Morgunblaðið - 10.06.2005, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UNDUR og stórmerki gerast enn, Bylgju-
lestin er öll. Í mörg ár var þessi skari tónlist-
armanna, skemmtikrafta og útvarpsmanna
sem ferðaðist um landið, einn af fáum ljós-
geislum íslenskrar dægurmenningar á lands-
byggðinni. Bylgju-
lestin var líklega
það fyrirbæri sem
komst næst því að
vera farandsirkus,
eins og þeir sem
finnast í útlöndum
og til marks um
mikilvægi lest-
arinnar innan tón-
listargeirans,
samdi Sálin hans
Jóns míns óð til
hennar, „Lestin er
að fara“ – og nú
er hún farin, fyrir fullt og allt. Guðmundur
Arnar Guðmundsson, kynningarstjóri Bylgj-
unnar, segir ástæðurnar vera fjárhagslegs
eðlis. „Það var bara alltof mikið umstang í
kringum þetta og þó að við hefðum glaðir vilj-
að halda lestinni áfram, var þetta orðið of erf-
itt.“
Guðmundur tekur þó ekki undir að Bylgjan
sé af baki dottin. „Í sumar verðum við með
dagskrá sem kallast Bylgjan á puttanum þar
sem útvarpsmenn munu fylgja eftir hátíðum
og öðrum viðburðum á landsbyggðinni og út-
varpa svo frá öllum herlegheitunum. Einnig
verðum við með það sem við köllum Glugga-
póst Bylgjunnar. Viku áður en Bylgjan mætir
á svæðið fá heimamenn plakat inn um lúguna
með merki Bylgjunnar og nokkurra fyrir-
tækja. Þú tekur þátt í leiknum með því að
setja plakatið út í glugga og svo munu starfs-
menn Bylgjunnar velja nokkur hús sem fá
glæsileg verðlaun frá Fosshótelunum, Olís,
Nettó og Samkaupum.
Bylgjan verður á eftirtöldum stöðum í sum-
ar en von er á að fleiri uppákomur bætist í
hópinn; Akureyri 2. júlí, Írskum dögum á
Akranesi 8. til 10. júlí. Á Dalvík á Fiskideg-
inum mikla 6. ágúst og á Dönskum dögum á
Stykkishólmi hinn 13. ágúst.
Bylgjulestin öll
Eyvi Eitís var meðal far-
þega í Bylgjulestinni
sumarið 2001.
Á puttanum
í sumar
Bandaríski tónlistarmað-urinn Jonathan Richmanverður meðal flytjenda á
Innipúkanum, einkar áhuga-
verðri tónlistarhátíð sem haldin
verður í Reykjavík um versl-
unarmannahelgina. Áður hafði
verið upplýst að bandaríska
tilraunarokksveitin Blonde
Redhead muni leika á Innipúk-
anum.
Innipúkinn er haldinn í fjórða
sinn í ár og hefur þessi litla og
látlausa „innihátíð“ notið æ vax-
andi vinsælda. Fyrsta árið sem
Innipúkinn var haldin, um versl-
unarmannahelgina 2001, voru
það sveitirnar Dr. Gunni og
Rúnk, sem slógu upp nettu part-
íi fyrir sig og sína í Iðnó. Hátíð-
in sló í gegn og sýndi að það
væri sannarlega þörf fyrir þess-
konar skemmtun í höfuðborg-
inni, á meðan þorri þjóðarinnar
væri sprangandi um landið vítt
og breitt eða á einhverri hinna
skipulögðu hefðbundnu útihá-
tíða. Síðan þá hefur hátíðin ver-
ið haldin árlega, vaxið fiskur
um hrygg og náð að mynda sér
fastan sess í íslensku tónlistar-
og skemmtanalífi.
Gert er ráð fyrir að Innipúk-
inn í ár standi yfir í tvo daga og
að tónleikarnir, þar sem fram
koma bæði erlendir og íslenskir
listamenn, verði haldnir í Nasa
við Austurvöll.
