Morgunblaðið - 10.06.2005, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 10.06.2005, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRIR íslenskir myndlistarmenn eiga verk á sýningunni Samtíma- skúlptúr á Norðurlöndum 1980–2005, sem nú stendur yfir í menningar- miðstöðinni í Wanås í Svíþjóð. Alls 44 myndlistarmenn eiga verk á sýning- unni, en þeir íslensku eru Katrín Sig- urðardóttir, Ólafur Elíasson, Sig- urður Guðmundsson og Hreinn Friðfinnsson. Að sögn Eddu Jónsdóttur hjá gall- eríi i8 sem hefur íslensku myndlist- armennina fjóra á sínum snærum, var sýningin áhugaverð og vel gerð. „Að mínu viti var verk Katrínar Sig- urðardóttur besta verkið á sýning- unni. Það er mjög vel byggt og vand- að, og vakti mikla athygli bæði safnstjóra og blaðamanna sem ætla að skrifa um það, enda mjög óvenju- legt,“ segir hún. Landslag sem táknmynd Í veglegri sýningarskrá sem gefin var út í tilefni sýningarinnar, ritar meðal annars listfræðingurinn Björn Springfeldt, sem var forstöðumaður Listasafnsins í Malmö á árunum 1986–1989 og Nútímalistasafnsins í Svíþjóð á árunum 1990–1996, grein og stutta umfjöllun um hvern mynd- listarmann. Um Katrínu Sigurðardóttur ritar Springfeldt: „Ég hef áður minnst á sérstöðu Íslands meðal Norður- landanna. Í verki Katrínar Sigurð- ardóttur (f. 1967 í Reykjavík, búsett í Reykjavík og New York) kemur þessi munur enn betur fram. Í röð verka hefur hún notað landslag heimalands síns sem táknmynd fyrir samband einstaklingsins við veruleikann allt í kring. Í duldri mótun sinni, þar sem eyjan skýst upp eins og brött keila úr sjávarbotninum, stendur þessi tákn- mynd líka nær en fyrir okkur hin. Líka með þeirri nauðsyn að ferðast, að mennta sig, að framfleyta sér, að örva sig, um leið og því að ekki er hægt að klippa á ræturnar, hefur Ís- land skapað vitsmunalegan dragsúg sem vantar í hin löndin okkar. Ekki síst í Svíþjóð þar sem við í sönnum sveita-anda höldum að við búum í miðjunni. Að vera staðbundinn og hugsa alþjóðlega er á Íslandi engin innantóm táknmynd.“ Kastali, lífrænt bú og högg- myndagarður Menningarmiðstöðin í Wanås stendur á mörkum Skáns og Smá- landa í Svíþjóð og samanstendur af kastala, lífrænu búi og höggmynda- garði. Kastalinn var upphaflega byggður sem virki á 15. öld og gegndi staðsetningar sinnar vegna mik- ilvægu hlutverki í stríðum Svía og Dana um Skán á sínum tíma. Síðast- liðin átján ár hefur verið byggð þar upp stórt safn alþjóðlegrar mynd- listar og er áhersla lögð á skúlptúra og innsetningar sem taka mið af rým- inu. Bæði er sýnt utandyra í Wanås, og innandyra í nýlega uppgerðum húsum; hlöðunni og fjárhúsinu. Verk Ólafs Elíassonar, Broserie, frá árinu 1995.Annar hluti af verki Katrínar Sigurðardóttur, High Plane, 3, frá árinu 2005. Myndlist | Íslenskir myndlistarmenn á sýningunni Samtímaskúlptúr á Norðurlöndum 1980–2005 í Wanås Ísland hefur skapað vitsmuna- legan dragsúg Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Hluti af verki Katrínar Sigurðardóttur, High Plane, 3, frá árinu 2005. Verk Hreins Friðfinnsonar, Án titils, frá árinu 1999. Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is CIRKUS CIRKÖR 14.-17. JÚNÍ Sirkusinn sem allir tala um! KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 12/6 kl 14 - UPPSELT, Su 12/6 kl 17 - UPPSELT, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPSELT, Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR FRÁ SVÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar Stóra svið BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Lau 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20 - Síðustu sýningar Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöldTOPP 20 mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.