Morgunblaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 47 MINNINGAR Elsku pabbi minn, ég trúi því varla ennþá að þú sért farinn, þú sem varst mér svo mikið og ég sakna þín svo sárt. Ótal minningar þjóta í gegnum hugann, þú varst svo ynd- isleg sál. Þú studdir mig í gegnum allt súrt og sætt, ég gat alltaf leitað til þín. Þú vildir okkur systkinun- um allt það besta og það tók þig svo sárt þegar við villtumst af leið, en aldrei dæmdir þú okkur. Þú gafst svo mikið af þér, leiddir mig í gegnum erfiðleik- ana. Þú varst klettur- inn í mínu lífi, vissir allt og kunnir allt, duglegasti maður sem ég hef kynnst. Ég er svo þakklát fyrir allar góðu stundirnar, svo þakklát fyrir að þú fékkst að sjá litla drenginn okkar Kjartans áður en þú kvaddir okkur. Fyrir stundirnar sem þú áttir með Aroni, þú varst svo flott- ur afi, svo góður og hlýr. Ég vildi óska að þeir hefðu getað átt með þér lengri tíma. Takk elsku pabbi, fyrir hlýjuna, ástina, skilninginn, vináttuna og góðu ráðin. Ég veit þú ert á góðum stað, Guð blessi þig, þín Guðbjörg. JÓN SÆVAR JÓHANNSSON ✝ Jón Sævar Jó-hannsson fæddist á Akureyri 21. sept- ember 1945. Hann varð bráðkvaddur að morgni 1. september síðastliðins og var út- för hans gerð frá Fossvogskirkju 8. september. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGA KATRÍN GÍSLADÓTTIR, Unufelli 44, Reykjavík, HJÁLMTÝR GUÐMUNDUR HJÁLMTÝSSON, Unufelli 44, Reykjavík verða jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. október kl. 13.00. Sigurjón Magnússon, Brynjar Mikael Mikaelsson, Birkir Rafael Mikaelsson, Hjördís Árnadóttir, Kristinn Ó. T. Jónsson, Tanya Lynn Williamsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Eiríkur Orri Hermannsson, Arthúr Herbert Jónsson, Ingvar Birgir Jónsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Hjálmtýr Valur Hjálmtýsson, Þorgrímur Fannar Hjálmtýsson, Jón Oddur Heiðberg Hjálmtýsson, Tinna Ýr Tryggvadóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir, Jón Gunnar Einarsson, Kristinn Andri Hjálmtýsson og barnabörn þeirra. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BIRGIR DAVÍÐSSON, Skipasundi 61, Reykjavík, er lést laugardaginn 1. október, verður jarðsung- inn frá Langholtskirkju mánudaginn 10. október kl. 15:00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Barna- spítala Hringsins. Inga Jónsdóttir, Selma - Gunnar Heimir, Sigurjón - Sigríður María, María - Ásmundur og litlu afabörnin. Systir mín, ÁSRÚN EINARSDÓTTIR, áður til heimilis á Grenimel 32, andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum sunnudaginn 2. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd systkina og annarra aðstandenda, Margrét S. Einarsdóttir. Móðir mín, tengdamóðir, amma okkar, systir og mágkona, HJÖRDÍS EINARSDÓTTIR BEHEN, áður Chantilly, Virginíu, lést á sjúkrahúsi í Virginia Beach miðvikudaginn 5. október. Kristín Una Lineberry, David Lineberry, Kyle Thomas, Alexander Michael, Dagbjört Einarsdóttir, Hallveig Einarsdóttir, Halldóra Sæmundsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEIRMUNDUR SIGURÐSSON, Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 6. október. Fanney Ófeigsdóttir, Ófeigur Geirmundsson, Anna Margrét Ögmundsdóttir, Baldur Geirmundsson, Anne B. Hansen, Birna Geirmundsdóttir, Ólafur Þ. Bjarnason, Sigurður Geirmundsson, Hrafnhildur Helgadóttir, Sverrir Geirmundsson, Arndís Sveina Jósefsdóttir, Geirmundur Geirmundsson, Jóna Stefánsdóttir, Haukur Geirmundsson, Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, HARÐAR ÁGÚSTSSONAR listmálara, Grænuhlíð 12. Sigríður Magnúsdóttir, Gunnar Ágúst Harðarson, Guðbjörg Benjamínsdóttir, Steinunn Harðardóttir, Magnús Ólafsson, Guðrún Harðardóttir, Árni Svanur Daníelsson Erla Ágústsdóttir Jóhann Ágústsson og fjölskylda . Helluhrauni 10, 220 Hf., sími 565 2566, www.englasteinar.is Englasteinar Fallegir legsteinar á góðu verði Í dag kveð ég elskulega mágkonu mína með innilegu þakklæti fyrir það sem hún var mér. Mér þótti vænt um hana eins og hún væri systir mín. Við Björg þekktumst áður en ég giftist bróður hennar. Þegar ég missti manninn minn þá veittist mér hugg- un og styrkur að eiga Björgu að, þessa trúuðu og góðu konu. Við átt- um margar yndislegar stundir sam- an þar sem við töluðum um okkar sameiginlegu áhugamál. Björg var mikil húsmóðir og átti fallegt heimili. Mér er efst í huga á þessari stundu þakklæti til Bjargar og Sigurgeirs sem alltaf tóku svo vel á móti mér og börnunum mínum þegar við komum í heimsókn á Boðaslóðina. Mín vina kær ég kveð þig nú í anda með klökkum huga þakka ást og tryggð. Þú horfin ert til sælli sólarstranda og sérð ei framar þjáning eða hryggð. (G.S.Þ.) Ég færi ykkur Elínu, Kristjáni, Yngva, Guðbjörgu og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur og blessa. Guðbjörg S. Sigurjónsdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikindaviðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir, og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Pétur. BJÖRG ÁGÚSTA ÁGÚSTS- DÓTTIR ✝ Björg Ágústa Ágústsdóttirfæddist í Vestmannaeyjum 18. ágúst 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 30. september síð- astliðinn og var jarðsungin frá Landakirkju 8. október. Vegna mistaka í vinnslu eru tvær minningargreinar um Björgu Ágústu endurbirtar hér á eftir. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.