Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 51
MENNING
unnar, auk þess er umfjöllun um heim tindáta og um listsýningu
sem hefur hann að viðfangsefni ekki sami hluturinn, þannig að
ég ákvað að láta vera að senda karlkyns kollega minn á staðinn,
veit heldur ekki hvort hann lék sér að tindátum í bernsku.
Það eru afar fallegir snertifletir á sýningum Steingríms í
Kunstraum og í Gallerí +. Báðar byggja þær á heimi sem er til
staðar í huga hvers og eins, á sammenningarlegum arfi sem
margir deila. Stærðir spila hér líka skemmtilega með áhorfand-
ann sem verður á einfaldan og tilgerðarlausan máta eins og einn
af tindátunum með því að velta stóru kúlunni, fyrir honum jafn
stór og litla kúlan leikföngunum. Teikningar Steingríms eru
kraftmiklar og einfaldar, þær draga upp myndir sem lýsa hugs-
un ákveðinnar menningar, þar sem saman spila leikur og dauði,
stríðshugsun sem við þekkjum öll bæði í dag og úr mannkyns-
sögunni. Einsagan birtist svo í afnöguðum fæti, horfinni hönd.
Samtalið í sýningarskránni er fróðlegt og og bendir á þær vís-
anir sem búa í þessum leikföngum, t.d. í heim kvikmynda, lögð er
áhersla á hugarheim og minningar þeirrar kynslóðar sem lék sér
meira með tindáta en börn gera í dag. Ég efast ekki um að karl-
menn á vissum aldri upplifi mun sterkar þann heim sem vísað er
til í myndunum en ég geri og þær snerti í þeim marga strengi.
En það er til marks um styrk Steingríms sem myndlistarmanns
að sýning hans nær út fyrir þennan þrönga heim, yfirstígur klisj-
una og skapar áhrifaríkar og eftirminnilegar myndir sem ná til
manns, þó maður sé kona. Steingrímur sýnir einkar skýrt hvern-
ig leikurinn sem fyrirbæri, mikilvægur þáttur í list margra lista-
manna í dag, getur verið frjó leið til að skapa listaverk sem búa
yfir dýpri merkingu en eru um leið afar aðgengileg. Ég vona að
sem flestir yfirstígi þröskuldinn að heimagalleríinu Kunstraum
Wohnraum til að sjá sýninguna, en hún stendur til júlíloka.
KUNSTRAUM Wohnraum er heimasýningarrými Hlyns Halls-
sonar og Kristínar Kjartansdóttur að Ásabyggð 2 á Akureyri.
Eðlis málsins vegna eru sýningar þar jafnan í smærri kantinum
en hugvitssamir myndlistarmenn með tilfinningu fyrir eiginleik-
um rýmis geta nýtt sér það verkum sínum í hag. Þannig er um
Steingrím Eyfjörð sem sýnir nú teikningar hjá þeim Hlyni og
Kristínu. Steingrímur sýnir allmargar teikningar af tindátum í
stórri möppu sem sýningargestir fletta, ein teikning prýðir vegg
í stofunni ásamt innrömmuðum texta úr sýningarskrá. Ekki má
gleyma stórum bolta eða kúlu sem rúllar frjáls um gólfið í anda
tindátaleiks þar sem lítil kúla er notuð til að fella þá tindáta sem
fyrir verða. Þetta er önnur sýning Steingríms á Akureyri nú í
vor og sumar en hann sýndi nýverið í Gallerí + að Brekkugötu
35.
