Morgunblaðið - 09.10.2005, Side 36

Morgunblaðið - 09.10.2005, Side 36
36 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 Jón bóndi í Ölfusi veit hvað hann syngur þegar kemur að sölu bújarða Ef þú ert að leita að bújörð þá ertu í traustum höndum með Jón þér við hlið Til þjónustu reiðubúinn í síma 896 4761 Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17. Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi. Einna fremstir í bújörðum Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hdl. og lögg. fasteignasali HLÍÐARHJALLI 24 - Opið hús kl. 16:00-17:00 Í DAG, SUNNUDAG 9. OKTÓBER Fallegt og mjög bjart 205,1 fm tvíbýlishús, þar af er 28,8 fm bíl- skúr, á tveimur hæðum á frábærum stað í suðurhlíðum Kópa- vogs. Mikil lofthæð er í húsinu, innbyggð lýsing í lofti. Vönduð gólfefni. Eldhús opið við stofu/borðstofu. Arinn í stofu. Stór og góður pallur, suðurgarður í fallegri rækt. Forkaupsréttur er á íbúð- inni niðri. Vönduð eign á góðum stað. Ásett verð 45,0 millj. Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fastsali. Gsm 899 9545 Gísli Sigurbjörnsson sölumaður FAX 568 3231 Góð 3ja herb.íbúðá 3. hæð. Skiptist í rúmgóða stofu með útgangi á stórar svalir, 2svefnherb. eldhús með borðkróki og flísalagt baðherb. með nýrri innréttingu. Nýtt parket á gólfum.Laus fljótlega. Eigandinn Þórk Björk verður á staðnum og sýnir eignina. OPIÐ HÚS í dag milli kl.14 og 16 MÖÐRUFELL 3, 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali Í enkasölu falleg og vel skipulögð 120,7 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Anddyri/hol með góðum skáp, stór og björt stofa/borðstofa, upptekið loft, útgangur á rúmgóðar suðursvalir, eldhús með hvítri beykiinnréttingu, flísar milli skápa og borðkrókur við glugga með fallegu útsýni, svefnherbergisgangur, þrjú góð herbergi, öll með skápum, stórt baðherbergi með flísum í hólf og gólf og baðkari með sturtuaðstöðu og ljósri innréttingu með vaski í borði og gott þvottaherbergi. Á stofu, holi og gangi er parket, á herbergjum er nýtt plastpark- et, á baði, þvottaherbergi, anddyri, og hluta af holi og stofu eru flísar. Í sameign er stór geymsla, í kjallara er hjóla- og vagnageymsla. Frábær stað- setning og stutt í alla þjónustu. Verið velkomin í dag milli kl. 17 og 19 Helgi og Dagrún taka á móti gestum. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-19 VEGHÚS 9, 3. HÆÐ www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Í SÍÐUSTU viku var kjörin ný stjórn Heimdallar á fjölmennasta aðalfundi í sögu fé- lagsins, en ríflega eitt þúsund manns tóku þátt. Hart var tekist á eins og eðlilegt er í stóru félagi, sem rúm- ar mikla breidd í skoðunum. Kosningar um fólk eru hluti lýð- ræðisins, þar verða menn að taka sigrum sem ósigrum með jafnaðargeði. Nið- urstaða er fengin og mikilvægt að ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík snúi bökum saman gegn sameiginlegum andstæð- ingum í íslenskum stjórnmálum. Næsta stórverkefnið eru borg- arstjórnarkosningarnar á komandi vori. Áhersla liðins starfsárs var á borgarmál Eitt megináherslusvið þeirrar stjórnar sem stýrði Heimdalli á nýliðnu starfsári var að vinna að málefnum ungs fólks og Reykvík- inga. Þetta var gert með fjölda málefnafunda, aðgerðum til að vekja athygli á hlutum sem betur mættu fara í borginni og ekki síst