuldaaukningu en erfitt hafi reynst
að halda utan um ráðstöfun gjaldeyris
til fjárfestinga erlendis. Telja megi
líklegt að stærsti hlutinn af því sem er
vantalið í greiðslujöfnuðinum á tíma-
bilinu sé vegna þessa. Það séu sam-
tals 148 milljarðar króna á þessu og
síðasta ári. Síðan hafi hagkerfið vaxið
á tímabilinu þannig að þegar á allt sé
litið megi draga í efa að hrein staða
þjóðarbúsins hafi aukist svo ein-
hverju nemi sem hlutfall af lands-
framleiðslu á síðustu árum. Sennilega
hafi hún lækkað.
Erlendar skuldir
nærri 2 billjónir
HYDRA ehf. hefur aukið eignar-
hlut sinn í Landsflugi ehf. um
45,45% en fyrir átti Hydra 45,45%
hlut í félaginu. Hlutinn keypti
Hydra af fjórum einstaklingum og
eftir kaupin fer Hydra með 90,9%
hlutafjár í Landsflugi en Íslands-
flug (Avion Group) fer með 9,1%
hlutafjár í fyrirtækinu.
Landsflug er með starfsemi sína
í Reykjavík og heldur uppi áætl-
unarflugi til Vestmannaeyja,
Sauðárkróks, Hafnar í Hornafirði,
Bíldudals og Gjögurs ásamt því að
sinna sjúkraflugi á Vestfjörðum og
leiguflugi. Rúnar Fossádal Árna-
son hefur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Landsflugs af Guð-
laugi Inga Sigurðssyni sem sinnt
hefur starfinu frá því félagið var
skilið frá rekstri Íslandsflugs í
október 2004. Þá hefur Daði Dag-
bjartsson verið ráðinn sem sölu- og
markaðsstjóri. Landsflug gerir úr
tvær 19 sæta Dornier 228-flugvélar
ásamt einni Piper Chieftain-flug-
vél, en Flugfélag Íslands sér um
sölu farþegaflugs fyrir Landsflug
Á bak við Hydra stendur hópur
íslenskra fjárfesta, bæði einstak-
lingar og fyrirtæki, en Hydra rek-
ur einnig flugfélagið City Star
Airlines í Aberdeen í Skotlandi í
samvinnu við Breta.
City Star Airlines rekur nú eina
32 sæta Dornier 328-flugvél sem
sinnir áætlunarflugi á milli Aber-
deen og Gardermoen-flugvallar við
Ósló. Félagið hefur nýlega fest
kaup á annarri Dornier 328-flugvél
til að sinna frekari verkefnum fé-
lagsins.
Hydra með 90% í Landsflugi
ÍSLENSKA auglýsingastofan
hefur ákveðið að vera áfram innan
vébanda Sambands íslenskra aug-
lýsingastofa (SÍA) og mun taka
fullan þátt í framtíðarstörfum inn-
an SÍA í samstarfi við stjórn og
aðra félagsaðila.
Þessi ákvörðun kemur í fram-
haldi af sérstökum félagsfundi
SÍA þar sem fjallað um athuga-
semdir sem Íslenska auglýsinga-
stofan gerði við framkvæmd
stjórnar SÍA á niðurfellingu fé-
lagsgjalda til fyrrverandi aðildar-
félaga og varð til þess að stofan
sagði sig úr samtökunum. Niður-
staða fundarins var sú að aðferðir
SÍA við afgreiðslu slíkra mála
verði endurskoðaðar og teknar
upp skýrar og ákveðnar vinnu-
reglur við meðhöndlun mála af
þessu tagi.
Íslenska auglýsinga-
stofan áfram innan SÍA
● MÓÐURFÉLAG flugvélaframleið-
andans Airbus, European Aeronaut-
ic, Defense & Space (EADS), hefur
hafið samstarf við bandaríska vopna-
framleiðandann Northrop Grumman
og vonast fyrirtækin eftir því að geta
keppt við Boeing fyrirtækið um samn-
inga við bandaríska flugherinn. Er
greint frá þessu í dagblaðinu Wall
Street Journal.
