Morgunblaðið - 18.09.2005, Side 4
4 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SÉRA Árni Bergur
Sigurbjörnsson, sókn-
arprestur í Áspresta-
kalli, lést á Landspít-
ala – háskólasjúkra-
húsi í gærmorgun, 64
ára að aldri.
Árni fæddist 24.
janúar árið 1941 á
Breiðabólsstað á
Skógarströnd, sonur
Sigurbjörns Einars-
sonar biskups og konu
hans, Magneu Þor-
kelsdóttur.
Árni varð stúdent
frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1968 og lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands
1972. Hann sótti námskeið í
biblíuþýðingum í Halle í
Þýskalandi árið 1971, stundaði
nám við San Francisco Theological
Seminary árið 1978 og framhalds-
nám í Nýja testamentisfræðum við
Háskólann í Lundi árin 1978 til
1980.
Árni Bergur varð sóknarprestur
í Ólafsvíkurprestakalli árið 1972
og þjónaði því til 1980, að hann
varð sóknarprestur í Ásprestakalli
í Reykjavík og gegndi því embætti
til dauðadags.
Áður en hann fór í guðfræðina
gegndi Árni ýmsum störfum, m.a.
við kennslu og
skrifstofustörf og
var um tíma bókari
og síðar fulltrúi á
skrifstofu ríkisspít-
ala.
Árni gegndi fjöl-
mörgum trúnaðar-
störfum innan Þjóð-
kirkjunnar, m.a. í
kjaranefnd Presta-
félags Íslands,
framkvæmdanefnd
Hjálparstofnunar
kirkjunnar, í stjórn
Hins íslenska bibl-
íufélags um árabil, í
þýðingarnefnd Gamla testamentis-
ins frá 1990 og þýðingarnefnd
Nýja testamentisins frá 2001 til
2003. Þá vann hann að þýðingu
svonefndra apókrýfra bóka Gamla
testamentisins úr frummálinu, auk
fleiri ritstarfa. Árni Bergur var
stundakennari við guðfræðideild
Háskóla Íslands frá 1982, próf-
dómari í grísku og Nýja testa-
mentisfræðum frá 1977 og Gamla
testamentisfræðum og kirkjusögu
frá árinu 1990.
Eftirlifandi eiginkona Árna er
Lilja Garðarsdóttir skrifstofumað-
ur og eignuðust þau þrjú börn;
Hörpu, Magneu og Garðar. Barna-
börn eru orðin níu.
Andlát
ÁRNI BERGUR
SIGURBJÖRNSSON
ALÞJÓÐLEGRI ráðstefnu um jarð-
vegsvernd er að ljúka á Selfossi um
helgina en þar eru samankomnir
nokkrir af fremstu sérfræðingum
heims á þessu sviði, alls um 60
manns. Landgræðsla ríkisins og
Landbúnaðarháskóli Íslands standa
að ráðstefnunni í samvinnu við al-
þjóðleg náttúruverndarsamtök og
evrópska starfshópinn SCAPE, sam-
ráðsvettvang sérfræðinga sem veitir
Evrópusambandinu ráðgjöf um mót-
un stefnu til að vernda jarðvegsauð-
lindina.
Ólafur Arnalds, prófessor við um-
hverfisdeild Landbúnaðarháskólans,
hefur í fjögur ár verið stjórnarmaður
og ráðgjafi hjá SCAPE, eftir að hafa
tekið þátt í að móta þennan starfshóp
sem einn helsti sérfræðingur Evrópu
á sviði jarðvegsverndar.
Hann segir við Morgunblaðið að
jarðvegseyðing sé gríðarlegt vanda-
mál um allan heim. Ráðstefnan sé
merkileg að því leyti að þar komi
saman sérfræðingar, sem hafi verið
að rannsaka vandamál
vegna jarðvegsvernd-
ar, og þeir sem fjalli
um lagasetningu og
stjórnsýslu á sama
sviði. Vonast Ólafur til
að ráðstefnan skili
þannig tillögum að til
hennar verði vitnað í
framtíðinni við stefnu-
mótun jarðvegsvernd-
ar í heiminum.
Til marks um vand-
ann segir Ólafur að ár-
lega gjöreyðist jarð-
vegur á jörðinni sem
samsvari flatarmáli Írlands og af-
komu um milljarðs manna sé ógnað
af jarðvegseyðingu. Á sama tíma sé
fæðuþörfin að aukast. Evrópusam-
bandið hafi tekið þá afstöðu að eitt-
hvað þurfi að gera og í kjölfarið hafi
SCAPE-hópurinn verið settur sam-
an.
