Morgunblaðið - 09.10.2005, Page 62

Morgunblaðið - 09.10.2005, Page 62
62 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Sýnd kl. 2 og 4 ísl.tal RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRA- VEN LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA. Topp5.is Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA. Sími 564 0000í i Miða sala opn ar kl. 13.30i l l. . kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.40 Sýnd kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14 ára Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXXF LEI F E F I Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Göldrótt gamanmynd! Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Skemmtileg ævintýra- mynd með íslensku tali. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX Sýnd kl. 2, 4 og 6  S.V. / MBL  S.V. / MBL HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA. Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA. Topp5.is  S.V. / MBL Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 2 og 4 í þrívíddSýnd kl. 2, 4 og 6 TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2 og 4 ísl.tal 450 kr. Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. Ein helsta hljómsveit í spuna-og óhljóðatónlist vestanhafs síðasta áratuginn ertríó þeirra Jack Rose, Mike Gangloff og Patrick Best sem þeir kalla Pelt. Liðsmenn Pelt hafa ekki bara rutt brautir innan hennar. Því þeir hafa líka verið iðnir við að taka upp tónlist með öðrum listamönnum eða einir. Mestu hefur Jack Rose af- kastað á því sviði og fyrir stuttu kom út með honum platan Kens- ington Blues. Sammannleg stef Eins og heyra má á plötum Pelt tóku þeir félagar smám saman að fella inn í tónlistina áhrif frá fyrri tímum, kassagítarblús og ragtime í bland við indverska tónlist og sýndu þannig fram á sammannleg stef í hvoru tveggja þó líkindin virðist ekki mikil við fyrstu hlustun. Rose langaði að fara lengra í þá átt og fór að halda sólótónleika þar sem hann lék gamla ragtime slagara í bland við nýja og sendi svo frá sér fyrsta diskinn með slíkri tónlist 2001, plöt- una Hung Far Low, Portland, Oregon sem hann framleiddi sjálfur og seldi á tónleikum, en á þeirri plötu var meðal annars blúsinn gamli Nobody’s Business sem Mississippi John Hurt tók fyrst upp 1928. Næsta útgáfa Rose var síðan vínylskífan Red Horse, White Mule sem gefin var út í 318 eintökum. Á A-hlið plötunnar er aðeins eitt lag, Red Horse, en B-hliðin hefst með öðrum gömlum blús, Dark was the Night (Cold was the Ground), sem Blind Willie Johnson tók upp á sín- um tíma. Til gamans má geta þess að því lagi bregður fyrir í Paris, Texas, enda heldur gítarleikarinn snjalli Ryland Cooder mjög upp á það og hefur meðal annars sagt það oftar en einu sinni að gítarleikur Johnsons í því sé besti slide- gítarleikur sem upp hafi verið tek- inn. Ólíkt Cooder er Rose ekki að reyna að spila lagið sem líkast John- son heldur leitast hann við að sýna á því nýjar hliða, finna í því nýjan sannleik. Þessa fyrstu eiginlegu plötu Rose hafa sumir kallað Takoma-plötu hans, og vísa þá í samnefnt útgáfufyrirtæki sem John Fahey stofnaði fyrir löngu, enda þóttu tök Rose á tónlistinni minna á það sem Fahey gerði best. Rannsóknir á ragtime John Fahey, sem lést fyrir átta árum, var merkilegur karl, batt bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamennirnir, átti reyndar sjaldnast samleið með nokkrum manni – fór eigin leiðir í tónlist alla tíð. Hann sökkti sér ofan í tónlist frumherja í blúsgítarleik þriðja, fjórða og fimmta áratugarins og til- einkaði sér svo stílinn að hann samdi lög í þeim anda að því er virt- ist áreynslulaust. Lengst af var Fahey einskipa, átti sér fáa fylg- ismenn og enga lærisveina en með tímanum tóku menn að átta sig á hvurslags snillingur hann var og er hann féll frá þrotinn að kröftum voru nokkrir þegar farnir að feta sömu braut, þar á meðal sumir af yngri kynslóð; Steffan Basho- Junghans, Glenn Jones, Richard Bishop, Ben Chasney og nú Jack Rose. Eftir að hafa spáð eilítið í slide- gítar- og plokkblús lagðist Rose í rannsóknir á ragtime. Líkt og tíðk- ast hefur með gítarhetjur fyrri tíma segir sagan að hann hafi hitt dul- arfullan ragtime-fræðing, Dr. Chattanooga Red, sem hafi lagt hendur á höfuð honum, eins og til að leggja yfir hann anda sinn, og gefið upp öndina að því loknu. Í framhald- inu sendi Rose síðan frá sér heima- brenndan disk í takmörkuðu upplagi undir nafninu Dr. Ragtime, rétt til að fylgja þeim fyrirmælum meist- arans að miða ragtime inn í nýja öld. Hylling ragtime-tónlistar Hvað þessari ágætu sögu líður var næsta plata Rose, Opium Musick, mikil hylling ragtime- tónlistar, þó ekki væri alltaf verið að spila samkvæmt hefðinni. Í tveimur laganna spilar hann til að mynda á gítar sem hann leggur í kjöltu sér og úr verður býsna raga- legt lag, Yaman Blues, en tampura- leikur ýtir óneitanlega nokkuð undir Vegvísar til framandi staða Gítarleikarinn snjalli Jack Rose hefur rutt óhljóða- list og spuna nýjar brautir í Pelt. Hann hefur líka verið brautryðjandi einn síns liðs eins og heyra má á sólóskífum hans. Tónlist á sunnudegi Árni MatthíassonSprengjuhótun varð til þess aðgera varð hlé á tónleikum hljómsveitarinnar Rolling Stones í Charlottesville í Virgínu-ríki í Bandaríkjunum í vikunni, að því er fréttastofa Reuters skýrði frá. Lög- reglan fann hins vegar ekkert og sveitin gat stigið aftur á svið um 45 mínútum eftir að hótunin barst, að því er yfirvöld sögðu í dag. Hótunin barst símleiðis rétt fyrir klukkan 21 að staðartíma. Var svæð- ið í kringum tónleikasviðið nefnt sér- staklega í hótuninni, en tónleikarnir fóru fram á Scott-vellinum við Virg- iníuháskóla. Um 50.000 aðdáendur Stones voru mættir til tón- leikanna, að sögn Carol Wood, tals- konu skólans. „Mick Jagger var gert viðvart og hann tilkynnti að sveitin ætlaði að taka sér 10 mínútna langt hlé,“ sagði Wood. Hljómsveitin fór af sviðinu og lög- reglumenn með leitarhunda, sem voru á vellinum vegna tónleikanna, rannsökuðu svæðið. Þegar í ljós kom að engin sprengja var á staðnum fór hljómsveitin aftur á svið og lék fram yfir miðnætti. Rolling Stones hafa verið á tón- leikaferðalagi í Bandaríkjunum frá því í ágúst. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.