Morgunblaðið - 10.06.2005, Side 52

Morgunblaðið - 10.06.2005, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ STÓRMYNDASUMARIÐ er komið á fullan skrið og er hver stórmyndin á fætur annarri heimsfrumsýnd hér á landi. Hinn 15. júní verður það sjálf Batman Begins, sem tek- in var að hluta hér á landi eins og flestir vita. Christian Bale þykir fara á kostum sem Bat- man en í myndinni nýtur hann liðsinnis margra af stærstu stjörnum Hollywood; Morgans Freeman, Michael Caine, Gary Oldman og Katie Holmes. Daginn eftir, 16. júní, verður fjölskyldumyndin Are We There Yet? frumsýnd. Rapp- arinn Ice Cube leikur mann sem gerir allt til að ganga í augun á tveggja barna móður. Þessi grínmynd fór beint á toppinn í Bandaríkjunum. Þann 22. júní verður The Upside of Anger með Joan Allen, Kevin Costner og Erika Christensen frumsýnd og þann 24. júní verða mynd- irnar, Elvis has left the Build- ing og Guess Whós frum- sýndar. Hin síðarnefnda er gamanmynd með Bernie Mac og Ashton Kutcher í aðal- hlutverkum og náði myndin toppsætinu í Bandaríkjunum þegar hún var frumsýnd vest- anhafs. Mánuðurinn endar svo með stórmyndinni War of the Worlds í leikstjórn Stevens Spielberg sem verður frum- sýnd þann 29. júní. Í myndinni leika meðal annarra Tom Cruise, Dakota Fanning og Tim Robbins. Væntan- legar frum- sýningar Á YFIRBORÐINU eru John og JaneSmith venjuleg úthverfahjón í venju- legu úthverfahjónabandi. En ekki er allt sem sýnist, bæði eru þau að fela leyndarmál sem þau dræpu fyrir að varðveita. Herra og frú Smith eru nefnilega háklassa leynimorðingjar sem vinna fyrir samtök í samkeppni. Nýju lífi er hleypt í hjónabandið þeg- ar þau eru ráðin til að ráða hvort ann- að af dögum. Eftir það kemst aldeilis spenna í sambandið og bæði beita þau öllum sínum brögðum í baráttunni. Stórstjörnurnar Brad Pitt og Ang- elina Jolie leika hjónakornin í Mr. & Mrs. Smith. Þetta þykir vera erótísk spennumynd þar sem leikurinn berst um víðan völl, ýmsar brellur og áhættuatriði setja svip sinn á mynd- ina. Hún er líka gamanmynd um sér- stakar persónur sem eiga við ýmis venjuleg vandamál að stríða. Meint samband Brad og Angelinu hefur verið mikið í fréttum en þau neita því að hafa átt í ástarsambandi. Áður en búið var að velja í hlutverk eiginkonunnar ákváðu Brad Pitt og framleiðendurnir að Doug Liman leikstýrði myndinni. Liman fannst þetta spennandi verkefni en hann hefur áður leikstýrt félaga Pitt, Matt Damon, í The Bourne Identity. Hann hefur einnig leikstýrt Go og Swing- ers. Til viðbótar við þessa stórleikara leikur Adam Brody, Seth Cohen úr The O.C. nokkuð stórt hlutverk í myndinni. Liman hafði áður starfað með honum því hann framleiddi fyrstu þáttaröðina af þessum vinsælu unglingaþáttum. Frumsýning | Mr. & Mrs. Smith Brad Pitt og Angelina Jolie takast á í hlutverkum sínum sem leynimorð- ingjarnir John og Jane Smith. Hjónaband í hremmingum ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 63/100 Empire 80/100 Hollywood Reporter 80/100 Variety 60/100 (skv. metacritic) ÞESSI heimildarmynd fjallar um vinsælustu klámmynd allra tíma en Deep Throat var gerð árið 1972 fyrir 1,6 milljónir króna en hefur halað inn meira en 39 milljarða króna á heims- vísu. Leikstjórarnir Fenton Bailey og Randy Barbato gera myndina en þeir eru þekktir fyrir mynd sína Party Monster, sem fjallaði um klúbbasenu níunda áratugarins. Framleiðendur myndarinnar eru Brian Grazer og leikstjórinn Ron Howard. Dennis Hopper er sögumaður myndarinnar en hann greinir frá gerð þessarar bláu myndar og þeim áhrifum sem hún hafði á bandarískt samfélag. Deep Throat var umdeild mynd og bönnuð í mörgum ríkjum Bandaríkj- anna en það jók aðeins á aðdráttarafl hennar. Þrátt fyrir þessar miklu tekjur af myndinni fékk leikstjóri hennar Ger- ard Damiano ekki mikið fyrir sinn snúð og leikararnir Linda Lovelace og Harry Reems fengu eitthvert smáræði. Í heimildarmyndinni ræða Dam- iano og Reems um myndina en Love- lace lést árið 2002. Til viðbótar er rætt við margt þekkt fólk um Deep Throat, allt frá Hugh Hefner til Ger- maine Greer. Frumsýning | Inside Deep Throat Naflaskoðun samfélagsins Heimildarmyndin Inside Deep Throat skoðar heim bláu myndanna út frá þekktri klám- mynd frá árinu 1972. ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 64/100 Roger Ebert Hollywood Reporter 70/100 New York Times 40/100 Empire 80/100 Variety 70/100 (skv. metacritic)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.