Morgunblaðið - 18.09.2005, Page 62

Morgunblaðið - 18.09.2005, Page 62
62 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ BENJAMIN BRITTEN the turn of the screw ef t i r 25 ára og yngri: 50% afsláttur af miða- verði í sal Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 21. okt. kl. 20 - Frumsýning 23. okt. kl. 20 - 2. sýning - 30. okt. kl. 20 - 3. sýning 4. nóv. kl. 20 - 4. sýning - 6. nóv. kl. 20 - 5. sýning 6. nóv. kl. 20 - 6. sýning - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningar á Tökin hert , 2. - 6. sýning Kl. 19.15 – Stutt kynning á verkinu og uppsetningu þess. Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði. Í dag kl. 14 16. sýn. sun. 2/10 kl. 14 17. sýn. sun. 16/10 kl. 14 www.leikhusid.is Sala á netinu allan sólarhringinn. Afgreiðsla í húsinu frá kl. 12.30 Sími 55 11 200 - opinn frá 10:00 StórA Sviðið kl. 20.00 LitLA Sviðið kl. 20.00 KODDAMAÐURINN Fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fös. 30/9 nokkur sæti laus, lau. 1/10. Takmarkaður sýningafjöldi. KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR Í dag sun. 18/9 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 25/9 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 2/10 kl. 14:0, sun. 9/10 kl. 14:00. EDITH PIAF Sun. 18/9 örfá sæti laus, fim. 22/9, fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fim. 29/9, fös. 30/9. Sýningum lýkur í október. Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Nýja svið KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Í dag kl 14 - UPPSELT Su 25/9 kl. 14 Lau 1/10 kl. 14 Su 2/10 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 22/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 23/9 kl. 20 - UPPSELT Lau 24/9 kl. 20 - UPPSELT Má 26/9 kl. 20 - Aukasýning Fim 29/9 kl. 20- UPPSELT Sala áskriftarkorta stendur yfir Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færðu að auki gjafakort á leiksýningu að eigin vali - Það borgar sig að vera áskrifandi - MANNTAFL Í kvöld kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT Su 25/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 WOYZECK: Í samstarfi við Vesturport. – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000 Í kvöld kl. 21 Fö 23/9 kl. 20 Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 30/9 kl. 20 Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku) HÍBÝLI VINDANNA Örfáar aukasýningar í haust Lau 24/9 kl. 20 Su 25/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 Fö 30/9 kl. 20- UPPSELT Lau 1/10 kl. 16 - Aukasýning Lau 1/10 kl. 20 - UPPSELT Fi 6/10 kl. 20 - Aukasýning Pakkið á móti - Örfáar aukasýningar fös. 23. sept. 12. kortasýning kl. 20 Belgíska kongó - gestasýning fös. 30. sept. 1. kortasýning kl. 20 lau. 1. okt. 2. kortasýning kl. 20 Áskriftar- kortasala stendur yfir 3. SÝN FÖS 23. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 4. SÝN LAU 24. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 5. SÝN FÖS 30. kl. 20.00 6. SÝN LAU 1. OKT kl. 20.00 7. SÝN FÖS 7. OKT kl. 20.00 MÁLVERK Eiríks Smith eru vel kynnt um þessar mundir, stór sýning í Hafnarborg og allnokkur olíu- málverk í Listasafni Reykjanes- bæjar. Þar sýnir Eiríkur ásamt nokkrum nemendum sínum af nám- skeiðum í Baðstofunni svokölluðu, fé- lagsskapar sem stofnaður var í Kefla- vík 1972 og hafði að markmiði ýmsa menningarstarfsemi eins og segir í bæklingi, m.a. myndlist. Sýningin er haldin í tilefni þess að 30 ár eru liðin síðan Eiríkur hóf kennslu í Baðstof- unni, en þar kenndi hann í ellefu ár. Honum var boðið að velja til sýningar verk eftir nokkra nemendur sína og myndir þeirra Ástu Árnadóttur, Ástu Pálsdóttur, Sigríðar Rósinkars- dóttur, Soffíu Þorkelsdóttur og Þór- unnar Guðmundsdóttur prýða veggi safnsins ásamt olíumálverkum Ei- ríks. Konurnar fimm hafa allar sýnt verk sín áður og myndir þeirra eru þeim til sóma, þegar haft er í huga að varla er hér hægt