Morgunblaðið - 10.06.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 47
DAGBÓK
Slökkvilið Akureyrar hefur fyrst stofnanabæjarins sett sér jafnréttisáætlun í sam-ræmi við jafnréttislög. Frá því um ára-mót hefur staðið yfir vinna við gerð jafn-
réttisáætlana stofnana bæjarins þar sem starfa
fleiri en 25 manns, að sögn Katrínar Bjargar
Ríkarðsdóttur, jafnrréttisráðgjafa bæjarins.
„Þessi áætlun slökkviliðsins er fyrst í röðinni og
svo koma hinar koll af kolli,“ sagði hún við
Morgunblaðið.
Þær stofnanir sem um ræðir eru: Grunnskól-
arnir, leikskólinn Krógaból, Slökkviliðið, Fram-
kvæmdamiðstöðin, Heilsugæslustöðin, Öldrunar-
heimilin og Heimaþjónustan.
Fjórðungssjúkrahúsið er örugglega stærsti
kvennavinnustaður bæjarins, en FSA heyrir ekki
undir Akureyrarbæ. „Auðvitað ætti stofnun eins
og FSA að vera með jafnréttisáætlun en ég veit
hreinlega ekki hvort hún er fyrir hendi. Við höf-
um einblínt á þær stofnanir sem heyra undir bæ-
inn.“
Jafnréttislög gera ráð fyrir að öll fyrirtæki og
stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn
setji sér jafnréttisáætlun. Í þeim áætlunum skal
kveða á um markmið og aðgerðir til að tryggja
starfsmönnum þau réttindi sem kveðið er á um í
14.–17. gr. laganna. Þau atriði eru: Launajafn-
rétti, aðgengi að lausum störfum, starfsþjálfun
og endurmenntun, samræming fjölskyldu- og at-
vinnulífs og kynferðisleg áreitni.
Er þetta ekki löngu tímabært?
„Jú, auðvitað er þetta löngu tímabært. En ég
hef grun um að víða sé pottur brotinn. Jafn-
réttisstofa og félagsmálaráðuneytið gerðu í fyrra
könnun meðal fyrirtækja og stofnana á landsvísu,
þar sem 25 eða fleiri vinna, og í fyrsta lagi var
svörunin mjög lítil og í ljós kom að mörg fyr-
irtæki voru ekki með neina jafnréttisáætlun.“
Er mikil áhersla lögð á jafnrétti hjá Akur-
eyrarbæ?
„Já, það er unnið markvisst í þessum málum
og mér hefur fundist mikill vilji og áhugi hér á
bæ.“
Það eru líklega ekki margar konur í slökkvilið-
inu; er ekki dálítið fyndið að það sé fyrsta stofn-
unin sem setur sér slíka jafnréttisáætlun?
„Það er ein kona í slökkviliði Akureyrar og þar
finnst mönnum kannski bara full ástæða til þess
að setja kraft í þessi mál. Mér finnst að minnsta
kosti mjög ánægjulegt að þeir skuli gera þetta.“
Vert er að geta þess að jafnréttislög leggja þá
skyldu á skólana að þar sé veitt fræðsla um jafn-
réttismál, í náms- og starfsfræðslu sé leitast við
að kynna bæði piltum og stúlkum störf sem litið
hefur verið á sem hefðbundin karla- eða kvenna-
störf og þess gætt að kennslu- og námsgögn mis-
muni ekki kynjunum.
Jafnrétti | Unnið hefur verið markvisst í jafnréttismálum stofnana Akureyrarbæjar
Slökkvilið með jafnréttisáætlun
Katrín Björg Ríkarðs-
dóttir er jafnréttis-
ráðgjafi Akureyrar-
bæjar. Hún er fædd í
Reykjavík 20. ágúst
1976, er með BA-próf í
sagnfræði frá Háskóla
Íslands 1992 og lauk
síðan uppeldis- og
kennslufræðiprófi frá
Háskólanum á Akureyri
árið 1996. Katrín Björg
starfaði um tíma sem sérfræðingur á Jafn-
réttisstofu en var svo ráðin jafnréttisráðgjafi
bæjains haustið 2003. Eiginmaður Katrínar
Bjargar er Örn Arnarson og eiga þau eitt barn.
