Morgunblaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðamönnum sem ætla að takaviðtalvið Angelinu Jolie um
nýjustu kvikmynd hennar hefur ver-
ið tjáð að þeir eigi á hættu að verða
lögsóttir ef þeir spyrji stjörnuna
persónulegra spurninga. Er blaða-
mönnunum gert að undirrita yfirlýs-
ingu áður en viðtal getur farið fram,
þar sem þeir heita því að spyrja leik-
konuna ekki út í einkahagi hennar.
Frá þessu greinir Ananova.com. Í
kvikmyndinni Herra og frú Smith
leikur Angelina á móti Brad Pitt.
Yfirlýsingin sem blaðamenn verða
að undirrita er svohljóðandi: „Spyrill
mun ekki spyrja Jolie neinna spurn-
inga varðandi persónuleg sambönd
hennar. Spyrji spyrill Jolie ein-
hverra spurninga varðandi persónu-
leg sambönd
hennar áskilur
Jolie sér rétt til
að binda enda á
viðtalið og hverfa
á braut.“ Þá mun
einnig koma fram
í yfirlýsingunni
að ef spyrill
standi ekki við
loforðið megi
hann búast við lögsókn og að verða
krafinn um „ótilgreinda upphæð“ í
skaðabætur.
Ástralski kvikmyndaleikarinnRussell Crowe sér eftir því að
hafa hent síma í andlitið á dyraverði
á hóteli sem hann dvaldi á í New
York á mánudaginn. Crowe baðst
opinberlega afsökunar á atvikinu í
viðtali í þætti David Letterman á
miðvikudagskvöld. Hann sagði að
þetta hafi verið sorgleg hegðun og
ástæðan sé sú að
hann sé einmana
fjölskyldumaður
sem sé mikið í
burtu frá fjöl-
skyldu sinni.
Hann henti sím-
anum í dyravörð-
inn þegar hann
náði ekki sam-
bandi við konu
sína í Ástralíu. Í þættinum í gær
sagði Crowe að þetta hafi hugs-
anlega verið skammarlegasta að-
staða sem hann hafi komið sér í.
Crowe vann til Óskarsverðlauna
árið 2001 fyrir besta leik í aðal-
hlutverki í myndinni Skylm-
ingaþrællinn. Í nýjustu kvikmynd
sinni leikur hann hnefaleikamann.
Bob Geldof segir það bull og vit-leysu að Spice Girls eigi að
koma saman aftur og spila á Live 8
tónleikunum hans í sumar, þær
fengju það aldrei því þær séu ein-
faldlega ekki nógu vinsælar til þess.
Sagði hann að jafnvel þótt stúlk-
urnar fimm, Mel B, Geri Halliwell,
Victoria Beckham, Mel C og Emma
Bunton byðust til að koma fram
myndi hann neita því vegna þess að
enginn hafi áhuga á að sjá þær.
Sagði hann að orðrómurinn um að
þær eigi að koma saman aftur og
spila á Live 8 sé bara auglýs-
ingabrella fyrir nýju plötuna hennar
Geri Halliwell.
„Ég hef ekki efni
á því að fá hljóm-
sveitir sem laða
ekki að áhorf-
endur. Þetta er
pólitískur við-
burður, ekki
menningarlegur.
Þetta er spurning
um hver er vin-
sæll akkúrat núna; þannig er þetta
bara,“ segir hann.
„Allt þetta Spice Girls-mál snýst
ekkert um minn persónulega smekk
– krakkarnir mínir syngja lögin
þeirra. Það bara er ekki nóg af fólki
þarna úti sem myndi vilja sjá þær.“
Fólk folk@mbl.is
Á DAGSKRÁNNI voru fimm stutt-
myndir frá öllum hornum heimsins.
Myndirnar voru skemmtilega valdar
saman, allt vandaðar myndir en sér-
lega ólíkar að efni og efnistökum. Ef
þetta endurspeglar það sem er að
gerast í stuttmyndagerð í heiminum,
væri gaman að fá að sjá meira.
Allt í þessu landi (Everything in
this country must)
Leikstjórn: Gary Mckendry. 20 mín.
BNA 2005.
Myndin gerist á Norður-Írlandi,
og segir frá þegar breskir hermenn
bjarga hesti heimastúlku, og þær
blendnu tilfinningar sem hún ber til
þeirra eftir á. Myndin byggir á smá-
sögu þekkts írsks skálds. Þetta er af-
bragðssaga, áhrifarík og myndin er
skemmtilega klassísk, ekki bara
fléttan heldur innihaldið og efn-
istökin. Og það er eiginlega furðu-
lega hressandi. Myndin er vel gerð í
alla staði, falleg sviðsmynd og góður
leikur.
Alice og ég
(Alice et moi)
Leikstjórn: Micha Wald. 19 mín. Belgía
2004.