að tala um atvinnu- málara eins og Eirík. Eiríkur sýnir myndir sínar á einum vegg og skapar sterka heild litsterkra verka, þar sem andstæður í litum og formum virka sterkt á áhorfandann. Þetta eru myndir frá síðustu árum, að mínu mati tekst Eiríki jafnan best upp þeg- ar hann er hvað mildastur og sam- hljómur verður til innan verksins, hin ómstríðari verk eru erfiðari viðfangs. Konurnar fimm sýna allar sín per- sónulegu einkenni, Ástu Árnadóttur tekst vel upp í að láta ósnerta fleti pappírsins öðlast líf og hún sýnir nokkra áræðni í því samspili. Myndir Ástu Pálsdóttur eru raunsærri og vetrarlitir farast henni ágætlega úr hendi, sérstaklega þar sem ekki er of- unnið. Sigríður Rósinkarsdóttir er nokkuð abstrakt í myndum sínum þó megi vel sjá í þeim náttúrutengingar. Hún vinnur einnig með andstæður ekki ósvipað og Eiríkur þó verk þeirra líkist ekki að öðru leyti og er tiltölulega djörf í litanotkun. Soffía Þorkelsdóttir sýnir ekki ófrumlegar klippimyndir sem ganga hvað best upp þar sem uppbrot landslagsins er mest, en þetta er vinnuaðferð sem býður upp á góða möguleika. Einna mildastar eru myndir Þórunnar Guð- mundsdóttur en hún sýnir djörfustu tilraunirnar í því að leyfa flæðandi og gegnsæum eiginleikum vatnslitanna að njóta sín. Að sýningunni sem slíkri alls ólast- aðri get ég þó ekki annað en spurt að því hvort að ekki sé mál að Listasafn Reykjanesbæjar fari að koma fram með skýrari sýningarstefnu. Ég hef nýverið fjallað um vanda íslensks samfélags sem tæpast gerir upp á milli atvinnumanna og áhugafólks í myndlist, hér er enn eitt dæmið um slíka sýningu og nú í opinberu lista- safni. Að mínu mati á sýning sem þessi ekki heima hér. Hlutverk safns- ins hlýtur að vera annað og metn- aðarfyllra en að sýna verk áhuga- fólks, jafnvel þegar um er að ræða alveg ágætis vatnslitamyndir. Hvern- ig á almenningur að geta gert sér grein fyrir eiginleikum, markmiði og möguleikum myndlistarinnar sem eru svo ótal margir og spennandi, jafnt fyrr á tímum sem í dag, en end- urspeglast að afar takmörkuðu leyti í vatnslitamyndum á borð við þessar – þegar söfnin sjálf hirða ekki um að kynna listina og taka verk áhugafólks fram yfir allan þann hæfileikaríka fjölda yngri sem eldri atvinnulista- manna sem vinna á Íslandi í dag? Þol- inmæði listamanna og annarra sem láta sig listir varða hefur verið of mik- il gagnvart þessu viðhorfi en henni hljóta að vera einhver takmörk sett. Því er ástæða til að óska eftir meiri metnaði í starfsemi Listasafns Reykjanesbæjar í framtíðinni og einnig eftir því að listamenn og áhugamenn geri sér gleggri grein fyrir ólíkum markmiðum sínum. Atvinnumenn og áhugafólk MYNDLIST Listasafn Reykjanesbæjar Til 16. október. Safnið er opið alla daga frá kl. 13–17.30. Eiríkur Smith og konurnar í baðstofunni, málverk og vatnslitir Ragna Sigurðardóttir Þórunn Guðmundsdóttir: Sumardagur, 2005. Michael Page í Gel Gallery Í GEL Gallery hefst í dag sýning á verkum Michaels Page. Þetta fyrsta einkasýning hans í Evrópu. Michael er 26 ára og er upprunalega frá Orange County í Bandaríkj- unum en hefur búið síðustu ár í San Fransisco þar sem hann hefur haldið vel á annan tug samsýninga og einkasýn- inga undanfarið ár. Sýningin verður opnuð kl. 20 og stendur í viku. Á opnun sýningarinnar munu PMS Peacemusic (ný hljómsveit þriggja meðlima úr Hjálm- um) spila órafmagnað. STARFSMAÐUR uppboðshússins Christie’s í London virðir fyrir sér áður óþekkt portrettmálverk eftir ítalska meistarann Titian. Heiti myndarinnar er Portrett af konu og dóttur hennar og verður boðið upp hjá Christie’s í desem- ber. Búist er við að myndin fari á meira en fimm milljónir punda, eða ríflega hálfan milljarð króna. Myndin var týnd í meira en fjórar aldir, eftir að málað hafði verið yfir hana, að líkindum af nemanda Titians, Leonardo Corona. Reuters Titian á hálfan milljarð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.