Eins og oft á sýningum Steingríms er texti hluti af verkunum,
hér í formi samtals um teikningarnar, tindátaleiki og bakgrunn
verkanna. Viðmælanda Steingríms er ekki getið. Textinn er ekk-
ert mjög langur en les sig betur í skránni en í ramma uppi á
vegg. Við lestur hans kemur í ljós að líklega er undirrituð óhæf
til að fjalla þann heim sem sýningin birtir en þar segir að tin-
dátaheimurinn sé þannig að “Stelpur og konur hafa ekki áhuga á
þessum heimi og hafa kannski aldrei skilið hann. Í rauninni
fyrirlíta þær hann og þau gildi sem hann stendur fyrir. ... Ef ég
væri að höfða til kvenna væri ég sennilega með dúkkur, föt og
blóm en það er önnur saga. Það er kvennasaga. Sem betur fer er
raunheimur okkar opnari og víðari en hinn þröngi heimur klisj- Ragna Sigurðardóttir
Leikið allt til dauðans
MYNDLIST
Kunstraum Wohnraum, Ásabyggð 2, Akureyri
Til 29. júlí. Opið fimmtudaga frá kl. 15–17 og eftir samkomulagi.
Steingrímur Eyfjörð
Morgunblaðið/Kristján
„Steingrímur sýnir einkar skýrt hvernig leikurinn sem fyrir-
bæri, mikilvægur þáttur í list margra listamanna í dag, getur
verið frjó leið til að skapa listaverk sem búa yfir dýpri merk-
ingu en eru um leið afar aðgengileg,“ segir m.a. í umsögn.
OPNUÐ verður á Norðurbryggju í
Kaupmannahöfn í dag sýning á 125
verkum eftir nemendur úr Norður-
Atlantshafslöndum, Noregi og Dan-
mörku, er sýna þjáningu, dauða og
upprisu frelsarans.
Sex bekkjardeildir 6. og 7. bekkj-
ar grunnskólans í Færeyjum, Græn-
landi, Íslandi, Noregi og Danmörku
hafa í vor unnið með 15 mismunandi
biblíusögur og gert samantekt af at-
burðarás Biblíunnar frá páskum
fram á hvítasunnu.
Fyrst unnu bekkirnir hver í sínu
lagi með umrædda biblíutexta og
fengu síðan fjögurra daga námskeið
hjá danska grafíklistamanninum
Inger Winther, þar sem sögurnar
breyttust í þrílitar dúkristur.
Þátttökubekkirnir eru úr Eystur-
skúlanum í Þórshöfn, Atuarfik Jørg-
en Brønlund í Illulisat, Lágafells-
skóla og Varmárskóla í Mosfellsbæ,
Ila Skole í Þrándheimi, Sønder-
markskolen í Frederiksberg og
Matthæusgades Skole í Kaup-
mannahöfn.
Skólaþjónusta kirkjunnar í Kaup-
mannahöfn og á Friðriksbergi hafa
verið frumkvöðlar verkefnisins.
Sýningin stendur til 17. júlí.
Biblíuverk-
efni á Norður-
bryggju
Föstudagur 10. júní kl. 13–15
Listasafn Reykjavíkur – tónlistar-
hópurinn Drýas heldur tónleika.
Lækjartorg – Listahópurinn Siggi
verður með fróðleiksvél og býður
gestum og gangandi upp á ókeypis
fróðleik.
Austurvöllur – Hópurinn Íslend-
ingar verður á Austurvelli.
Apótekið, Austurstræti – strengja-
kvartettinn Loki.
Ingólfstorg / Iða, Lækjargötu –
Fönksveitin Lama breiðir út fagn-
aðarerindi fönksins.
Austurvöllur – Fjöllistahópurinn
Farsældarfrón flytur leikþátt með
fræðilegu ívafi.
Mál og menning, Laugavegi – klass-
íski tónlistarhópurinn Gestalæti
flytur tónlist.
Lækjartorg / Kvosin – danshópur-
inn Svið-Group verður á ferð og
flugi.
Austurvöllur – myndlistarhópurinn
Hýðið sýnir Hýðið.
Kvosin – hópurinn Íslenski þjóð-
söngurinn verður á ferðinni með ís-
lenska þjóðsönginn.
Föstudagsflipp
Hins hússins
♦♦♦