Jonathan Richman hefur fyrirlöngu skapað sér vissan
„költ“-sess í tónlistarheiminum,
sem bæði sérvitur og óútreikn-
anlegur tónlistarmaður, ein-
stakur í sinni röð. Næsta barns-
legur einfaldleiki og lúmsk
kímnigáfa er eitt af höfuð-
einkennum Richmans sem hóf
feril sinn fyrir rúmum þremur
áratugum síðan sem forsprakki
hljómsveitarinnar the Modern
Lovers. Richman á það til að
fara um víðan völl í tónlistar-
stílum; hefur flakkað úr New
York-skotnu listrokki yfir í
pönkað bílskúrsrokk, þaðan í
sveitatónlist, grípandi popp og
á síðari árum hefur hugur hans
leitað æ frekar til latíntónlistar
og hann hefur gefið út plötur
sem alfarið eru sungnar á
spænsku. Kunnastur eru hann
þó nú á dögum fyrir að hafa
spilað stóra rullu í gamanmynd-
inni There’s Something About
Mary, þar sem hann dúkkaði
reglulega upp með kassagítar
sinn, sem nokkurskonar syngj-
andi sögumaður myndarinnar.
Richman er fæddur 1951 íBoston en fluttist árið 1969
til New York þar sem hann
komst fljótlega í tæri við helstu
áhrifavalda sína, Velvet Under-
ground, og fékk meira að segja
að sofa í tvær vikur á sófanum
hjá umboðsmanni sveitarinnar.
Það leiddi til samstarfs hans við
John Cale sem átti eftir að
stjórna upptökum á fyrstu plötu
the Modern Lovers sem var
samnefnd sveitinni, kom út árið
1973 og er ennþá hátt metin, en
þess má geta að Jerry Harrison
úr Talking Heads, var þá hljóm-
borðsleikari sveitarinnar. Plat-
an hefur að geyma nokkur af
dáðustu og langlífustu lögum
Richmans, eins og „Pablo Pic-
asso“ og „Hospital“. Síðar
breyttist nafn sveitarinnar í
Jonathan Richman & the Mod-
ern Lovers og átti árið 1978
stóran smell í Evrópu sem heitir
„Egyptian Reggae“ en um þær
mundir var Richman jafnan tal-
in til hinnar bandarísku ný-
rokkssenu sem einnig taldi
Blondie, Cars, Talking Heads
og síðar Violet Femmes. Eftir
það hóf hann sólóferil og hefur
gefið út fjölda platna og átt
traustu fylgi að fagna allar göt-
ur síðan.
Verður án efa fengur í komu
Richmans og spennandi að sjá
hvernig tónlist hans fellur að
því sem aðrir Innipúkar, erlend-
ir sem innlendir, mun hafa fram
að færa.
Innipúkinn Jonathan Richman
’Gert er ráð fyrir aðInnipúkinn í ár standi
yfir í tvo daga og að
tónleikarnir, þar sem
fram koma bæði er-
lendir og íslenskir
listamenn, verði
haldnir í Nasa við
Austurvöll.‘
AF LISTUM
Skarphéðinn Guðmundsson
Jonathan Richman á sér traustan hóp aðdáenda um heim allan.
skarpi@mbl.is
Inside Deep Throat kl. 7 - 9 og 11 b.i. 16
A Lot Like Love kl. 5.45 - 8 og 10.15
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy kl. 5.40 - 8 og 10.20
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
aston kutcher amanda peet
Ó.H DV
H.L MBL
Ó.H.T RÁS 2
Halldóra - Blaðið Í hraða lífsins
kemur að því að
við rekumst á
hvert annað
ROGER EBERT
ROLLING STONE
S.K. DV.
Capone XFM
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar
Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
Myndin var tekin á 6 dögum fyrir 25.000 dali.
Ríkisstjórnin vildi ekki að þú sæir myndina.
Hún var bönnuð í 23 ríkjum.
Myndin halaði inn 600 milljónir dala á heimsvísu.
Hún er arðsamasta mynd kvikmyndasögunnar.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Heimildarmynd frá Óskarsverðlaunahafanum
Brian Grazer