Samkvæmt fréttinni stefna EADS
og Northrop að því að ná af Boeing
samningum um smíði tankflugvéla,
sem notaðar eru til að fylla á eldsneyt-
istanka annarra flugvéla á lofti. Nýtt
framleiðslufyrirtæki EADS í Bandaríkj-
unum hefur starfsemi síðar í mán-
uðinum og er þá búist við að sam-
starfið verði formlega gert opinbert.
Samsteypa til
höfuðs Boeing
● STÝRIVEXTIR breska seðlabank-
ans, Bank of England, verða óbreytt-
ir enn um sinn en tilkynnt var í gær
að stjórn bankans hafi ákveðið að
hreyfa ekki við vaxtastiginu í þessum
mánuði.
Þetta kemur sérfræðingum ekki á
óvart en í könnun Bloomberg News
höfðu allir sérfræðingar spáð
óbreyttum vöxtum.
Stýrivöxtum hefur ekki verið breytt
í Bretlandi síðan 5. ágúst 2004 þeg-
ar þeir voru hækkaðir í 4,75%.
Óbreyttir stýrivextir
● FLUTNINGAFYRIRTÆKIÐ Frakt-
lausnir ehf. hefur flutt starfsemi sína
í Skútuvog 1e í Reykjavík.
Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að í framhaldi af þessum breyt-
ingum verði starfsmönnum fjölgað
og starfsemin efld. Þá hefur verið
ákveðið að markaðssetja fyrirtækið
undir nýju merki, en með sama
nafni.
Upprunalegt merki hafi verið kassi
sem táknaði flutninga, en í nýja
merkinu sé kassinn varinn í sérstakri
umgjörð sem tákni öryggi og áreið-
anleika í flutningum.
Fraktlausnir flytja
í stærra húsnæði
FÉLAG viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga, FVH, efndi í maí til hóp-
ferðar til London í þeim tilgangi að
heimsækja þar skrifstofur íslenskra
fyrirtækja, sem og breskra. Er
þetta í fyrsta sinn sem slík ferð er
farin en þar sem fjölmörg íslensk
fyrirtæki eru farin að hasla sér völl
í Bretlandi þótti við hæfi að
skyggnast um í viðskiptaumhverf-
inu í London.
Heimsóttar voru höfuðstöðvar
endurskoðunar- og ráðgjafarfyr-
irtækisins Deloitte í fjármálahverf-
inu City, skrifstofur KB banka og
Baugs Group við New Bond Street
auk þess sem Kauphöllin í London,
London Stock Exchange, var heim-
sótt í boði Íslandsbanka. Flutt voru
erindi og upplýsingar veittar um
ýmsar nýjungar í bland við veit-
ingar og spjall.
Hópurinn Viðskipta- og hagfræðingar fræddust um viðskipti í Lundúnum
FVH í fyrirtækja-
heimsóknum í London
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði í gær um 0,18% og
var við lok viðskipta 4.088,99 stig.
Alls námu viðskipti í kauphöllinni
rúmum 10,6 milljörðum króna, og
munaði þar mestu um 5,8 milljarða
króna viðskipti með íbúðabréf.
Af hlutabréfum var mest verslað
með bréf Íslandsbanka, eða fyrir
764 milljónir króna. Gengi bréfa í
bankanum hækkaði um 0,05 stig,
eða 0,4% og var við lok við-
skiptadags 13,65.
Mest verslað með
bréf Íslandsbanka
FORMAÐUR bandaríska fjármála-
eftirlitsins (SEC), William Donald-
son, mun láta af störfum í þessum
mánuði, og hefur George W. Bush,
Bandaríkjaforseti tilnefnt þingmann-
inn Christopher Cox til að taka við
starfinu.