Darra Arnarson.
Stytting framhaldsskólans og
sumarfrí grunnskólabarna
ÉG vil taka undir orð Ólafar Jöru
sem birti grein í Morgunblaðinu þann
6. júní síðastliðinn um styttingu fram-
haldsskólans.
Þarna er verið að koma á óskiljan-
legum breytingum. Það hefur alltaf
verið hægt að ljúka stúdentsprófi á
þremur árum. Með þessum breyt-
ingum er hætta á að brottfall aukist.
Hvað eiga þeir að gera sem eiga við
námserfiðleika að stríða eða les-
blindu? Þetta fólk er ekki heimskara
en aðrir og það á jafnmikinn rétt á að
ganga menntaveginn og eiga gott líf í
vinnu sem þau hafa áhuga á að starfa
við. Þarna er eingöngu verið að spara
peninga, ekki er verið að huga að
undirbúa nemendur sem best fyrir
háskólanám eða vinnumarkaðinn.
Hvernig á að leysa þann vanda sem
skapast þegar tvöfaldur árgangur
kemur út úr framhaldsskólunum ef
þetta nær fram að ganga? Kemst þá
bara helmingur nemenda í nám eftir
stúdentsprófið og getur vinnumark-
aðurinn tekið við hinum? Erlendir há-
skólar koma þessu máli ekki við.
Langflestir fara í háskólanám hér á
landi og hvaða máli skiptir það hvort
einstaklingur er nítján eða tuttugu
ára þegar hann lýkur framhalds-
skóla?
Ég vil líka blanda mér inn í um-
ræðuna um að stytta enn frekar sum-
arfrí grunnskólabarna. Ef foreldrum
finnst það til of mikils mælst að gefa
sér smá tíma fyrir börn sín ættu þau
að athuga það áður en þau eignast
börn.
Mín reynsla er sú að um miðjan
maí er kominn sumarhugur í börn og
þau vilja komast út í sumarið eftir
langan dimman vetur. Að fara fram á
að grunnskólabörn fái 5 vikna sumar-
frí eins og foreldrarnir er ótrúlegt.
Það á líklega að vera júlí. Það geta
ekki allir foreldrar farið í frí í júlí.
Eða á þá bara að loka öllu? Spítölum
og löggæslu líka? Líklega á fólk sem
vinnur þar líka börn og það vill trú-
lega fara í frí á sama tíma og þau. Og
ekki er réttlátt að þeir sem eiga börn
gangi fyrir um að fá frí í júlímánuði.
Nær væri að lengja aftur sumarfrí
barnanna og leggja frekar niður
vetrarfríin því þau virðast koma fjöl-
skyldum mjög illa. Að fá viku frí að
vetri kemur sér verr en að fá viku
lengra sumarfrí. Því að á sumrin er
frekar hægt að fara út að leika en það
er ekki alltaf hægt á veturna.
Ósátt.
Kettlingar fást gefins
Gullfallegir kettlingar fást gefins á
góð heimili. Þeir eru fjörugir, þrifnir
og kassavanir. Upplýsingar í síma
661 9094.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
75 ÁRA afmæli. Á morgun, laug-ardaginn 11. júní, verður 75 ára
Hjördís Einarsdóttir. Einnig varð
Sveinn Þorsteinsson 75 ára 27. desem-
ber sl. Í tilefni þessa taka þau á móti
ættingjum og vinum á Rex, Austur-
stræti, frá kl. 18–21 á morgun, laug-
ardag.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rf3 Bg4 4. Rc3 Rc6
5. d5 Re5 6. Rxe5 dxe5 7. Db3 Dc8 8. e4
Bd7 9. f4 e6 10. Be2 exd5 11. fxe5 Rxe4
12. cxd5 Rxc3 13. Dxc3 c6
Hvítur á leik.