Myndin gerist meira og minna í
Volvo þar sem Simon er að keyra
gamla frænku sína og vinkonur
hennar langa leið. Kærastan Alice
hringir og segir Simon upp á leiðinni.
Myndin er skemmtileg og vel unnin
myndrænt séð. Leikstjóranum tekst
að ná upp góðri stígandi, þar sem æs-
ingur eykst. Myndin gerir hnitmiðað
grín að samskiptum kynjanna, kyn-
slóðanna og gyðinga sín á milli.
Aldrei jafnir
(Nie Solo Sein)
Leikstjórn: Jan Schomburg. 10 mín.
Þýskaland 2004.
Í þessari skólamynd er byggt á
þeirri hugmynd að tímanum væri
snúið við og allir gengju aftur á bak
nema þú. Hugmyndirnar sem fram
koma og úrvinnslan eru algjör snilld,
bráðfyndnar og vel úthugsaðar. Frá-
bær stuttmynd í alla staði.
Allt á að fara
(Everything goes)
Leikstjórn: Andrew Kotatko. 18 mín.
Ástralía 2005.
Hugo kynnist ungu pari þegar
hann selur búslóðina eftir skilnað.
Þessi mynd er ágæt, en eiginlega síst
allra á dagskránni. Hún er þó vel
leikin, en slegið er á kunnuglega
strengi, og það vantar meiri frum-
leika eða sterkari punkt til að gera
hana eftirminnilega.
Í eigin heimi
(The quiet one)
Leikstjórn: Danyael Sugawara. 32 mín.
Holland 2004.
Ég hafði mjög gaman af þessi
mynd sem gerist í Japan. Skilaboðin
eru einföld og klassísk, en myndin
gefur áhugaverða sýn á lífi ung-
menna sem lifa fyrir framan tölvu-
skjáinn. Skemmtileg, áhugaverð,
hjartnæm og vel leikin.
Hressandi fjölbreytni
KVIKMYNDIR
Tjarnarbíó –
Reykjavík Shorts & Docs
Stuttmyndadagskrá III – Heimurinn –
Hildur Loftsdóttir
KARL Lagerfeld ætlar að fara á mark-
að með nýja fatalínu í Bandaríkjunum,
sem verður bæði fyrir konur og karla.
Nýja línan verður helmingi ódýrari en
hönnunarlína hans Lagerfeld Gallery,
sem fór af stað í París árið 1998.
Línan verður kynnt í febrúar og
verður „ung og frískandi með gallaefni,
íþróttafötum, stuttermabolum og jökk-
um,“ sagði Ann Aciermo, yfirmaður hjá
Tommy Hilfiger, bandaríska fyrirtæk-
inu sem keypti merki Karls Lagerfeld í
desember.
„Karl Lagerfeld-línan á eftir að henta
nútíma lífsstíl. Þetta verður stórt. Það
er meiri nálægð í Gallery,“ sagði Lag-
erfeld í viðtali við tímaritið Women’s
Wear Daily. Nýja línan kemur fyrst í
stað aðeins á markað í Bandaríkjunum.
„Ég hugsaði mér alltaf að vinna í
New York, París og Róm,“ sagði hann
og vísar til starfs síns hjá Chanel í París
og Fendi í Róm og til nýju línunnar, sem
verður hönnuð í New York. „Ég er mikið fyrir mikla útbreiðslu. Með há-
tísku hef ég sannað að ég geti hannað dýrustu hlutina og með H&M þá
ódýrustu. Þetta verður einhvers staðar mitt á milli,“ sagði hann.
Tíska | Karl Lagerfeld með nýja
fatalínu í Bandaríkjunum
Ung og frískandi
Reuters
Þýski hönnuðurinn Karl Lager-
feld er ávallt stællega klæddur.
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
Sýnd kl. 8
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
kl. 5.20 og 10.10 B.I 10 ÁRA
kl. 4, 5, 7, 8 og 10 B.I 10 ÁRA
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 3.50 m. ísl tali
Miðasala opnar kl. 15.30
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDEFRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
LEGALLY BLONDE
JENNIFER
LOPEZ
JANE
FONDA
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA I I Í
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
HEIMSFRUMSÝNING
HEIMSFRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.40 og 00 á miðnætti B.i 14 ára
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
kl. 8 og 10.40
kl. 5
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
EMPIRE
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
Bourne IdentityBourne IdentityFrá leikstjóra Bourne Identity
Frá leikstjóra Bourne Identity
Missið ekki af svölustu mynd
sumarsins með heitasta pari heims!
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
AÐSÓKNARMESTAMYND ÁRSINS
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
SJ. blaðið
Kvikmyndir.com
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttablaðið
x-fm
Sýnd kl. 5.40, 8, 10.20 og kl. 12.30 (Kraftsýning) B.i 14 ára
Powersýningá miðnætti
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM
„Skotheld frá A-Ö ---- Afþreying í hæsta klassa“
K&F - XFM