með góðu samstarfi við hverfafé- lög Sjálfstæðisflokksins, sem eru burðarásar í starfi flokksins, ekki síst í aðdraganda kosninga. Var ánægjulegt að kynn- ast og starfa með þeirri öflugu og vösku grasrót flokks- ins. Borgarstjórnar- kosningar í brennidepli í vetur Nýkjörin stjórn Heimdallar kynnti sínar málefnaáherslur í aðdraganda stjórn- arkjörsins. Þar sagði m.a. að Heimdallur mundi kapp- kosta að styðja Sjálfstæðisflokk- inn í komandi kosningabaráttu í Reykjavík og nýta hana sem tæki- færi til að virkja ungt fólk í Reykjavík til aukinnar stjórn- málaþátttöku. Málefnin eru óþrjótandi. Eitt er að kynna ungu fólki ábyrgðarlausa sóun R-lista- flokkanna á skattfé borgaranna, sem m.a. birtist í skattahækk- unum og skuldasöfnun í einu mesta góðæri Íslandssögunnar. Við leggjum ennfremur áherslu á aukið valfrelsi og valkosti á grunnskólastigi. Borgin nýti krafta sína til að styðja og styrkja framhaldsskóla í borginni, þótt þeir séu formlega á ábyrgð rík- isins. Íþrótta- og tómstundastarf verði eflt í samstafi við frjáls fé- lagasamtök á sem flestum sviðum. Markmið starfsins sé þróun og þroski ungs fólks og allt starf og ráðstöfun fjármuna miði að því. Skólaganga og tómstundastarf leggur ásamt fjölskyldunni grunn að farsæld einstaklinga og hér liggja því ríkir hagsmunir bæði þeirra sjálfra og samfélagsins í heild. Búsetu- og íbúðamál ungs fólks er annað sem sveitarfélag getur haft áhrif á með nægu lóða- framboði og lóðum undir ódýrt leigu- og íbúðarhúsnæði. Þetta eru aðeins nokkur þeirra mála sem við munum láta okkur varða, fleiri verða kynnt á næstunni. Við munum í þeim málaflokkum sem snúa að ungu fólki beita okk- ur fyrir samstarfi alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins og samráði þeirra við fé- lagsmenn í Heimdalli. Ungir sjálf- stæðismenn í framhaldsskólum hafa stofnað samtök sem við vilj- um vinna með. Að loknum kosn- ingum í vor munum við síðan beita okkur fyrir því að auka hlut ungs fólks í nefndum borgarinnar. Viljum samstarf við sem flesta Í starfi Heimdallar á komandi vetri bjóðum við velkomna til samstarfs að borgarmálum alla þá sem telja sig eiga samleið með Sjálfstæðisflokknum. Við munum á komandi mánuðum kynna starf okkar rækilega. Við munum hafa allt okkar starf opið áhugasömu ungu fólki, óháð því hvort það hafi stigið það skref að ganga í Sjálfstæðisflokk- inn. Það kemur vonandi í fram- haldinu. Þátttaka í starfi stjórn- málaflokka er lykilþáttur okkar lýðræðiskerfis. Þátttaka ungs fólks í stjórnmálastarfi leggur grunn að pólitískri þátttöku þess síðar á ævinni. Miklu skiptir því að ungliðahreyfingar stjórn- málaflokka séu sem opnastar, þannig að ungt fólk sem er að leita fyrir sér um vettvang, þróa og móta sínar stjórnmálaskoðanir, eigi þar greiðan aðgang. Þannig höfum við starfað sl. ár í Heimdalli og þannig munum við starfa á komandi starfsári. Heimdallur og málefni Reykjavíkurborgar Bolli Thoroddsen fjallar um málefnaáherslur Heimdallar ’Heimdallur munvirkja ungt fólk í Reykjavík til þátttöku í kosningabaráttu kom- andi vetrar.‘ Bolli Thoroddsen Höfundur er formaður Heimdallar og situr í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma… Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trú- lega aldrei ná þeim greind- arþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.