Stærstu fjárfestar Bandaríkjanna
lýstu áhyggjum sínum af tilnefningu
Cox í embætti formanns fjármála-
eftirlitsins, að því er kemur fram í
frétt á vefriti Financial Times. Segir
þar að á þeim tíma sem hann hefur
setið í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hafi hann stutt lagafrumvarp sem
ætlað var að takmarka rétt fjárfesta
til að höfða mál á hendur fyrirtækj-
unum sem þeir eiga hlut í.
Haft var eftir Phil Angelides, sem
er fjármálaráðherra Kalíforníuríkis
og stýrir tveimur stærstu lífeyrissjóð-
um landsins, að hann óttist að skipun
Cox myndi koma í veg fyrir að hlut-
hafar fyrirtækja fengju þann grund-
vallarrétt að tilnefna fulltrúa í stjórn
fyrirtækja sinna. Hvatti hann öld-
ungadeildarþingmenn til að hafna til-
nefningunni.
Vangaveltur um þrýsting
Í stjórnartíð Donaldsons tóku gildi
harðari reglur um sjóðsfjárfesta og
hlutabréfaviðskipti, en hann tók við
starfinu í kjölfar þess að Enron- og
WorldCom hneykslin komu upp í
bandarísku viðskiptalífi.
George W. Bush, Bandaríkjafor-
seti, þakkaði Donaldson fyrir að hafa
„unnið erfitt starf á erfiðum tímum“
og hrósaði honum fyrir að hafa endur-
vakið traust almennings á bandarísk-
um fyrirtækjum sem miklu máli hefði
skipt fyrir uppganginn í bandarísku
efnahagslífi undanfarin ár.
Donaldson sagði sjálfur að ástæðan
fyrir því að hann vildi láta af störfum
nú væri sú að hann vildi eyða meiri
tíma með fjölskyldu sinni, en vanga-
veltur eru uppi um að hann hafi loks-
ins látið undan þrýstingi repúblikana,
sem hafa verið ósáttir við stefnu fjár-
málaeftirlitsins undir hans stjórn.
Formaður SEC
lætur af störfum
Umdeilt val á eftirmanni
Reuters
Eftirmaðurinn George W. Bush hlustar á Christopher Cox, sem hann hefur
tilnefnt til að taka við starfi formanns SEC.
56
789
:
:
;7<
(0=
:
:
>0> ?@=
:
:
A=
5 ##
:
:
B><= (
C D
:
:
!"#
0E * F
%' G4
0
# F
%' G4
&##*H F
%' G4
&% G4
+ F
%' G4
I F
%' G4
/# G4
A%'1 + &# G4
AH+% G4
I/# G4
@ G4
?+ G$# ' G4
7!$ G4 7 %!% $G +/4 G4
J% G4
$ " %
#!#% G4
& F G4
!' $ G4
D/
G4
I"G # $ % G4 5K$ G4
7 G4
7H%! 4 G) 4 G4
;)++ +! H G4
2 % H G4
L
!4 !! ,7/+ G4 &'
(
0% %/## G4 # <)$G$ G4 I"! G4
7 %G+ 7%% *G4
;# G G4
)*
B><M
7"
* #4*
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
&) + G
G) * #4*
,
,
, ,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
N
:O
,
N ,:O
N ,:O
N
:O
N
:O
N :O
N
:O
N
:O
,
N :O
N :O
,
,
N :O
,
,
,
,
,
N ,:O
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
* # '
+
; /
"
# +P
A%' 7
4 4
4 4 4 4
4 4
4 4
4
4
,
,
,
,
,
,
4
,
,
4 ,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
2 # ' " 1Q4 #4
0;4 R 0 %+% $H
* # '
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
,
0;4, S* %! G! H% % G$4
0;4,
7#) ++$ G! )G H#% /4 G%
G 4
0;4, 2+ G) * %! G$!H+% G+4
0;4, 0 / Q +G4