Morgunblaðið - 09.10.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.10.2005, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Á skrifstofu þingflokks Vinstrigrænna við Vonarstræti í Reykja-vík situr Svandís Svavarsdóttir,framkvæmdastjóri flokksins ognýkjörinn leiðtogi framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík til borgarstjórn- arkosninga næsta vor. Hún er nýmætt til vinnu, gangandi úr Vesturbænum, og þrátt fyrir að hún hafi greinilega nóg að gera er hún afslöppuð og talar rólega. Þegar Svandís er beðin að segja frá sjálfri sér horfir hún út um gluggann og hugsar sig aðeins um áður en hún byrjar. „Ég held að oft þegar kona er spurð hver hún sé byrji hún að skilgreina sig út frá börn- unum sínum. Ég byrja að segja að ég er fjög- urra barna móðir. Það tengist sjálfsmyndinni einhvern veginn svo mikið.“ Svandís er mennt- uð sem málfræðingur og hefur starfað í rúman áratug á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og í Háskóla Íslands, m.a. að rannsóknum og þróun á námi í íslensku táknmáli og táknmálstúlkun. Hún segir þau störf hafa verið einstaklega lær- dómsrík og þá ekki síst að kynnast málsamfé- lagi heyrnarlausra sem er beint fyrir framan á nefið á okkur án þess að við veitum því athygli. En áttu þá ættingja eða eitthvað slíkt sem eru heyrnarlausir? „Nei, ég kom inn í þetta umhverfi af áhuga á málinu fyrst og fremst en ekki á samfélaginu. Táknmálið er allt annars eðlis en íslenska og mér þótti það spennandi. Eftir því sem ég komst meira inn í þennan geira varð ég heill- aðri af félagslegri stöðu tungumála. T.d. hvern- ig sjálfsmynd og upplifun einstaklingsins mót- ast af tungumálinu,“ segir Svandís og bætir við að táknmál sé ekki viðurkennt tungumál. „En ef maður viðurkennir ekki tungumál mann- eskju viðurkennir maður ekki manneskjuna sjálfa. Heyrnarlausir hafa háð þrotlausa bar- áttu fyrir réttindum sínum og hafa þurft að beita samstöðu og miklu þreki til að ná ár- angri.“ Svandís segir að heyrnarlausir séu minni- hlutahópur sem er sviptur möguleikanum á að hafa vald yfir eigin örlögum. „Kannski er það hlutverk stjórnmálamanna að skapa skilyrði fyrir alla til þess að hafa áhrif á eigin örlög. Þá er ég að tala um gamalkunnugt hugtak eins og frelsi einstaklingsins. Það verður að vera raun- verulegt og innbyggt í samfélagið en ekki eitt- hvað sem maður kaupir. Ég vil beina sjónum að þeim hópum sem hafa ekki vald.“ Geturðu nefnt dæmi um fleiri hópa sem ekki hafa þessi völd? „Já, konur hafa t.d. ekki sömu völd og karlar í samfélaginu. Við sjáum að það er þörf á sér- tækum aðgerðum til að breyta því hrikalega misrétti sem konur búa við, þó ekki sé nema bara tekið dæmi um mælanlega stærð eins og kynbundinn launamun. Hvað borgina varðar bitna slök kjör starfsmanna hennar ekki síst á konum, sérstaklega kjörum ófaglærðra starfs- manna við umönnunar- og uppeldisstörf,“ bendir Svandís á. „Börn eru líka hópur sem hefur ekki vald yfir eigin örlögum og þess vegna þurfa þau að eiga samfélagið að. Svo má nefna öryrkja og ellilífeyrisþega sem verða hvað verst úti í markaðshyggjusamfélaginu, samfélagi þar sem þú kaupir þér lífsgæði en átt ekki endilega rétt á þeim,“ segir Svandís og bætir við að stöðu innflytjenda megi líkja við stöðu heyrnarlausra. Þar sé sama baráttan um að fá móðurmálskennslu og túlkaþjónustu. „Ég er samt ekki talsmaður miðstýringar eða mik- illa afskipta hins opinbera af einstaklingum en ég er talsmaður þess að stofnanir samfélagsins axli ábyrgð á því að búa til samfélag þar sem allir eiga möguleika á reisn. Það gerum við með því að innheimta skatta og tryggja þannig fjöl- breytt lífsskilyrði fyrir alla.