Staðan kom upp á opnu móti sem
lauk fyrir skömmu í Minneapolis í
Bandaríkjunum. Sigurvegari mótsins,
georgíski stórmeistarinn Zvidad
Izoria (2602) hafði hvítt gegn Leonid
Sokolin (2513). 14. e6! fxe6 15. Bh5+
Kd8 eftir þetta lendir svarti kóngurinn
á hrakhólum en 15. … g6 hefði hins
vegar ekki heldur gengið upp vegna 16.
Dxh8. 16. Bg5+ Kc7 17. Bf4+ Kb6 17.
… Kd8 og 17. … Bd6 hefðu einnig gert
svarta kónginn berskjaldaðan þó að
svartur hefði þá getað lifað lengur af
en í skákinni. 18. Db3+ Ka6 19. Be2+
b5 20. a4 Kb6 21. dxc6 Dxc6 22. Be3+
Bc5 23. Hc1 og svartur gafst upp.
Lokastaða efstu manna varð þessi: 1.
Zviad Izoria (2602) 7½ vinning af 9
mögulegum. 2.–11. Ilya Smirin (2649),
Gata Kamsky (2700), Alexander Bel-
javsky (2630), P. Harikrishna (2646),
Jaan Ehlvest (2614), Evgeny Najer
(2615), Ildar Ibragimov (2611), Artur
Yusupov (2601), Leonid Yudasin (2538)
og Daniel Fridman (2562) 7 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstu-
daga kl. 14 í sumar, aukaumferðir
eftir kaffihlé. Vinnu- og baðstofa,
allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl.
13–16.30. Bingó fellur niður í júní
og júlí.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaað-
gerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl.
9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 14–14.45 söng-
stund, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Garðabæ |
Hornafjarðarferð 14. og 15. júní.
Farið frá Garðabergi. Örfá sæti
laus. Uppl í síma 565 6186.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Félagsvist spiluð í kvöld, föstudag,
kl. 20.30, í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Þórsmerkurferð 24. júlí, skráning í
fullum gangi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Garðaberg er opið frá kl. 12.30 til
16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10.30
létt ganga um nágrennið. Frá há-
degi spilasalur opinn.
Hraunbær 105 | Kl. 9 baðþjónusta,
útskurður, hárgreiðsla, fótaaðgerð,
kl. 10 pútt, kl. 12 hádegismatur, kl.
13 bókabíll, kl. 15 kaffi, kl. 14 bingó.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl.
9. Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.20.
Bridge kl. 13.
Hraunsel | Pútt á Hrafnistuvell-
inum kl. 14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun fyir
hádegi. Hádegisverður. Fótaaðgerð-
ir 588 2320. Hárgreiðsla
517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum aldurshópum. Betri
stofa og Listasmiðja kl. 9–16. Frjáls
handavinna og myndlist. Gönuhlaup
kl. 9.30. Brids kl. 13.30. Skráning í
hópa og námskeið fyrir haustönn.
Hárgreiðslustofa kl. 9–12 sími
568 3139. Upplýsingar í síma
568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9.opin hár-
greiðslustofa, kl. 10 ganga, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7 | Kvennahlaup í
Garðabæ laugardaginn 11. júní kl.
14, farið frá Vesturgötu 7 kl. 12.45.
Upplýsingar og skráning í síma
535 2740. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30
handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13.30 sungið við flyg-
ilinn við undirleik Sigurgeirs. Kl.
14.30–16.00 dansað við lagaval
Sigvalda. Kl. 15 spila Elísabet Snæ-
laug Reinhardsdóttir og Auður Ás-
grímsdóttir, 11 ára nemar á píanó.
