Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 21

Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 21 MINNSTAÐUR Garðabær | Eigendur jarðarinnar Selskarðs hafa mótmælt harðlega upptöku lands sem er hluti af beitar- rétti jarðarinnar, en nokkuð land hefur þegar farið undir framkvæmd- ir og byggingar á vegum Garða- bæjar. Þá hafa eigendur mótmælt því að Vegagerðin taki land undir tvöföldun Reykjanesbrautar á beitarréttareigninni. Telja eigendur Selskarðs bæði Vegagerðina og Garðabæ hafa brotið á eignarrétti sínum og báða aðila nú áforma enn frekari brot á eignarréttinum. Hafa landeigendur kært málið til umboðs- manns Alþingis. Að sögn landeigenda er Garðabær byrjaður að skipuleggja og fram- kvæma á beitareigninni án þess að hafa samráð við eigendur beitar- réttar. Hafa nú þegar verið reistar byggingar í Molduhrauni, sem er innan beitarréttar Selskarðs. „Í frétt í Morgunblaðinu á laugardag sagði formaður skipulagsnefndar í Garða- bæ að tekið hafi verið tillit til athuga- semda. Við gerðum athugasemdir við að þeir séu að skipuleggja á beitareigninni, en við getum ekki séð að það sé tekið nokkurt einasta tillit til eignarréttinda jarðarinnar Sel- skarðs,“ segir einn landeigenda í samtali við Morgunblaðið. Beitareign Selskarðs hefur ekki verið nýtt síðan 1967, en eigendur jarðarinnar segja það ekki skipta máli. Þeir hafi haft í undirbúningi að leigja út og selja beitarhólf og svæði fyrir hestamennsku, sem er sívax- andi tómstundaiðja á höfuðborgar- svæðinu. Þá segja landeigendur lög- mann Garðabæjar hafa haft í hótun- um við sig í bréfi þar sem hann skýrði frá ætluðum aðgerðum bygg- ingaryfirvalda í Garðabæ. „Þeir hafa hótað okkur aðgerðum ef við fjarlægjum ekki girðingar í kringum beitarhólfin okkar,“ segir einn landeigenda. „Þessar girðingar og beitarhólfin eru ekki fram- kvæmdarleyfisskyldar eða bygg- ingaleyfisskyldar samkvæmt skipu- lags- og byggingalögum nr. 73 frá 1997. Engu að síður er Garðabær með hótanir í garð eigenda jarðar- innar Selskarðs.“ Landeigendur segjast vilja fá að njóta eignar sinnar í friði samkvæmt lögum og mannréttindasáttmálum. Bætir viðmælandi Morgunblaðsins við að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafi alltaf átt gott samstarf við þá, en Garðabær og Vegagerðin hafi sýnt yfirgang og Vegagerðin m.a. gengið gegn eigin bókun sem gerð var fyrir héraðsdómi, þar sem hún viður- kenndi eignarréttinn. Beitarréttur ekki í gildi nú Bæjaryfirvöld í Garðabæ segja ljóst að einhvern tíma hafi Selskarði fylgt hlunnindi. Þannig hafi það ver- ið á sínum tíma. En síðan þá hafi samfélagið tekið miklum breytingum og réttindin þurfi ekki að vera til staðar í nútímasamfélagi. Sem dæmi nefna yfirvöld mótökurétt sömu bænda í Arnarnessvogi, en þar hafi viðkomandi aðilar reynt að gera kröfur til bóta þegar Sjálandsskóli var byggður. Bæjaryfirvöld segja ljóst að eng- inn búskapur sé á Selskarði og því forsendur til vangaveltna um beitar- rétt og verðmæti hans hæpnar. Landeigendur hafa krafist bóta vegna lands sem færi undir nýja Reykjanesbraut en Vegagerðin hafnaði þeirri kröfu. Í úrskurði Matsnefndar eignarnámsbóta frá 1. nóvember árið 2004 var kröfu land- eigenda vísað frá. Þennan úrskurð hafa landeigendur kært til umboðs- manns Alþingis og hefur umboðs- maður að sögn