“ Lífið er pólitík Hvenær fórst þú að taka þátt í pólitík? „Það er erfitt að segja það. Fyrir mér er lífið pólitík. Ég veit ekki hvernig er hægt að vera með pólitískar skoðanir sem eru ekki nátengd- ar lífsskoðunum manns. Í mínum huga eru allir í pólitík á hverjum degi. Við erum í pólitík þeg- ar við veljum hvort við notum einkabíl eða al- menningsvagn, þegar við veljum hvort við kaupum lífrænar eða ólífrænar vörur og þegar við tökum þátt í foreldrastarfi í grunnskólun- um. Mér finnst ég beita sömu hugmyndafræði og nálgun þegar ég ræði við börnin mín og vini mína eins og þegar ég er að takast á við pólitísk viðfangsefni.“ Þú hlýtur að vera alin upp á pólitísku heimili þar sem faðir þinn, Svavar Gestsson, var stjórnmálamaður. Hvernig horfði það við þér þegar þú varst barn? „Við pabbi töluðum mikið saman frá því ég man eftir mér um allt milli himins og jarðar og smám saman meira um pólitík. Mamma mín, Jónína Benediktsdóttir, var líka mjög pólitísk og sannfærður sósíalisti. En ég man þegar pabbi varð á einum degi þingmaður og ráð- herra og ég 14 ára. Mér fannst það ekkert skemmtilegt þegar hann varð skyndilega þessi opinbera fígúra. Það hitti mig illa fyrir á þeim aldri sem ég var þá. Mér fannst hallærislegt að hann skyldi allt í einu þurfa að kaupa sér jakkaföt og aka um á ráðherrabíl,“ segir Svan- dís brosandi. „Auðvitað var hann mikið að heiman og oft á fundum. Pabbi er einn af mín- um bestu vinum enda hefur mér alltaf þótt hann einstaklega skemmtilegur maður.“ Hvernig líst börnunum þínum á að nafnið þitt sé orðið áberandi í stjórnmálaumræðunni? „Þau eru auðvitað á mismunandi aldri, frá fimm ára til 21 árs. Ég held að sú yngsta sé ekki mjög upptekin af þessu. Henni finnst nátt- úrlega gaman að sjá fólk sem hún þekkir í blöð- unum. Það finnst manni þegar maður er fimm ára. Að öðru leyti standa þau með mér, sér- staklega stóru börnin, eins og ég stend með þeim í því sem þau eru að gera.“ En maðurinn þinn, Torfi Hjartarson? „Ég verð alltaf svo væmin þegar ég tala um hann,“ segir Svandís og brosir. „Hann stendur með mér þegar ég er að vaxa og þroskast og bæta við mig. Hann ræður mér heilt og er frá- bær bandamaður, bæði málefnalega og sem vinur og félagi,“ segir Svandís og bætir við að hún hafi einstaklega sterkt bakland. „Það er kannski ekki vélin sem ræsir allt upp en það er rafgeymirinn.“ Snúum okkur aftur að stjórnmálunum, hef- urðu áður verið á framboðslista Vinstri grænna? „Já, ég var á lista fyrir þingkosningarnar 2003, í sæti forsætisráðherraefnisins, fimm- tánda sæti,“ segir Svandís hlæjandi. „Annars hef ég alltaf verið mjög upptekin af grasrótinni og tengslum hennar við fulltrúana. Það hefur verið mitt aðalviðfangsefni undanfarin tvö ár sem formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna að finna leiðir frá baklandinu í kjörna fulltrúa. Tilhneigingin í félagsstarfi hefur verið sú að láta hlutina reka á reiðanum en svo kem- ur krísa og þá er haldinn fundur. Fólk passar ekki nógu vel upp á að hafa samráð þótt það sé sammála,“ útskýrir Svandís. Nú er VG kannski frekar lítill flokkur, en er hann í sókn? „Ég held því fram að VG sé 25% flokkur, þ.e.a.s. í sínum málefnum og sinni tilhöfðun úti í samfélaginu. Ég held að allir hafi heyrt fólk segjast vera vinstri grænt í hjartanu en svo kýs fólk stundum öðruvísi af einhverjum tæknileg- um ástæðum. Það er okkar verkefni að ná í þetta fylgi,“ segir Svandís. Vindum okkur að borgarmálunum, er eitt- hvað sérstakt sem þú ætlar að beita þér fyrir ef þú kemst í borgarstjórn? „Það eru tveir höfuðmálaflokkar þar sem við greinum okkur sérstaklega frá öðrum flokk- um. Annars vegar erum við eini skýri kost- urinn fyrir umhverfissinna og hins vegar eini skýri kosturinn fyrir kvenfrelsissinna. Hvað þetta varðar erum við ekki flokkur tækifær- islausna og uppákoma. Við erum sjálfum okkur samkvæm, allt frá stefnuskránni og yfir í úr- lausnarefni frá degi til dags.