Gott með kaffinu. Allir velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 8.45, leikfimi kl. 10.00. Hár-
greiðsla og fótaðgerð opin kl. 9.00
til 12. Bingó fellur niður vegna
starfsdags starfsfólks.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
NÝ RÖÐ klúbbakvölda og tónleika
sem gengur undir yfirskriftinni
„Elektrólæf“ hefst í kvöld á Nasa á
vegum tónleikaskipuleggjandans
Hr. Örlygs.
Á þessu fyrsta kvöldi koma m.a.
fram tveir þrælvanir danskir plötu-
snúðar; Trentemöller og T.O.M. og
Klaus Björke.
Auk þeirra kemur fram í fyrsta
sinn ný íslensk hljómsveit leidd af
Þórhalli „Thule“ Skúlasyni sem
heitir Dr. Discoshrimp en að sögn
skipuleggjenda hefur lag með
þeirri sveit, Rækjusalat, notið mik-
illa vinsælda undanfarið á skemmti-
stöðum miðborgarinnar.
Anders Trentemöller
Lifandi raftónlist
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, mun opna sýninguna
Norrænt bókband 2005 í bókasal
Þjóðmenningarhússins í dag kl. 17.
Á sýningunni er áttatíu og eitt
verk eftir jafnmarga bókbindara
frá Norðurlöndunum. Um fjórð-
ungur verkanna hefur hlotið
heiðursútnefningu sérstakrar dóm-
nefndar með tilliti til tækni, efn-
isvals og hönnunar. Sýningin fer
um öll Norðurlöndin og verður í
Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst.
Félagsskapur íslenskra bók-
bindara sem kallar sig JAM-hópinn
stendur að sýningunni fyrir Íslands
hönd. JAM-hópinn mynduðu nem-
endur á bókbandsnámskeiði með
dönskum leiðbeinendum sem haldið
var í Reykjavík 1989. Hópurinn
hefur staðið að fjölda námskeiða,
sýninga og nú síðast norrænu sam-
starfi til þess að stuðla að varð-
veislu gamla handverksins í bók-
bandi og miðla því til komandi
kynslóða.Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sýning á nor-
rænu bókbandi
SÝNINGIN Tourde-
Force verður opnuð í dag
klukkan 19.30 í Klink og
Bank, Brautarholti.
Sýningin skartar tíu
listamönnum frá Kan-
ada, Íslandi og Noregi
sem allir eiga það sam-
eiginlegt að vinna með
fyrirbærið „hljóð“, þó á
mismunandi vegu og í
ólíka miðla.
Dagskráin á opnunar-
daginn hefst á slaginu
20.00 með kynningu
Christofs Migone, „Pass“, og Kira
Kira tekur lagið og Best Rider gerir
það líka.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru: Ásdís Sif Gunnars-
dóttir, Ragnar Kjartansson, Birgir
Örn Thoroddsen, Kolbeinn Hugi
Höskuldsson, Kristín Björk Krist-
jánsdóttir og Haraldur Karlsson frá
Íslandi, Christof Mi-
gone, Marla Hlady,
Tasman Richardson frá
Kanada og Jan Høvo frá
Noregi.
Í tilefni af sýningunni
heldur Tími, miðstöð
fyrir tímalistir, stutta
tímakvölda-seríu. Þau
hefjast klukkan 21.00
sunnudagana 12. júní
(Hvað er hljóð?), 19. júní
(Drone-Music) og 26.
júní (Andrew Mc-
Kenzie). Aðgangur er
ókeypis.
TourdeForce er hluti af stærra
verkefni sem ber titilinn The Idea of
North og er samstarfsverkefni milli
fimm sýningarstjóra frá Kanada, Ís-
landi og Noregi.
Sýningin stendur til 10. júlí og er
opin fimmtudaga til sunnudaga frá
klukkan 15.00 til 18.00.
Samsýning í
Klink & Bank
Kolbeinn Hugi Höskulds-
son er í hópi sýnenda.