landeigenda sent matsnefndinni erindi þar sem gerðar eru athugasemdir við vinnubrögð hennar í málinu. Segja bæjaryfirvöld landeigendur áður hafa beitt fyrir sig það sem yfir- völd nefna úreltan eignarétt. Sem dæmi nefna þau dæmi um að land- eigendur hafi vísað til mótökuréttar á landinu þar sem Sjálandsskóli var byggður, við Arnarnesvoginn, og krafist bóta fyrir skerðingu hans. Aðalathugasemd bæjaryfirvalda er þó við girðinguna og beitarhólfin, en bæjaryfirvöld segja ótækt að girða í bæjarlandinu án þess að hafa leyfi til þess. Segja þau þá ljóst að landið sé ekki eignarland Selskarðs- eigenda. Það sé í eigu Oddfellow reglunnar. Nú séu menn farnir að byggja á landinu og skipuleggja það með öðrum hætti en var fyrir nokkr- um áratugum. Landeigendur Selskarðs segja ljóst að beitarhólf þeirra séu ekki í eign Oddfellow reglunnar, heldur Garðakirkju, samkvæmt skýrum mörkum, þinglýstum 1890 og einnig samkvæmt lögum nr. 13 frá 1912 um sölu á eign Garðakirkju. Telja land- eigendur bæjaryfirvöld þar fara vís- vitandi með rangt mál. Hjá Vegagerðinni voru fulltrúar lögfræðideildar staddir erlendis, en væntanlegir til landsins í vikulokin. Landeigendur telja brotið á rétti sínum Eldri réttindi þurfa ekki að vera til staðar nú að mati bæjar- yfirvalda Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Þrætuepli Hin umdeilda girðing og beitarhólf sem eigendur jarðarinnar Selskarðs hafa reist á mótum Garðabæjar og Hafnarfjarðar. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Miðborgin | Kveikt var formlega á nýja gos- brunninum í Tjörninni í gær. Gamli gosbrunn- urinn, sem þáverandi sendiherra Bandaríkj- anna gaf borginni 1980, var búinn að skila sínu og var ákveðið að kaupa nýjan í hans stað. Nýi gosbrunnurinn er nokkru minni en sá gamli en sá hátturinn var hafður á svo oftar væri hægt að hafa kveikt á honum. Sá gamli var svo öflugur að þegar hvessti úðaði hann hressilega yfir göngugesti í Hljóm- skálagarðinum. Írena Björk Ómars- dóttir, nemi í leikskól- anum Tjarnarborg, setti gosbrunninn í gang með farsíma. Með henni er Katrín Jakobs- dóttir, borgarfulltrúi Morgunblaðið/Golli Nýr gosbrunnur í Tjörninni Reykjavík | Nýtt Menntasvið Reykjavíkurborgar hefur tekið við starfsemi Leikskóla Reykjavíkur og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Skrifstofa Menntasviðs verður í Mið- bæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1. Á skrifstofu Menntasviðs verða: Fagskrifstofur leik- og grunnskóla, fjármálastjórnun, bókhalds- og launaþjónusta leik- og grunnskóla og innheimta leikskólagjalda, starfs- mannaþjónusta leik- og grunnskóla, upplýsingatækniþjónusta leik- og grunnskóla og skrifstofa sviðsstjóra. Undir Menntasvið heyra allir leik- og grunnskólar sem reknir eru af borginni, alls 120. Starfsmenn eru um 4.300 og nemendur 21.000. Á sama tíma flyst ýmis fagleg þjónusta, sem áður var á skrifstofu Leikskóla Reykjavíkur og Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur, s.s. leikskóla- ráðgjöf, kennsluráðgjöf, sálfræðileg þjónusta, nýbúaþjónusta og innritun í leikskóla, yfir á þjónustumiðstöðv- ar í hverfum sem verða í Vesturbæ, Laugardal/Háaleiti, Breiðholti, Árbæ/ Grafarholti, Miðbæ/Hlíðum og Grafarvogi. Menntasvið tekur til starfa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.