“ Erum við aftarlega á merinni hvað umhverf- ismál varðar? „Já, ég get varla ímyndað mér að Reykvík- ingar monti sig af því á alþjóðavettvangi að vera með mestu bílaeigendum í heimi,“ segir Svandís og bætir við að umtalsverð loftmengun sé í Reykjavík við ákveðin skilyrði. „Mér finnst við verða að stíga róttæk skref til að sporna gegn því. Almenningssamgöngur og reiðhjóla- leiðir þurfa að vera raunverulegur valkostur en ekki eitthvað sem maður gerir af því að maður hefur ekki efni á að eiga bíl. Það á að vera betra að skilja bílinn eftir heima.“ Nú standa menntamálin og börnin í borginni þér eflaust frekar nærri, eru einhverjar sér- stakar breytingar sem þú vilt sjá þar? „Ég er búin að vera með barn í grunnskóla síðan 1990 og verð með barn í grunnskóla til ársins 2016. Fyrsta barnið mitt byrjaði í leik- skóla þegar leikskóli var félagslegt úrræði fyr- ir háskólanema og einstæða foreldra,“ bendir Svandís á og segist hafa upplifað byltinguna í leikskólamálum á eigin skinni. „Þetta hefur áhrif á allar fjölskyldur í borginni meira eða minna. Það er auðvitað stórkostlegt að nú sé það komið í farveg að leggja af gjaldtöku á leik- skólastiginu. Leikskólinn er viðurkenndur sem fyrsta skólastigið í plöggum yfirvalda en þegar kemur að því að umgangast hann sem slíkan er það ekki alltaf raunin. Það loðir við að fólki finnst menntun ekki byrja fyrr en maður tekur upp bók.“ Handbækur í uppáhaldi En aðeins aftur að sjálfri þér, áttu þér ein- hver sérstök áhugamál? „Fyrst og fremst hef ég ofsalega gaman af fólki. Ég á mikið af góðum vinum á öllum aldri og það er mér mjög mikilvægt. Ég held að ég hafi það kannski frá móðurömmu minni að hafa einstaklega gaman af ungu fólki. Ég man eftir því að hún var orðin svo skökk í mjöðminni að hún var farin að ganga við göngugrind þegar við keyrðum framhjá Ingólfstorgi og hún sagði: „Ef ég væri ekki orðin svona stirð þá væri nú gaman að prófa hjólabretti.“ Hún hef- ur kannski verið mér fyrirmynd í því að taka ungu fólki af fordómaleysi.“ Svandís hefur líka sérlega gaman af tónlist enda er siður í hennar fjölskyldu að spila og syngja þegar fólk kemur saman. „Mér þykir líka skemmtilegt að lesa og les mjög mikið af fánýtum hlutum. Ég er ekki mjög spennt fyrir skáldsögum en ég get gleymt mér í handbók veiðimannsins af ein- skærri forvitni. Handbækur, ljóðabækur og matreiðslubækur eru í uppáhaldi hjá mér, bækur sem er hægt að grípa inn í en hafa ekki endilega upphaf og endi,“ segir Svandís og bætir við að hinum megin í hjónarúminu sé öllu menningarlegri stemning. Nú verður þú væntanlega mikið í sviðsljós- inu í komandi kosningabaráttu, hvernig leggst það í þig? „Ég er ekki mikið fyrir sviðsljósið en ég tekst á við það eins og annað. Mér líður miklu betur sem strái í grasrótinni. Það var afskap- lega mikil kúvending fyrir mig að fara úr mál- efnum heyrnarlausra og yfir í stöðu fram- kvæmdastjóra flokks og þingflokks VG. Það má eiginlega segja að með því að koma hérna inn sé ég orðin lengsta stráið í grasrótinni,“ segir Svandís brosandi. „Ég veit að stjórnmál snúast að miklu leyti um fólk og það er mitt hlutverk að flytja stefnumál VG til fólks.“ Lengsta stráið í grasrótinni Svandís Svavarsdóttir var um síð- ustu helgi kjörin í fyrsta sæti fram- boðslista Vinstri grænna í Reykja- vík. Halla Gunnarsdóttir hitti þessa kröftugu konu að máli og komst að því að henni líður best í grasrót- arhreyfingum og hefur einstaklega gaman af hvers kyns uppflettiritum. Morgunblaðið/Kristinn Svandís Svavarsdóttir: „Fyrir mér er lífið pólitík. Ég veit ekki hvernig er hægt að vera með pólitískar skoðanir sem eru ekki nátengdar lífsskoðunum manns.“ halla@mbl.is ’Ég held að allir hafi heyrtfólk segjast vera vinstri grænt í hjartanu en svo kýs fólk stundum öðruvísi af einhverjum tæknilegum ástæðum. Það er okkar verkefni að ná í þetta fylgi.‘ ’Í mínum huga eru allir ípólitík á hverjum degi. Við erum í pólitík þegar við veljum hvort við notum einkabíl eða almennings- vagn, þegar við veljum hvort við kaupum lífrænar eða ólífrænar vörur og þegar við tökum þátt í for- eldrastarfi í grunnskól- unum.‘
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.