Starfið á Íslandi vekur
mikla athygli
Ólafur segir staðarvalið fyrir ráð-
stefnu sem þessa enga tilviljun. Ís-
land eigi við mikinn
vanda að glíma í jarð-
vegseyðingu en jafn-
framt sé hér til staðar
merk stofnun, Land-
græðsla ríkisins, ein
elsta jarðvegsstofnun
veraldar, stofnuð árið
1907. Hér hafi náðst
góður árangur á mörg-
um sviðum en sömu-
leiðis hafi okkur mis-
tekist á mörgum
sviðum.
„Jarðvegsverndar-
starf á Íslandi hefur
breyst gríðarlega mikið til batnaðar.
Menn eru ekki lengur að rífast um
hvort raunverulegur vandi sé til stað-
ar heldur snýst umræðan á Íslandi
um lausnir. Landgræðslan hefur náð
miklum árangri í grasrótarsamstarfi
við bændur, þar sem þeir eru gerðir
ábyrgir í jarðvegsvernd sem vörslu-
menn landsins. Þetta hefur vakið
mikla athygli erlendis,“ segir Ólafur,
en margir erlendir sérfræðingar hafa
jafnframt komið til Íslands til lengri
og styttri dvalar og kynnt sér rann-
sóknir og starfsemi Landgræðslunn-
ar og fleiri landbúnaðarstofnana.
Hann segir að þrátt fyrir góðan ár-
angur sé enn verið að reka sauðfé á
verst förnu afrétti landsins, eins og
Landmanna- og Rangárvallaafrétt.
Með gæðastýringu í landbúnaði verði
þó vonandi farið að hlífa t.d. afréttum
meira og mikilvægt að beingreiðslur
til bænda fari í einhverja slíka um-
hverfisvernd. Leiðin til árangurs í
jarðvegsvernd sé að skilyrða greiðsl-
ur við sjálfbæra landnýtingu.
Morgunblaðið/RAX
Á ráðstefnuna á Hótel Selfossi hafa komið saman nokkrir af helstu sérfræðingum heims á sviði jarðvegsverndar, alls um 60 manns.
Árlega gjöreyðist land
sem svarar til Írlands
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
HÓPUR frá bresku sjónvarpsstöð-
inni BBC News var viðstaddur
fyrsta dag ráðstefnunnar á Hótel
Selfossi í liðinni viku. Ólafur
Arnalds segir það til marks um hve
ráðstefnan vekur mikla alþjóðlega
athygli.
Fjórir þáttagerðarmenn hafi í
leiðinni komið til landsins til að
fjalla um landgræðslu og jarðvegs-
eyðingu á Íslandi.
Hópur frá BBC
News mætti
Ólafur Arnalds.
HERAGI ríkti á Miklatúni í gær-
morgun þegar um 60 manns voru
saman komin í svokallaða Boot
Camp-þjálfun, en það er vísun í
grunnþjálfun hermanna erlendis og
tákn um mjög erfiðar líkamlegar æf-
ingar. Birgir Konráðsson, þjálfari,
og stofnandi Boot Camp á Íslandi,
segir æfingarnar alla jafna eiga sér
stað innan dyra. „En aðra hverja
viku þá förum við út fyrir salinn til
þess að brjóta þetta upp. Þá köllum
við saman alla hópana okkar,“ segir
Birgir. Aðspurður segir hann íþrótt-
ina ekki einvörðungu höfða til karla
heldur fólks á öllum aldri. „Konur
eru yfirleitt í meirihluta og hafa
rosalega gaman af þessu.“
Morgunblaðið/Þorkell
Heræfingar
á Miklatúni
KVENNALIÐ Vals í knattspyrnu
náði í gær þeim frábæra árangri að
tryggja sér sæti í 8 liða úrslitum í
Evrópukeppni kvenna í knatt-
spyrnu þegar liðið vann stórsigur á
liði Alma frá Kazakhstan, 8:0. Þetta
var þriðji leikur liðsins í milliriðl-
inum og fór hann fram í Eskiltuna í
Svíþjóð. Valsstúlkur luku keppni í
riðlinum með markatöluna 12:2.
Eins og tölurnar gefa til kynna
voru yfirburðir Valsliðsins algjörir
í leiknum og komu fimm markanna
í fyrri hálfleik. Margrét Lára Við-
arsdóttir fór á kostum í framlínunni
og skoraði fjögur mörk, Málfríður
Erna Sigurðardóttir gerði tvö mörk
og þær Dóra Stefánsdóttir og Rakel
Logadóttir sitt markið hvor.
Frammistaða Vals í keppninni
hefur verið hreint út sagt frábær
og íslenskri knattspyrnu til mikils
sóma, segir á heimasíðu Knatt-
spyrnusambands Íslands. 8 liða úr-
slitin verða leikin 8. og 19. október,
heima og heiman.
Góður árangur
Valsstúlkna